Fleiri fréttir

Nýtt sýnishorn úr Evrópska draumnum frumsýnt

Það er greinilegt að ekkert er gefið eftir í þáttunum Evrópski draumurinn. Vísir frumsýnir hér fyrsta sýnishornið úr þáttunum sem verða sýndir á Stöð 2 í sumar. Liðin sem keppa eru að þessu sinni skipuð þeim Sveppa og Pétri Jóhanni annarsvegar og þeim Audda og Steinda Jr. hinsvegar.

Rómantískur Ryan Gosling

Leikaraparið Ryan Gosling, 31 árs, og Eva Mendes, 38 ára, leiddust í New York í gærdag...

Bak við búðarborðið

Það lifnaði svo sannarlega yfir miðbæ Reykjavíkur þegar sólin hækkaði á lofti.

Barnshafandi Barrymore

Leikkonan Drew Barrymore, 37 ára, og unnustin hennar Will Kopelman mættu prúðbúin á galadansleik í New York í vikunni...

Á söluhæstu smáskífuna

Lagið Evergreen/Anything Is Possible með popparanum Will Young er söluhæsta smáskífulag 21. aldarinnar í Bretlandi. Skífan kom út árið 2002 og hafa selst af henni 1,8 milljón eintök. Í öðru sæti er Someone Like You með Adele sem hefur selst í 1,35 milljónum eintaka. Þetta kemur fram í tölum frá Official Chart Company í Bretlandi.

Tökur á Walter Mitty hafnar

Tökur á gamanmynd Bens Stiller, The Secret Life of Walter Mitty, eru nýhafnar í New York. Stiller skoðaði ýmsa tökustaði hér á landi í fyrra vegna myndarinnar, þar á meðal á Seltjarnarnesi, Djúpavogi og í Stykkishólmi, og heillaðist mjög af því sem fyrir augu bar.

Samningur undirritaður

Talið er að Britney Spears hafi samþykkt að vera dómari í hæfileikaþáttunum X-Factor næsta vetur og að hún fái í sinn hlut hátt í tvo milljarða króna.

Finlands Next Top Model á Íslandi

"Það er okkur sönn ánægja að fá að taka þátt í þessu verkefni,“ segir Lilja Konráðsdóttir hjá Max Factor um samstarf snyrtivörumerkisins og sjónvarpsþáttaseríunnar Finlands Next Top Model.

Geislandi Lopez

American Idol dómarinn, söngkonan og leikkonan Jennifer Lopez, 42 ára, kynnti nýtt ilmvant, Glowing by JLo, á Bel Air hótelinu í Los Angeles í gær....

Festa ferðalagið á filmu

„Þetta er glæný hugmynd og þjónusta sem vantaði sem og markaðsetning fyrir Ísland í leiðinni,“ segir Unnar Helgi Daníelsson Beck eigandi fyrirtækisins Memo Iceland sem sér til þess að ferðamenn gleymi ekki ævintýrum sínum á Íslandi.

Árshátíð Baðhússins

Gleðin var við völd á árshátíð Baðhússins á Hótel Borg um síðustu helgi. Linda Pétursdóttir eigandi og starfsfólk hennar var stórglæsilegt eins og má á meðfylgjandi myndum. Skemmmtiatriðin voru af dýrari gerðinni og gleðigjafinn Logi Bergmann sá til þess að allir skemmtu sér konunglega. Baðhúsið er á Facebook.

Kátar á konukvöldi

Lífsstílsverslunin Myconceptstore.is í eigu Heiðu Bjargar Bjarnadóttur hélt á dögunum glæsilegt konukvöld.

Vel skóuð Longoria

Leikkonan Eva Longoria mætti með uppsett hárið í svörtum kjól og laxableikum hælaskóm í sjónvarpsþáttinn Late Show með David Letterman í New York í gær...

Í hvítu frá toppi til táar

Leikkonan glæsilega, Jessica Alba sást yfirgefa SoHo Grand Hotelið in New York eftir hádegismat með góðum vinum.

Nýtt tímarit um heimili og mat

„Íslendingar hafa alltaf hugsað vel um heimili sín og þeim þykir mörgum gaman að elda,“ segir innanhúshönnuðurinn Halla Bára Gestsdóttir en hún og eiginmaður hennar, Gunnar Sverrisson ljósmyndari, vinna nú að stofnun nýs veftímarits um heimili og mat.

