Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Uppsveifla hjá McDonald´s Sala á vörum frá McDonald´s skyndibitakeðjunni hefur aukist sextán mánuði í röð þrátt fyrir mikla umfjöllun um skaðsemi matarins í kjölfar heimildarmyndarinnar "Super Size Me." Forsvarsmenn félagsins telja að ástæða velgengninnar sé meðal annars sú að vel hafi gengið að selja nýjungar á matseðlinum. 9.9.2004 00:01
Keypt fyrir 2,5 milljarða í Evrópu Samherji hefur keypt hluti í tveimur evrópskum sjávarútvegsfyrirtækjum. Kaupverðið er samtals nálægt tveimur og hálfum milljarði króna. 8.9.2004 00:01
Samherji kaupir meiri kvóta Útgerðarfélagið Samherji á Akureyri hefur eignast umþaðbil tuttugu þúsund tonna kvóta í heildarkvóta Evrópusambandsins, eftir kaup í þýskum og breskum útvegsfyrirtækjum í gær fyrir rösklega tvo milljarða króna. 8.9.2004 00:01
Samstarf AWAS og Icelandair Icelandair og flugvélaleigufyrirtækið AWAS hafa undirritað samning um samstarf fyrirtækjanna á leiguflugsmarkaði. AWAS er einn stærsti leigusali flugvéla í heiminum og eigandi 178 flugvéla sem eru í leigu hjá fyrirtækjum í 44 löndum víðs vegar um heim. 8.9.2004 00:01
KB banki umboðsaðili ISA KB banki mun verða umboðsaðili ISA, sem starfar á vegum sænskra stjórnvalda að margþættri aðstoð vegna erlendra fjárfestinga. ISA er með skrifstofur víða um heim. KB banki er stærsti íslenski fjárfestirinn í Svíþjóð og er listaður á sænska verðbréfamarkaðinum. 8.9.2004 00:01
Helmingur þorskkvóta í útlöndum Þorsteinn Már Baldvinsson segir að fjárfestingar Samherja í tveimur útgerðarfélögum innan Evrópusambandsins séu hluti af stefnu félagsins um vöxt erlendis. Hann segir að útlensk félög sem Samherji á hlut í ráði nú jafnmiklum þorskkvóta eins og Samherji gerir hér á Íslandi. 8.9.2004 00:01
Sitja ekki aðgerðalausir Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Símans, segir að ekki hafi komið til greina að fyrirtækið sæti aðgerðalaust gagnvart þróun á markaði. Hann segir kaupin á enska boltanum viðskiptalega ákvörðun en ekki pólitíska. </font /></b /> 7.9.2004 00:01
Óvíst um áhrif á verð Símans Sérfræðingar hjá greiningardeildum bankanna telja of snemmt að segja til um hvaða áhrif kaupin á hluta í Skjá einum hafa á verð félagsins þegar það verður selt. 7.9.2004 00:01
Frosti reynir að verja stöðu sína Frosti Bergsson, stjórnarformaður Opinna kerfa, lítur svo á að Kögun reyni nú yfirtöku á Opnum kerfum. Sú yfirtökutilraun er ekki gerð með samþykki annarra stórra hluthafa í félaginu. Í dag er hluthafafundur þar sem búast má við átökum um sæti í stjórninni. 7.9.2004 00:01
Hallinn minni í fyrra en talið var Viðskiptahallinn við útlönd í fyrra var 32 milljarðar króna en ekki 43,5 milljarðar eins og bráðabirgðatölur Seðlabankans gerðu ráð fyrir. Í frétt frá Seðlabankanum kemur fram að skekkjan sé til komin vegna nýrra upplýsinga um vaxta- og arðgreiðslur. 7.9.2004 00:01
Kvikmyndaverið Ísland Unnið er að gerð tveggja kvikmynda á Íslandi sem samtals kosta eitt þúsund og sex hundruð milljónir króna. Mikil þekking á kvikmyndagerð hefur orðið til í landinu á síðustu árum. Landslag, skattkerfi og hæft stafsfólk laða verkefnin að. </font /></b /> 7.9.2004 00:01
Viðskiptahalli ógnar hagkerfinu Mikill viðskiptahalli ógnar íslenska hagkerfinu. Talsverð verðbólga blasir við og harkaleg lending hagkerfisins eftir uppgang vegna stóriðjuframkvæmda. Viðskiptahallinn hefur ekki verið meiri síðan rétt eftir seinni heimsstyrjöldina. Þetta kemur fram í Þjóðhagsspá Greiningar Íslandsbanka. 7.9.2004 00:01
Ræðir um afturhvarf til fortíðar Þór Sigfússon, framkvæmdastjóri Verslunarráðs Íslands, hefur áhyggjur af því að tilhneigingar gæti til þess að auka hlut ríkisins á meðan þróunin í nágrannalöndunum sé þveröfug. 7.9.2004 00:01
Markaðsvirðið yfir 1000 milljörðum Markaðsvirði félaga sem eru skráð í Kauphöll Íslands jókst um rúma 120 milljarða króna í síðasta mánuði og er nú komið yfir eitt þúsund milljarða króna, þrátt fyrir að félögunum fari fækkandi. 7.9.2004 00:01
Átakalítið sumar í viðskiptalífinu Sumarið hefur verið átakalítið í viðskiptalífi Íslendinga og lítil velta á mörgum sviðum, s.s. með skuldabréf, gjaldeyri og hlutabréf að því er segir í Efnahagsfregnum greiningardeildar KB banka. Þessi kyrrð hefur hins vegar verið rofin á síðustu vikum ágústmánaðar, m.a. með nýrri samkeppni um íbúðalán landsmanna. 7.9.2004 00:01
Samkeppnisyfirvöld skoða kaupin Samkeppnisyfirvöld skoða nú kaup Símans á sýningarrétti enska boltans og fjórðungshlut í Skjá einum. Stöð tvö ítrekaði í gær tveggja ára gamla kvörtun sína til samkeppnisyfirvalda vegna breiðvarps Símans. 7.9.2004 00:01
Hallinn ekki meiri í 60 ár Samdráttarskeið er fyrirsjáanlegt á næstu árum, segir Greining Íslandsbanka. Viðskiptahallinn hefur ekki verið meiri hér síðan rétt eftir síðari heimsstyrjöld. 7.9.2004 00:01
Barátta um Disney Baráttan um völdin í einu þekktasta fyrirtæki heims, Walt Disney fölmiðlaveldinu, er enn í fullum gangi. Roy Disney, sonur Walts heitins, fer fremstur í flokki fjárfesta sem unnið hafa að því að steypa Michael Eisner forstjóra úr stóli. 7.9.2004 00:01
Ekkert varð af fundi Ekkert varð af fyrirhuguðum hluthafafundi hjá Opnum kerfum í gær. Kögun, stærsti hluthafinn, fór fram á fundinn fyrir tæpum mánuði síðan en féll frá kröfunni í gær. Í tilkynningu frá Kögun segir að félagið telji að flokkadrættir í hluthafahópi Opinna kerfa séu ekki til hagsbóta. 7.9.2004 00:01
Fengu heiðursmerki Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri KB banka og Sigurður Einarsson stjórnarformaður hafa verið sæmdir heiðursorðu af sænsku krúnunni. KB banki rekur viðamikla starfsemi í Svíþjóð og er skráður í kauphöllinni í Stokkhólmi. 7.9.2004 00:01
Sameining stórbanka borðleggjandi Aðstoðarforstjóri Íslandsbanka telur öll fagleg rök hníga að sameiningu stórra banka. Sameining Íslandsbanka og Landsbankans ætti ekki að ógna samkeppni á fjármálamarkaði. Stærð KB banka hefur áhrif á slíkt mat. </font /></b /> 7.9.2004 00:01
Íslenskar vörur ódýrari Verðkönnun sem gerð var fyrir Samtök iðnaðarins (SI) í fjórum verslunum á höfuðborgarsvæðinu í júlí síðastliðnum leiddi í ljós að samanlagt meðalverð íslenskra vara í könnuninni var 10,3% lægra en þeirra erlendu. 7.9.2004 00:01
Lykilatriði að leita ráðgjafar Misjafnt er hvernig lán hentar hverjum. Framkvæmdastjóri Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja hvetur fólk til að leita ráðgjafar. Hann segir mikilvægt að hafa í huga að gjaldeyrislánum fylgi áhætta. 6.9.2004 00:01
