Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Magni syngur með Hvanndalsbræðrum Hvanndalsbræður hafa sett lagið Besservisser í útvarpsspilun. Fylgir það eftir vinsældum laganna Gleði og glens, Fjóla og Vinsæll. Ráðist verður í gerð myndbands við lagið sem verður það fyrsta sem bræðurnir senda frá sér í núverandi mynd. Hvanndalsbræður verða duglegir við tónleikahald það sem eftir er ársins til að kynna sína nýjustu plötu sem kom út í lok maí. 8.7.2010 06:45
Sviðsljósið á De Niro Tökur á hasarmyndinni The Killer Elite með Robert De Niro í aðalhlutverki hafa farið fram í Melbourne í Ástralíu að undanförnu. Sigurjón Sighvatsson er einn af framleiðendum myndarinnar, eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu. Tökurnar hafa vakið mikla athygli í þarlendum fjölmiðlum enda ekki á hverjum degi sem stjarna á borð við De Niro kemur til landsins. 8.7.2010 06:30
Shakira syngur við lokaathöfn Kólumbíska söngkonan Shakira stígur á svið á lokaathöfn heimsmeistarakeppninnar í knattspyrnu á sunnudaginn. Þar ætlar hún að syngja HM-lagið Waka Waka (This Time for Africa). Hún flutti lagið einnig á opnunar-hátíð HM í borginni Soweto 10. júní síðastliðinn. 8.7.2010 06:15
Dæmd í fangelsi með „fuck u“ á puttanum Leikkonan Lindsay Lohan var á þriðjudag dæmd í 90 daga fangelsi fyrir ýmis brot á skilorði. Lohan grét í réttarsalnum en skilaboðin á löngutöng hennar bentu ekki til iðrunar. 8.7.2010 06:00
Bílabingó með í ferðalagið Guðrún Gyða hannaði sérstakt Bílabingó eftir að hafa átt sams konar spil fyrir 20 árum. Hún segist vonast til þess að spilið fái nútímabörn til að fylgjast meir með út um gluggann á ferð sinni um landið. 8.7.2010 06:00
The Fancy Toys spila á Íslandi Ragnheiður Gröndal söngkona og Guðmundur Pétursson gítarleikari ásamt hljómsveitinni The Fancy Toys efna til fernra tónleika á Norðurlandi og í Reykjavík þessa dagana. Með þeim í för verða kvikmyndatökumenn sem hyggjast gera heimildarmynd um Íslandsferð hljómsveitarinnar. 8.7.2010 06:00
Karlakór St. Basil-kirkju væntanlegur til landsins Hinn heimsþekkti karlakór St. Basil-kirkju er nú væntanlegur til landsins í fjórða sinn. Kórinn kemur fram á Reykhólahátíð seinna í mánuðinum og mun það vera í þriðja sinn sem hann kemur fram þar. 8.7.2010 05:15
The XX og FM Belfast efst Enska hljómsveitin The XX og FM Belfast eru efstar á lista yfir flestar tónleikabókanir hljómsveita á árinu í kjölfar Eurosonic-hátíðarinnar í Hollandi. The XX hefur verið boðið á ellefu hátíðir í Evrópu og fast á hæla hennar fylgir FM Belfast með níu hátíðir. 8.7.2010 05:00
Tveggja daga þrítugsafmæli fyrir Audda „Ég er svo mikið afmælisbarn að ég verð að halda upp á þessi tímamót með stæl. Þetta verður eins konar fiesta,“ segir Auðunn Blöndal sem á 30 ára afmæli í dag. Auddi er búinn að skipuleggja heljarinnar veislu en hann heldur af stað í óvissuferð í dag með sínum helstu vinum. „Þetta er strákaferð þar sem ég mun fara með vini mína út um allan bæ á eitthvert skrall,“ segir Auddi en hann vill ekki gefa upp hvað sé á dagskránni enda búinn að skipuleggja ferðina í langan tíma. „Ég er sko löngu búinn að biðja strákana um að taka frí í vinnu á morgun svo hægt sé að sletta ærlega úr klaufunum í kvöld.“ 8.7.2010 04:00
Vinir Endless Dark í vanda Matthew Leone, bassaleikari bandarísku rokksveitarinnar Madina Lake, er á batavegi eftir að hafa orðið fyrir alvarlegri líkamsárás á dögunum. Leone sá náunga nokkurn lúskra á eiginkonu sinni skammt frá íbúð sinni í Chicago og ákvað að skipta sér af. Maðurinn kunni ekki að meta það og fór illa með Leone og skildi hann eftir margbrotinn og meðvitundarlausan. 8.7.2010 03:15
