Fleiri fréttir Mánudagur til mæðu Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar Hey! (hátt blístur) Pitsan þín er tilbúin!“ Ungi maðurinn með svuntuna veifaði mér og ýtti til mín kvöldmat fjölskyldunnar þetta mánudagskvöldið. Ég varð hálf hvumsa við hátt blístrið þar sem ég var eini gesturinn fyrir framan borðið hjá honum en stökk auðvitað til og þreif til mín pappakassann. Hér átti greinilega ekkert að hanga lengur en þörf var á. Unga manninum stökk ekki bros og mér sýndist hann hálf súr. Klukkan var orðin margt. Hann langaði greinilega að vera einhvers staðar annars staðar en í gluggalausu pitsueldhúsinu. Það var mánudagur í honum. 19.9.2012 06:00 Halldór 18.09.2012 18.9.2012 16:00 Upp úr kafinu Á ferðalagi í austanverðri Afríku, nánar tiltekið í Vilankulo í Mósambík, bauðst okkur vinkonunum að heimsækja eyjaklasann Bazaruto þar sem er eitt merkilegasta og fallegasta kóralrif heims. Boðið var upp á ferðir út í eyjuna og einnig boðið að snorka eða kafa niður á kóralrifið. 18.9.2012 06:00 Nýr milljarður í þróunarhjálp Össur Skarphéðinsson skrifar Heill milljarður til viðbótar verður settur í þróunarhjálp með því sem ég tel sögulegustu tillögu nýja fjárlagafrumvarpsins. Þróunarhjálp er okkar leið til að láta af höndum rakna til örsnauðs fólks í fátækustu ríkjum heims. Hún beinist ekki síst að mæðrum og börnum. Þróunarhjálp er meðal þeirra þátta sem ég hef lagt mesta áherslu á í starfi mínu sem utanríkisráðherra. Þess vegna gleðst ég einlæglega, eins og örugglega allir Íslendingar, yfir þessum sögulega áfanga. 18.9.2012 06:00 Ógöngur opinbers launakerfis Ólafur Þ. Stephensen skrifar Ákvörðun Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra um að hækka Björn Zoëga, forstjóra Landspítalans, duglega í launum, hefur dregið dilk á eftir sér. Eins og Fréttablaðið sagði frá á laugardaginn hefur launahækkun forstjórans magnað upp óánægju á spítalanum, þar sem niðurskurður og aukið vinnuálag hafa verið daglegt brauð starfsmanna. 18.9.2012 06:00 Bless Ísland? Helga Brekkan skrifar Á forsíðu Helgarblaðs Fréttablaðsins þann 8. september var þessi fyrirsögn: ?Ræsa álver í Helguvík 2015?. Í textanum er vitnað í Michael Bless, forstjóra Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls: 18.9.2012 06:00 Vilji til breytinga Guðrún Nordal skrifar Á síðasta vori lögðu starfsnefndir Vísinda- og tækniráðs fram viðamiklar tillögur um breytingar á vísinda- og nýsköpunarkerfinu, sem byggðar voru á ítarlegri skýrslu um kerfið allt (sjá www.vt.is). Í skýrslunni var í fyrsta sinn dregin upp mynd af öllum hliðum vísinda- og nýsköpunarkerfisins og þeirri fjölbreyttu löggjöf sem það byggir á. 18.9.2012 06:00 Óvinur eða samherji? Þröstur Ólafsson skrifar Það er ekki uppbyggilegt að fylgjast með málflutningi andstæðinga ESB hér. Þeir fara mikinn í heilagri krossferð gegn þessu evrópska skrímsli. Manni dettur stundum í hug yfirlýsingar talíbana, þegar þeir ausa úr rétttrúnaðarskálum reiði sinnar gegn trúlausu vestrinu. Heiftin er ekki ósvipuð og orðbragðið sömu ættar. Ógerlegt er að útskýra þann útbelgda fjandskap sem birtist í málflutningi 18.9.2012 06:00 Nei við þjóðkirkjuákvæði? Hjalti Hugason skrifar Nýlega hafa birst hér í Fréttablaðinu tveir pistlar sem hvetja fólk til að greiða atkvæði gegn þjóðkirkjuákvæði í nýrri stjórnarskrá í þjóðaratkvæðagreiðslunni 20. okt. nk. Báðir eru allrar athygli verðir. Þó verður að gera veigamiklar athugasemdir við röksemdafærslu beggja. 18.9.2012 06:00 Setjum markið hátt Bjarni Benediktsson skrifar Þróunaraðstoð hefur óneitanlega sérstöðu meðal þeirra málaflokka sem Alþingi fjallar um. Kemur þar margt til. Þau verkefni sem sinnt er hverju sinni eru í fjarlægum löndum, á svæðum þar sem mannlífið og þjóðfélagsgerðin er mjög frábrugðin því sem við eigum að venjast. Þá er það mikið álitamál með hvaða hætti við eigum að skipta framlögum milli verkefna sem við höfum beina aðkomu að og þeirra sem rekin eru í samstarfi margra þjóða, eins og t.d. undir regnhlíf Sameinuðu þjóðanna. Það er sérstakt fræðasvið hvernig best megi tryggja að fjármunir til þróunaraðstoðar skili tilætluðum árangri. 18.9.2012 06:00 Stefnumót mitt við LÍN Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Fyrir þremur árum hóf ég nám við Óslóarháskóla. Í gegnum námið hef ég kynnst verklagi LÍN við veitingu námslána. Margar úthlutunarreglur LÍN eru alls ekki nægilega vel útfærðar og vil ég nefna tvö dæmi því til stuðnings. 18.9.2012 06:00 Mannauður og mórall Teitur Guðmundsson skrifar Það er alþekkt að fyrirtæki og rekstrareiningar byggja á mannauði sem er drífandi krafturinn í starfi þeirra og það er viðurkennt að án hans eru þau lítils eða jafnvel einskis virði. Þá virðist engu skipta hversu stórar þessar einingar eru né heldur hver starfssemin er, ?fólkið er fyrirtækið? sagði einhver sem ég man ekki lengur nafnið á. Það er auðvitað mikill áherslumunur hvernig þessu er haldið fram og stjórnendur ekki allir jafn duglegir að flagga fólkinu sínu sem grunnstoð rekstrarins. 