Viðskipti innlent

Úrvalsvísitalan áfram á niðurleið

Úrvalsvísitalan heldur áfram að lækka og nú í morgun hefur hún lækkað um rúm prósent. Stendur vísitalan nú í 4.372 stigum.

Kaupþing hefur lækkað mest í morgun, eða um 1,68 prósent, en þar á eftir koma Exista sem hefur lækkað um 1,44 prósent og Century Aluminum Company um 1,11 prósent.

Þrjú félög hafa hækkað í morgun, 365 hf. um 4,42 prósent og Alfesca og Föroya Banki um 0,69 prósent.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×