Hagnaður hátt í 70 milljarðar 6. október 2004 00:01
Hagnaður skráðra fjármálafyrirtækja stefnir í að verða á sjöunda tug milljarða á þessu ár samkvæmt afkomuspá Greiningar Íslandsbanka. Mestur verður hagnaðurinn hjá Landsbankanum eða tæpir sautján milljarðar. Ef spá um hagnað KB banka er lögð saman við hagnað samkvæmt rekstraráætlun danska bankann FIH verður hagnaðurinn hærri eða á nítjánda milljarð króna. Greining Íslandsbanka spáir ekki um hagnað Íslandsbanka. Hagnaður bankans var 10.6 milljarðar króna fyrir skatta fyrstu átta mánuði ársins. Ekki er óvarlegt að gera ráð fyrir um tólf milljarða hagnaði af rekstri bankans Að þessu gefnu má búast við að hagnaður skráðra fjármálafyrirtækja verði rúmir 65 milljarðar króna á þessu ári. Miklar hækkanir hafa verið á hlutabréfum fjármálafyrirtækjanna og einkennist hagnaður þeirra af gengishagnaði vegna gagnkvæmra eignatengsla á tímabilinu. Þannig birtist innleystur gengishagnaður Íslandsbanka af eign í Straumi í uppgjöri bankans. Gengishagnaður eigna Burðaráss bæði innleystur og óinnleystur skilar 13,5 milljarða hagnaði í ár. Sá hagnaður og bjartsýni um framhaldið endurspeglast í gengi Burðaráss sem aftur kemur fram í afkomutölum Landsbankans. Greining Íslandsbanka segir væntingar á markaðnum um breytingar á landslagi fjármálamarkaðar. Það endurspeglist í markaðsverðmæti fjármálafyrirtækjanna. Auk þessa eru miklar væntingar til útrásar fyrirtækjanna. Greining Íslandsbanka gerir ráð fyrir áframhaldandi bjartsýni á markaðnum um sinn. Helstu ógnanir við núverandi bjartsýni að mati Íslandsbanka er ef umbreytingar á fjármálamarkaði láta á sér standa. Þá gætu slæm tíðindi af útrásarverkefnum haft neikvæð áhrif á markaðinn. Greiningardeildin telur ólíklegt í bjartsýninni sem ríkri að slök uppgjör vegna núverandi reksturs fyrirtækja breyti viðhorfum fjárfesta.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira