Fleiri fréttir

Innflytjendur og fjölmiðlar

Það leikur enginn vafi á, að það er svokallað “innflytjendamál” sem er eitt af brýnustu umræðunarefnum í íslenska þjóðfélaginu nú til dags. Það vantar ekki menn, sem eru viljugir að tjá sig um stöðu innflytjenda í blöðum, sjónvarpi og útvarpi, á ýmsum málþingum, og mig minnir, að umræðunarröð “Vannýtt vinnuafl” sé ennþá í gangi í Reykjavíkurakademíunni.

181 dagur

Hér er fjallað um fundi Alþingis og komist að þeirri niðurstöðu að það hafi setið innan við hálft ár á þessu ári, mikil og tíð ferðalög þingmanna, en einnig er vikið að ferð kóklestarinnar um bæinn síðasta laugardag...

Umskiptingar Framsóknar

Vingulsháttur og tilviljanakenndar stefnubreytingar Framsóknar, ekki síst í RÚV-málinu, eru ekki líklegar til að endurheimta tapað traust kjósenda.

Fjölmiðlapistill

Hér er fjallað um blaðalestur, fríblöð, meint alvöru dagblöð, Mogga í kreppu, nokkur fjölmiðlaævintýri, lög um fjölmiðla og lög um Ríkisútvarpið, sjoppukarla og milljarðamæringa sem fjárfesta í fjölmiðlum...

Leiðin til jafnvægis

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir skrifar

Ekkert er eins mikilvægt fyrir íslenskan almenning og að koma á jafnvægi í íslensku samfélagi og hagkerfi. Loforð stjórnarflokkanna til almennings um betri kjör í formi skattalækkana og hærri húsnæðislána hafa því miður reynst bjarnargreiði.

Að skynja erindið

Síðan fylgja upphrópanir um að nú sé ríkisstjórnin einungis að framfylgja stefnu Samfylkingarinnar, ásamt hefbundnu yfirboðum við gerð fjárlaga og ábyrgðarleysi þegar kemur að erfiðum úrlausnarefnum sem ríkisvaldið stendur frammi fyrir.

Kosningavetur á yfirdrætti

Frestun á því að takast á við aðlögun í hagkerfinu er því næsta vafasamur leikur og nauðsynlegt að stjórnvöld séu minnt á ábyrgð sína í stjórn efnahagsmála. Við þær aðstæður er nauðsynlegt að stjórnarandstaða haldi mönnum við efnið og hvetji til skynsamlegs aðhalds í stjórn ríkisfjármála.

Jólagjöfin í ár

Allt út af einni déskotans ljósakrónu og konan mín fór meira að segja út á gangstétt til að skoða hvernig nýja krónan tæki sig út, utan frá séð!

Samvera við unglinga í fyrirrúmi

Það er ljóst að vinna við aðhald að unglingi hefst ekki á unglingsárum. Sú vinna þarf að eiga sér stað allt frá því að uppeldi barnsins hefst. Til þess að unglingar virði mörk sem þeim eru sett þurfa þeir frá upphafi að hafa alist upp við mörk sem þeim er gert að virða.

Þingmenn í fallhættu – mörg ný andlit

Samkvæmt síðustu skoðanakönnun Gallup eru óvenju margir þingmenn í fallhættu í næstu kosningum, fylgið er á mikilli hreyfingu, það stefnir í spennandi kosningar, erfiða stjórnarmyndun og í að margt nýtt fólk setjist á þing...

Bandaríkin ráða ekki ein við Írak

Á þessu stigi virðist deginum ljósara að Bandaríkjamenn og nánustu bandamenn þeirra ráða ekki einir og sér við það ástand í Írak sem þeir eru upphafsmenn að. Þar þurfa fleiri að koma til, en hverjir má svo spyrja?

Skynsamlegt frumvarp

Þetta frumvarp er um, að sala áfengis, sem hefur að geyma minni vínanda en 22 prósent, með öðrum orðum bjór og létt vín, megi færa úr Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins í venjulegar matvöruverslanir.

Tvær bíómyndir

Hér er fjallað um nýju Bondmyndina, sem líkt og margar þær fyrri er ágætis svefnmeðal, en líka um kvikmynd sem heitir Syriana og gefur afar merkilega innsýn í alþjóðlega spillingu kringum olíuiðnaðinn...

Með nærri tóman tank

Ríkissjóður þyrfti að taka mörg risalán til viðbótar til að koma gjaldeyrisforðanum upp fyrir erlendar skammtímaskuldir, og til þess hefur ríkisstjórnin ekki svigrúm. Hún hefur ekki bolmagn til að bægja frá hættunni á því, að spákaupmenn geri áhlaup á krónuna og felli gengi hennar.