Anna Hlín orðin mamma Drengur Lewis fæddist í gær 06.07.2010 kl 22:10 Vó heilar 17 merkur og 52 cm. Okkur heilsast mjög vel og allt gekk eins og í sögu" skrifaði Anna Hlín söngkona sem við hittum 29. júní síðastliðinn. Visir óskar Önnu Hlín og eiginmanni hennar innilega til hamingju með frumburðinn. 7.7.2010 17:00
Þessi hárgreiðsla gerir helling fyrir hana - myndband „Nú er ég að undirbúa einfalda greiðslu..." sagði Unnur þegar hún sýndi okkur hvernig rúlla má upp hárinu og nota nálar (hárspennur) sem eru ódýrar og auðveldar í notkun. Smelltu á Horfa á myndskeið með frétt. 7.7.2010 14:30
Klikkað SATC partý - myndband Vð ætlum að vera með Sex and the City partý," sagði Anna Þóra Björnsdóttir í gleraugnaversluninni Sjáðu á Laugavegi. Smelltu á ... 7.7.2010 12:37
FM Belfast á DR 2 Tveggja og hálfrar klukkustundar þáttur verður sýndur á dönsku sjónvarpsstöðinni DR 2 á laugardagskvöld um Hróarskelduhátíðina sem var haldin um síðustu helgi. Elektró-poppsveitin FM Belfast kemur þar meðal annars við sögu. 7.7.2010 06:45
Guðdómlegir kjólar á markaði Fatahönnuðurinn Erna Bergmann, fatahönnunarneminn Guðrún Tara, fyrirsætan Eva Katrín og Helena Jónsdóttir slá upp fatamarkaði á pallinum á Boston í kvöld klukkan átta. 7.7.2010 06:30
Helgi Björns í kvikmynd Renny Harlin Helgi Björnsson, söngvari og leikari, er nú að undirbúa sig fyrir upptökur á nýrri kvikmynd, en þær fara fram í Ungverjalandi í haust. 7.7.2010 06:00
Margeir sjarmerar Svíana Plötusnúðurinn Margeir hefur komið reglulega fram á næruklúbbnum Berns Salonen undanfarið. Klúbburinn er vel þekktur í sænsku skemmtanalífi og þar sjást sænsku konungsbörnin gjarnan skemmta sér. 7.7.2010 05:00
Útvarpsstöðin Nálin í loftið Útvarpsstöðin Nálin fer í loftið á tíðninni 101,5 á næstu dögum. Stöðin er í eigu Útvarps Sögu og verður megináherslan lögð á klassískt rokk. 7.7.2010 04:00
Þeytir skífum á stærsta skemmtistað í heimi Plötusnúðurinn Benedikt Stefánsson, betur þekktur sem DJ BenSol, vann fyrstu verðlaun í alþjóðlegu plötusnúðakeppninni Let‘s Mix fyrir skemmstu. Í verðlaun fær Benedikt tækifæri til að þeyta skífum á einum vinsælasta skemmtistað heims, Space á Ibiza, fyrstur Íslendinga. 7.7.2010 03:00
Tískudrottningar selja af sér klæðin „Við mælum hiklaust með því að allar dömur og tískudrósir mæti á markaðinn og geri kaup lífs síns. Það er bara þannig,“ segir Erna Bergmann fatahönnuður. Hún stendur fyrir fatamarkaði á Boston við Laugaveg á morgun. 6.7.2010 18:30
FM Belfast fær útreið á Hróarskeldu Íslenska sveitin FM Belfast fær lægstu einkunn allra þeirra sveita sem spiluðu á Hróarskeldu þetta árið í opinberu veftímariti hátíðarinnar. Þunnir raftónar og lélegir brandarar, segir í gagnrýni blaðsins. 6.7.2010 17:00
Þetta tekur mjög á og það venst ekkert - myndband „Forsagan er sú að pabbi minn og sem sagt afi hans Hilmars slasaðist 15. apríl 2006 og er lamaður frá háls og niður..." sagði Finnur Bjarki þegar við hittum hann og son hans Hilmar Tryggva í dag en þeir gáfu nýverið út disk til styrktar Mænuskaðastofnun Íslands. Facebooksíðan þeirra ef þú vilt styrkja málefnið. 6.7.2010 15:59
Svona mótast líkaminn mjög hratt - myndband „Aðalmálið er bara að venja sig á það að vera alltaf að gera eitthvað sem tengist hreyfingu. Helst daglega, 30 mínútur í senn," sagði Guðmundur Haukur Guðmundsson sjúkraþjálfari og stöðvarstjóri World Class á Seltjarnarnesi þegar við spjölluðum við hann í hádeginu. Hann ræðir m.a. um próteintöku, jóga og Crossfit í meðfylgjandi myndskeiði. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt. 6.7.2010 14:00
