Fleiri fréttir

Alls ekki óþægilegt að sýna nærföt - myndir

„Nei mér finnst alls ekki óþægilegt að sýna nærföt," svarar Guðrún Dögg Rúnarsdóttir ungfrú Ísland 2009 sem var ein af drottningunum sem sýndu undirföt spurð hvernig henni leið að spranga um á nærfötunum í kringum ókunnuga.

Karl sigursæll í Hollywood

„Þetta kom nokkuð á óvart því myndin er gerð fyrir lítin pening. En það er gaman þegar menn taka eftir svoleiðis myndum,“ segir Karl Júlíusson, leikmyndahönnuður, en hann stóð uppi sem sigurvegari á Art Directors Guild Awards á laugardagskvöldið þegar leikmynd The Hurt Locker var valinn sú besta í nútímamyndaflokknum. Avatar fékk verðlaunin í flokki ævintýramynda og Sherlock Holmes-kvikmynd Guy Ritchie fyrir sögulega-flokkinn. Hátíðin var haldin á Beverly Hills Hilton-hótelinu og fékk gamla brýnið Warren Beatty sérstök heiðursverðlaun.

Ingvar staðgengill Magga Ólafs

„Ég missti eina tröppu úr þegar ég var fara á klósettið í hléinu á Mömmu Gógó, datt kylliflatur og hálfrotaðist. Lét mig þó hafa það að klára myndina. Ég var með kúlu á hausnum og það var ekki fyrr en daginn eftir að ég fór að finna fyrir þessu. Ég endaði á spítala og var þar fjóra daga. Ég missti svo mikið blóð. Það rifnaði eitthvað inni mér," segir leikarinn Magnús Ólafsson, sem komst í hann krappann á dögunum. Slysið kom sér illa því Magnús var bókaður í stuttmynd.

Framleiðandi merkir tískuvörur Gyðju vitlaust

„Þetta er allt mín hönnun, en í sumum tilfellum er vitlaust nafn skráð,“ segir Sigrún Lilja Guðjónsdóttir, hönnuður og eigandi Gyðju Collection, en á síðu kínversks vöruframleiðanda má sjá myndir af hönnun Sigrúnar Lilju og eru þær sumar hverjar merktar sem hönnun óþekkts Mr. Stephano og hefur það vakið nokkra furðu.

Gerpla Baltasars frumsýnd

Þjóðleikhúsið frumsýndi á föstudaginn leikverkið Gerplu sem byggt er á samnefndri sögu Halldórs Laxness. Þetta er í fyrsta skipti sem þessi magnaða bók nóbelsskáldsins fer á svið en það eru þeir Baltasar Kormákur og Ólafur Egill Egilsson sem eiga heiðurinn af leikgerðinni. Baltasar situr síðan í leikstjórastólnum en með tvö helstu hlutverkin fara þeir Björn Thors og Jóhannes Haukur Jóhannesson. Mikil stemning skapaðist á undan sýningunni og þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði var ekki annað að sjá en gestir sýningarinnar gætu vart beðið eftir að komast inn og sjá þessa frægu sögu Halldórs lifna við.

Bjargvætturinn á metsölulista

Bókin Bjargvætturinn í grasinu eftir hinn sáluga J.D. Salinger er í öðru sæti á kiljulista Eymundsson. Salinger lést 27. janúar síðastliðinn og síðan þá hefur áhugi á verkum hans aukist mikið.

Einkaþota Parisar Hilton - myndir

Á meðfylgjandi myndum má sjá Paris Hilton, 28 ára, og unnusta hennar, Doug Reinhardt, 32 ára, yfirgefa einkaþotu Parisar á Santos Dumont flugvellinum í Rio de Janeiro. Doug myndaði Paris þegar hún steig út úr einkaþotunni eins og sjá má í myndasafni.

Ó nei þetta er vandræðalegt - myndir/myndband

Á meðfylgjandi myndum má sjá þegar breska fyrirsætan Agyness Deyn, 26 ára, missteig sig tvisvar á sýningarpalli í New York í gærdag. Sjá má Agyness klappa og hlæja yfir vandræðunum í fyrra skiptið og klæða sig síðan úr hælaskónum eftir að hún missteig sig í annað sinn. Hér má sjá vandræðin.

