Erlendur stýrir Meiði 17. september 2004 00:01
Erlendur Hjaltason hefur tekið við starfi forstjóra Meiðs ehf. Meiður er fjárfestingarfélag sem er meðal annars stærsti hluthafinn í KB banka, Medcare-Flögu og Bakkavör Group. Eignarhlutur Meiðs í KB banka er metinn á ríflega fjörtíu milljarða króna. Hagnaður Meiðs í ár mun vafalaust slá einhver met enda hefur verðmæti helstu fjárfestinga vaxið hratt í ár. Heildareignir félagsins eru um sjötíu milljarðar króna og hyggur félagið á frekari fjárfestingar bæði innanlands og í útlöndum. Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður Meiðs, segir að stefna félagsins sé að eignast stóran hlut í félögum og vera kjölfestufjárfestir. "Við skoðum allt áhugavert sem upp kemur. Meiður er að vinna í nokkrum verkefnum erlendis," segir Lýður. Hann vill þó ekki tjá sig nánar um hvað sé í farvatninu hjá félaginu. Erlendur starfaði hjá Eimskip í um sautján ár, meðal annars sem framkvæmdastjóri félagsins. Hann segir að til standi að reka fjögurra manna skrifstofu. "Þetta eru fjárfestingar í ýmsum tækifærum og mjög áhugaverð staða sem er í þessu félagi," segir Erlendur um reksturinn. Hann segir að Meiður skoði fjárfestingartækifæri bæði hér á landi og í útöndum, einkum í Evrópu og Bandaríkjunum. Hann segir félagið búa yfir miklum styrk og því séu spennandi færi framundan.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira