Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Ný íbúðalán ýta undir neyslu Seðlabankinn hefur hækkað stýrivexti sína um 0,5 prósentustig. Nú eru grunnvextir Seðlabankans 6,75 prósent. Seðlabankinn telur að mikill vöxtur eftirspurnar kalli á vaxtahækkun í því skyni að sporna við hættu á þenslu og verðbólgu. 18.9.2004 00:01
Strandhögg víkinganna "Hvaða víkingur gerði strandhögg á Íslandi árið 2004? Svar: Baugur." Þannig leggur einn af pistlahöfundum viðskiptadagblaðsins Financial Times út af áhuga Baugs á Big Food Group, sem á meðal annars smásölufyrirtækið Iceland. 18.9.2004 00:01
Yfirtaka hjá Baugi? Vangaveltur eru um það í bresku viðskiptalífi að Baugur stefni að yfirtöku í bresku verslunarkeðjunni Big Food Group, en fregnir ytra herma að breska fyrirtækið eigi þegar í viðræðum um hugsanlegt tilboð. 17.9.2004 00:01
FIH kaup enn í skoðun Sigurður Einarsson, stjórnarformaður KB banka, hefur ekki áhyggjur þótt nú séu liðnir þrír mánuðir síðan danska fjármálaeftirlitið fékk kaup KB á hinum danska FIH til umfjöllunar. 17.9.2004 00:01
Erlendur stýrir Meiði Erlendur Hjaltason hefur tekið við starfi forstjóra Meiðs ehf. Meiður er fjárfestingarfélag sem er meðal annars stærsti hluthafinn í KB banka, Medcare-Flögu og Bakkavör Group. 17.9.2004 00:01
Veltan jöfn landsframleiðslu Baugur hefur stigið fyrstu skrefin til yfirtöku Big Food Group. Kaupverð með skuldum er 94 milljarðar. Viðræður eru á frumstigi. Samanlagt yrði velta fyrirtækja undir stjórn Baugs jöfn landsframleiðslu eða um 800 milljarðar ef kaupin ganga eftir 17.9.2004 00:01
Hafði enga aðkomu að kaupunum Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, formaður útvarpsráðs, segist enga aðkomu hafa haft að kaupum Símans á fjórðungshlut í sjónvarpsstöðinni Skjá einum og sýningarréttinum á enska boltanum. 16.9.2004 00:01
Aukin sala minni hagnaður Uppgjör breska matvælafyrirtækisins Geest var í samræmi við væntingar og afkomuviðvörun félagsins. Bakkavör á fimmtung í félaginu. Hagnaður félagsins lækkaði en salan jókst. Félagið er fjárhagslega mjög sterkt og dugir hagnaður þess fyrir afskriftir og fjármagnsliði til þess að greiða skuldir þess. 16.9.2004 00:01
Bílar lækka verðbólgu Verðbólga í Bandaríkjunum mældist 0,1 prósent í ágúst og var það í takt við væntingar. Verðbólga síðasta árið mælist nú 2,7 prósent. Verðlækkun á bílum dró úr hækkuninni, en þeir lækkuðu um 0,3 prósent og fatnaður um 0,2 prósent. 16.9.2004 00:01
Áhyggjur af lagabreytingum Tillögur að lagabreytingum á lögum um fyrirtæki verða lögð fram til kynningar innan skamms. Á fundi Verslunarráðs komu fram áhyggjur af því að löggjöfin gæti dregið mátt úr atvinnulífinu. 16.9.2004 00:01
Fer í Pósthúsið frá Íslandspósti Einar Þorsteinsson, forstjóri Íslandspósts, sagði upp störfum í gær. Hann tekur við stjórn Pósthússins, nýs póstdreifingarfyrirtækis sem byggir á grunni dreifingar Fréttablaðsins. Hann trúir á framtíð bréfsins og sér mikil tækifæri í póstdreifingu. </font /></b /> 15.9.2004 00:01
Verslunarráð vill einkavæða meira Verslunarráð Íslands sendi bréf til einkavæðingarnefndar í lok ágúst. Þar er óskað eftir því að eftirliti með framkvæmdum við hafnir landsins verði komið í hendur einkaaðila. 15.9.2004 00:01
