Fleiri fréttir

Svona ferðast ríka fólkið

Það er víst ekki alltaf tekið út með sældinni að vera frægur segir fræga fólkið en augljóslega stundum miðað við ferðamátann sem það getur leyft sér.

Kvennakór Hafnarfjarðar með jólatónleika

Kvennakór Hafnarfjarðar er kominn í jólaskap og fagnar hátíð ljóss og friðar með tónleikum sem haldnir verða fimmtudaginn 6. desember klukkan 20:00 undir yfirskriftinni Lífsins ljós. Að þessu sinni eru á dagskrá kórsins margar klassískar söngperlur, jafnt íslenskar sem erlendar, auk þekktra jólalaga sem sungin hafa verið inn í hjörtu Íslendinga á undanförnum áratugum. Stjórnandi Kvennakórs Hafnarfjarðar er Erna Guðmundsdóttir.

Gói og Þröstur komu liðinu í jólagír

Í dag hófust sýningar á notalegri sögustund með Góa og Þresti Leó á litla sviðinu í Borgarleikhúsinu. Þetta er ný íslensk jólasaga eftir Guðjón Davíð í flutningi þeirra félaga sem er eflaust kærkomin hvíld frá jólaamstrinu, einföld og falleg saga fyrir unga leikhúsgesti.

Jahá! Þetta kallar maður brjóstaskoru!

Leikkonan Salma Hayek er ein fallegasta kona heims og með afar kvenlegan líkama. Hún ákvað að sýna allt sem hún hefur á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Acapulco á föstudagkvöldið.

Þessar fara pottþétt ekki í jólaköttinn

Verslunin Júník Smáralind hélt tískusýningu þar sem jólakjólarnir í ár voru sýndir á skemmtistaðnum Austur í gærkvöldi ásamt Airbrush & Make up school. Eins og sjá má mættu margir á sýninguna.

Rosalega heldur hún sér vel

Leikkonan Julia Roberts fékk sér hádegismat á Hal's Bar and Grill í Kaliforníu í vikunni og leiddi leikkonuna Julianne Nicholson en þær leika saman í myndinni August: Osage County sem er væntanleg á næsta ári.

Í engu skapi fyrir athygli

Söngkonan Katy Perry var ekki par ánægð þegar ljósmyndarar biðu hennar í gærmorgun. Hún rölti í gegnum flugvöllin í Los Angeles með dökk sólgleraugu og reyndi að hylja andlit sitt.

Léttklæddir slökkviliðsmenn

Í ár eru myndir heimsleikafara slökkviliðsmanna höfuðborgarsvæðisins fyrir árlegt dagatal teknar í Nauthólsvík í sumar og á eldsvæði slökkviliðsmanna sem og inn á stöðvum þeirra. Strákarnir og samstarfsaðilar þeirra bjóða í fyrsta skipti uppá tilboð frá fyrirtækjum, sem fylgja hverju seldu dagatali í ár. Skemmtigarðurinn Smáralind, Subway , Oddi og Thorshammer armbönd ríða á vaðið með heimsleikaförunum.

Ég myndi fæða barn á hverjum degi

Flestar mæður eru sammála um það að það að fæða barn sé enginn hægðarleikur. Leikkonan Sienna Miller er hins vegar til í að fara í gegnum þessa lífsreynslu eins oft og hún getur.

Þórunn Lárusdóttir heimsótt

Söng- og leikkonan Þórunn Lárusdóttir flutti ásamt eiginmanni sínum og tveimur börnum í 80 fermetra hæð í Vogahverfinu. Sindri Sindrason heimsótti Þórunni í þættinum Heimsókn sem er á dagskrá Stöðvar 2 á laugardagskvöldum strax að loknum kvöldfréttum. Smelltu á link til að horfa á þáttinn.

Geir Ólafs áritar í Kringlunni í dag

"Platan er tekin upp hér heima og fékk ég til liðs við mig einhverja færustu hljóðfæraleikara í Ameríku,"segir Geir Ólafsson sem var að gefa út plötuna I´m talking about you. Geir áritar nýju plötuna í Hagkaup í Kringlunni klukkan 14:00 í dag, sunnudag.

Æ, æ, meiköppklúður!