Dæmigert að koma til Íslands út af kvenfólkinu - myndband Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá Ragnheiði Gröndal og strákana í breska bandinu The Fancy Toys en þau efna til fjögurra tónleika á Norðurlandi og í Reykjavík 7.-10. júlí næstkomandi. Meðlimirnir hafa lesið sig til um fegurðardrottningar frá Íslandi og vilja hitta kvenmenn á tónleikaferðalaginu. Ragnheiður Gröndal og The Fancy Toys á Facebook. 6.7.2010 11:00
Lyppaðist niður í upptökum Söngkonan Cheryl Cole féll í yfirlið í myndatöku um helgina og hefur nú aflýst allri vinnu á næstunni, þar á meðal dómarasætinu við hliðina á Simon Cowell í bresku X Factor-þáttunum. Henni hefur nú verið ráðlagt að hvíla sig um óákveðinn tíma af læknum sem greindu hana með magavírus og langþreytu. 6.7.2010 06:45
Semja við eitt stærsta tónleikafyrirtæki Evrópu „Við erum rosalega sáttir við þetta,“ segir Atli Sigursveinsson, gítarleikari rokksveitarinnar Endless Dark. 6.7.2010 06:15
Umdeild dönsk mynd á RIFF Átján kvikmyndir hafa verið staðfestar á Alþjóðlega kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, sem verður haldin í haust. 6.7.2010 06:00
Ískaldir tónar og lélegir brandarar á Hróarskeldu Hljómsveitirnar Sólstafir og FM Belfast spiluðu á Hróarskelduhátíðinni í Danmörku um síðustu helgi. Sólstafir fá góða dóma fyrir frammistöðu sína en misjafnar skoðanir eru um spilamennsku FM Belfast. 6.7.2010 06:00
Vinkonur smygla sér á rauða dregilinn „Við vorum ekki nema um tíu metra frá öllum stjörnunum," segir Birgitta Líf Björnsdóttir, 17 ára nemi við Verzlunarskóla Íslands. 6.7.2010 05:00
Friðrik Dór sendir frá sér sitt fyrsta myndband Söngvarinn Friðrik Dór hefur gefið frá sér sitt fyrsta myndband. Það er við lagið Fyrir hana. Hann frumsýndi myndbandið á Óliver síðastliðinn Fimmtudag og fékk góðar undirtektir. 5.7.2010 20:30
Taka upp auglýsingu fyrir Yellow Pages hér á landi Íslenska kvikmydadúóið Árni & Kinski eru staddir hér á landi til að taka upp auglýsingu fyrir bandarísku útgáfuna af Gulu Síðunum. Stefán Árni og Siggi Kinski eru báðir búsettir í Bandaríkjunum með fjölskyldum sínum en segjast nýta hvert tækifæri til að koma og taka upp auglýsingar hér heima. 5.7.2010 19:15
Jákvæðar bylgjur í átt að TÞM „Við erum ennþá á staðnum,“ segir Danni Pollock, forsprakki tónlistarþróunarmiðstöðvarinnar (TÞM) úti á Granda. 5.7.2010 16:00
Ofuránægð með soninn Ofurfyrirsætan Gisele Bundchen segir sjö mánaða gamlan son sinn, Benjamin, vera orðinn klósetvanann. „Hann hefur mjög reglulegar hægðir, tvisvar á dag, og ég set hann alltaf beint á koppinn. Það er þó örlítið erfiðara að fá hann til að pissa í koppinn,“ sagði hin stolta móðir. 5.7.2010 13:45
Sumir kunna að gera salat sem heilar - myndband „Þetta salat gerir þú bara á einni til tveimur mínútum vil ég meina..." sagði Rósa áður en hún sýndi okkur hvernig útbúa má einfalt, hollt og kærleiksríkt salat sem borða má með hverju sem er. Eldað af lífi og sál - matreiðslubók (bókin hennar Rósu (Facebook)). Viljið þið sjá hvað hún er að rækta!! 5.7.2010 11:36
