Viðskipti innlent

Atlanta eykur hlut í Excel

Fulltrúar Air Atlanta eiga nú í viðræðum um kaup á 39 prósenta hlut í flugfélaginu Excel Airways. Fyrir á Atlanta fjörutíu prósent í félaginu. Þann hlut keypti Atlanta í byrjun árs á tæplega fjóra milljarða króna. Hópur stjórnenda félagsins á um fimmtung. Við þau tíðindi að eigendur Air Atlanta hyggðust gera tilboð um kaupin hrundi hlutabréfaverð í Excel um nærri helming en hækkuðu svo lítillega aftur fyrir lokun markaða. Félagið er nú metið á um tólf milljarða króna og má því gera ráð fyrir að fjárfesting Atlanta nú nemi um fimm milljörðum. Magnús Þorsteinsson á 75 prósent í Air Atlanta á móti Arngrími Jóhannssyni, stofnanda félagsins.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×