Viðskipti innlent

Kaupsamningum í borginni fjölgar um helming milli vikna

Fasteignakaupsamningum á höfuðborgarsvæðinu fjölgar mikið milli vikna eða um nærri helming.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu 20. júní til og með 26.júní var 62 samkvæmt Fasteignamati ríkisins. Aðeins 33 kaupsamningum var þinglýst í vikunni þar á undan og 47 samningum á tímabilinu frá 6. til og með 12. júní.

Greining Kaupþings fjallar um málið í Hálf fimm fréttum sínum. Þar segir að kaupsamningum fjölgi einnig á Akureyri þar sem tólf samningum var þinglýst á tímabilinu samanborið við sex samninga í vikunni þar á undan. Fjöldi þinglýstra kaupsamninga stendur hins vegar í stað á Árborgarsvæðinu milli vikna.

Þrátt fyrir mikla fjölgun samninga fer því þó fjarri að tölur vikunnar beri vott um mikið líf á annars ísköldum fasteignamarkaði. Til samanburðar var fjöldi þinglýstra kaupsamninga 249 á sama tímabili í fyrra og komast því tölur síðustu viku ekki á hálfkvisti við umfang fasteignamarkaðsins þá.

Heildarveltan í síðustu viku var 2.296 milljónir kr. sem er aðeins tæpur þriðjungur af veltu á sama tímabili í fyrra.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×