Lífið

Eli er David Hasselhoff Íslands

Eli Roth ræddi mikið um Ísland í spjallþætti Conan O‘Brian.
Eli Roth ræddi mikið um Ísland í spjallþætti Conan O‘Brian.

Hryllingsmyndaleikstjórinn Eli Roth var í viðtali við spjallþáttakónginn Conan O‘Brian á mánudaginn í New York og var spjallið undirlagt af umræðum um Ísland.

Í þættinum var sýnt brot úr Hostel II sem nú er sýnd í kvikmyndahúsum og þar var notast við tökur úr Bláa lóninu. Eli hefur komið hingað ótal sinnum en eins og svo oft hefur komið fram vann hann á bóndabæ fyrir austan fjall sem unglingur. Þar fékk hann hugmyndina að sinni fyrstu mynd, Cabin Fever, sem skaut honum uppá stjörnuhimininn.

Fram kom í þættinum að Ísland væri eftirlætisstaður leikstjórans. „Þeir sem komu fyrst til Íslands voru norrænir víkingar. Og þeir tóku með sér allar fallegustu konurnar frá Bretlandi,“ sagði Eli, sem augljóslega hefur nýtt sér sögukennsluna úr Thule-auglýsingunum og varð tíðrætt um fegurð íslenskra kvenna. Leikstjórinn dró ekki dul á hrifningu sinni á landi og þjóð og hvernig honum hefði verið tekið hér. Sagðist í rauninni vera það sama og David Hasselhoff væri fyrir Þjóðverja. „Eða eins og Fonzie úr Happy Days,“ sagði Eli.

Frægt er orðið þegar góðvinur Eli, leikstjórinn Quentin Tarantino, kom fram í sama þætti og talaði ansi fjálglega um frjálslega hegðun íslenskra kvenna og ekki síst drykkjarvenjur þeirra. Eli minntist eilítið á heimsókn þeirra félaga fyrir rúmu ári síðan og sagði að hann hefði lokkað Tarantino til að koma með sér með orðunum. „Þú verður svona eins og Frank Sinatra þarna.“ Og taldi nokkuð víst að það hefði ræst. „Hann hefði getað stjórnað landinu, slíkar voru vinsældirnar.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.