Dómstóll götunnar 24. febrúar 2007 05:00 Alkunna er að Árni nokkur Johnsen var sakfelldur af dómstólum og sagði af sér þingmennsku fyrir fáeinum árum. Hefði almenningur fengið að ráða, hefði nefndum Árna verið dýft í tjöru, hann makaður fiðri og settur í gapastokk á Austurvelli. Árna var sannanlega úthúðað af almenningi sem hinum versta ódrætti. Þessi sami almenningur komst að þeirri niðurstöðu nú fyrir skömmu, að Árni þessi sé slíkur afbragðsmaður að hann skuli setjast á sjálft Alþingi Íslendinga á nýjan leik hið fyrsta. Framangreint er dæmigert fyrir afstöðu almennings til sakamála hérlendis. Fyrst krefjast menn þyngstu refsingar en vilja svo jafnvel sýkna viðkomandi, þegar mesti móðurinn rennur af þeim. Það er nákvæmlega af þessum sökum sem réttarvitund almennings er ekki gild réttarheimild hérlendis. Dómstólar eiga ekki, og mega ekki dæma eftir upphlaupi almennings eða fjölmiðlafári. Afleiðing af slíku yrði eins og ef grínfígúran Ragnar Reykás væri við dómstörf. Það er grundvallaratriði í réttarríki að samkvæmni sé í dómum, þannig að ekki sé dagamunur á refsingu fyrir sambærilegt afbrot. Stórslysauppsláttur Morgunblaðsins á forsíðu 2. febrúar sl. með myndum af fimm af dómurum Hæstaréttar er því í raun stórslys fyrir Morgunblaðið sjálft og langt fyrir neðan virðingu blaðsins en tilefnið var mildun dóms í samræmi við fyrri dómaframkvæmd. Nákvæmlega það sem dómararnir áttu að gera miðað við óbreytt lög og aðstæður. Það er svo allt annað mál hvað mönnum finnst um refsipólitík í einstökum brotaflokkum. Óskum um breytingar á refsingum á að beina til Alþingis en ekki dómstóla. Höfundur er löggiltur fasteignasali. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Reykjavík sem gerir okkur stolt Pétur Marteinsson Skoðun Kynslóðaskipti í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir Skoðun Óvenju mikið í húfi Skúli Helgason Skoðun Má bjóða þér nokkra milljarða? Róbert Ragnarsson Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson Skoðun Hvernig samfélag er Kópavogur? Jónas Már Torfason Skoðun Ekki kjósa Björgu, konuna mína Tryggvi Hilmarsson Skoðun Bílastæði fá meira pláss en börnin Unnar Sæmundsson Skoðun Umferðinni beint inn í Laugardal og Háaleiti Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Reykjavík þarf Regínu Alma D. Möller Skoðun Skoðun Skoðun Rannsókn staðfestir fúsk Seðlabanka Íslands Örn Karlsson skrifar Skoðun Hversu lengi nennir þú að bíða? Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Meira af íþróttum fyrir alla í Múlaþingi Ævar Orri Eðvaldsson skrifar Skoðun Gefum íbúum rödd í Fjarðabyggð Hjördís Helga Seljan skrifar Skoðun Fréttaflutningur RÚV um „óháða“ skýrslu ísraelsks rannsóknarhóps Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Fjölskyldan í forgang Svanfríður Guðrún Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Bílastæði fá meira pláss en börnin Unnar Sæmundsson skrifar Skoðun Þarf alltaf að vera að sekta fatlað fólk? Bergur Þorri Benjamínsson,Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Reykjavík - Menningarborg á heimsmælikvarða Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun Á kjördag er líka kosið um frelsi fatlaðs fólks Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Óraunhæft endurkaupaverð ógnar framtíð Grindavíkur Telma Sif Reynisdóttir skrifar Skoðun Vaxtarmörk Samfylkingarinnar Orri Björnsson skrifar Skoðun Tölurnar tala sínu máli Guðmundur Claxton skrifar Skoðun Var orðalag spurningarinnar mótað í Brussel? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Um menningarstefnur og borgarpólitík Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Veljum samfélag þar sem enginn er skilinn eftir Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Á bak við heimilisleysi eru einstaklingar með sögu Viðar Gunnarsson skrifar Skoðun Við erum lið Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar Skoðun Bónda í Húsdýragarðinn Herdís Magna Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar Skoðun Botnvarpan, kórallarnir og þögn Hafró Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Pissandi kýr og hörmungar – Nakba í 78 ár Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Til varnar Gísla Marteini og Borgarlínu Ingólfur Harri Hermannsson skrifar Skoðun Fæði, klæði, húsnæði Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Umferðinni beint inn í Laugardal og Háaleiti Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Ekki kjósa Björgu, konuna mína Tryggvi Hilmarsson skrifar Skoðun Kynslóðaskipti í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Garðabær má ekki staðna Viðar Kristinsson skrifar Skoðun Takk Reykvíkingar – stolt af því sem við áorkuðum saman Ellen Calmon skrifar Sjá meira
Alkunna er að Árni nokkur Johnsen var sakfelldur af dómstólum og sagði af sér þingmennsku fyrir fáeinum árum. Hefði almenningur fengið að ráða, hefði nefndum Árna verið dýft í tjöru, hann makaður fiðri og settur í gapastokk á Austurvelli. Árna var sannanlega úthúðað af almenningi sem hinum versta ódrætti. Þessi sami almenningur komst að þeirri niðurstöðu nú fyrir skömmu, að Árni þessi sé slíkur afbragðsmaður að hann skuli setjast á sjálft Alþingi Íslendinga á nýjan leik hið fyrsta. Framangreint er dæmigert fyrir afstöðu almennings til sakamála hérlendis. Fyrst krefjast menn þyngstu refsingar en vilja svo jafnvel sýkna viðkomandi, þegar mesti móðurinn rennur af þeim. Það er nákvæmlega af þessum sökum sem réttarvitund almennings er ekki gild réttarheimild hérlendis. Dómstólar eiga ekki, og mega ekki dæma eftir upphlaupi almennings eða fjölmiðlafári. Afleiðing af slíku yrði eins og ef grínfígúran Ragnar Reykás væri við dómstörf. Það er grundvallaratriði í réttarríki að samkvæmni sé í dómum, þannig að ekki sé dagamunur á refsingu fyrir sambærilegt afbrot. Stórslysauppsláttur Morgunblaðsins á forsíðu 2. febrúar sl. með myndum af fimm af dómurum Hæstaréttar er því í raun stórslys fyrir Morgunblaðið sjálft og langt fyrir neðan virðingu blaðsins en tilefnið var mildun dóms í samræmi við fyrri dómaframkvæmd. Nákvæmlega það sem dómararnir áttu að gera miðað við óbreytt lög og aðstæður. Það er svo allt annað mál hvað mönnum finnst um refsipólitík í einstökum brotaflokkum. Óskum um breytingar á refsingum á að beina til Alþingis en ekki dómstóla. Höfundur er löggiltur fasteignasali.
Skoðun Þarf alltaf að vera að sekta fatlað fólk? Bergur Þorri Benjamínsson,Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Er Borgarlínan óþörf og illa hugsuð framkvæmd á tíma tækni og breytinga? Sigfús Aðalsteinsson skrifar
Skoðun Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en þorpið er vanfjármagnað Björn Rúnar Guðmundsson skrifar