Tapa ekki á veiðigjaldi Þrátt fyrir að útgerðir þurfi á þessu fiskveiðiári að greiða veiðigjald í ríkissjóð mun afnám annarra gjalda bæta upp fyrir tapið. Breytingarnar sem tóku gildi 1. september munu því ekki hafa íþyngjandi áhrif. 6.9.2004 00:01
Minni viðskiptahalli Viðskiptahallinn við útlönd í fyrra var 32 milljarðar króna en ekki 43,5 milljarðar eins og bráðabirgðatölur Seðlabankans gerðu ráð fyrir. Í frétt frá Seðlabankanum kemur fram að skekkjan sé til komin vegna nýrra upplýsinga um vaxta- og arðgreiðslur. 6.9.2004 00:01
Barist um Opin kerfi Frosti Bergsson, stjórnarformaður Opinna kerfa, lítur svo á að Kögun reyni nú yfirtöku á Opnum kerfum. Sú yfirtökutilraun er ekki gerð með samþykki annarra stórra hluthafa í félaginu. Í dag er hluthafafundur þar sem kom búast má við átökum um sæti í stjórninni. 6.9.2004 00:01
Ummæli vekja furðu Síminn hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ummæla Skarphéðins Berg, stjórnarfomanns Norðurljósa, um stafrænt sjónvarp í Fréttablaðinu í dag. Í yfirlýsingunni segir að það veki furðu að Skarphéðinn staðhæfi að kaup Símans á Skjá einum leiði til þess að ekki verði af samstarfi Norðurljósa við Símann í uppbyggingu stafræns stjónvarpsdreifikerfis. 5.9.2004 00:01
Á skjön við stefnu ríkisstjórnar Formaður þingflokks Framsóknarflokksins segir kaup Símans á hlut í Skjá einum vera á skjön við stefnu ríkisstjórnarinnar. Hann telur brýnna að Síminn styrki dreifikerfi sitt, sem hafi verið látið sitja á hakanum. Óánægja er á meðal þingmanna Framsóknarflokksins með forgangsröðun Símans. 5.9.2004 00:01
Arðbær fjárfesting Forstjóri Símans segir kaupin á sýningarréttinum á ensku knattspyrnunni og fjórðungshlut í Skjá einum vera arðsama fjárfestingu en neitar að upplýsa hversu dýru verði hún hafi verið keypt. Samkeppnisstofnun ætlar að skoða viðskipti Símans og Skjás eins. 5.9.2004 00:01
Einkavæðing gæti tafist Samkeppnisstofnun hefur þrjá mánuði til að skila niðurstöðu um kaup Landssímans á fjórðungshlut í Skjá einum. Á sama tíma er undirbúningur að einkavæðingu Símans að komast á fullt. </font /></b /> 5.9.2004 00:01
Skoða samstarf við OgVodafone Þróun á stafrænum sjónvarpsútsendingum krefst samstarfs stórs fjölmiðlafyrirtækis og símafyrirtækis, segir stjórnarformaður Norðurljósa. Með kaupum Símans í Skjá einum er Síminn orðinn keppinautur Norðurljósa og því er eðlilegast að kanna samstarf við Og Vodafone. </font /></b /> 5.9.2004 00:01
Margir þingmenn andvígir kaupunum Margir þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru andvígir kaupum Símans á fjórðungshlut í Skjá einum. Sigurður Kári Kristjánsson efast um að Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, hafi tekið þátt í samningunum. 4.9.2004 00:01
Óvíst hvort allt verði boðið út Ekki er hægt að segja til um hvort hlutfallslegur sparnaður ríkisins verði eins mikill og Reykjavíkurborg áætlar sér með útboði á fjarskiptaþjónustu, segir sérfræðingur fjármálaráðuneytis. Útboðið verði í takt við stefnu stjórnvalda. </font /></b /> 4.9.2004 00:01
