Viðskipti innlent

Álútflutningur mildar högg af háu eldsneytisverði

MYND/GVA

Greiningardeild Glitnis segir að höggið af háu innflutningverði á eldsneyti sé mildað af áhrifum hás orkuverðs á útflutningstekjur á áli. Þetta kemur fram í Morgunkorni dagsins þar sem fjallað er um minnkandi vöruskiptahalla.

Samkvæmt tölum Hagstofunnar reyndist hann aðeins hálfur milljarður í maí sem er minnsti halli á einum mánuði það sem af er ári. Greiningardeild Glitnis segir að stóraukin álframleiðsla endurspeglist loks í útflutningstekjum en verðmæti álútflutnings nam tæpum 18 milljörðum í maí. Þetta er annar mánuður þessa árs þar sem álið skilar meiri gjaldeyristekjum en sjávarútvegurinn.

„Miðað við framleiðslugetu og heimsmarkaðsverð á áli er líklegt að verðmæti álútflutnings það sem eftir lifir árs verði á líkum nótum og í maí. Útlit er fyrir að verð á áli haldist hátt, m.a. vegna hækkandi orkuverðs. Þar sem álvinnsla hér á landi er í raun leið okkar til að flytja út óbeint okkar endurnýjanlegu orku má segja að höggið af háu innflutningsverði eldsneytis sé þannig mildað af áhrifum hás orkuverðs á útflutningstekjur af áli," segir í Morgunkorninu.

Þá bendir greiningardeildin á að innlend eftirspurn dagist mikið saman samkvæmt tölum Hagstofunnar. Þannig hafi um 40 prósenta samdráttur orðið í innflutningi einkabifreiða frá árinu áður, reiknað á föstu gengi, og verulegur samdráttur hafi einnig orðið í innflutningi varanlegra neysluvara milli ára, sem og í innfluttum fjárfestingarvörum. „Á móti kemur að verðmæti innfluttrar mat- og drykkjarvara jókst um ríflega fjórðung á milli ára á föstu gengi, og svipuð aukning varð á innflutningsverðmæti eldsneytis. Hér vegur þungt mikil hækkun hrávöru- og orkuverðs á alþjóðamörkuðum," segir í Morgunkorninu.

Þá segir bankinn að vatnaskil séu að verða í viðskiptum með vöru og þjónustu við útlönd og að tímar mikils halla á slíkum viðskiptum séu nú að baki í bili. Þar leggist á eitt stóraukin framleiðslugeta álvera, hátt verð okkar helstu útflutningsvara á alþjóðamörkuðum og snarpur samdráttur í innlendri eftirspurn vegna versnandi efnahagshorfa ásamt gengisþróun sem að öðru jöfnu ætti að bæta samkeppnisstöðu útflutningsgreina og draga úr eftirspurn eftir innfluttum vörum og þjónustu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×