Fleiri fréttir

Bestu leikir ársins: Nokkrir gullmolar á annars fátæklegu ári
Við fyrstu sýn virðist leikjaárið 2022 ekki hafa verið upp á marga fiska. En, þegar það er skoðað nánar sést að það er eiginlega bara rétt, fyrir utan örfáa gullmola var leikjaárið nokkuð lélegt.

Stjórarnir taka upp veskin og gefa leiki
Strákarnir í Stjóranum munum opna veskin í kvöld þar sem janúar-glugginn opnast á leikmannamörkuðum. Þeir Óli og Hjálmar Örn munu einnig fá sérfræðing í sett til að fara yfir kerfi þeirra og gefa áhorfendum eintök af Football Manager 2023.

Halda upp á jólin með áhorfendum
Strákarnir í GameTíví ætla að halda upp á jólin með áhorfendum sínum í kvöld. Auk þess að keppa sín á milli munu þeir einnig gefa áhorfendum helling af jólapökkum.

Gamevera í jólastuði
Marín í Gameverunni verður með sannkallaðan jólaþátt í kvöld. Hún mun fá til sín góðan gest, auk þess sem hún mun spila tölvuleiki, spjalla við áhorfendur og gefa þeim gjafir.

Jólastemning hjá Babe Patrol
Það verður jólastemning hjá stelpunum í Babe Patrol í kvöld. Stelpurnar ætla bæði að spila Warzone og Overcooked en þar að auki munu þær gefa áhorfendum gjafir í anda jólanna.

Stórviðburður í Stjóranum
Það verður hart barist í Stjóranum í kvöld. Þá mætast „stálin og hnífarnir“ frá Grimsby og „hattarnir“ frá Stockport en um stórviðburð er að ræða.

Félag eldri borgara í Fortnite
Strákarnir, eða kannski frekar karlarnir, í GameTíví ætla að kíkja á nýju eyjuna í Fortnite í kvöld. Þeir segjast ætla að ná minnst þremur sigrum, auk þess sem þeir ætla að halda keppni.

Hart barist í Sandkassanum
Það verður hart barist í Apex Legends í Sandkassanum í kvöld þar sem „pabbarnir“ munu mæta „Cajun strákunum“.

Stiklusúpa: Allt það helsta sem sýnt var á Game Awards
Verðlaunahátíðin Game Awards fór fram í gærkvöldi en eins og svo oft áður notuðu leikjaframleiðendur tækifærið til að kynna tölvuleiki sem verið er að vinna að. Meðal þess sem opinberað var í gær var framhaldsleikur Death Stranding nýtt myndefni úr Diablo 4.

Fimm stjörnur hjá Gameverunni
Marín í Gameverunni fær til sín fimm stjörnu gest í kvöld. Það er hann Sigurjón eða „FimmStjörnuMaðurinn“ og ætla þau að berjast saman í hryllingsleiknum Labryinthine.

Warzone og Quiz hjá Babe Patrol
Stelpurnar í Babe Patrol ætla að verja kvöldinu í al Mazrah í Warzone 2. Þar munu þær skjóta mann og annan og halda svo spurningakeppni.

Geitur valda óreiðu í GameTíví
Streymi strákanna í GameTíví mun einkennast af geitum, óreiðu og alls konar vitleysu í kvöld. Strákarnir ætla nefnilega að setja sig í klaufar geita í leiknum Goat Simulator 3.

Among Us í Sandkassanum
Strákarnir í Sandkassanum ætla að verja kvöldinu í morð og laumuleik. Enginn er óhultur þegar strákarnir spila Among Us.

Spilar Among Us í sýndarveruleika
Jói eða Tapinn ætlar að taka yfir Twitch-rás GameTíví í kvöld. Þá ætlar hann að stinga mann og annan í bakið í leiknum Among Us og það í sýndarveruleika.

Athyglisprestarnir messa í Al Mazrah
Athyglisprestarnir ætla að láta að sér kveða í Warzone 2 í kvöld. Þar verða þeir með prestaköll og ætla að messa yfir öðrum spilurum leiksins, auk þess sem þeir munu skjóta þá.

Gameveran fer á veiðar
Marín í Gameverunni ætlar að fara á veiðar í kvöld. Með félögum sínum mun hún kíkja á leikinn Hunt: Showdown þar sem þau munu þurfa að berjast við alls konar óvættir auk annarra spilara.

Leggja vopnin á hilluna og setja á sig takkaskó
HM stendur nú yfir og hefur mikil áhrif á alla. Stelpurnar í Babe Patrol eru þar ekki undanskyldar og ætla þær því að leggja vopnin á hilluna í kvöld.

Marvel's Spider-Man: Miles Morales - Enn ein vel heppnuð PC-útgáfa hjá Sony
Spider-Man: Miles Morales er enn frekar góður leikur. Leikjadeild Sony hefur verið að stunda það að gefa út PlayStation leiki á PC að undanförnu og nú er komið að Miles Morales.

Drottningarnar kveðja
Drottningarnar ætla að kveðja í sínu lokastreymi í kvöld. Þar munu þær spila leikinn Fall Guys með áhorfendum og líta yfir farinn veg.

Risarnir mætast í Stjóranum
Það verður ýmsum spurningum svarað í nýjasta þætti Stjórans þar sem risarnir í fjórðu deildinni mætast loksins. Stockport og Grimsby munu mætast en þá mun koma í ljós hvort markastífla Grimsby bresti loksins.

Strákarnir fá aðstoð í Warzone
Strákarnir í GameTíví fá til sín góðan gest í kvöld. Hún EvaSniper69 ætlar að gera sitt besta til að bera strákana til sigurs í Warzone 2.

