Fleiri fréttir

Landsfundir, Sjallar skamma VG, stjórnarmynstur, óráð

Er það ofdirfska hjá Samfylkingunni að halda landsfund um sömu helgi og Sjálfstæðisflokkurinn, lævíslegt plan eða bara klúður? Ég hef komið á marga landsfundi Sjálfstæðisflokksins – við þá samkomu keppa ekki aðrar stjórnmálahreyfingar...

Billjónsdagbók 28.2

Jón Örn Marinósson skrifar

ICEX 7.432, þegar ég fór í sturtu, og Nasdaq 2.454 þegar ég skrúfaði fyrir. Var lengi að laga kaffi. Kann ekkert á sjálfvirkar kaffivélar. Hvaða sjálfvirkni er það eiginlega þar sem ekkert virkar af sjálfu sér. Ég veit hvað er raunveruleg sjálfvirkni. Ég er til dæmis fullur af sjálfvirkni. Þess vegna er ég sökksessfúll fjárfestir og alltaf glaður í bragði.

Lært af reynslunni

Stöku dýrlingur mun eiga svo viturt hjarta að vera laus við ranghugmyndir. Þær eiga hinsvegar ekki bara heima í huga vændiskaupandi kalla sem trúa því að konan vilji þá líka borgunarlaust, eða hjá þeim sjúku ófétum sem segja að barnið hafi átt frumkvæðið. Nei, margar ranghugmyndir eru hversdagslegar eða jafnvel hagnýtar og geta snúist um dálitla staðbundna galla.

Vinstri grænt sækir á

Fram til þessa hefur mynd komandi kosningabaráttu um margt verið óskýr. Fleiri pólitísk spurningamerki hafa verið á lofti en oftast áður á sama tíma í aðdraganda kosninga.

Leið til þjóðarsáttar í auðlindamálum

Jón Sigurðsson skrifar

Frumvarp um heildaráætlun um nýtingu og vernd náttúruauðlinda Íslands markar leið til þjóðarsáttar um þessi mikilvægu málefni. Frumvarpið er kaflaskil í þessu mikla deilumáli. Frumvarpið er afrakstur nefndarvinnu með þátttöku allra flokka undir forsæti Karls Axelssonar lögmanns, en fyrrverandi iðnaðarráðherra Valgerður Sverrisdóttir beitti sér fyrir málinu á alþingi.

Hergagnaframleiðsla í dýraríkinu

Í síðustu viku bárust skuggalegar fréttir úr myrkviðum Senegals. Dýra- og mannfræðingar sem voru þar að njósna um lifnaðarhætti sjimpansa komust að því að þessir frændur okkar eru ekki jafnsaklausir og þeir vilja vera láta. Með földum myndavélum tókst vísindamönnunum að festa á filmu að það sem hingað til hefur verið talið saklaust föndur eða leikur með trjágreinar er í raun og veru stórfelld framleiðsla á hergögnum sem aparnir nota í árásarskyni.

Pólitískar hreingerningar

Könnun Fréttablaðsins í gær sýndi eins og flestar kannanir síðustu mánaða að núverandi ríkisstjórn er töluvert fjarri því að halda velli.

Hvers vegna ekki?

Ég játa að sem mikill unnandi alls þess sem franskt er, til dæmis fallaxarinnar og Tour de France, hlakka ég óður og uppvægur til að berja augum allt það nýjasta og kúltíveraðasta frá Frans á listahátíðinni Pourquoi pas?, sem útleggst víst á íslensku sem Hvers vegna ekki? Ekki minnkaði eftirvæntingin þegar ég frétti að frá þeim sömu og færðu okkur Peugeot-inn væri komið ELDORGELIÐ.

Læti á Laugavegi

Það fór sem fór: lóðaspekúlantar og verktakar voru í viðbragðsstöðu þegar svokölluð sáttanefnd með Árna Þór Sigurðsson og Bolla Kristinsson kaupmann í meirihluta blessaði rif á stórum hluta gamalla íbúða- og verslunarhúsa við Laugaveg.

Bið eftir kynjajafnrétti

Nú á dögum líta flestallir Íslendingar á sig sem jafnréttissinna. Sú sjálfsmynd er þó ekki endilega byggð á gildum rökum. Það er a.m.k. þversögn að mörgum af hinum meintu jafnréttissinnum finnst allt í himnalagi í samfélagi þar sem misrétti kynjanna er viðhaldið með kerfisbundnum hætti.