18.9.2012 06:00 Halldór 17.09.2012 17.9.2012 18:00 Crossfit: Ekki svo galið Leifur Geir Hafsteinsson skrifar Það er ekki ofsögum sagt að Íslendingar hafi tekið crossfit opnum örmum. Síðan undirritaður stofnaði fyrstu crossfit-stöðina á Íslandi haustið 2008 hefur iðkendafjöldi vaxið úr engu í á fjórða þúsund og crossfit-stöðvar landsins fylla nú tuginn (og er þá ótalin ýmis starfsemi þar sem boðið er upp á crossfit án þess að hafa til þess tilskilin leyfi, eða hugmyndafræðin notuð undir nöfnum eins og krossþjálfun). 17.9.2012 06:00 „Af-því-bara“ Ingunn Snædal skrifar Þegar ég var lítil stúlka á Jökuldalnum hafði ég aldrei séð neinn af öðrum kynþætti en ég var sjálf. Ég gekk í skóla með frændum mínum og frænkum, við áttum sama bakgrunn, sömu menningu, sömu hefðir, sömu sögu. Útlönd voru langt í burtu og allt öðruvísi. Við lærðum um börn í Tansaníu í litríkum samfélagsfræðibókum, þau voru álíka framandi og verur frá öðrum hnöttum. Engu að síður var ég alin upp við þá hugmynd að allt fólk væri jafn dýrmætt. Allir ættu rétt. 17.9.2012 06:00 Við erum með eitruð gen Sigurður Árni Þórðarson skrifar Marteinn Lúther negldi skjal á dyr Hallarkirkjunnar í Wittenberg og siðbreyting og siðbót hófust. Hamarshöggin og hugsun Lúthers opinberuðu vitleysur tímans, sem hægt var að leiðrétta. Hallarkirkjan og dyr hennar eru síðan hvetjandi tákn um að fólk sinni lífsleikni og taki á móti Guðsgjöfunum. 17.9.2012 06:00 Hagstjórnarmistök Þórður Snær Júlíusson skrifar Framsóknarflokkurinn hóf kosningaveturinn síðastliðinn fimmtudag með því að kynna nýja tillögu sína um aðgerðir gegn skuldavanda heimila. Tillagan gengur í grófum dráttum út á að afborganir af verðtryggðum fasteignalánum muni koma til frádráttar af tekjuskattstofni og að sá frádráttur verði lagður inn á höfuðstól viðkomandi fasteignalána. Samhliða á að leggja til að samið verði við veitendur íbúðalána um að færa öll slík lán niður í 100 prósent af fasteignamati húsnæðis. Þessi ráðstöfun á síðan að gilda í þrjú ár. Til viðbótar gera tillögur 17.9.2012 06:00 Skriftir, afskriftir og uppáskriftir Guðmundur Andri Thorsson skrifar Útlendingar standa ýmsir í þeirri trú að Íslendingar hafi komist út úr efnahagserfiðleikum sínum með því að neita að greiða „skuldir óreiðumanna“ og síðan hafi þjóðin sett sér nýja stjórnarskrá. Manni skilst að nú þegar séu menn sem hafa þann starfa að hrósa Íslendingum í útlöndum teknir að fara um heiminn með ræður um það hversu Íslendingar skari fram úr öðrum í því að takast á við efnahagshrun og „hvað megi af Íslendingum læra“. En er þetta ekki eitthvað orðum aukið – þetta með að „neita að greiða skuldir óreiðumanna?“ 17.9.2012 06:00 Gagnkvæmur ávinningur Steinunn Stefánsdóttir skrifar Hópur flóttafólks er nú væntanlegur til Íslands en fjögur ár eru síðan síðast kom skipulagður hópur flóttafólks til landsins. Þá komu hingað átta palestínskar konur ásamt börnum sínum og settust að á Akranesi. 15.9.2012 06:00 Óslóar-samkomulagið er verra en ekkert! Sveinn Rúnar Hauksson skrifar Nú eru 19 ár liðin síðan samkomulag um Óslóar-yfirlýsinguna var undirritað á grasflötinni framan við Hvíta húsið í Washington. Það voru Arafat, forseti Palestínu, og Rabin, forsætisráðherra Ísraels, sem gerðu það að viðstöddum Clinton Bandaríkjaforseta. Margir urðu til að vara við því að þetta væri svikasátt en undirritaður var meðal þeirra sem vildu trúa því að gagnkvæm viðurkenning aðilanna yrði mikilvægt fyrsta skref að endanlegu friðarsamkomulagi sem átti að undirrita innan fimm ára. Reynslan hefur sýnt að efasemdarmennirnir höfðu rétt fyrir sér. Kannski var það morðið á Rabin sem innsiglaði örlög Óslóar-yfirlýsingarinnar. 15.9.2012 06:00 Gjörningurinn Chris Brown Brynhildur Björnsdóttir skrifar Santiago Sierra heitir listamaður. Hann er þekktastur fyrir að borga fátæku fólki fyrir að gera erfiða og/eða niðurlægjandi hluti, eins og til dæmis að vera ofan í kassa í fjóra daga eða láta múra sig inn í vegg. Hann vill sýna fram á að fólk sé tilbúið að gera ansi margt sér til viðurværis, meðal annars að láta breyta líkama sínum varanlega, og greiddi til dæmis fjórum vændiskonum peningaupphæð sem samsvaraði einum heróínskammti fyrir að láta húðflúra línu á bak sitt. Sierra vill með list sinni sýna notkun kapítalismans á fólki og líkama þess. Í stuttu máli: hann fer illa með fólk til að sýna hversu illa er hægt að fara með einstakling án þess að samfélagið fordæmi það. 15.9.2012 06:00 Laun forstjóra Landspítala – og áhrifarík stjórnun í heilbrigðisþjónustunni Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson skrifar Viðbrögð við 450 þúsund króna hækkun á mánaðarlaunum forstjóra Landspítalans hafa verið hörð og stór orð notuð til að lýsa áliti einstaklinga, fag- og stéttarfélaga á þessum gerningi. Þessi viðbrögð eru skiljanleg þegar horft er til ástandsins í samfélaginu í kjölfar hrunsins og þeirra sársaukafullu niðurskurðaraðgerða sem grípa þurfti til á Landspítala. 