Ekkert við því að segja "Er ekki lífið bara svona," svaraði Björn Jósef Arnviðarson, stjórnarformaður Íslandspósts, spurður um skyndilega uppsögn Einars Þorsteinssonar forstjóra og áform hans um stofnun nýs póstdreifingarfyrirtækis í samvinnu við útgáfufélag Fréttablaðsins. "Hann vildi breyta til og ekkert við því að segja." </font /></b /> 15.9.2004 00:01
Keyptu 50% í fjarskiptafyrirtæki Íslenska útvarpsfélagið hefur keypt helmings hlut í nýju fjarskiptafyrirtæki, IP-fjarskiptum ehf., að því er segir í fréttatilkynningu. IP-fjarskipti eiga helmings hlut í Firstmile á Íslandi ehf. á móti Zyxel sem er alþjóðlegt fyrirtæki og framleiðandi á DSL-búnaði og DSL-beinum. 15.9.2004 00:01
Kjarnfóðurverð lækkar Tveggja prósenta verðlækkun varð á kjarnfóðri hjá Fóðurblöndunni þann 6. september síðastliðinn, að því er fram kemur á fréttavef Landssambands kúabænda. 15.9.2004 00:01
OPEC eykur framleiðslu Samtök olíuframleiðsluríkja ákváðu á fundi í gær að auka framleiðslu um eina milljón tunna á dag. Helstu olíuríki heims eiga aðild að samtökunum en á þeim vettvangi hafa ríkin samráð um hvernig haga skuli framleiðslu sinni. 15.9.2004 00:01
Of háar verðhugmyndir Sérfræðingar á markaði telja að hugmyndir um að söluverðmæti Símans sé á bilinu fimmtíu til sjötíu milljarðar króna séu umfram það sem eðlilegt geti talist. Þeir sem Fréttablaðið hefur rætt við telja að eðlilegt verð fyrir félagið sé á bilinu 35 til 55 milljarðar króna en telja ólíklegt að skynsamlegt sé að kaupa félagið á meira en fimmtíu. 15.9.2004 00:01
Eins og tvær stóriðjur Forstjóri Kauphallarinnar telur að varlega beri að fara í að herða að regluverki viðskiptalífsins eins og tilhneiging sé í umræðunni. Frjáls fjármagnsmarkaður hafi skapað jarðveg útrásarinnar sem skili sér af fullum þunga inn í þjóðarbúið 15.9.2004 00:01
Búist við samdrætti Breska matvælaframleiðslufyrirtækið Geest birtir uppgjör sitt í dag. Bakkavör á yfir 20 prósent í félaginu og er það fært sem hlutdeildarfélag í bókum Bakkavarar. Búist er við samdrætti milli ára hjá Geest en greining KB banka telur að afkoma breska félagsins hafi lítil áhrif á afkomu Bakkavarar.</font /> 15.9.2004 00:01
Verðbólgan hækkar Greiningardeild Landsbankans hefur hækkað verðbólguspá sína vegna aukins lánsfjár og vaxtalækkunar. Hún spáir þriggja og hálfs prósenta verðbólgu, næstu tvö árin. Gert er ráð fyrir að Seðlabankinn hækki stýrivexti hratt á næstu mánuðum. Þeir verði komnir í átta prósent um næstu áramót og fari hæst í átta komma fimm prósent um mitt næsta ár. 14.9.2004 00:01
Hótelgisting á hálfvirði Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis kynnti í gær samstarfssamning við alþjóðlegan afsláttarklúbb að nafni Hotel Express International. 13.9.2004 00:01
Baugur selur í House of Fraser Baugur Group seldi hlut sinn í skosku verslanakeðjunni House of Fraser í dag. Samkvæmt fréttum breskra fjölmiðla var söluupphæðin rúmir þrír milljarðar króna og ágóði Baugs allt að einn milljarður króna. 13.9.2004 00:01