Hefði stangast á við fjölmiðlalög Forsætisráðherra telur að kaup Símans á stórum hlut í Skjá einum hefðu brotið í bága við lög ef fjölmiðlafrumvarpið sem hann lagði fram í vor hefði orðið að lögum. Menntamálaráðherra tekur í sama streng. Sigurður Kári Kristjánsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, telur marga þingmenn flokksins vera andvíga þessum viðskiptum. 4.9.2004 00:01
Geta keppt við stóru bankana Sparissjóðsstjóri SPRON er hvergi banginn við harða samkeppni í bankaheiminum. Hann telur tíma Íbúðalánasjóðs liðinn og setur spurningarmerki við lánastarfsemi lífeyrissjóða. Hann segir að lög gegn sölu SPRON til KB banka hafi verið öllum aðilum til óheilla. </font /></b /> 4.9.2004 00:01
Búlgarar heimsækja Björgólfsfeðga Fulltrúar frá búlgarska landssímanum og aðrir búlgarskir viðskiptamenn eru staddir hér á landi í viðskiptaerindum. Þeir eru hér í boði feðganna Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar. 4.9.2004 00:01
Kaupin rýra verð Landssímans Kaup Landssímans á Fjörgný, sem á fjórðungshlut í Skjá einum og sýningarrétt á ensku knattspyrnunni, mun draga úr verðgildi félagsins við einkavæðingu að mati Skarphéðins Berg Steinarssonar, stjórnarformanns Norðurljósa. 4.9.2004 00:01
Breyting á lánum Lífiðnar Breytingar hafa orðið á útlánum til sjóðfélaga Lífiðnar. Sjóðfélögum gefst nú kostur á tveimur flokkum lána. A-lán og B-lán. A-Lán með föstum vöxtum og B-Lán með breytilegum vöxtum en þeim flokki tilheyra eldri sjóðfélagalán. 3.9.2004 00:01
Umtalsverð lækkun lyfjaverðs Heilbrigðisyfirvöld hafa gert samkomulag við fulltrúa frumlyfjaframleiðanda innan FÍS og við fulltrúa Actavis hf um lækkun lyfjaverðs. Samkvæmt samkomulaginu er stefnt að því að lyfjaverð í heildsölu á Íslandi verði sambærilegt við meðalverð á hinum Norðurlöndunum hverju sinni innan 2ja ára. 3.9.2004 00:01
Höfða nokkur mál á dag Bandaríska lögmannsstofan sem safnar nú liði til að höfða skaðabótamál á hendur Íslenskri erfðagreiningu, höfðar að jafnaði nokkur slík mál á dag. Umrædd lögmannsstofa hefur auglýst eftir hluthöfum, í Íslenskri erfðagreiningu, sem vilja fara í mál við fyrirtækið vegna meintra rangra upplýsinga. 3.9.2004 00:01
Veruleg lækkun lyfjaverðs Heilbrigðisráðherra vonast til að almenningur finni rækilega fyrir verðlækkunum á lyfjum í kjölfar samnings stjórnvalda við lyfjaheildsala. Lækkanir gætu numið á þriðja tug prósenta eftir tvö ár. 3.9.2004 00:01
Síminn kaupir Skjá einn Síminn hefur keypt fjórðungshlut í Skjá einum. Leiðir fyrirtækjanna tveggja, liggja nú saman enn á ný, en saga þeirra er nátengd og ekki af góðu. 3.9.2004 00:01
Latibær í lagaþrætu Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins hefur stefnt Latabæ fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Sjóðurinn vill fá hlutabréf fyrir lán sem hann veitti árið 2002. Latibær er tregur til. Málið er prófmál fyrir sjóðinn. </font /></b /> 3.9.2004 00:01
Í ókeypis innheimtu fyrir ríkið Verslunarráð telur að endurskoða þurfi ábyrgð fyrirtækja á skattaskuldum starfsmanna sinna. 3.9.2004 00:01
Heilt tonn til Bretlands Ensímtækni, hefur náð miklum árangri í sölu á smyrslum unnum úr ensímum úr þorski. Nú þegar er vara þeirra seld víða um heim bæði til almennrar notkunar en einnig er það víða notað til lækninga. 3.9.2004 00:01