15.9.2012 06:00 Kæru landsmenn Svava Brooks skrifar Það fer um mig hrollur þegar ég sé heiftarleg viðbrögð við auglýsingunum okkar. Ég anda djúpt, tel upp að 100 og minni mig á þá óþrjótandi samúð sem ég hef með okkur öllum og þá sérstaklega börnum sem eru að glíma við þögnina, óttann og afneitunina sem ríkir í kringum kynferðislegt ofbeldi á börnum. Blátt áfram er að bera á borð staðreyndir málsins. Það er staðreynd að 93% barna sem verða fyrir kynferðislegu ofbeldi þekkja gerendurna, einstaklinga úr öllum stéttum, gjarnan í hlutverkum sem við hin fullorðnu treystum og í því skjóli skáka gerendur, bæði konur og karlar. Við erum ekki að ásaka neina sérstaka starfsstétt um að beita börn ofbeldi frekar en aðra. Við erum að benda fólki á að í þeim hópum fólks sem vinna með börnum og eru langflestir traustsins vert, leynast oft einstaklingar sem eru að gera slæma hluti en ekki góða. Í stað þess að ráðast á sendiboðann bið ég alla að staldra við og hugsa málið til enda. Ef þú ert einn af þeim fjölmörgu sem starfa með börnum, biðjum við þig að koma til samstarfs við okkur til að tryggja öryggi þeirra. Hvað get ég gert, spyrð þú ef til vill. Þú getur viðurkennt þá erfiðu staðreynd að inni á milli eru einstaklingar sem grafa undan því trausti sem þú hefur áunnið þér í þínu starfi vegna þess að því fylgir traust og vald yfir börnum. Þú getur lært hvað þú átt að gera til að standa undir því trausti sem til þín er borið og hvernig þú getur verið á varðbergi gagnvart þeim sem gera það ekki. 15.9.2012 06:00 Málefnalínurnar skýrast Þorsteinn Pálsson skrifar Stefnuræða forsætisráðherra í vikunni og umræður um hana skýrðu býsna vel málefnalínurnar í pólitíkinni. Hitt verður að draga í efa að umræðan hafi skilið eftir hjá mörgum skýra framtíðarmynd um endurreisnina og stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna. 15.9.2012 06:00 Siðferði í stjórnmálum Dögg Harðardóttir skrifar Það hefur varla farið fram hjá neinum sem fylgst hefur með fréttum að velferðarráðherra hækkaði laun forstjóra Landspítalans umtalsvert án samráðs við nokkurn mann. Í Rannsóknarskýrslu Alþingis kom fram að ein af ástæðum hrunsins hefði verið sú að ráðamenn tóku ákvarðanir upp á eigin spýtur eða tóku ákvarðanir gegn áliti ýmissa álitsgjafa. 15.9.2012 06:00 Halldór 14.09.2012 14.9.2012 16:00 Grímsstaðir og opin stjórnsýsla – bréf til Steingríms J. Sigfússonar Á ríkisstjórnarfundi þann 12. júlí sl. var lagt fram minnisblað Efnahags- og viðskiptaráðuneytisins varðandi erindi Huangs Nubo og fyrirtækisins Zhongkun, sem áformar að kaupa eða leigja Grímsstaði á Fjöllum. 14.9.2012 06:00 Menntun utan skólastofunnar Magnús Þorlákur Lúðvíksson skrifar Mark Twain sagði eitt sinn í glettni að hann hefði aldrei látið skólagöngu trufla menntun sína. Ég hafði þetta eftir honum einhverju sinni í menntaskóla þegar ég var krafinn svara um af hverju ég hefði mætt seint í frönskutíma. Kennaranum var ekki skemmt. Ég skil það svo sem núna enda ákveðinn hroki gagnvart skólakerfinu fólginn í þessum orðum. Í þeim felst þó einnig sá sannleikur að menntun hvers og eins fer fram víðar en einungis í skólastofunni. 14.9.2012 11:00 Auknar kröfur Ari Trausti Guðmundsson skrifar Á ferðum vegna framboðs til embættis forseta Íslands barst Alþingi oft í tal. Vissulega telja margir ýmislegt athugavert við störf þess og enn fremur að verulega vanti upp á traustið og virðinguna. Helst var fundið að flýtimeðferð sumra stærri mála, málþófi, óvönduðum málflutningi, málafjölda og skorti á frumkvæði eða þekkingu í mikilvægum málum. Flestir töldu það einbert mál þingsins og stjórnmálaflokkanna að hlusta á gagnrýnina, ræða vandann og taka hressilega til á vinnustaðnum. Ástæða þeirrar afstöðu er sú vissa að aðkoma annarra að málinu er í orði en ekki á borði, og gildir einu hvort um er að ræða stjórnmálafræðing, Jón og Gunnu eða forseta Íslands. 14.9.2012 06:00 Hin hliðin frá Húsavík Pálmi Pálmason skrifar Mikið hefur verið fjallað um ráðningu sýslumannsins á Húsavík og þar hafa ýmsar yfirlýsingar og stór orð fallið. Umræðan hefur verið mjög einhliða. Vegna þessa tel ég rétt að fram komi að ég er ekki málkunnugur Ögmundi Jónassyni eða tengdur honum á nokkurn hátt. 14.9.2012 06:00 Aðskilnaður minnkar áhættu almennings dr. Jakob Ásmundsson skrifar Í dag eru þrír stórir viðskiptabankar allsráðandi á íslenskum fjármálamarkaði. Samanlögð stærð þeirra nemur u.þ.b. tvöfaldri landsframleiðslu þjóðarinnar. Viðskiptabankarnir eru að mestu leyti fjármagnaðir með innlánum. Fall eins þeirra myndi hafa í för með sér óheyrilegan kostnað fyrir þjóðarbúið, bæði beint og óbeint. Afturköllun á yfirlýsingu stjórnvalda um allsherjarábyrgð á innlánum breytir engu um þá staðreynd. 14.9.2012 06:00 Allir við sama borð Guðbjartur Hannesson skrifar Í dag er haldið hringþing um menntamál innflytjenda. Þar koma saman fulltrúar þeirra fjölmörgu aðila sem koma að málaflokknum til að skapa samræðuvettvang, meta stöðuna og leggja drög að sameiginlegri stefnu og forgangsröðun. 