Viðskipti innlent

Nýr endurskoðandi deCode

deCode hefur ráðið Deloitte & Touche sem endurskoðanda félagsins. deCode hefur leitað að nýjum endurskoðendum um hríð en Pricewaterhouse Coopers sagði upp samningi við deCode í lok ágúst. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafði deCode þegar hafið leit að nýju endurskoðunarfyrirtæki þegar Pricewaterhouse sagði upp samningnum en ekki var ágreiningur um færslu bókhalds á milli þessara aðila. Verð á bréfum í deCode hækkuðu í gær. Um miðjan dag í gær stóðu þau í 6,87 Bandaríkjadölum og höfðu hækkað um tíu prósent.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×