Íslandsbanki enn í skotlínu 3. október 2004 00:01
September er grimmastur mánaða þegar völlur stórviðskipta er annars vegar. Viðskiptalífið kemur undan ró sumarsins og hafist er handa þar sem frá var horfið. Kaup Straums á fimmtán prósenta hlut í Íslandsbanka eru framhald uppstokkunar sem varð á íslensku viðskiptalífi fyrir ári. Samhliða þeim viðskiptum eignuðust félög undir yfirráðum Björgólfsfeðga fjórðungshlut í Straumi. Eftir þessi viðskipti eru Björgólfsfeðgar með ítök eða yfirráð í fimm af tíu verðmætustu fyrirtækjunum í Kauphöll Íslands. Markaðsvirði þessara fyrirtækja er um 500 milljarða virði. Viðskipti vikunnar gerðu boð á undan sér. Vitað var að innan bankaráðs Íslandsbanka var ágreiningur um stefnu og framtíðarsýn. Innan bankaráðsins hafa að minnsta kosti þrír bankaráðsmenn, leynt og ljóst, viljað fara aðrar leiðir en forstjóri bankans. Þessi hópur er undir forystu Víglundar Þorsteinssonar, fulltrúa Lífeyrissjóðs Verslunarmanna í bankaráðinu. Sala bréfa Íslandsbanka til Straums og innkoma Björgólfsfeðga sem kjölfestufjárfestar í Straumi var með vitund og vilja þessa hóps. Jafnvel má leiða líkur að því að hópurinn hafi haft frumkvæði að viðskiptunum. Haldið leyndu Einari Sveinssyni, formanni bankaráðs Íslandsbanka, og Bjarna Ármannssyni, forstjóra bankans, var haldið utan við þessi viðskipti og þeir fréttu ekki af þeim fyrr en þau voru um garð gengin. Ritstjóri Morgunblaðsins var látinn vita samdægurs að viðskiptin væru á lokastigi. Aðrir bankaráðsmenn en þeir sem komu að viðskiptunum annað hvort beint eða að undirbúningi þeirra vissu ekki um undirbúning þeirra. Viðskipti með jafn stóran hlut í Íslandsbanka án vitundar forstjóra og formanns bankaráðs benda ekki til mikillar einingar við stjórn bankans. Óhjákvæmilegt verður að telja að til einhvers konar uppgjörs muni koma í hluthafahópnum. Kristinn Björnsson, fyrrverandi forstjóri Skeljungs, og Magnús Kristinsson, útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, eru stórir hluthafar í Straumi. Kristinn og Víglundur Þorsteinsson eru gamlir félagar og ekki óvarlegt að álykta að sá vinskapur hafi ráðið nokkru um atburðarás vikunnar. Kristinn Björnsson og Einar Sveinsson eru fyrrverandi samherjar í fyrirtækjablokk sem kennd var við Kolkrabbann. Kristinn hefur komið sér þægilega fyrir í hluthafahópi Straums og hagnast vel á viðskiptum undanfarna mánuði. Straumsmenn hafa verið harðir á því að hleypa ekki öðrum sjónarmiðum að ákvörðunum en þeim sem lúta að viðskiptahagsmunum. Þannig mun það hafa komið kaupsýslumönnum í innsta hring Sjálfstæðisflokksins á óvart þegar Straumur neitaði að taka þátt í kaupum Símans á enska boltanum. Gert hafði verið ráð fyrir því að Straumur, Tryggingamiðstöðin og VÍS myndu taka þátt í viðskiptunum. Áhuginn reyndist lítill og talsverður titringur varð vegna neitunar Straums. Forsvarsmenn Straums vilja ekki snúa aftur til þeirra tíma þar sem pólitísk stjónarmið ríða baggamuninn í viðskiptum. Síminn í myndinni Straumur varð upphaflega til sem sjóður inni í Íslandsbanka. Bjarni Ármannsson réð gamlan félaga sinn af Skaganum, Þórð Má Jóhannesson, til að stýra sjóðnum. Saman náðu þeir félagar að láta sjóðinn vaxa hratt og Straumur skilaði Íslandsbanka miklum hagnaði. Nú er eggið farið að kenna hænunni og Straumur orðinn stærsti einstaki hluthafinn í Íslandsbanka. Hreyfiafl þessara vendinga er krafa um frekari hagræðingu í fjármálakerfinu. Hins vegar eru hugmyndirnar um framhaldið mismunandi eftir því hvar niður er borið. Úr herbúðum Björgólfs Thors er litið svo á að komin sé upp staða sem menn geta unað við um sinn. Önnur verkefni bíði úrlausnar. Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna og Síminn eru þar efst á blaði. Straumur hefur haft í hyggju að vera gerandi í einkavæðingu Símans. Björgólfsfeðgar hafa fengið þau skilaboð frá forystu stjórnarflokkanna að nóg sé komið. Þeir séu ekki æskilegir sem leiðandi fjárfestar í Símanum. Með kjölfestueign í Straumi verður erfitt að halda þeim algjörlega utan við einkavæðingu Símans. Björgólfur Thor hefur fjárfest í erlendum símafyrirtækjum. Hann lítur svo á að með erlendum eignum og samböndum haldi hann á lyklunum að útrás Símans. Honum nægja því ítök í hópi þeirra fjárfesta sem muni kaupa Símann. Síminn mun koma til hans, hvernig sem fer. Straumur hefur átt samstarf við Björgólf Thor í erlendum fjárfestingum og með atkvæðavægi Björgólfs í Straumi má búast við að slíkt samstarf aukist enn. Þrátt fyrir að þetta séu áherslur Björgólfsfeðga í bili er jafn ljóst að þeir sjá til lengri tíma frekari uppstokkun í fjármálakerfinu með frekari bankasamruna. Sameining banka Bæði innan stjórnar Straums og Íslandsbanka eru uppi hugmyndir um sameiningar á bankamarkaði. Fyrsta val í augnablikinu er sameining Straums og Íslandsbanka. Til lengri tíma sjá menn einnig fyrir sér sameiningu Landsbankans og Íslandsbanka. Jón Þórisson, aðstoðarforstjóri Íslandsbanka, tjáði sig um hagræðingarmöguleika á bankamarkaði í viðtali við Fréttablaðið. Þar sagði hann að hluthafar bankans hlytu að hugleiða sameiningu Landsbankans og Íslandsbanka og benti einnig á hagræði af sameiningu Straums og Íslandsbanka. Einar Sveinsson, formaður bankaráðsins, taldi ummælin oftúlkun fjölmiðlafólks. Í ljósi hræringa síðustu viku er ljóst að Jón talaði þar með velþóknun og fyrir munn bankaráðsmannanna Víglundar Þorsteinssonar, Helga Magnússonar og Orra Vigfússonar. Hlutur Orra og Helga er nú kominn í hendur Straums. Þótt valdahlutföll hafi ekki við það breyst í prósentum, þá er staðan töluvert önnur. Straumur hefur afl til þess að auka hlut sinn ef á þarf að halda og nokkrir stórir hluthafar Íslandsbanka eru samkvæmt heimildum tilbúnir að selja Straumi hlut ef á þarf að halda. Víglundur og hans menn eru því með töglin og hagldirnar eins og staðan er núna. Sameining Íslandsbanka og Straums myndi þýða að Karl Wernersson og fjölskylda og eigendur Landsbankans yrðu stærstir í hluthafahópnum. Lífeyrissjóðir myndu halda núverandi stöðu og Kristinn Björnsson og Magnús Kristinsson yrðu einnig nokkuð stórir. Sameinaður Straumur og Íslandsbanki yrði því í nokkuð dreifðri eign. Einn af drifkröftum þessarar sýnar Víglundar og hans manna í bankaráðinu er stærð KB banka. Friður hefur ríkt um stjórn KB banka, þrátt fyrir að afar ólíkir stórir hluthafar komi að stjórn bankans. Stærð KB banka gefur honum samkeppnisforskot á markaði sem hinir verða að bregðast við. Vaxandi kröfur Úti á markaðnum eru skiptar skoðanir um þessar hræringar. Bent er á að ýmislegt í meðferð hlutabréfanna í Íslandsbanka sem Straumur hafi nú eignast orki tvímælis eða sé í besta falli klaufalegt. Umræðan um Björgólfsfeðga hefur líka þyngst. Fyrir ári höfðu fáir samúð með vörn Kolkrabbans gegn sókn Björgólfsfeðga. Nú heyrast fleiri raddir sem telja þá fara of geyst. Völd þeirra í viðskiptalífinu eru ótvíræð og kröfur á hvernig þeir beita því hafa aukist. Líklegt er að þeir séu meðvitaðir um stöðuna og hyggi á rólegri tíma innanlands á næstunni. Erlend verkefni verða því líklega í brennidepli næstu mánuði. Hlutabréf þeirra félaga sem Björgólfsfeðgar hafa komið að hafa hækkað mikið. Í mörgum tilvikum tókst þeim að ná meiri verðmætum út úr eignum en flestir bjuggust við. Hitt er einnig ljóst að miklar væntingar eru í verðlagi þeirra fyrirtækja sem þeir hafa nú náð tökum á. Burðarás, Straumur, Íslandsbanki og Landsbankinn eru verðlagðir á markaði þannig að miklar kröfur verða gerðar til framtíðarárangurs. Kennitölur sem mæla verðhlutföll sjóða og banka eru hér á landi mun hærri en gerist og gengur í löndum í kringum okkur. Þessi fyrirtæki verða að ná betri árangri en sambærileg erlend fyrirtæki eða munu lækka að öðrum kosti. Nema ef erlendir fjárfestar taki upp á því að flytja inn íslenska verðlagningu á sín fjármálafyrirtæki sem verður að telja ólíklegt.
Mest lesið Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Icelandair tekur litáíska vél á leigu Viðskipti innlent Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Viðskipti innlent Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Fleiri fréttir Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Sjá meira