14.9.2012 06:00 Draumur um margs konar mjólk Pawel Bartoszek skrifar Um daginn las ég frétt um að "mjólkin“ seldist óvenju vel. Það er kannski dálítið táknrænt að hér á landi megi með góðri samvisku setja ákveðinn greini á mjólkina, því það er eiginlega bara ein ákveðin til. 14.9.2012 06:00 Besti tíminn Þórður Snær Júlíusson skrifar Íslensk umræða um Evrópusambandið (ESB) snýst að mestu um hversu mikil upplausn ríkir innan sambandsins. Stóryrtir andstæðingar þess að aðildarferli Ísland fái að klárast með þjóðaratkvæðagreiðslu leggja línurnar með einföldunum, dómsdagsvísum og þjóðrembu. Þeim tókst meira að segja að láta kosningar um forseta Íslands snúast um ESB. Sigurstranglegur frambjóðandi þurfti meira að segja að þvo af sér aðildarsinna-stimpil sem sitjandi forseti klíndi á hann með því að líkja inngöngu í sambandið við það að leigja herbergi í brennandi húsi. 14.9.2012 06:00 Halldór 13.09.2012 13.9.2012 17:00 Bjargvætturinn og lögbrotin Magnús Halldórsson skrifar Ein af röksemdum dómara Hæstaréttar, fyrir fjögurra og hálfs árs fangelsisdómi sem Ragnar Z. Guðjónsson og Jón Þorsteinn Jónsson hlutu fyrir umboðssvik, hefur fengið marga þá sem nú eru til rannsóknar hjá yfirvöldum til þess að skjálfa á beinunum, eða þannig túlka ég í það minnsta nokkur samtöl sem ég hef átt við lögmenn um þennan dóm. 13.9.2012 13:37 Að spara eða auka lífsgæði Guðmundur Magnússon skrifar Það er áberandi í allri opinberri umræðu, sama um hvað er rætt, að nær öllum stjórnmálamönnum hættir til, hvar í flokki sem þeir standa, að leggja fyrst áherslu á hversu mikið "nýjungin“ muni spara. Í stað þess að benda á hve mikið nýjungin muni auka lífsgæði þegnanna. Sparnaður yrði svo mögulega einhver, en það væri hreinn bónus. 13.9.2012 09:15 Upp brekku á baki skattgreiðenda Ólafur Þ. Stephensen skrifar Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra fylgdi fjárlagafrumvarpi sínu úr hlaði með grein í Fréttablaðinu í gær. Hún rifjaði þar upp að hún hefði áður sagt í grein hér í blaðinu að þótt mörgum hefði þótt ókleift fjall blasa við eftir hrun, miðaði vel í fjallgöngunni. Enn væri þó brekka eftir í ríkisfjármálunum. Ráðherrann lætur í það skína að nú sé brekkan að verða búin. 13.9.2012 06:00 Viðskiptabankar verða ætíð á ábyrgð almennings dr. Jakob Ásmundsson skrifar Í kjölfar hrunsins hefur komið í ljós að almenningur á Íslandi hefur þurft að bera verulegan kostnað, bæði beint og óbeint, af falli fjármálakerfisins. Sömu sögu er að segja í öðrum löndum þar sem stórar fjármálastofnanir hafa riðað til falls og því miður sér ekki fyrir endann á þeirri þróun. Þetta er ekki nýtt af nálinni og enn sem komið er hafa ekki komið fram fullnægjandi lausnir á þessu vandamáli. Ástæðan er væntanlega sú að það er ekki til nein töfralausn og þar með má gera ráð fyrir að almenningur muni með einum eða öðrum hætti alltaf bera stóran hluta af áhættu viðskiptabankanna. 13.9.2012 06:00 Vilt þú ákvæði um þjóðkirkju í stjórnarskrá? Þorkell Helgason skrifar Í þjóðaratkvæðagreiðslunni um tillögur stjórnlagráðs 20. október nk. verður spurt um stjórnskipunarlega stöðu þjóðkirkjunnar. Ekki um tilvist hennar heldur um það hvort kirkjunnar skuli getið sérstaklega í sjálfri stjórnarskránni. Orðrétt er spurningin þannig: "Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um þjóðkirkju á Íslandi?“ 13.9.2012 06:00 Samráð í sátt Ketill B. Magnússon skrifar Þann 17. september nk. eiga Heimili og skóli – landssamtök foreldra 20 ára afmæli. Við þau tímamót er rétt að spyrja hvort þörf er á slíkum samtökum? Fyrir tveimur áratugum var hrópandi þörf fyrir landssamtök foreldra. Mikil gjá var enn þá milli skóla og heimila í 13.9.2012 06:00 Ég á ekki að borga. Ég á bara að fá Sighvatur Björgvinsson skrifar Jón Steinsson, hagfræðingur og áður ráðgjafi Geirs H. Haarde, fyrrum forsætisráðherra, furðar sig á því, að ríkisstjórnin skuli ekki njóta nema 38% stuðnings þjóðarinnar þrátt fyrir þann mikla árangur, sem hún hafi náð við úrlausn erfiðra verkefna. Telur hann upp í grein í Fréttablaðinu mikinn árangur ríkisstjórnarinnar í sjö liðum, sem að sögn hagfræðingsins skipta verulega miklu máli um framtíðarvelferð þjóðarinnar. 13.9.2012 06:00 Einstakt tækifæri kjósenda Jóhanna Sigurðardóttir skrifar Senn líður að lokaáfanga á merkri vegferð sem hófst þegar víðtæk samstaða flestra stjórnmálaflokka náðist á Alþingi vorið 2010 um endurskoðun stjórnarskrárinnar. Þótt sú ferð hafi ekki reynst áfallalaus hefur árangurinn og uppskeran verið góð og í fullu samræmi við væntingar. 13.9.2012 06:00 Hálfgildings lausn? - um Ísland í Evrópu Árni Páll Árnason skrifar Í fyrri greinum hef ég rakið stöðu Íslands í Evrópu og þau flóknu úrlausnarefni sem við – og aðrar þjóðir Evrópu – glíma við nú þessi misseri og mánuði. Skuldakreppan birtist með misjöfnum hætti eftir því hvaða land á í hlut, hvernig hagstjórn var háttað á árunum fyrir 2008 og hvort landið er hluti af sameiginlegu gjaldmiðilssvæði evrunnar. Af því leiðir að hvert og eitt land verður að meta hvernig best er að haga aðildinni að 13.9.2012 06:00 Barnfóstra internetsins Bjarni Rúnar Einarsson skrifar Enn eina ferðina eru netsíur til umræðu. Samkvæmt grein í blaðinu Grapevine eru bæði Vodafone og Síminn að undirbúa það að hindra aðgang að klám- og fjárhættuspilavefsíðum. Látið er í veðri vaka að þetta sé lítið mál og eingöngu gert til að vernda venjulega netnotendur gegn hættum frjáls upplýsingaflæðis. Mörgum finnst bara í góðu lagi að hindra aðgang að vefsíðum sem innihalda ólöglegt efni. Jafnframt blöskrar okkur ýmislegt á netinu sem er, því miður, fullkomlega löglegt í því landi þar sem það er gefið út. Því er gjarnan gripið til netsíunnar. 13.9.2012 06:00 Sjá næstu 50 greinar