Solid Clouds opinbera annan leik fyrirtækisins
Forsvarsmenn íslenska leikjafyrirtækisins Solid Clouds ætla að forsýna nýjasta leik fyrirtækisins á næstu dögum. Starborne Frontiers er annar tölvuleikur félagsins og verður hann opinberaður á fjárfestadegi Solid Clouds þann 1. desember.

Marín og Óli snúa bökum saman gegn myrkrinu
Þau Marín og Óli Jóels ætla að snúa bökum saman í streymi Gameverunnar í kvöld. Saman ætla þau að mæta myrkrinu í samvinnuleiknum The Devil in Me.

Tasty gengur til liðs við Babe Patrol
Stelpurnar í Babe Patrol ætla að spila Warzone 2 í kvöld. Þar sem Alma er fjarverandi mun Tasty ganga til liðs við stelpurnar og hjálpa þeim að næla í sigra í al-Mazrah.

Stjórinn: Heldur uppgangur Grimsby áfram?
Það er hart barist í Stjóranum, þar sem þeir Hjálmar Örn og Óli Jóels keppa um hvor nær betri árangri með lið sitt í fjórðu deildinni í Englandi í Football Manager 2023. Hjálmar stýrir Stockport og Óli stýrir Grimsby.

Spila Warzone 2 í fyrsta skipti
Strákarnir í GameTíví munu prófa Warzone 2 í fyrsta skipti í streymi kvöldsins. Í þeim leik munu þeir fara til al Mazrah og etja kappi við aðra spilara.

Yfirtaka: Áhorfendur ráða förinni hjá Kaldarion
Kaldarion ætlar að taka yfir Twitch-síðu GameTíví í dag og spila leikinn Detroit: Become Human. Það ætlar hann að gera með áhorfendum sem geta kosið um ákvarðanir sem teknar eru í leiknum.

Pabbakvöld í Al Mazrah
CM!OB pabbarnir ætla að gera heiðarlega tilraun til að mála Al Mazrah rauða í Warzone 2 í kvöld. Það er að segja eftir að börnin eru komin í háttinn.

Snúa bökum saman hjá Gameverunni
Marín í Gameverunni fær til sín Allifret í heimsókn en þau ætla að setjast niður og spila svokalla Co-op leiki. Í þeim leikjum þurfa þau að snúa bökum saman til að vinna.

Hryllingur hjá Queens
Þær Móna og Valla ætla að upplifa hrylling í kvöld. Þær munu spila leikinn Pacify en sá gengur út á að lifa af í húsi þar sem illur og ógnvænlegur draugur herjar á spilara.

Einvígi stjóranna heldur áfram
Einvígi stjóranna heldur áfram í kvöld, þar sem þeir Hjálmar Örn og Óli Jóels keppa um hvor nær betri árangri með lið sitt í fjórðu deildinni í Englandi í Football Manager 2023. Hjálmar stýrir Stockport og Óli stýrir Grimsby.

Kafa dýpra í Modern Warfare 2
Strákarnir í GameTíví ætla að halda áfram að spila hinn nýja Call of Duty: Mordern Warfare 2 í kvöld. Meðal annars ætla þeir að skoða hluta leiksins sem heitir Invasion en þar spila tuttugu spilarar gegn öðrum tuttugu og bottum.

Sófasamvinna í Sandkassanum
Strákarnir í Sandkassanum ætla að spila leikina Lovers in a dangerous spacetime og Plate Up í streymi kvöldsins. Báðir leikirnir eru svokallaðir „sófasamvinnuleikir“ og munu strákarnir þurfa að taka höndum saman í kvöld.

Einvígi aldarinnar hefst í dag
Fyrsti þátturinn af Stjóranum verður sýndur í dag. Þar er um að ræða einvígi aldarinnar þar sem þeir Hjálmar Örn og Óli Jóels keppa um hvor nær betri árangri með lið sitt í fjórðu deildinni í Englandi í Football Manager 2023.

Babe Patrol kveðja Caldera
Stelpurnar í Babe Patrol halda til Caldera í síðasta sinn í kvöld og leggja Warzone til hinstu hvílu. Auk þess að spila Warzone verður einnig spurningakeppni og stelpurnar ætla þar að auki að gefa áhorendum gjafir.

GameTíví: Dói tekur God of War maraþon
God of War Ragnarök kom út í nótt en af því tilefni ætlar Dói að halda út sérstakt maraþon streymi hjá GameTíví í dag. Hann mun spila leikinn nýja og upplifa ævintýri Kratosar og Atreusar.

Call of Duty: Modern Warfare 2 - Hin fínasta upphitun fyrir Warzone 2
Það styttist í jólin og er verið að setja upp jólaljós út um allt. Eðli málsins samkvæmt fylgir nýr Call of Duty leikur aðdraganda jólanna en þetta árið er það Call of Duty: Modern Warfare 2 eða Skyldan kallar: Nútímahernaður tvö. Þótt leikurinn sé hinn fínasti er hann í rauninni bara upphitun fyrir Warzone 2 eða Warzone tvö.

God of War Ragnarök - Einn af bestu leikjum Miðgarðs
Byrjum þetta einfalt. God of War Ragnarök er einhver besti leikur sem ég hef spilað. Starfsmönnum Santa Monica Studios tókst einhvern veginn að taka mjög góðan leik og gera framhald án þess að klúðra nokkru. Ég held svei mér þá að allt sé betra á milli leikja.

Ný sýndarveruleikagleraugu PlayStation á leiðinni
Ný sýndarveruleikagleraugu PlayStation koma á markað í febrúar á næsta ári. Gleraugun munu kosta tæpar áttatíu þúsund krónur.