Tekur sig ekki of hátíðlega

Það leikur enginn vafi á því að Sharon Osbourne tekur sjálfa sig ekki of hátíðlega þrátt fyrir að lifa og hrærast í Hollywood. Hún var mynduð afslöppuð á ferðinni í gær í Los Angeles í Kaliforníu í gær í svörtu pilsi, og kamellitaðri preysu. Þá stillti hún sér upp ásamt dóttur sinni, Kelly, á rauða dreglinum í svartri dragt og ljósbláum topp. Takið eftir hvað hún er sæt.

Glamúr í gær - hversdagsleiki í dag

Leikkonan Jessica Biel var mynduð á röltinu um Soho hverfið í New York í gær með vinkonu glæsileg eins og ávallt. Hún var glæsileg og hversdagslega klædd í svörtum leðurstígvélum. Þá var leikkonan alls ekki síðri með unnusta sínum Justin Timberlake á rauða dreglinum í síðkjól síðustu helgi. Endalausar getgátur eru uppi um brúðkaupið þeirra en slúðurheimurinn vestan hafs heldur því fram að parið ætli að gifta sig á Ítaliu.

Varar íslensku þjóðina við Grínmúrarareglunni

"Þetta félag er svolítið eins og Sjálfstæðisflokkurinn, til að tryggja að félagsmenn séu í góðum stöðum og að þeim líði vel,“ segir Mið-Íslandsgrínarinn Dóri DNA um Íslensku Grínmúrararegluna.

Stefna þvert yfir Grænlandsjökul

Vilborg Anna Gissurardóttir og Valdimar Halldórsson eru lögð af stað í mikla ævintýraferð á Grænlandi þar sem förinni er heitið um 540 km leið yfir Grænlandsjökul. Áætlaður leiðangurstími er um fjórar vikur.

Þarf á hvíld að halda

Tim Burton vill taka sér hlé frá kvikmyndagerð í dálítinn tíma áður en hann hefur störf á nýjan leik. Leikstjórinn verður önnum kafinn út þetta ár. Frumsýndar verða myndir hans Dark Shadows og Frankenweenie, auk myndarinnar Abraham Lincoln: Vampire Hunter sem hann framleiddi.

Væntingarnar eru miklar

Hljómsveitin Beach House er mætt með sína fjórðu plötu, Bloom. Hún telst vera rökrétt framhald af hinni vel heppnuðu Teen Dream.

Samkomulag náðist loks

Ofurfyrirsætan Linda Evangelista og milljarðamæringurinn Francois-Henri Pinault náðu sáttum um meðlagsgreiðslur Pinault til Evangelistu. Fyrirsætan hafði farið fram á rúmar 5,7 milljónir króna á mánuði í meðlag.

Keypti Galtarvita

Tónleikar til styrktar Galtarvita verða haldnir í Gamla bíói í kvöld og munu sveitir á borð við Tilbury og Hjaltalín stíga á svið um kvöldið. Allur ágóði tónleikanna rennur í uppbyggingu á listasmiðju á staðnum.

Greta Salóme frumsýnir kjólinn í dag

Fatnaðurinn sem Eurovisionfararnir Greta Salómeog Jónsi klæðast í Aserbaidsjan verður opinberaður í beinni útsendingu á aðdáendasíðu Gretu Salóme á Facebook klukkan 16 í dag. Þær Rebekka Ingimundardóttir og Elma Bjarney Guðmundsdóttir eiga heiðurinn af klæðaburði íslenska hópsins í ár og bíða margir spenntir eftir því hverju hann mun klæðast á sviðinu í Bakú. Vinir Sjonna, sem kepptu í Eurovision í fyrra, ætla að einnig að taka lagið og koma fólki í Eurovision-gírinn.

Glaður í föðurhlutverki

Leikarinn Johnny Depp sagðist í viðtali við The Sun vera ánægður í dag og mundi ómögulega vilja endurlifa æskuár sín.

Vilja sýna ferðamönnum næturlífið

„Við höfum tekið eftir aukinni eftirspurn eftir þjónustu á borð við þessa frá útlendingum niðri í bæ,“ segir Darri MacMahon, annar eigandi hins nýstofnaða fyrirtækis Reykjavík by Night.