Mánudagur til mæðu Ragnheiður Tryggvadóttir skrifar Hey! (hátt blístur) Pitsan þín er tilbúin!“ Ungi maðurinn með svuntuna veifaði mér og ýtti til mín kvöldmat fjölskyldunnar þetta mánudagskvöldið. Ég varð hálf hvumsa við hátt blístrið þar sem ég var eini gesturinn fyrir framan borðið hjá honum en stökk auðvitað til og þreif til mín pappakassann. Hér átti greinilega ekkert að hanga lengur en þörf var á. Unga manninum stökk ekki bros og mér sýndist hann hálf súr. Klukkan var orðin margt. Hann langaði greinilega að vera einhvers staðar annars staðar en í gluggalausu pitsueldhúsinu. Það var mánudagur í honum. 19.9.2012 06:00
Upp úr kafinu Á ferðalagi í austanverðri Afríku, nánar tiltekið í Vilankulo í Mósambík, bauðst okkur vinkonunum að heimsækja eyjaklasann Bazaruto þar sem er eitt merkilegasta og fallegasta kóralrif heims. Boðið var upp á ferðir út í eyjuna og einnig boðið að snorka eða kafa niður á kóralrifið. 18.9.2012 06:00
Nýr milljarður í þróunarhjálp Össur Skarphéðinsson skrifar Heill milljarður til viðbótar verður settur í þróunarhjálp með því sem ég tel sögulegustu tillögu nýja fjárlagafrumvarpsins. Þróunarhjálp er okkar leið til að láta af höndum rakna til örsnauðs fólks í fátækustu ríkjum heims. Hún beinist ekki síst að mæðrum og börnum. Þróunarhjálp er meðal þeirra þátta sem ég hef lagt mesta áherslu á í starfi mínu sem utanríkisráðherra. Þess vegna gleðst ég einlæglega, eins og örugglega allir Íslendingar, yfir þessum sögulega áfanga. 18.9.2012 06:00
Ógöngur opinbers launakerfis Ólafur Þ. Stephensen skrifar Ákvörðun Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra um að hækka Björn Zoëga, forstjóra Landspítalans, duglega í launum, hefur dregið dilk á eftir sér. Eins og Fréttablaðið sagði frá á laugardaginn hefur launahækkun forstjórans magnað upp óánægju á spítalanum, þar sem niðurskurður og aukið vinnuálag hafa verið daglegt brauð starfsmanna. 18.9.2012 06:00
Bless Ísland? Helga Brekkan skrifar Á forsíðu Helgarblaðs Fréttablaðsins þann 8. september var þessi fyrirsögn: ?Ræsa álver í Helguvík 2015?. Í textanum er vitnað í Michael Bless, forstjóra Century Aluminum, móðurfélags Norðuráls: 18.9.2012 06:00
Vilji til breytinga Guðrún Nordal skrifar Á síðasta vori lögðu starfsnefndir Vísinda- og tækniráðs fram viðamiklar tillögur um breytingar á vísinda- og nýsköpunarkerfinu, sem byggðar voru á ítarlegri skýrslu um kerfið allt (sjá www.vt.is). Í skýrslunni var í fyrsta sinn dregin upp mynd af öllum hliðum vísinda- og nýsköpunarkerfisins og þeirri fjölbreyttu löggjöf sem það byggir á. 18.9.2012 06:00
Óvinur eða samherji? Þröstur Ólafsson skrifar Það er ekki uppbyggilegt að fylgjast með málflutningi andstæðinga ESB hér. Þeir fara mikinn í heilagri krossferð gegn þessu evrópska skrímsli. Manni dettur stundum í hug yfirlýsingar talíbana, þegar þeir ausa úr rétttrúnaðarskálum reiði sinnar gegn trúlausu vestrinu. Heiftin er ekki ósvipuð og orðbragðið sömu ættar. Ógerlegt er að útskýra þann útbelgda fjandskap sem birtist í málflutningi 18.9.2012 06:00
Nei við þjóðkirkjuákvæði? Hjalti Hugason skrifar Nýlega hafa birst hér í Fréttablaðinu tveir pistlar sem hvetja fólk til að greiða atkvæði gegn þjóðkirkjuákvæði í nýrri stjórnarskrá í þjóðaratkvæðagreiðslunni 20. okt. nk. Báðir eru allrar athygli verðir. Þó verður að gera veigamiklar athugasemdir við röksemdafærslu beggja. 18.9.2012 06:00
Setjum markið hátt Bjarni Benediktsson skrifar Þróunaraðstoð hefur óneitanlega sérstöðu meðal þeirra málaflokka sem Alþingi fjallar um. Kemur þar margt til. Þau verkefni sem sinnt er hverju sinni eru í fjarlægum löndum, á svæðum þar sem mannlífið og þjóðfélagsgerðin er mjög frábrugðin því sem við eigum að venjast. Þá er það mikið álitamál með hvaða hætti við eigum að skipta framlögum milli verkefna sem við höfum beina aðkomu að og þeirra sem rekin eru í samstarfi margra þjóða, eins og t.d. undir regnhlíf Sameinuðu þjóðanna. Það er sérstakt fræðasvið hvernig best megi tryggja að fjármunir til þróunaraðstoðar skili tilætluðum árangri. 18.9.2012 06:00
Stefnumót mitt við LÍN Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Fyrir þremur árum hóf ég nám við Óslóarháskóla. Í gegnum námið hef ég kynnst verklagi LÍN við veitingu námslána. Margar úthlutunarreglur LÍN eru alls ekki nægilega vel útfærðar og vil ég nefna tvö dæmi því til stuðnings. 18.9.2012 06:00
Mannauður og mórall Teitur Guðmundsson skrifar Það er alþekkt að fyrirtæki og rekstrareiningar byggja á mannauði sem er drífandi krafturinn í starfi þeirra og það er viðurkennt að án hans eru þau lítils eða jafnvel einskis virði. Þá virðist engu skipta hversu stórar þessar einingar eru né heldur hver starfssemin er, ?fólkið er fyrirtækið? sagði einhver sem ég man ekki lengur nafnið á. Það er auðvitað mikill áherslumunur hvernig þessu er haldið fram og stjórnendur ekki allir jafn duglegir að flagga fólkinu sínu sem grunnstoð rekstrarins. 18.9.2012 06:00