Ameríski draumurinn á Íslandi Kenneth D. Peterson yngri kom sem ferskur stormsveipur inn í íslenskt athafnalíf fyrir nokkrum árum. Hann reisti og rak Norðurál á Grundartanga og varð stærsti hluthafinn í Og Vodafone. Fyrr á árinu seldi hann álverið og á föstudag seldi hann hlut sinn í símafélaginu. </font /></b /> 13.9.2004 00:01
Baugur græðir milljarð í London Baugur seldi hlut í House of Fraser og sýndi áhuga á kaupum á tískukeðjunni Hobbs. Líkur eru taldar á að Baugur muni yfirtaka Big Food Group. Verkefni upp á 40 milljarða auk endurfjármögnunar um 30 milljarða skulda. 13.9.2004 00:01
Engar kvaðir vegna dreifikerfisins Gríðarlega kostnaðarsamt yrði fyrir Landssímann að byggja upp dreifikerfi vegna GSM og gagnaflutninga um allt land. Rannveig Rist, stjórnarformaður Landssímans, segir kostnaðinn hlaupa á mörgum milljörðum króna og að engar slíkar kvaðir séu á fyrirtækinu í dag. Evróputilskipanir leyfa ekki að símafyrirtækjum séu sett slík skilyrði. 12.9.2004 00:01
Gátu ekki unnið með Símanum Norðurljós og Síminn munu ekki byggja upp starfrænt sjónvarpskerfi í sameiningu og því keyptu Norðurljós hlut í Og Vodafone. Þetta segir stjórnarformaður Norðurljósa sem hefur ekki skipt um skoðun á fjárfestingu Símans í Skjá einum. 11.9.2004 00:01
ASÍ telur gjaldtöku ólöglega Alþýðusamband Íslands telur 2% uppgreiðslugjald sem bankarnir krefjast í nýju húsnæðislánunum vera ólöglegt. "Við ætlum að skrifa bönkunum og krefja þá skýringa því við teljum þessa gjaldtöku ekki heimila samkvæmt lögum um neytendalán" segir Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur A.S.Í. 10.9.2004 00:01
Þinguðu um kaup Símans á Skjá 1 Guðmundur Sigurðsson, forstöðumaður samkeppnissviðs Samkeppnisstofnunar átti fund með Brynjólfi Bjarnasyni, forstjóra Símans, í gær. Guðmundur segir að rætt hafi verið um kaup Símans á hlut í Skjá einum og að fundurinn hafi verið upplýsandi. 10.9.2004 00:01
Bankarnir efna skattaloforðin Lækkandi vextir samsvara tveggja prósenta skattalækkun fyrir þá sem geta nýtt sér þá. Nýti fólk einnig lengingu lána samvarar það um sjö prósenta skattalækkun hjá fjölskyldu með meðaltekjur. </font /></b /> 10.9.2004 00:01
Fjárfestahópar í startholunum Hlutabréf í Símanum ruku upp í Kauphöll Íslands í gær. Verðið hækkaði um 17,5 prósent í fimm viðskiptum og samkvæmt núverandi gengi er Síminn um 66 milljarða króna virði. 10.9.2004 00:01
Ný íbúðalán munu hækka verðbólgu Fjármálaráðuneytið segir ný íbúðalán kalla á endurskoðun verðbólguspár. Bolli Þór Bollason, forstöðumaður efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins, segir að í nýrri spá sem kynnt verður um mánaðamótin verði líklega gert ráð fyrir 0,25 prósenta hærri spá en í spá ráðuneytisins í maí. 10.9.2004 00:01
Reynir yfirtöku í Kredittbankanum Íslandsbanki gerði í dag formlegt tilboð í öll hlutabréf norska Kredittbankans á genginu 7,25. Það er 37 prósentum yfir meðalgengi síðustu þriggja mánaða. 10.9.2004 00:01
Volvo innkallar 460.000 bíla Volvo-verksmiðjurnar hafa innkallað 460 þúsund bifreiðar um heim allan vegna galla í rafkerfi í nokkrum tegundum Volvo-bifreiða. Tegundirnar sem eru gallaðar eru S60, S80 og XC70 frá árinu 2000 og 2001. Samskonar gallar hafa einnig fundist í nokkrum bílum af 1999 árgerðinni. 10.9.2004 00:01