Ekki fenguð þið ykkur eins tattú? - myndir

Á meðfylgjandi myndum, sem teknar voru í nótt á Hverfisbarnum, Hressó, Jacobsen og á Nasa, má sjá ungt fólk skemmta sér. Vinkonur með eins húðflúr á úlnliðnum vöktu athygli Sveinba ljósmyndara sem tók myndirnar. Superman.is í samstarfi við Jacobsen og Bacardi Razz ætla að bjóða til dansveislu fyrir lengra komna í kvöld, laugardag 13. febrúar. Sjá nánar hér.

Sjálfsöruggar og sjúklega sætar - myndir

Victoria Beckham, 35 ára, og Naomi Campbell, 39 ára, stilltu sér upp í teiti sem haldið var á vegum Naomi til styrktar Haítí í New York í gærkvöldi. „Ég klæði mig á kynþokkafullan hátt en ekki of áberandi," sagði Victoria. Skoða Naomi og Victoriu betur í myndasafni.

Breyttu texta fyrir myndband

Myndband hljómsveitarinnar Hitakúts við lagið Gefið mig allan af plötunni Ástin Míní er komið í spilun, bæði á Netinu og í sjónvarpinu. Þar er sögð saga tveggja einstaklinga á dramatískan hátt og til þess að sagan passaði betur við lagið var uppröðun textans breytt. „Hugmyndin að laginu var allt önnur í rauninni,“ segir Sigurjón Unnar Sveinsson, Hitakútur. „Svo ákváðum við að gera vídeó og þá sá ég fyrir mér þessa sögu. Til þess að þetta myndi ganga upp þurftum við að svissa versi tvö og þrjú. Þá féll textinn algjörlega inn í þessa sögu.“

Cruz glímir við Sparrow

Spænska leikkonan Penelope Cruz er í viðræðum um að leika í fjórðu sjóræningjamyndinni Pirates of the Caribbean: On Stranger Tides. Landi hún hlutverkinu mun hún leika á móti sjálfum Jack Sparrow, sem Johnny Depp hefur túlkað á eftirminnilegan hátt í fyrstu þremur myndunum. Tökur á framhaldsmyndinni hefjast í sumar og frumsýningin verður í maí á næsta ári. Penelope Cruz var nýverið tilnefnd til Óskarsins fyrir hlutverk sitt í söngvamyndinni Nine. Leikstjóri hennar er Rob Marshall, sá hinn sami og leikstýrir Stranger Tides.

Hleypur maraþon

Transformers-leikarinn Shia LaBeouf ætlar að hlaupa Los Angeles-maraþonið 21. mars. Með því vill hann safna peningum fyrir samtökin US VETS, sem aðstoða hermenn sem koma heim frá Írak og Afganistan. Samtökin eru afar mikilvæg í augum Shia því faðir hans Jeffrey barðist í Víetnam auk þess sem afi hans var hermaður. „Við erum afar ánægð með að herra LaBeouf vildi taka í maraþoninu fyrir okkar hönd,“ sagði forseti US VETS. Shia er ekki fyrsta Hollywood-stjarnan sem tekur þátt í maraþoni, því stutt er síðan Katie Holmes keppti í New York-maraþoninu þar sem Tom Cruise og dóttir þeirra Suri hvöttu hana áfram. Sjónvarpskokkurinn Gord­on Ramsay er einnig fastagestur í Lundúnamaraþoninu.

Ólafur Darri gróf Inga lifandi

„Ólafur er bastarður í myndbandinu - reiður og aggressívur. Hann er ruslakarl á daginn og gefur lík á kvöldin,“ segir tónlistarmaður Ingi Örn Gíslason.