Lipurð eða þrákelkni

Ef eitthvað er að marka málflutning stjórnarandstöðuflokkanna má ætla að þeir hafi endaskipti á þessari löggjöf fái þeir til þess styrk. Reynslan sýnir einnig að ýmis álitamál verður oft og einatt að útkljá fyrir dómstólum þegar málefnalegum sjónarmiðum er vikið til hliðar við þinglega meðferð.

Aðgerðir gegn ofbeldi

Ríkisstjórnin hefur samþykkt ítarlega aðgerðaáætlun vegna ofbeldis á heimilum og kynferðislegs ofbeldis fyrir tímabilið 2006 – 2011. Hún byggist á margvíslegum aðgerðum sem stjórnvöld munu beita sér fyrir til að sporna gegn ofbeldi á heimilum og kynferðisbrotum sem beinast gegn börnum auk aðgerða til að koma þeim til aðstoðar sem orðið hafa fyrir áðurnefndu ofbeldi.

Vilji kvenna

Það þarf ekki að rýna mikið í skoðanakannanir til að sjá að konur halla sér frekar að flokkum þar sem kynsystur þeirra eru í áberandi hlutverkum. Sömu heimildir gefa líka vísbendingar um að konur kjósi á öðrum forsendum en karlar.

Jól við Oxford Street

Vont var að missa af Silfrinu en nú sit ég með kvíðahnút í maganum á kaffihúsi við Oxford Street og finnst að ég þurfi að fara að kaupa jólagjafir. Traffíkin er brjálæðisleg og allir að rekast utan í alla...

Misjöfn kjör meðal þjóðarinnar

Siðferði þeirra sem gegna opinberum störfum er hins vegar orðið þannig að þegar gerðar eru athugasemdir af því tagi sem ég hef gert hér, þá segja opinberu starfsmennirnir með þjósti að það sé alltaf til fólk sem vill upphefja sjálft sig með rausi af þessu tagi. Ég mun halda áfram að rausa, ég lofa því.

Að skila auðu

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hafa í mörgum kosningum náð að toga kjósendur á miðjunni til fylgis við sig. Breytist það er hætta á að hluti kjósenda Sjálfstæðisflokksins skili auðu í næstu alþingiskosningum. Það er ekki sjálfgefið að kjósendur styðji sama stjórnmálaflokkinn aftur og aftur.

Messufall

Nú gerðist það sem ekki hefur orðið áður í átta ára sögu Silfurs Egils. Það var messufall hjá mér. Sem er náttúrlega vont þegar maður er að sumu leyti eins manns fjölmiðill...

Fram á veginn

Óhætt er að taka undir orð samgönguráðherra, Sturlu Böðvarssonar, um að hið hörmulega umferðarslys á Suðurlandsvegi á laugardag gefi tilefni til að flýta uppbyggingu Suðurlandsvegar. Slysið er óþyrmileg áminning um hversu ófullkomið vegakerfi landsins er miðað við þann umferðarþunga sem á því hvílir.

Flóttinn frá Bagdad

Framsóknarflokkurinn hefur kallað herlið sitt heim frá Írak en Sjálfstæðisflokkurinn ætlar ekki að gefast upp. Frambjóðendur í prófkjörum eru skikkaðir til að skrifa undir stuðningsyfirlýsingu við Bush og varaformaðurinn segist hvergi hvika í afstöðu sinni. Með Bandaríkjamönnum. Með borgarastyrjöld.

Stöðvum barnaklám á netinu!

Kynferðislegt ofbeldi á börnum er víðtækt vandamál. Tölur um þetta viðkvæma málefni eru sláandi og því miður á slíkt ofbeldi sér stað um allan heim.

Frjálslyndi flokkurinn og málefni innflytjenda

Erlendu fólki hefur fjölgað ört á Íslandi undanfarin misseri. Frjálslyndi flokkurinn leggur ríka áherslu á að fólki sem er af erlendu bergi brotið og flyst hingað til lands, verði gert kleift að finna sér hlutverk og aðlagast íslensku samfélagi. Einnig að tryggt sé að ekki verði brotið á því fólki, því verði sýnd full virðing og mannréttindi.

Jafnræði trúfélaga og staða Þjóðkirkjunnar

Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir skrifar

Þriðjudaginn 28. nóvember féll dómur í Héraðsdómi Reykjavíkur vegna málsóknar Ásatrúarfélagsins á hendur íslenska ríkinu um greiðslur, sambærilegar þeim sem renna til íslensku Þjóðkirkjunnar. Þjóðkirkjan hefur hvatt stjórnvöld til að auka jafnræði milli trú-félaga í þessum efnum.

Verð veiðileyfa

Söluskrá Stangaveiðifélags Reykjavíkur fyrir næsta ár var kynnt nú fyrir stuttu. Söluskráin er sérlega glæsileg og eru þar í boði rúmlega fimmtíu veiðisvæði, bæði í lax- og silungsveiði.