Eiginmaðurinn illa slasaður Eiginmaður leikkonunnar Tori Spelling, Dean McDermot, liggur illa slasaður á sjúkrahúsi eftir torfæruslys. McDermot var fluttur á spítala eftir að lunga hans féll saman og mun hann dvelja næstu daga á gjörgæslu þar til hann hefur náð fullum bata. McDermot lenti í öðru torfæruslysi fyrr á árinu og brotnaði þá á öxl. Mikið hefur verið fjallað um hjónaband Spelling og McDermot frá því þau létu pússa sig saman og telja sumir að hjónabandið sé aðeins til sýnis, en parið er með sinn eigin raunveruleikaþátt þar sem fylgst er með fjölskyldulífi þeirra. 5.7.2010 11:00
Hrifinn af áströlskum konum Breski leikarinn Ed Westwick, sem fer með hlutverk Chuck Bass í sjónvarpsþáttunum Gossip Girl, segist vera hrifinn af eldri konum. Inntur eftir því hvort hann eigi sér laumuskot segist hann hrifinn af leikkonunni Scarlett Johansson. 5.7.2010 09:30
Harkar í Hollywood innan um atvinnulausa leikara Darri Ingólfsson fer með aðalhlutverkið í kvikmyndinni Boðbera sem frumsýnd verður á miðvikudaginn kemur. Darri hefur verið búsettur í Los Angeles undanfarið ár og upplifað ýmislegt skemmtilegt á þeim tíma. 5.7.2010 09:00
Orgía á Playboy setrinu: Skiptust á að stunda kynlíf með Hugh Hefner Fyrrverandi Playboy stúlka hefur rofið þagnarmúrinn og lýst á opinskáan hátt kynlífsorgíum með hinum 84 ára gamla Hugh Hefner á Playboy setrinu. Hún segir stúlkurnar hafa skipst á að stunda kynlíf með Hugh Hefner. 5.7.2010 15:47
Sharon Osbourne: Ozzy er mjög rómantískur Sharon Osbourne segir að eiginmaður hennar, Ozzy, sé mun rómantískari en hún sjálf. Þau eiga 28 ára brúðkaupsafmæli í dag og af því tilefni bauð Ozzy elskunni sinni til Feneyja. „Hann er miklu rómantískari en ég. Hann leggur meira upp úr hlutunum en ég," sagði Sharon í gær og bætti við að hana hlakkaði til að heimsækja Feneyjar með eiginmanni sínum. 4.7.2010 18:30
Victoria innréttar lúxusjeppa - myndband Í gær var kynnt opinberlega að Victoria Beckham, sem hefur slegið í gegn með fatahönnun sinni, ætlar að hanna Range Rover Evoque alfarið að innan. Margir halda því fram að innréttingin í bílunum er orðin á eftir tímanum og það kom í hennar hlut að endurbæta eða breyta Ákvörðunin var formlega tilkynnt á 40 ára afmæli Range Rover, Victoria hefur verið aðdándi bílanna í fjölda ára sem spililr ekki fyrir henni að gera bílana enn þægilegri fyrir nútímakonur eins og hana. „Þetta er mjög spennandi samstarf. Sígild klassík, topplífsgæði og fegurð er eitthvað sem ég hef alltaf dáðst að og ég vona að ég nái að skapa mína eigin framleðislulínu og vera hluti af skapandi teymi," sagði Victoria. 4.7.2010 07:36
Patti minntist Hróarskelduslyssins Tíu ár eru síðan örlagaríka júníkvöldið á Hróarskelduhátíðinni átti sér stað og níu ungmenni tróðust undir á Pearl Jam-tónleikum. 3.7.2010 18:15
Frasier skilur í þriðja sinn Camilla Grammer sem er þriðja eiginkona leikarans Kelsey Grammer, sem er betur þekktur sem Frasier, hefur nú sótt um skilnað. Þrátt fyrir að vera þriðja hjónaband leikarans virðist það ekki ætla að ganga upp líkt og orðatiltækið segir. 3.7.2010 15:15
Skýrði barnið í höfuðið á Lady Gaga Söngkonan Lady Gaga hefur nú fengið sína fyrstu nöfnu. Það var faðirinn, Ian Clark, sem skírði nýfædda dóttir sína í höfuðið á söngkonunni á dögunum eftir að hafa grínast með það við fjögurra ára gamla stjúpdóttur sína. 3.7.2010 08:30
Paris ofurpakkar fyrir HM Hótelerfinginn Paris Hilton er á leiðinni til Suður-Afríku til að fylgjast með heimsmeistaramótinu í knattspyrnu. 11 dagar eru eftir af keppninni en Hilton hefur pakkað í 12 ferðatöskur til að taka með sér. 3.7.2010 06:45
Jón Ólafsson og Mike Tyson bestu vinir „Tyson er ljúfur sem lamb,“ segir athafnamaðurinn og vatnskóngurinn Jón Ólafsson. 3.7.2010 06:30