Sexí túba og það sem hverfur

Vetrarjazzinn heldur áfram um helgina með spennandi og fjölbreyttri kvölddagskrá á Café Kúltúru. Þeir sem koma fram eru Hljómsveit Kristjönu Stefánsdóttur, Fönksveinar og B3 tríóið í kvöld og Tríó Eyþórs Gunnarssonar og ungir sólistar undir dyggri handleiðslu Andrésar Þórs og hljómsveitar spreyta sig annað kvöld.

Minnast 75 ára afmælis

Söngvarinn Friðrik Ómar, ásamt hópi annarra tónlistarmanna, heldur tónleika í Salnum laugardaginn 20. febrúar í tilefni af 75 ára afmæli Elvis Presley. Farið verður yfir feril kóngsins þar sem lög á borð við Jailhouse Rock, Love Me Tender og Can"t Help Falling in Love verða á efnisskránni. Elvis fæddist í Mississippi í Bandaríkjunum 8. janúar 1935 og hefði því orðið 75 ára á þessu ári hefði hann lifað. Miðasala á tónleikana í Salnum fer fram í síma 570 0400 og á Salurinn.is. Miðaverð er 2.900 krónur.

Kirkjustrákur frá Njarðvík

Rapparinn Ástþór Óðinn gaf út plötuna Both Ways í desember. Öfugt við marga á hann í engum vandræðum með að skilgeina tónlistina sína.

Tjáir sig um Kurt Cobain

Söngkonan Courtney Love tjáir sig opinskátt um fyrrverandi eiginmann sinn, hinn sáluga rokkara Kurt Cobain úr Nirvana, í viðtali við tímaritið Spin. „Ég giftist náunga, hann drap sig og ég erfði allt saman. Þannig gekk þetta fyrir sig,“ sagði Love. Hún á þessa dagana í forræðisdeilu vegna dóttur þeirra, Frances Bean, sem er sautján ára. Nýlega var ákveðið að aðgangur Love að Frances verði áfram takmarkaður þangað til í apríl. Þá munu dómstólar endurskoða málið. Love hefur lengi átt við vímuefnavandamál að stríða, auk þess sem fjárhagurinn hefur verið dapur upp á síðkastið.

Neitar að hitta eiginkonuna

Bandarískur dómstóll hefur úrskurðað að eiginkona leikarans Dennis Hopper, Victoria, þurfi að halda sig að minnsta kosti þremur metrum frá honum.

Tvær nýjar frá Insol

Tónlistarmaðurinn Insol (Ingólfur Sigurðsson) gaf nýlega út tvo diska með eigin músík. Þetta eru sólódiskar númer níu og tíu og heita Það og það og Ísland skal aría griðland. Insol hóf að gefa út tónlist árið 1998 og gerði átta diska til ársins 2003. Þá fór hann í langa útgáfupásu. Í fyrra gaf Brak-útgáfan út safnplötuna Hátindar, þar sem safnað var saman átján lögum frá ferlinum. Þar má meðal annars heyra lagið þekkta, „Hvenær mun hér á Íslandi rísa stjörnusambandsstöð?“

Dagbókarfærslur Einars

Í dag kl. 16 verður opnuð málverkasýning Einars Garibaldi Eiríkssonar, Grand Tour, í Gallerí Ágúst, sem er á Baldursgötu 12. Á sýningunni eru fundin málverk (Tableaux trouvés) sem Einar hefur safnað á götum sögufrægra borga Ítalíu á undanförnum árum, en titill sýningarinnar vísar til „Grand Tour“-ferðanna er náðu hámarki sínu á 18. öldinni. Á síðasta áratug hefur Einar ferðast í fótspor hinna þekktu ferðalanga um Ítalíu, þar sem hann hefur meðal annars starfað sem leiðsögumaður. Líta má á hin fundnu málverk sem dagbókarfærslur Einars, með vísunum til þeirra listamanna er tóku sér þetta ferðalag á hendur í leit að skilningi á sameiginlegri arfleifð.

Ormur er rómantíska hliðin á Góa

„Ormur Óðinsson er rómantíska hliðin á mér,“ segir Gói, eða Guðjón Karl Davíðsson, sem leikur hinn 17 ára Orm í sýningunni Gauragangur sem verður sett á fjalirnar í Borgarleikhúsinu 19. mars.