Glee-pían Lea Michele hefur prýtt rauða dregilinn í ófá skipti en eitthvað klikkaði makeup-artistinn þegar hún fór í partí á vegum Hollywood Foreign Press Association og InStyle.

Hress í fjölskyldugöngutúr

Hin síhressa og eiturfyndna Anna Faris brosti út að eyrum er hún fór út í göngutúr með son sinn Jack í Hollywood í vikunni.

Selur hús í stjörnuhverfi

Leikkonan Katherine Heigl og eiginmaður hennar Josh Kelley eru búin að setja húsið sitt í Los Feliz á sölu. Vilja þau 2,7 milljónir dollara fyrir, tæplega 340 milljónir króna.

Kynþokkinn lekur af henni

Aðþrengda eiginkonan Eva Longoria prýðir forsíðu mexíkóska GQ og situr fyrir í eggjandi undirfötum eins og henni einni er lagið.

Jólagleðin við völd hjá 365

Gleðin var svo sannarlega við völd hjá starfsmönnum 365 miðla á skemmtistaðnum Spot í gærkvöldi eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem Daníel tók.

Knúsast á Instagram! Byrjuð saman aftur?

Poppararnir Rihanna og Chris Brown hafa ekki staðfest þær sögusagnir að þau séu byrjuð saman aftur en þau hata ekki að stríða slúðurpressunni. Rihanna birti mynd á Instagram-síðu sinni sem gefur ýmislegt til kynna.

Gekk vel á Broadway

Nýtt leikrit Katie Holmes, Dead Account, var frumsýnt fyrir skömmu á Broadway við góðar undirtektir. Foreldrar hennar, Martin og Kathleen, fylgdust með henni úr áhorfendasalnum. Það er af sem áður var þegar hún lék síðast á Broadway árið 2008. Þá sat Tom Cruise, fyrrverandi eiginmaður hennar, á fremsta bekk og hvatti sína konu áfram.

Gaman á glæpakvöldi

Hið íslenska glæpafélag hélt vel heppnað glæpakvöld fyrir skömmu.

Dáleiðir ekki þann sem vill það ekki

Yrja Kristinsdóttir er dáleiðslutæknir. Dáleiðslutæknin á ekkert skylt við þá sem töframaðurinn Sailesh notar. Hún getur aðeins dáleitt þá sem eru viljugir.

Hvert er nafn mitt?

Stjörnurnar eiga það til að ganga undir dulnefni til að verja einkalíf sitt frá ágengum aðdáendum. Dulnefnin eru misgóð og þykja sum hreinlega hlægileg.

Þetta kallar maður dívudress!

Söngkonan Mariah Carey var heldur betur í glæsilegum búningum þegar hún söng þekkta jólaslagara fyrir myndavélarnar í New York. Um var að ræða upptöku fyrir athöfnina þegar kveikt er á jólaljósunum við Rockefeller Center.

Ekki búinn að borða í mánuð

Matthew McConaughey er ekki sá eini sem leggur mikið á sig fyrir kvikmyndina The Dallas Buyers Club. Hjartaknúsarinn Jared Leto leikur klæðskipting í myndinni og hefur líka lagt gríðarlega mikið af.

Litli bróðir byrjaður að módelast

Braison Cyrus, litli bróðir stórstjörnunnar Miley Cyrus, er ansi þokkafullur á nýjum myndum, þeim fyrstu sem teknar eru síðan hann skrifaði undir fyrirsætusamning hjá Wilhelmina Models.

Ungstirni takast á

Ungstirnin Sarah Hyland og Bella Thorne eru fáránlega hæfileikarík. Þessar ungu stúlkur eru afar fagrar en takast hér á á tískuvellinum.

Fjölskylduhjálp Íslands þakkar fyrir sig

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands afhenti Fréttastofu Stöðvar 2 og Morgunblaðinu viðurkenningu Fjölskylduhjálparinnar sem "Fjölmiðlar mannúðar" í húsnæði Fjölskylduhjálpar í dag fyrir almenna umfjöllun um starfsemi Fjölskylduhjálparinnar.

Ég er ekki að svelta mig

Leikarinn Matthew McConaughey er búinn að léttast um sautján kíló fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni The Dallars Buyers Club þar sem hann leikur eyðnismitaðan mann.