Vísindarannsóknir á heilbrigðissviði

Vísindarannsóknum á heilbrigðissviði hefur vaxið mjög ásmegin á Íslandi á undanförnum 10-15 árum. Í dag er um mikilvæga atvinnugrein að ræða, sem veitir þúsundum hámenntaðra starfsmanna atvinnu við hæfi.

Háskólinn árið 2011

Stúdentar við Háskóla Íslands hafa þann góða sið að halda sérstaklega upp á 1. desember. Þá minnast þeir fullveldis þjóðarinnar, votta minningu þeirra sem fyrir því börðust virðingu og um leið staðfesta þeir mikilvægi Háskóla Íslands fyrir sjálfstæði þjóðarinnar.

Forgjöf

samstarf núverandi ríkisstjórnarflokka í þrjú kjörtímabil hefur verið farsælt. Það hefur leitt til framfara og bættra lífskjara. Með nokkrum sanni má segja að fyrir utan átökin um náttúruvernd hafi aðeins stuðningur við Íraksstríðið og svo stríð ríkisstjórnarflokkanna sjálfra gegn frjálsum fjölmiðlum reynst þeim alvarlega mótdrægt á svo löngum tíma. Það er í raun ríkur árangur.

Hver gætir hagsmuna heildarinnar?

Davíð Þorláksson skrifar

Stjórnvöld höfðu gefið okkur skattgreiðendum fögur fyrirheit um að tekjuskattur einstaklinga yrði lækkaður um tvö prósent um áramótin. Það var m.a.s. búið að lögfesta þá lækkun.

Bókmenntafélagið

Á merkum tímamótum elsta félags Íslands – 190 ára afmæli Hins íslenska bókmenntafélags – er ekki úr vegi að menn reyni að gera sér grein fyrir þeim miklu áhrifum sem félag þetta hefur haft á íslenska menningu fyrr og síðar, þótt starfsemi þess hafi ekki alltaf farið hátt.

Það sem átti ekki að vera hægt

Í dag, laugardaginn 2. desember 2006, fer fram forval Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs á höfuðborgarsvæðinu. Ólíkt því sem tíðkast hefur í prófkjörum annarra flokka þá hafa frambjóðendur ekki eytt milljónum í auglýsingar um hvippinn og hvappinn.

Tökum þátt í forvali

Forval Vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu fer fram í dag. Þá veljum við þá sveit sem mun leiða framboð flokksins í þremur kjördæmum, í Suðvesturkjördæmi og Reykjavíkurkjördæmunum tveimur. Þetta er áreiðanlega í fyrsta skipti sem valið er sameiginlega á framboðslista fyrir fleiri en eitt kjördæmi utan Reykjavíkur. Hefur þessi nýbreytni vakið athygli langt út fyrir raðir flokksmanna VG og mælst vel fyrir.

Tvískinnungur: Maó og Hitler

Háskóli Íslands hýsti fyrir skömmu ráðstefnu um Maó formann, sem vinir Kínverska alþýðulýðveldisins höfðu skipulagt. Einn þeirra, Arnþór Helgason, sagði í viðtali við Morgunblaðið 10. nóvember, að „hlutlæg umræða“ um Maó væri nauðsynleg.

Raup eða alvara?

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Alþýðuflokksins, greinir frá því í viðtali við þetta blað liðinn miðvikudag að hann hafi á þeim tíma er hann gegndi þessum embættum báðum talið meira en litlar líkur á að fulltrúar bandarísku leyniþjónustunnar CIA hefðu haft aðgang að sérstöku öryggisherbergi í utanríkisráðuneytinu til þess að stunda njósnir.

Gott að vera bara 50%!

Það virðast engin mörk á afbrigðilegu hegðunarmynstri þessarar þjóðar. Umræðan um innflytjendur þróaðist í karp og taut um orðalag, hvað þessi sagði þarna og hve miklir fordómar væru hjá þessum sem sagði þetta.

Heimilisofbeldi – falið vandamál

Nú stendur yfir 16 daga átak í 16. sinn undir yfirskriftinni: Eflum mannréttindi – stöðvum ofbeldi gegn konum. Af því tilefni hafa Kvenfélagasamband Íslands, Soroptimistasamband Íslands og Zonta á Íslandi tekið höndum saman um að opna augu almennings fyrir heimilisofbeldi.

Nýsköpun í stjórnmálum

Katrín Jakobsdóttir skrifar

Ég hefði líklega orðið hissa ef einhver hefði sagt mér árið 1996 að ég myndi taka þátt í forvali og stefna að þingsæti áratug síðar. Eins og mörgum öðrum fannst mér stjórnmálalífið ekki spennandi á þeim tíma.

Framlag okkar bjargar mannslífum

Í dag verður haldin landssöfnun UNICEF á Íslandi. Ég fékk nýlega tækifæri til að sjá með eigin augum hversu miklu starf UNICEF getur skilað er ég heimsótti Afríkuríkið Síerra Leóne ásamt fulltrúum frá Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.

Sjá næstu 50 greinar