Viðskipti innlent

Hagnaður minnkar hjá Alcoa

Verð á hlutafé í álfyrirtækinu Alcoa, sem nú reisir álver við Reyðarfjörð, hrapaði á markaði í gær. Þetta gerðist í kjölfar tilkynningar um að rekstrarhorfur félagsins væru verri en gert hafði verið ráð fyrir. Í tilkynningu frá Alcoa segir að vandamálin megi rekja til verkfalla starfsmanna og kostnaðar vegna lokunar á álveri í Washington fylki. Verð á áli hefur lækkað undanfarið og eftirspurn hefur minnkað, meðal annars vegna veikrar stöðu bílaiðnaðar í Evrópu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×