Heimsborgaralegt yfirbragð í Mjóddinni

Harpa Guðjónsdóttir hönnuður er eigandi merkisins Harpa Jewelry. Í línunni eru armbönd og hálsfestar úr Swarovski kristöllum og ferskvatnsperlum. Harpa blandar saman ólíkum litum og steinum þannig að yfirbragðið verður heimsborgaralegt. Línan var frumsýnd í Gleraugnabúðinni í Mjódd, sem er ein glæsilegasta gleraugnaverslun landsins. Í meðfylgjandi myndskeiði segir Harpa sjálf frá og sýnir hönnun sína.

Stjörnustríð - hvor er flottari?

Þeim Amber Heard og Scarlett Johansson hefur oft verið líkt saman en báðar eru þær leikkonur og báðar ganga þær rauða dregilinn reglulega eins og tíðkast í Hollywood.

Nýttu gamla dótið í nýja kransinn

Sigríður Jónsdóttir eða Systa rekur heildverslun sem selur fallega muni til heimilisins. Systa er mikið jólabarn og hefur gaman af einföldum og fallegum hlutum. Hjá henni tekur öll fjölskyldan þátt í að skreyta saman.

Pelsinn flytur

Það var glatt á hjalla þegar verslunin Pelsinn hélt innflutningspartí á Tryggvagötu 18 á dögunum. Glæsilegir gestir fögnuðu í "Svörtu perlunni" eins og húsnæðið er kallað.

Elskar að vera mamma - María Sigrún fréttakona

Fréttakonan María Sigrún Hilmarsdóttir varð mamma í apríl á þessu ári þegar hún eignaðist dreng. María tók á móti Lífinu á fallega heimilinu sínu og ræddi um jólin fram undan, móðurhlutverkið, fréttastarfið og eina af ástríðum hennar sem er kökubakstur, en hún bakaði sjálf brúðkaupstertuna sína.

Vingast við barnapíuna

Leikkonan Sarah Jessica Parker er dugleg að viðra sig og sína í stórborginni New York þar sem hún býr.

Blóðið flæðir í kvöld

Annar þáttur af raunveruleikaþættinum MasterChef Ísland fer í loftið í kvöld á Stöð 2. Í þætti kvöldsins fara þeir bestu úr áheyrnarprufunum í svokallaðar Boot Camp, matreiðsluherbúðir.

Taumlaus gleði þarna

Fyrstu Tulipop-bókinni, sem er sköpunarverk Signýjar Kolbeinsdóttur og Helgu Árnadóttur, var fagnað í vikunni með blöðrum, appelsíni og lakkrísrörum í Atmó á Laugavegi.

Moses-maður með í för

Krakkarnir í Of Monsters and Men héldu af stað í enn eitt tónleikaferðalagið eftir að þau spiluðu á Kex-Hosteli á Íslandi á Iceland Airwaves-hátíðinni-nú til Norður-Ameríku, þar sem þau hafa þegar slegið rækilega í gegn.

Árni til Frakklands

Ár kattarins, ný glæpasaga Árna Þórarinsson, hefur verið seld til Frakklands.

Kasólétt á himinháum hælum

Coleen Rooney, eiginkona knattspyrnukappans Wayne Rooney, spókaði sig um í Manchester með móður sinni á dögunum. Coleen lét ekki óléttuna stoppa sig og var í himinháum Louboutin-hælum í haustkuldanum.

Kynþokkafyllri gerast þær ekki

Burlesque-stjarnan Dita Von Teese kynnti nýja undirfatalínu fyrir Debenhams á dögunum. Hún lét það vera að fækka fötum en var í staðinn í afar flegnum kjól svo sást í brjóstahaldarann.

Búið spil! Selur húsið og flytur aftur heim

Enski tónlistarmaðurinn Robbie Williams er búinn að setja heimili sitt í Beverly Hills á sölu fyrir 3,6 milljónir dollara, 455 milljónir króna. Ætlar hann að yfirgefa Bandaríkin fyrir fullt og allt og flytja aftur heim til Bretlands.

Já, sæll! Þekkið þið þessa?

Lost-stjarnan Evangeline Lilly lét sjá sig á rauða dreglinum á heimsfrumsýningu myndarinnar The Hobbit: An Unexpected Journey á Nýja-Sjálandi. Evangeline fer með hlutverk í myndinni en minnstu mætti muna að enginn þekkti hana.

Sjá næstu 50 fréttir