Dómstóll götunnar

Alkunna er að Árni nokkur Johnsen var sakfelldur af dómstólum og sagði af sér þingmennsku fyrir fáeinum árum. Hefði almenningur fengið að ráða, hefði nefndum Árna verið dýft í tjöru, hann makaður fiðri og settur í gapastokk á Austurvelli.

Um Scott

Ég er ekkert sérstaklega hrifinn af því – svo vægt sé til orða tekið - að stjórnmálaflokkar á Alþingi og í borgarstjórn skuli álykta sérstaklega um það hvaða hópar þeir telji að séu velkomnir til landsins og hverjir ekki, eins og gerðist nú í vikunni í tilviki boðaðrar ráðstefnu fólks í klámiðnaði. Ég sé því ekki betur en að ég, á mínum fyrstu metrum í pólitík, sé þar með ósammála í afmörkuðu máli öllum flokkum á Alþingi, því hér myndaðist jú þverpólitísk samstaða.

Stefán og Hannes í Silfrinu

Prófessorarnir Stefán Ólafsson og Hannes Hólmsteinn Gissurarson verða sérstakir gestir í Silfri Egils á sunnudag. Þeir munu ræða um ójöfnuð í íslensku samfélagi, fátækt, skatta og sitthvað í þeim dúr...

Tilvistarkreppa álitsgjafa

Í samræmi við þá hugmynd mína að hlutverk álitsgjafa og pistlahöfunda sé fyrst og fremst að amast við því sem miður fer í þjóðfélaginu, og skipta sér af öllu milli himins og jarðar þó þeir hafi ekki minnsta vit á því, gerði ég dauðaleit að einhverju til að amast við áður en ég skrifaði þennan pistil.

Maó var norskur

Hér er fjallað um klámhátíðina miklu sem ekki verður haldin í Reykjavík, norsk áhrif á hugmyndir íslenskra vinstrimanna og femínista, leðurheteró, framboðsmál Vinstri grænna og Samfylkingarinnar og loks er spurt hvað Jón Baldvin ætli að gera...

Skallafordómar

Dr. Gunni skrifar

Söngkonan Britney Spears hefur verið í sviðsljósinu síðustu mánuðina. Hegðun hennar, meðal annars stíft sukk með forhertustu pjásum hins svokallaða skemmtanalífs, hefur bent til þess að ekki sé allt með felldu. Þegar nýjustu fréttirnar flæddu yfir heimsbyggðina má segja að tappann hafi fyrst tekið úr: Britney var búin að snoða sig.

Bankauppreisn, öskudagur, dýr íbúðarlán, Eyðimörk

Það er víðar en á Íslandi að bankar eru umdeildir, gróði þeirra, græðgi og feikileg umsvif. Dagblaðið The Independent slær upp á forsíðu sinni uppreisn gegn bönkunum í Bretlandi og álögum þeirra á viðskiptavini...

Nokkur orð um árásirnar á Ingibjörgu

Ég á mér draum um að Samfylkingin leiði næstu ríkisstjórn. Í þeim draumi er kona forsætisráðherra í fyrsta skipti í sögu lýðveldisins og áherslurnar í þjóðarbúskapnum taka mið af sjónarmiðum beggja kynja. Ekki er lengur leikið einungis eftir leikreglum strákanna.

Andlitslaus samskipti á netinu

Tilkoma netsins er líklega umfangsmesta bylting í daglegu lífi sem orðið hefur um margra áratuga skeið, kannski frá því að síminn kom. Netið er vettvangur samskipta, tjáningar, upplýsingaleitar og alls kyns afþreyingar.

Stóriðjunni ofaukið

Það voru athyglisverðar tölur sem birtust á dögunum um flutninga Íslendinga innanlands milli landshluta. Þar kom í ljós að eftir viðamestu og dýrustu byggðaaðgerðir í sögu þjóðarinnar og einstakan uppgangstíma höfðu 45 fleiri Íslendingar flutt úr Austfjarðakjördæmi en flutt höfðu sig þangað.

Ráðast gaddaskötur bara á merkilega menn?

