Skoðun

Raunsætt frjálslyndi

Sigurjón Þórðarson skrifar

Varla er hægt að ímynda sér ömurlegra hlutskipti en að verða þræll fíkniefna og mikið hlýtur sú sálarangist að vera sár og slítandi að eiga barn í slíkri ánauð. Sem betur fer þekkja fæst okkar þann hrylling af eigin raun og vissulega eiga fórnarlömbin alla okkar samúð.

Skipulagðri glæpastarfsemi sem miðar að því að hlekkja fjölda ungmenna við eitur má að sjálfsögðu jafna við hryðjuverk. Frjálslyndi flokkurinn hefur frá upphafi litið á það sem skyldu sína að berjast af alefli gegn þessari vá.

Ég þakka Davíð Þór Jónssyni, fyrrum ritstjóra, fyrir að vekja athygli á þessu í bakþönkum sínum á baksíðu Fréttablaðsins þann 18. febrúar sl.

Ég treysti því að Davíð sé í meginatriðum sammála okkur í Frjálslynda flokknum í þessu efni. Að vísu gætir dálítillar ónákvæmni hjá honum um stefnu Frjálslynda flokksins sem greinilega stafar af misskilningi. Þannig fordæmir hann frjálslynda vegna þess að hann telur að þeir líti á fíkla sem hryðjuverkamenn. Þetta er ekki rétt. Frjálslyndir líta á fíkla sem sjúklinga og vilja rétta þeim og aðstandendum þeirra hjálparhönd með öllum þeim ráðum sem tiltæk eru.

Í greininni fordæmdi Davíð Þór Jónsson enn fremur meinta refsigleði frjálslyndra og taldi þá vilja þyngja dóma. Frjálslyndir eru sammála Davíð í því að þyngri dómar hafa ekki skilað neinum árangri í baráttu við fíkniefni, þess vegna hafa þeir aldrei lagt til þyngri refsingar í þeim málaflokki.

Misskilningur Davíðs liggur greinilega í því að Frjálslyndi flokkurinn vill efla forvarnir gegn fíkniefnum, vill t.d. að gengið verði úr skugga um sakaferil manna sem hingað koma til lengri dvalar. Aðrar þjóðir fara fram á slíkar upplýsingar. Reynsla okkar Íslendinga er á þann veg að þessa gerist þörf hér líka, því miður.

Að lokum fagna ég því að Davíð Þór Jónsson skuli sýna málflutningi frjálslyndra áhuga og hvet hann eindregið til að halda áfram að kynna sér stefnu flokksins. Geri hann það vænti ég þess að hann muni verða skeleggur talsmaður flokksins.

Höfundur er alþingismaður.

Þannig fordæmir hann frjálslynda vegna þess að hann telur að þeir líti á fíkla sem hryðjuverkamenn. Þetta er ekki rétt. Frjálslyndir líta á fíkla sem sjúklinga



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×