Lækkar verðtryggða vexti KB banki hefur ákveðið að lækka vexti verðtryggðra inn- og útlána frá og með 11. september næstkomandi um 0,15 til 0,20 prósentustig. Verðtryggðir kjörvextir skuldabréfalána munu lækka um 0,20 prósentustig og verða 5,00%. 10.9.2004 00:01
Fellur vel að rekstrinum Íslandsbanki rökstyður tilboð sitt í öll hlutabréf Kredittbankans í norðvesturhluta Noregs með því að starfsemi hans falli vel að rekstrinum; báðir bankar starfi á svæði þar sem efnahagurinn byggist á sjávarútvegi. 10.9.2004 00:01
Þriðjungur Össurar í erlendri eigu Röskur þriðjungur Össurar hf. er kominn í eigu erlendra aðila eða 34,5% samkvæmt Greiningardeild Landsbankans. Bæði danska fyrirtækið William Demant Invest (WDI) og sænski fjárfestingarsjóðurinn Industrivärden hafa aukið hlut sinn í félaginu undanfarna mánuði. 10.9.2004 00:01
Verðbólga minnkar Verðbólgan virðist fara minnkandi. Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,43 prósent milli ágúst og september. Þetta er heldur minni hækkun en greiningardeildir bankanna gerðu ráð fyrir. 10.9.2004 00:01
Ánægðir með nýja hluthafa Fjárfestingarfélagið William Demant Invest A/S hefur aukið hlut sinn í stoðtækjafyrirtækinu Össuri. Félagið er nú þriðji stærsti hluthafinn í Össuri með 14 prósenta hlut. 10.9.2004 00:01
Nýr endurskoðandi deCode deCode hefur ráðið Deloitte & Touche sem endurskoðanda félagsins. deCode hefur leitað að nýjum endurskoðendum um hríð en Pricewaterhouse Coopers sagði upp samningi við deCode í lok ágúst. 10.9.2004 00:01
Keyptu ráðandi hlut á 5 milljarða Norðurljós hafa tryggt sér þriðjungs hlut í Og Vodafone. Stjórnarformaður Norðurljósa segir ljósvaka og fjölmiðlafyrirtæki munu eiga mikla samleið. Seljandi er Kenneth Peterson sem selt hefur helstu eignir sínar hérlendis. </font /></b /> 10.9.2004 00:01
Verðmætið sama og fjárlögin Bréf KB banka tóku stökk í gærmorgun strax þegar viðskipti hófust. Bréfin hækkuðu um 7,61 prósent yfir daginn, en höfðu hækkað um fimm prósent fyrir hádegi. 10.9.2004 00:01
Eisner mun hætta 2006 Hinn umdeildi forstjóri Disney, Michael Eisner, hefur afráðið að hætta störfum hjá félaginu þegar samningur hans rennur út árið 2006. Hann tilkynnti stjórn félagsins um ákvörðun sína með bréfi á fimmtudag. 10.9.2004 00:01
Hagnaður minnkar hjá Alcoa Verð á hlutafé í álfyrirtækinu Alcoa, sem nú reisir álver við Reyðarfjörð, hrapaði á markaði í gær. Þetta gerðist í kjölfar tilkynningar um að rekstrarhorfur félagsins væru verri en gert hafði verið ráð fyrir. 10.9.2004 00:01
Norðurljós kaupa 35% í Og Vodafone Norðurljós keyptu í dag 35% í Og Vodafone og eru þar með stærsti hluthafinn í símafélaginu. Viðskiptin nema um fimm milljörðum króna að sögn Skarphéðins Bergs Steinarssonar, stjórnarformanns Norðurljósa, og voru bréfin keypt af Kenneth Peterson, fyrrverandi eiganda Norðuráls. Um er að ræða 1.219.716.696 hluti. 10.9.2004 00:01
Ólga eftir ummæli Fjármálaheimurinn velti í gær vöngum yfir ummælum aðstoðarforstjóra Íslandsbanka um hagræði af sameiningu Landsbankans og Íslandsbanka. Óánægja er með ummælin innan stjórnar Íslandsbanka. </font /></b /> 9.9.2004 00:01