Vill leika í Kill Bill 3

Daryl Hannah hefur mikinn áhuga á að endurtaka hlutverk sitt sem Elle Driver í þriðju Kill Bill-myndinni. Leikstjórinn Quentin Tarantino hefur gefið í skyn að myndin komi út árið 2014 þar sem brúðurin, sem Uma Thurman lék, lendir í enn fleiri slagsmálum. Tarantino hefur einnig íhugað að búa til tvær anime-teiknimyndir í tengslum við Kill Bill. „Það er óvíst hvað verður því Quentin á eftir að gera það upp við sig hvort þetta verður anime-mynd eða venjuleg hasarmynd. Maður veit aldrei með hann,“ sagði Daryl, sem næst leikur í myndinni A Closed Book.

Birgitta Haukdal og barnið - myndband

Birgitta Haukdal hefur lítið verið í sviðsljósinu undanfarið, en hún hefur þó ekki sagt skilið við tónlistina, því undanfarin þrjú ár hefur hún stundað söng- og kennaranám í Danmörku. Fyrir rúmu ári giftist hún eiginmanni sínum Benedikti Einarssyni og fyrir sjö mánuðum fæddist svo frumburður þeirra hjóna, Víkingur Brynjar. Í Íslandi í dag í kvöld er kíkt í heimsókn til Birgittu, sem segir móðurhlutverkið það yndislegasta sem komið hafi fyrir hana. Hún segist ekki sakna tónlistabransans, en útilokar þó ekki að hún láti að sér kveða á þeim vettvangi á næstunni.

Heimsfræg með bólur - myndir/myndband

Söngkonan Katy Perry, 25 ára, segir frá húðvandamálum sínum í nýrri auglýsingu fyrir bólukrem. Katy, sem var bannað að horfa á MTV sjónvarpsstöðina þegar hún var yngri, var mynduð með gula húfu á LAX flugvelli ásamt unnustanum Russell Brand eftir að farangur hennar var grannskoðaður í tollinum. Skoða parið betur í myndasafni.

Stjörnumódel sýna einkennisklæðnað í kvöld

„Ef stjórnmálamenn hafa viljann til þess þá er lest betri kostur en almenn umferð,“ segir franski listamaðurinn Etienne De France sem hefur staðið fyrir listagjörningi á vefnum þar sem hann hefur hannað lest sem á að ganga á milli Keflavíkurflugvallar til BSÍ í Reykjavík.

Gullfallegar í gyllta salnum - myndir

Margt var um manninn á vínsýningu sem fram fór í gyllta salnum á Hótel borg í gær. Gestum var boðið var upp á að smakka af öllum tegundum vinframleiðandans Concha y Toro. Eins og myndirnar, sem Þorgeir ljósmyndari tók, sýna leiddist stelpunum ekki.

Hellingur af skvísum - myndir

Eins og myndirnar sýna mætti hellingur af skvísum í verslunina Modern í gær þar sem Arcadesign fagnaði Corvuz sem er ný hönnunarlína. „Í dag erum við að vinna á fullu í Arca og erum að leggja drög að því að koma vörunum okkar á erlendan markað. Viðbrögðin hafa verið ótrúlega góð," sögðu Vilborg Aldís Ragnarsdóttir og Hafdís Heiðarsdóttir, eigendur Arcadesign.