Crossfit: Ekki svo galið Leifur Geir Hafsteinsson skrifar Það er ekki ofsögum sagt að Íslendingar hafi tekið crossfit opnum örmum. Síðan undirritaður stofnaði fyrstu crossfit-stöðina á Íslandi haustið 2008 hefur iðkendafjöldi vaxið úr engu í á fjórða þúsund og crossfit-stöðvar landsins fylla nú tuginn (og er þá ótalin ýmis starfsemi þar sem boðið er upp á crossfit án þess að hafa til þess tilskilin leyfi, eða hugmyndafræðin notuð undir nöfnum eins og krossþjálfun). 17.9.2012 06:00
„Af-því-bara“ Ingunn Snædal skrifar Þegar ég var lítil stúlka á Jökuldalnum hafði ég aldrei séð neinn af öðrum kynþætti en ég var sjálf. Ég gekk í skóla með frændum mínum og frænkum, við áttum sama bakgrunn, sömu menningu, sömu hefðir, sömu sögu. Útlönd voru langt í burtu og allt öðruvísi. Við lærðum um börn í Tansaníu í litríkum samfélagsfræðibókum, þau voru álíka framandi og verur frá öðrum hnöttum. Engu að síður var ég alin upp við þá hugmynd að allt fólk væri jafn dýrmætt. Allir ættu rétt. 17.9.2012 06:00
Við erum með eitruð gen Sigurður Árni Þórðarson skrifar Marteinn Lúther negldi skjal á dyr Hallarkirkjunnar í Wittenberg og siðbreyting og siðbót hófust. Hamarshöggin og hugsun Lúthers opinberuðu vitleysur tímans, sem hægt var að leiðrétta. Hallarkirkjan og dyr hennar eru síðan hvetjandi tákn um að fólk sinni lífsleikni og taki á móti Guðsgjöfunum. 17.9.2012 06:00
Hagstjórnarmistök Þórður Snær Júlíusson skrifar Framsóknarflokkurinn hóf kosningaveturinn síðastliðinn fimmtudag með því að kynna nýja tillögu sína um aðgerðir gegn skuldavanda heimila. Tillagan gengur í grófum dráttum út á að afborganir af verðtryggðum fasteignalánum muni koma til frádráttar af tekjuskattstofni og að sá frádráttur verði lagður inn á höfuðstól viðkomandi fasteignalána. Samhliða á að leggja til að samið verði við veitendur íbúðalána um að færa öll slík lán niður í 100 prósent af fasteignamati húsnæðis. Þessi ráðstöfun á síðan að gilda í þrjú ár. Til viðbótar gera tillögur 17.9.2012 06:00
Skriftir, afskriftir og uppáskriftir Guðmundur Andri Thorsson skrifar Útlendingar standa ýmsir í þeirri trú að Íslendingar hafi komist út úr efnahagserfiðleikum sínum með því að neita að greiða „skuldir óreiðumanna“ og síðan hafi þjóðin sett sér nýja stjórnarskrá. Manni skilst að nú þegar séu menn sem hafa þann starfa að hrósa Íslendingum í útlöndum teknir að fara um heiminn með ræður um það hversu Íslendingar skari fram úr öðrum í því að takast á við efnahagshrun og „hvað megi af Íslendingum læra“. En er þetta ekki eitthvað orðum aukið – þetta með að „neita að greiða skuldir óreiðumanna?“ 17.9.2012 06:00
Gagnkvæmur ávinningur Steinunn Stefánsdóttir skrifar Hópur flóttafólks er nú væntanlegur til Íslands en fjögur ár eru síðan síðast kom skipulagður hópur flóttafólks til landsins. Þá komu hingað átta palestínskar konur ásamt börnum sínum og settust að á Akranesi. 15.9.2012 06:00
Óslóar-samkomulagið er verra en ekkert! Sveinn Rúnar Hauksson skrifar Nú eru 19 ár liðin síðan samkomulag um Óslóar-yfirlýsinguna var undirritað á grasflötinni framan við Hvíta húsið í Washington. Það voru Arafat, forseti Palestínu, og Rabin, forsætisráðherra Ísraels, sem gerðu það að viðstöddum Clinton Bandaríkjaforseta. Margir urðu til að vara við því að þetta væri svikasátt en undirritaður var meðal þeirra sem vildu trúa því að gagnkvæm viðurkenning aðilanna yrði mikilvægt fyrsta skref að endanlegu friðarsamkomulagi sem átti að undirrita innan fimm ára. Reynslan hefur sýnt að efasemdarmennirnir höfðu rétt fyrir sér. Kannski var það morðið á Rabin sem innsiglaði örlög Óslóar-yfirlýsingarinnar. 15.9.2012 06:00
Gjörningurinn Chris Brown Brynhildur Björnsdóttir skrifar Santiago Sierra heitir listamaður. Hann er þekktastur fyrir að borga fátæku fólki fyrir að gera erfiða og/eða niðurlægjandi hluti, eins og til dæmis að vera ofan í kassa í fjóra daga eða láta múra sig inn í vegg. Hann vill sýna fram á að fólk sé tilbúið að gera ansi margt sér til viðurværis, meðal annars að láta breyta líkama sínum varanlega, og greiddi til dæmis fjórum vændiskonum peningaupphæð sem samsvaraði einum heróínskammti fyrir að láta húðflúra línu á bak sitt. Sierra vill með list sinni sýna notkun kapítalismans á fólki og líkama þess. Í stuttu máli: hann fer illa með fólk til að sýna hversu illa er hægt að fara með einstakling án þess að samfélagið fordæmi það. 15.9.2012 06:00
Laun forstjóra Landspítala – og áhrifarík stjórnun í heilbrigðisþjónustunni Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson skrifar Viðbrögð við 450 þúsund króna hækkun á mánaðarlaunum forstjóra Landspítalans hafa verið hörð og stór orð notuð til að lýsa áliti einstaklinga, fag- og stéttarfélaga á þessum gerningi. Þessi viðbrögð eru skiljanleg þegar horft er til ástandsins í samfélaginu í kjölfar hrunsins og þeirra sársaukafullu niðurskurðaraðgerða sem grípa þurfti til á Landspítala. 15.9.2012 06:00