Í síðustu viku kom upp sérkennileg deila á Morgunblaðinu sem þrír blaðamenn þar á bæ flæktust inn í. Upphafið má rekja til greinar sem einn þeirra skrifaði um lát fyrirsætunnar Önnu Nicole Smith og birtist undir fyrirsögninni Dauðinn og stúlkan.

Hafnarfjörður – stærsti álbræðslubær í Evrópu?

Jón Ólafsson, kennari í Hafnarfirðí skrifar. Verði álbræðslan í Straumsvík stækkuð þrefalt eins og fyrirhugað er, verður Hafnarfjörður stærsti álbræðslubær í Evrópu. Er það framtíðarsýnin sem við viljum fyrir bæinn okkar?

Davíð svarað

Á baksíðu Fréttablaðsins hinn 18. febrúar fer Davíð Þór mikinn, þar fer hann með rakalausan þvætting um Frjálslynda flokkinn: „Sá flokkur sem erfiðast er að tengja frjálslyndi í einhverri óbrjálaðri merkingu orðsins kallar sig Frjálslynda. Þar virðast allir velkomnir sem hrekjast úr öðrum flokkum vegna óvinsælda.“

Fordómar gegn Framsókn

Ingvar Gíslason skrifar

Nýlega las ég í blaði klausu nokkra eftir einhvern ungan „fréttaskýranda“ þess efnis að Guðni Ágústsson væri „holdgervingur“ Framsóknarflokksins. Rökstuðningurinn var sá að Guðni væri landsbyggðarmaður, bóndasonur og „þjóðernissinnaður“ sveitamaður.

Bókmenntafræðingur talar - Soffíu svarað

Langt er orðið síðan ég fékkst við bókmenntafræði. Í þeirri grein sem öðrum hafa jafnan verið margar kenningar á lofti, en mér er minnisstætt að kennarar mínir lögðu áherslu á að öll túlkun yrði að eiga sér stoð í texta verkanna og miða að því að gera þau skiljanlegri lesendum en ella.

Fengið að láni frá börnunum

Svandís Svavarsdóttir skrifar

Staða barna er okkur Vinstri grænum sérlega hugleikin. Að okkar mati er það samfélagslegt verkefni að skapa öllum börnum skilyrði til að þroskast og menntast. Við eigum að gefa þeim tækifæri til að þroska hæfileika sína óháð efnahag og félagslegum aðstæðum.

Stuðningsforeldrar fatlaðra barna

Í framhaldi af umræðu á Alþingi og hjá Ríkissjónvarpinu um stuðningsfjölskyldur fatlaðra barna langar mig að fjalla um eftirfarandi: Skilgreining á hlutverki stuðningsfjölskyldu eins og kemur fram á heimasíðu Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra í Reykjavík Stuðningsfjölskyldur: Barn getur dvalið hjá stuðningsfjölskyldu í skamman tíma utan heimilis (1 til 3 sólarhringar á mánuði).

Raunsætt frjálslyndi

Sigurjón Þórðarson skrifar

Varla er hægt að ímynda sér ömurlegra hlutskipti en að verða þræll fíkniefna og mikið hlýtur sú sálarangist að vera sár og slítandi að eiga barn í slíkri ánauð. Sem betur fer þekkja fæst okkar þann hrylling af eigin raun og vissulega eiga fórnarlömbin alla okkar samúð.

Höfnum heræfingum á Íslandi!

Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar

Það voru miklar gleðifregnir sl. haust, þegar bandarísku herstöðinni á Miðnesheiði var lokað og Ísland varð á ný herlaust land eftir margra áratuga bið. Það varpaði þó skugga á þessi ánægjulegu tímamót þegar stjórnvöld kynntu áætlanir um að hér skyldu haldnar reglulegar heræfingar, jafnvel með þátttöku borgaralegra íslenskra stofnana.

Hvurs taumur er dreginn?

Í grein í Fréttablaðinu nýverið vegsamar Illugi Gunnarsson kvótakerfi okkar Íslendinga í fiskveiðum. Segir m.a. séreignarrétt veiðiheimilda grundvalla velgengni sjávarútvegsfyrirtækja og raunar lykilatriði í uppsveiflu íslensks efnahagslífs.