Sjúklegur áhugi á hrukkustraujárninu - myndir

„Hrukkustraujárnið seldist upp á Íslandi," segir Unnur Þorsteinsdóttir sem selur hrukkustraujárnið sem er að gera allt vitlaust í Hollywood og nú hér á landi. „Viðbrögðin eru frábær eins og við mátti búast þegar um svona magnað tæki er að ræða," segir hún. „Við höfum ekki náð að taka öll símtöl vegna álags á símanum og í afgreiðslu en við erum svo heppin að við vorum að fá nýja sendingu í hús," segir Unnur. „Við höfum fengið nokkur símtöl og heimsóknir frá fólki sem er búið að kaupa tækið sem er hreinlega með tárin í augunum af gleði yfir árangrinum sem það er að sjá strax. Okkur þykir sérstaklega vænt um það." Hverju eru Íslendingar að sækjast eftir? „Fólk er að sækjast eftir yngra og betra útliti, færri hrukkum, minni húðholum, fallegri, hreinni og heilbrigðari húð," segir Unnur og heldur áfram upptalningunni: „Lyftingu á andliti og líkama eins og brjóst, rass, minni appelsínuhúð og stinnari húð um allann líkama." „Margir eru líka að sækjast eftir þykkara og heilbrigðara hári en tækið vinnur á öllu þessu og meira til."

Til heiðurs Deep Purple

Tvennir tónleikar til heiðurs rokksveitinni Deep Purple verða haldnir á Sódómu Reykjavík 17. og 18. febrúar. Eiríkur Hauksson verður söngvari og með honum á sviðinu verða Ingólfur Sigurðsson, Vignir Stefánsson, Jóhann Ásmundsson og Sigurgeir Sigmundsson. Þetta er í þriðja sinn sem Eiríkur,

Frelsisveit Nýja Íslands

Tónlistarveislan Vetrarjazz heldur áfram í kvöld. Klukkan 23 leikur Frelsissveit Nýja Íslands á Café Kultura við Hverfisgötu.

Fleiri umsóknir en í síðasta Idoli

„Þetta voru engar ruglumsóknir. Við fengum góð viðbrögð frá alvörufólki,“ segir sjónvarpsmaðurinn og verðandi veitingamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson.

Plötukynning Hudson

Hljómsveitin Hudson Wayne er snúin aftur með sjö laga plötuna How quick is your fish? Þetta er fyrsta platan frá sveitinni síðan Battle of the Banditos

Magnús verður Íþróttaálfur

Magnús Scheving hyggst leika Íþróttaálfinn í Laugardalshöll á hátíð tileinkaðri Latabæ sem haldin verður laugardaginn 27. mars, hugsanlega í síðasta sinn. Síðast lék Magnús þennan síhoppandi karakter í

Björn spilar í Japan

Gítarleikaranum Birni Thoroddsen hefur verið boðið að leika með japanska gítarleikaranum Kazumi Watanabe um páskana. Tónleikarnir verða á einum þekktasta djassklúbbi Tókíó, Shinjuku Pit Inn. Watanabe, sem er einn þekktasti djassleikari Japans, heldur upp á fjörutíu ára starfsafmæli sitt í ár.

Íris Hólm: Lagið hans Bubba fast í höfðinu á mér

„Upphækkunin í laginu hjá Bubba og Óskari Páli kom mér mest á óvart. En jesús hvað hún var alveg málið! Ég er með lagið fast í höfðinu á mér og finnst alveg magnað hvað það vinnur á," segir Íris. „Núna einbeiti ég mér að því að syngja með Bermuda. Við erum alltaf að spila á Broadway á eftir MJ sýningunum og á opnum böllum. Svo erum við að vinna að okkar eigin efni. Auk þess fer mest allur minn tími í stofnun á samtökum fyrir þunglynda. Finnst það vanta og nýti alla mína orku í það." Þú leist rosalega vel út á laugardaginn. Hvað er leyndarmálið á bak við það? „Takk fyrir það. Ég var með hóp af fagfólki sem hjálpaði mér að vera algjörlega gordjöss. Katla Einars farðaði mig og Elis Veigar sá um hárið á mér. Auk þess á Erla Fanney fáránlegt lof skilið fyrir frábæran kjól. Hún saumaði og sá um lokaútkomuna en hönnun sáu þau Sigrún Ragna frænka og Haffi Haff um. Ég var búin að vera í algjörri megadívumeðferð á Greifynjunni fyrir kvöldið og leið rosalega vel eftir það."-elly@365.is