Fagnar vorinu í Eldborginni

„Við ætlum að fagna vorinu,“ segir Raggi Bjarna sem heldur Vorkvöld í Reykjavík í Eldborgarsal Hörpu laugardaginn 12. maí. „Harpan er staðurinn fyrir svona tónleika. Þarna er líka hægt að horfa á Akrafjallið og Esjuna.“

Einu sinni ónytjungur

Gamanleikarinn Jason Segel fer með eitt af aðalhlutverkunum í kvikmyndinni Jeff Who Lives at Home sem leikstýrt er af bræðrunum Jay and Mark Duplass. Segel segist eiga margt sameiginlegt með persónu sinni, ónytjungnum Jeff.

Börn eru blessun

Jennifer Lopez á tvíburana Max og Emme en segist vel geta hugsað sér að eignast fleiri börn í framtíðinni.

Bjargaði mannslífi

Leikkonan Mila Kunis kom manni til aðstoðar á laugardag þegar hann fékk flogakast. Maðurinn var við störf á heimili leikkonunnar þegar atvikið átti sér stað.

Útidúr til Kanada

Kammerpoppsveitin Útidúr er á leiðinni í tónleikaferð til Kanada. Þar spilar hún ásamt þarlendu hljómsveitinni Brasstronaut. Tónleikaferðin hefst 29. maí í Bresku-Kólumbíu og lýkur 22. júní í Montreal. Alls verða tónleikarnir tuttugu talsins hjá þessari tólf manna hljómsveit.

Avengers sló aðsóknarmet

Ofurhetjumyndin The Avengers er tekjuhæsta opnunarmynd allra tíma í Norður-Ameríku. Hún halaði inn 200 milljónir dollara, eða um 25 milljarða króna. Fyrra metið átti Harry Potter and the Deathly Hallows Part 2 sem þénaði 169 milljónir dollara síðasta sumar. Á eftir henni koma The Dark Knight og Spider-Man 3 en báðar ofurhetjur þeirra mynda, Batman og Spider-Man snúa aftur í nýjum myndum í sumar.

Óttast farsímaleysi

Nomophobia kallast það er fólk hræðist að vera úr símasambandi við aðra og samkvæmt nýrri rannsókn eru um 66 prósent Breta haldnir þessari fælni.

Geislandi mamma Beyonce

Beyonce Knowles og unnusti hennar Jay-Z mættu í útgáfuhóf hjá Ericu Reid höfund bókarinnar The Thriving Child í gær. Eins og sjá má í myndasafni geislaði af nýbökuðum foreldrunum. Þá má einnig sjá X Factor dómarann L.A. Reid en hann er eiginmaður höfundarins Ericu.

Kasólétt sjónvarpsstjarna

How I Met Your Mother leikkonan, Alyson Hannigan var mynduð kasólétt fyrir utan spítala í vikunni en nú styttist í fæðingu barns hennar og eiginmannsins, Alexis Denisof Eins og sjá má í meðfylgjandi myndasafni er Alyson kasólétt.

Jennifer Love Hewitt sumarleg og sæt

Leikkonan, Jennifer Love Hewitt var brosandi og hress þegar ljósmyndarar smelltu nokkrum myndum af henni í New York í gær. Jennifer var sumarleg með bera leggi í háum hælum, fagurbláu pilsi og með hnút í hári.

Sofia Vergara á lausu

Leikkonan Sofia Vergara, 39 ára, er hætt með unnusta sínum til tveggja ára, Nick Loeb. Slúðurheimurinn vestan hafs heldur því fram að parið hafi rifist stöðugt og hætt saman annan hvern dag...

Vilhjálmur og Kate kíktu út

Vilhjálmur prins og Kate Middleton sáust yfirgefa veitingarstað í London í gærkvöldi en þau eyddu kvöldinu með góðum vinum. Að vanda var Kate glæsileg í alla staði og að þessu sinni klæddist hún hvítu sem ætlar að verða vinsæll litur þetta sumarið.

Svalur Johnny Depp

Leikarinn Johnny Depp gekk hröðum skrefum ásamt fylgdarliði með kúrekahatt og sólgleraugu eins og sjá má á myndunum þegar hann yfirgaf sjónvarpsstöð í Hollywood...

Sjá næstu 50 fréttir