Opið bréf til borgarfulltrúa

Kæri borgarfulltrúi. Ég er grunnskólakennari og er búin að vera það í 20 ár. Ég tel mig bera mikla ábyrgð í starfi og finnst þetta mjög mikilvægt starf. Ég skila 1800 tímum í mínu starfi eins og aðrir í landinu. Ég get engu ráðið um mín frí eins og ég gæti samt oft hugsað mér að gera.

Forsetalóðin

Í athyglisverðu viðtali á Stöð 2 liðinn sunnudag tók forseti Íslands af skarið um sýn hans frá tröppum Bessastaða. Þar koma þrjú atriði einkum til skoðunar.

Einmana börn

Íslensk börn eru einmana og sakna aukinna samskipta við foreldra og fjölskyldu. Nýlegar rannsóknir segja okkur að samskipti foreldra og barna skipti höfuðmáli þegar kemur að líðan barna og áhættu varðandi neyslu og hvers konar óreglu.

Dirty weekend in Reykjavik

Nú stendur fyrir dyrum ráðstefna í Reykjavík þar sem þátttakendur eru stórir framleiðendur klámefnis á netinu. Hvorki eru skráðir fyrirlestrar né pallborðsumræður í dagskrá á heimasíðu ráðstefnunnar. Ástæðan er sennilega ekki sú að klámframleiðendum sé lagnara að rýta og rymja en halda ræður, þótt óneitanlega sé það fyrsta hugsun.

Sturla Böðvarsson og Hvalfjarðargöngin

Mikið hefur verið skrifað um Hvalfjarðargöngin, tilurð þeirra og hagkvæmni. Tilurð þeirra er sú að stjórnarmenn við Járnblendiverksmiðjuna á Grundartanga áttu hugmyndina og leituðu samstarfs við bæjarstjórn Akraness og síðar Vegagerð ríkisins og ríkisstjórnina.

Kjaramál kennara ekki mál ríkisstjórnar?

Fréttir bárust af því að stjórnarandstaðan hefði á Alþingi þann 14. febrúar reynt að fá svör frá ríkisstjórninni hvort hún hygðist beita sér eða gera eitthvað í kjaramálum kennara. Björgvin G. Sigurðsson benti á að undiralda væri meðal kennara í grunnskólum enda ekki verið að koma til móts við þá samkvæmt kjarasamningi.

Ábyrgð eða ógæfa

Æ fleirum er að verða ljóst hversu stórt óheillaspor stóriðjustefnan er og afleiðingar hennar fyrir þjóðina um langa framtíð. Stöðugt fleiri gera sér grein fyrir þeim mikla „fórnarkostnaði” sem felst í náttúruspjöllunum. Sívaxandi er sá fjöldi sem gerir sér grein fyrir þeirri skammsýni sem ráðið hefir gerðum núverandi forystumanna.

Kársnesið: Sveit í borg

Á Kársnesinu í Kópavogi eru komnar fram mjög vafasamar hugmyndir um nýja byggð með uppfyllingu í sjó fram. Við sem byggjum Kársnesið höfum miklar áhyggjur af þessu máli.

Í fréttum: Þetta helst ...

Alþingiskosningar nálgast. Þess vegna reyna fjölmiðlar og kjósendur eftir megni að fylgjast með og greina stöðu mála í þjóðfélaginu til að geta tekið yfirvegaða afstöðu á kjördegi. Á hinni ágætu netsíðu mbl.is er hægt að sjá hvaða fréttir vekja mesta athygli og má af því draga ýmsar ályktanir.

Afskipt börn

Við höfum komið okkur upp eins konar kerfi aðskilnaðarstefnu þar sem börnin eru geymd á stofnunum frá því í frumbernsku. Við getum reyndar ekki heldur beðið eftir því að skutla gamla fólkinu inn á stofnanir líka...

Vont er þitt frjálslyndi

Íslenskan er skemmtilega gegnsætt mál nema þegar kemur að pólitík. Sá flokkur sem harðast gengur fram í því að undirselja landið erlendu herveldi kennir sig við sjálfstæði, flokkurinn með úreltustu framtíðarhugmyndirnar kennir sig við framsókn og sá flokkur sem erfiðast er að tengja frjálslyndi í einhverri óbrjálaðri merkingu orðsins kallar sig Frjálslynda.

Sjá næstu 50 greinar