Ótrúlega góð viðbrögð - myndir

„Við vorum báðar að sinna öðru þegar ævintýrið byrjaði," útskýra Vilborg Aldís Ragnarsdóttir, sem var sölustjóri, og Hafdís Heiðarsdóttir, sem þá var í fæðingarorlofi, spurðar út í hönnunarfyrirtækið þeirra Arcadesign. „Í dag erum við að vinna á fullu í Arca og erum að leggja drög að því að koma vörunum okkar á erlendan markað. Viðbrögðin hafa verið ótrúlega góð." „Ævintýrið hófst síðastliðið vor þegar við sátum yfir kaffibolla í eldhúsinu hjá Vilborgu sem var að fara að ferma frumburðinn." „Talið barst að borðbúnaði og að það vantaði eitthvað sniðugt og smart sem tæki ekki allt skápaplássið hjá manni." „Upp frá því fóru hugmyndirnar að fæðast hver af annarri og áður en við vissum af þá vorum við komnar með fyrstu línuna, Alfa, sem saman stendur af kökudisk á fæti, þrískiptum stöndum, brauðtertudisk, servíettustandi og kertastjökum. Sérstæðan við línuna er að alla hluti er hægt að taka í sundur," útskýra þær. „Í tilefni nýju línunnar, Corvuz, verðum við með opið hús í dag klukkan 17:00 í Modern, Hlíðasmára 1 í Kópavogi og það eru allir velkomnir," segja þær áður en kvatt er. Í myndasafni má sjá nýju línuna þeirra.

Betra að fara strax á hausinn - myndband

„Auðvitað er ég reiður við sjálfan mig fyrir að hafa tekið erlent lán," segir Vilhjálmur meðal annars í viðtali í Ísland í dag sem sjá má í meðfylgjandi myndskeiði. „Ríkisstjórnin þarf að hysja upp um sig buxurnar og gera eitthvað í þessu."

Stutt í fermingarnar - myndir

Í tilefni þess að núna er stutt í fyrstu fermingarnar var haldin sérstök fermingarsýning í Blómavali í Skútuvogi um síðustu helgi og samhliða voru aðrar Blómavalsverslanir á landinu settar í fermingarbúning. Á sýningunni í Blómavali mátti sjá skreytt veisluborð, fermingarskraut, fermingarblóm, merktar sálmabækur, áprentun á servíettur, skrautskrifuð kerti, hanska og margt fleira. Eins og sjá má á myndunum sýndi Halldór Kr. Sigurðsson konditorímeistari hvernig kransakaka er búin til og Jói Fel mætti og kynnti fermingarkökur.

Fíflar og lauf í SÍM

Sigríður Rut Hreinsdóttir er SÍM-ari febrúarmánaðar og sýnir olíumálverk sem unnin eru á árunum 2001-2008 í sal SÍM í Hafnarstræti. Myndefnið sem hefur verið henni hugleikið um tíma er fíflar og lauf.

Hefner fráskilinn

Spennið beltin, stúlkur – því gamalmennið og Viagra-dólgurinn Hugh Hefner er fráskilinn eftir 21 árs hjónaband.

Draumahús Rachel Weisz

Rachel Weisz hefur tekið að sér aðalhlutverkið í spennumyndinni Dream House. Þar leikur hún á móti sjálfum James Bond, Daniel Craig, og Naomi Watts. Myndin fjallar um par sem flytur í nýtt hús sem er ekki jafn fullkomið og þau héldu í fyrstu. Leikstjóri verður Jim Sheridan og er myndin væntanleg á næsta ári. Hin 39 ára Weisz leikur í tveimur öðrum myndum á þessu ári. Fyrst leikur hún persónuna Kathryn Bolkovav í The Whistleblower og síðan leikur hún í dramatíska vestranum Unbound Captives.

Fatafellan ófrísk eftir Josh Duhamel

Leikarinn Josh Duhamel er sagður hafa haldið framhjá eiginkonu sinni, söngkonunni Fergie úr Black Eyed Peas, með fatafellunni Nicole Forrester. Samkvæmt nýjustu fréttum er hún að verða mamma og samkvæmt ennþá nýrri fréttum er hann að verða pabbi. Og ekki er Fergie ólétt.

Sjá næstu 50 fréttir