Kæru landsmenn Svava Brooks skrifar Það fer um mig hrollur þegar ég sé heiftarleg viðbrögð við auglýsingunum okkar. Ég anda djúpt, tel upp að 100 og minni mig á þá óþrjótandi samúð sem ég hef með okkur öllum og þá sérstaklega börnum sem eru að glíma við þögnina, óttann og afneitunina sem ríkir í kringum kynferðislegt ofbeldi á börnum. Blátt áfram er að bera á borð staðreyndir málsins. Það er staðreynd að 93% barna sem verða fyrir kynferðislegu ofbeldi þekkja gerendurna, einstaklinga úr öllum stéttum, gjarnan í hlutverkum sem við hin fullorðnu treystum og í því skjóli skáka gerendur, bæði konur og karlar. Við erum ekki að ásaka neina sérstaka starfsstétt um að beita börn ofbeldi frekar en aðra. Við erum að benda fólki á að í þeim hópum fólks sem vinna með börnum og eru langflestir traustsins vert, leynast oft einstaklingar sem eru að gera slæma hluti en ekki góða. Í stað þess að ráðast á sendiboðann bið ég alla að staldra við og hugsa málið til enda. Ef þú ert einn af þeim fjölmörgu sem starfa með börnum, biðjum við þig að koma til samstarfs við okkur til að tryggja öryggi þeirra. Hvað get ég gert, spyrð þú ef til vill. Þú getur viðurkennt þá erfiðu staðreynd að inni á milli eru einstaklingar sem grafa undan því trausti sem þú hefur áunnið þér í þínu starfi vegna þess að því fylgir traust og vald yfir börnum. Þú getur lært hvað þú átt að gera til að standa undir því trausti sem til þín er borið og hvernig þú getur verið á varðbergi gagnvart þeim sem gera það ekki. 15.9.2012 06:00
Málefnalínurnar skýrast Þorsteinn Pálsson skrifar Stefnuræða forsætisráðherra í vikunni og umræður um hana skýrðu býsna vel málefnalínurnar í pólitíkinni. Hitt verður að draga í efa að umræðan hafi skilið eftir hjá mörgum skýra framtíðarmynd um endurreisnina og stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna. 15.9.2012 06:00
Siðferði í stjórnmálum Dögg Harðardóttir skrifar Það hefur varla farið fram hjá neinum sem fylgst hefur með fréttum að velferðarráðherra hækkaði laun forstjóra Landspítalans umtalsvert án samráðs við nokkurn mann. Í Rannsóknarskýrslu Alþingis kom fram að ein af ástæðum hrunsins hefði verið sú að ráðamenn tóku ákvarðanir upp á eigin spýtur eða tóku ákvarðanir gegn áliti ýmissa álitsgjafa. 15.9.2012 06:00
Grímsstaðir og opin stjórnsýsla – bréf til Steingríms J. Sigfússonar Á ríkisstjórnarfundi þann 12. júlí sl. var lagt fram minnisblað Efnahags- og viðskiptaráðuneytisins varðandi erindi Huangs Nubo og fyrirtækisins Zhongkun, sem áformar að kaupa eða leigja Grímsstaði á Fjöllum. 14.9.2012 06:00
Menntun utan skólastofunnar Magnús Þorlákur Lúðvíksson skrifar Mark Twain sagði eitt sinn í glettni að hann hefði aldrei látið skólagöngu trufla menntun sína. Ég hafði þetta eftir honum einhverju sinni í menntaskóla þegar ég var krafinn svara um af hverju ég hefði mætt seint í frönskutíma. Kennaranum var ekki skemmt. Ég skil það svo sem núna enda ákveðinn hroki gagnvart skólakerfinu fólginn í þessum orðum. Í þeim felst þó einnig sá sannleikur að menntun hvers og eins fer fram víðar en einungis í skólastofunni. 14.9.2012 11:00
Auknar kröfur Ari Trausti Guðmundsson skrifar Á ferðum vegna framboðs til embættis forseta Íslands barst Alþingi oft í tal. Vissulega telja margir ýmislegt athugavert við störf þess og enn fremur að verulega vanti upp á traustið og virðinguna. Helst var fundið að flýtimeðferð sumra stærri mála, málþófi, óvönduðum málflutningi, málafjölda og skorti á frumkvæði eða þekkingu í mikilvægum málum. Flestir töldu það einbert mál þingsins og stjórnmálaflokkanna að hlusta á gagnrýnina, ræða vandann og taka hressilega til á vinnustaðnum. Ástæða þeirrar afstöðu er sú vissa að aðkoma annarra að málinu er í orði en ekki á borði, og gildir einu hvort um er að ræða stjórnmálafræðing, Jón og Gunnu eða forseta Íslands. 14.9.2012 06:00
Hin hliðin frá Húsavík Pálmi Pálmason skrifar Mikið hefur verið fjallað um ráðningu sýslumannsins á Húsavík og þar hafa ýmsar yfirlýsingar og stór orð fallið. Umræðan hefur verið mjög einhliða. Vegna þessa tel ég rétt að fram komi að ég er ekki málkunnugur Ögmundi Jónassyni eða tengdur honum á nokkurn hátt. 14.9.2012 06:00
Aðskilnaður minnkar áhættu almennings dr. Jakob Ásmundsson skrifar Í dag eru þrír stórir viðskiptabankar allsráðandi á íslenskum fjármálamarkaði. Samanlögð stærð þeirra nemur u.þ.b. tvöfaldri landsframleiðslu þjóðarinnar. Viðskiptabankarnir eru að mestu leyti fjármagnaðir með innlánum. Fall eins þeirra myndi hafa í för með sér óheyrilegan kostnað fyrir þjóðarbúið, bæði beint og óbeint. Afturköllun á yfirlýsingu stjórnvalda um allsherjarábyrgð á innlánum breytir engu um þá staðreynd. 14.9.2012 06:00
Allir við sama borð Guðbjartur Hannesson skrifar Í dag er haldið hringþing um menntamál innflytjenda. Þar koma saman fulltrúar þeirra fjölmörgu aðila sem koma að málaflokknum til að skapa samræðuvettvang, meta stöðuna og leggja drög að sameiginlegri stefnu og forgangsröðun. 14.9.2012 06:00
Draumur um margs konar mjólk Pawel Bartoszek skrifar Um daginn las ég frétt um að "mjólkin“ seldist óvenju vel. Það er kannski dálítið táknrænt að hér á landi megi með góðri samvisku setja ákveðinn greini á mjólkina, því það er eiginlega bara ein ákveðin til. 14.9.2012 06:00
