Fastir pennar

Þingmenn í fallhættu – mörg ný andlit

Skoðanakannanir sýna að fylgið er á talsverðri hreyfingu milli flokka. Ég geld reyndar varhug við skoðanakönnun sem birt var í dag frá batteríi sem kallar sig Plúsinn - hún er gerð í gegnum netið með aðferðafræði sem telst vafasöm.

Hitt er víst að útspil Frjálslynda flokksins í innflytjendamálum hefur hreyft við kjósendum. Hin mikla uppsveifla Sjálfstæðisflokks virðist vera í rénun, Framsóknarflokkurinn er ekkert að ná sér á strik, Samfylkingin kemur ekki vel út en fylgi Vinstri grænna er í hámarki. Þetta ætti að gefa fyrirheit um harða kosningabaráttu. Ég hef áður lagt út af því hversu erfitt gæti verið að mynda ríkisstjórn eftir kosningar sem færu á þá leið sem skoðanakannanir undanfarið spá. Gæti ekki stjórnarkreppa verið í spilunum?

Helsti sérfræðingur minn í kosningum er Einar Mar Þórðarson stjórnmálafræðingur. Ólíkt mér kann hann að reikna. Einar heldur úti bloggsíðu og í nýrri færslu fjallar hann um hversu margir þingmenn gætu misst sæti sín eftir kosningarnar. Einari telst til að samkvæmt síðustu Gallupkönnun séu það nítján þingmenn sem séu í mestri hættu, nefnilega eftirtaldir:

Anna Kristín Gunnarsdóttir

Ásta Möller (fer eftir kjördæmi formanns)

Birgir Ármannsson

Drífa Hjartardóttir

Guðjón Hjörleifsson

Guðjón Ólafur Jónsson

Guðrún Ögmundsdóttir

Gunnar Örlygsson

Hjálmar Árnason

Jón Gunnarsson

Jónína Bjartmarz

Kristinn H. Gunnarsson

Mörður Árnason (fer eftir kjördæmi formanns)

Sigurður Kári Kristjánsson (fer eftir kjördæmi formanns)

Sigurjón Þórðarson (gæti flutt sig um kjördæmi)

Sigurrós Þorgrímsdóttir

Siv Friðleifsdóttir

Sæunn Stefánsdóttir

Valdimar Leó Friðriksson

Á móti segir Einar að að eftirtaldir frambjóðendur eigi mestar líkur á að tryggja sér þingsæti samkvæmt niðurstöðum Gallupkönnunarinnar:

Auður Lilja Erlingsdóttir (V)

Álfheiður Ingadóttir (V)

Ármann Kr. Ólafsson (D)

Árni Johnsen (D)

Árni Páll Árnason (S)

Árni Þór Sigurðsson (V)

Björk Guðjónsdóttir (D)

Gestur Svavarsson (V)

Guðbjartur Hannesson (S)

Guðfinna Bjarnadóttir (D)

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (V)

Gunnar Svavarsson (S)

Herdís Á. Sæmundardóttir (B)

Illugi Gunnarsson (D)

Jón Gunnarsson (D)

Katrín Jakobsdóttir (V)

Kristján Þór Júlíusson (D)

Ólöf Norðdal (D)

Paul Nikolov (V)

Ragnheiður Elín Árnadóttir (D)

Unnur Brá Konráðsdóttir (D)

þingmaður í NV (V)

þingmaður í RN (F)

þingmaður í RN (F)

þingmaður í RS (F)

þingmaður í NA (F)

þingmaður í S (F)



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.



×