Besti tíminn Þórður Snær Júlíusson skrifar Íslensk umræða um Evrópusambandið (ESB) snýst að mestu um hversu mikil upplausn ríkir innan sambandsins. Stóryrtir andstæðingar þess að aðildarferli Ísland fái að klárast með þjóðaratkvæðagreiðslu leggja línurnar með einföldunum, dómsdagsvísum og þjóðrembu. Þeim tókst meira að segja að láta kosningar um forseta Íslands snúast um ESB. Sigurstranglegur frambjóðandi þurfti meira að segja að þvo af sér aðildarsinna-stimpil sem sitjandi forseti klíndi á hann með því að líkja inngöngu í sambandið við það að leigja herbergi í brennandi húsi. 14.9.2012 06:00
Bjargvætturinn og lögbrotin Magnús Halldórsson skrifar Ein af röksemdum dómara Hæstaréttar, fyrir fjögurra og hálfs árs fangelsisdómi sem Ragnar Z. Guðjónsson og Jón Þorsteinn Jónsson hlutu fyrir umboðssvik, hefur fengið marga þá sem nú eru til rannsóknar hjá yfirvöldum til þess að skjálfa á beinunum, eða þannig túlka ég í það minnsta nokkur samtöl sem ég hef átt við lögmenn um þennan dóm. 13.9.2012 13:37
Að spara eða auka lífsgæði Guðmundur Magnússon skrifar Það er áberandi í allri opinberri umræðu, sama um hvað er rætt, að nær öllum stjórnmálamönnum hættir til, hvar í flokki sem þeir standa, að leggja fyrst áherslu á hversu mikið "nýjungin“ muni spara. Í stað þess að benda á hve mikið nýjungin muni auka lífsgæði þegnanna. Sparnaður yrði svo mögulega einhver, en það væri hreinn bónus. 13.9.2012 09:15
Upp brekku á baki skattgreiðenda Ólafur Þ. Stephensen skrifar Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra fylgdi fjárlagafrumvarpi sínu úr hlaði með grein í Fréttablaðinu í gær. Hún rifjaði þar upp að hún hefði áður sagt í grein hér í blaðinu að þótt mörgum hefði þótt ókleift fjall blasa við eftir hrun, miðaði vel í fjallgöngunni. Enn væri þó brekka eftir í ríkisfjármálunum. Ráðherrann lætur í það skína að nú sé brekkan að verða búin. 13.9.2012 06:00
Viðskiptabankar verða ætíð á ábyrgð almennings dr. Jakob Ásmundsson skrifar Í kjölfar hrunsins hefur komið í ljós að almenningur á Íslandi hefur þurft að bera verulegan kostnað, bæði beint og óbeint, af falli fjármálakerfisins. Sömu sögu er að segja í öðrum löndum þar sem stórar fjármálastofnanir hafa riðað til falls og því miður sér ekki fyrir endann á þeirri þróun. Þetta er ekki nýtt af nálinni og enn sem komið er hafa ekki komið fram fullnægjandi lausnir á þessu vandamáli. Ástæðan er væntanlega sú að það er ekki til nein töfralausn og þar með má gera ráð fyrir að almenningur muni með einum eða öðrum hætti alltaf bera stóran hluta af áhættu viðskiptabankanna. 13.9.2012 06:00
Vilt þú ákvæði um þjóðkirkju í stjórnarskrá? Þorkell Helgason skrifar Í þjóðaratkvæðagreiðslunni um tillögur stjórnlagráðs 20. október nk. verður spurt um stjórnskipunarlega stöðu þjóðkirkjunnar. Ekki um tilvist hennar heldur um það hvort kirkjunnar skuli getið sérstaklega í sjálfri stjórnarskránni. Orðrétt er spurningin þannig: "Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um þjóðkirkju á Íslandi?“ 13.9.2012 06:00
Samráð í sátt Ketill B. Magnússon skrifar Þann 17. september nk. eiga Heimili og skóli – landssamtök foreldra 20 ára afmæli. Við þau tímamót er rétt að spyrja hvort þörf er á slíkum samtökum? Fyrir tveimur áratugum var hrópandi þörf fyrir landssamtök foreldra. Mikil gjá var enn þá milli skóla og heimila í 13.9.2012 06:00
Ég á ekki að borga. Ég á bara að fá Sighvatur Björgvinsson skrifar Jón Steinsson, hagfræðingur og áður ráðgjafi Geirs H. Haarde, fyrrum forsætisráðherra, furðar sig á því, að ríkisstjórnin skuli ekki njóta nema 38% stuðnings þjóðarinnar þrátt fyrir þann mikla árangur, sem hún hafi náð við úrlausn erfiðra verkefna. Telur hann upp í grein í Fréttablaðinu mikinn árangur ríkisstjórnarinnar í sjö liðum, sem að sögn hagfræðingsins skipta verulega miklu máli um framtíðarvelferð þjóðarinnar. 13.9.2012 06:00
Einstakt tækifæri kjósenda Jóhanna Sigurðardóttir skrifar Senn líður að lokaáfanga á merkri vegferð sem hófst þegar víðtæk samstaða flestra stjórnmálaflokka náðist á Alþingi vorið 2010 um endurskoðun stjórnarskrárinnar. Þótt sú ferð hafi ekki reynst áfallalaus hefur árangurinn og uppskeran verið góð og í fullu samræmi við væntingar. 13.9.2012 06:00
Hálfgildings lausn? - um Ísland í Evrópu Árni Páll Árnason skrifar Í fyrri greinum hef ég rakið stöðu Íslands í Evrópu og þau flóknu úrlausnarefni sem við – og aðrar þjóðir Evrópu – glíma við nú þessi misseri og mánuði. Skuldakreppan birtist með misjöfnum hætti eftir því hvaða land á í hlut, hvernig hagstjórn var háttað á árunum fyrir 2008 og hvort landið er hluti af sameiginlegu gjaldmiðilssvæði evrunnar. Af því leiðir að hvert og eitt land verður að meta hvernig best er að haga aðildinni að 13.9.2012 06:00
Barnfóstra internetsins Bjarni Rúnar Einarsson skrifar Enn eina ferðina eru netsíur til umræðu. Samkvæmt grein í blaðinu Grapevine eru bæði Vodafone og Síminn að undirbúa það að hindra aðgang að klám- og fjárhættuspilavefsíðum. Látið er í veðri vaka að þetta sé lítið mál og eingöngu gert til að vernda venjulega netnotendur gegn hættum frjáls upplýsingaflæðis. Mörgum finnst bara í góðu lagi að hindra aðgang að vefsíðum sem innihalda ólöglegt efni. Jafnframt blöskrar okkur ýmislegt á netinu sem er, því miður, fullkomlega löglegt í því landi þar sem það er gefið út. Því er gjarnan gripið til netsíunnar. 13.9.2012 06:00