Fleiri fréttir

Botnleðja skríður undan feldi

"Ég býst við að klára plötuna núna í ágúst eða september, ég er bara að leggja lokahönd á hana," segir Heiðar Örn Kristjánsson um væntanlega plötu The Viking Giant Show. Heiðar er sem kunnugt er gítarleikari og söngvari Botnleðju en hann hefur notað pásu sem hljómsveitin hefur verið í til að taka upp sólóplötu. Heiðar segir að öll lögin séu tilbúin, nú eigi bara eftir að smíða nokkra texta og klára upptökur.

Damon Albarn með nýja hljómsveit

Tónlistarmaðurinn og Íslandsvinurinn Damon Albarn er búinn að stofna nýja hljómsveit. Damon hefur undanfarið unnið að sólóplötu í samstarfi við Danger Mouse en hefur nú ákveðið að taka sér hlé frá því verkefni. Blur-aðdáendum verður ekki að ósk sinni um að Damon fari aftur að vinna með Graham Coxon að nýju Blur-efni.

Hrókurinn heimsækir munaðarleysingjaheimili í Tasiilaq

Í gær fóru þrír af liðsmönnum Hróksins, þau Arnar Valgeirsson frá Rauða krossinum, Hulda Hákon myndlistarkona og Sigrún Baldvinsdóttir frá Reykjavíkurborg í heimsókn til Princesses Margrethes Börnehjem sem er heimili fyrir munaðarlaus börn og þau sem ekki geta verið hjá foreldrum sínum.

Deilur um pólitík

Miklar umræður eru nú meðal aðdáenda hljómsveitarinnar Radio­head um pólitískar skoð­anir söngvarans Thom Yorke. Söngvarinn setti færslu inn á heimasíðu sveitarinnar þar sem hann krafðist afsagnar breska forsætisráðherrans Tony Blair. Yorke skrifaði að sér þætti nóg komið af samstöðu Blairs með George Bush, nú þegar þriðja heimsstyrjöldin virtist vera að brjótast út. Færslan var hins vegar tekin út af heimasíðu Radio­head og engar skýringar hafa fengist á því. Sumir vilja meina að Yorke hafi verið beittur þrýstingi af stjórnvöldum, en aðrir telja að hann hafi lesið yfir eigin skrif og einfaldlega snúist hugur.

300.000 manns á 30 árum

Ég syng með fólkinu ekki fyrir það, segir Árni Johnsen athafnamaður og fyrrverandi alþingismaður. Hann er ákveðið tákn Þjóðhátíðarinnar í Eyjum og á þessu ári fagnar hann 30 ára brekkusöngsafmæli sínu og hefur nú sungið fyrir um það bil 300.000 manns á öllum þessum árum sem samsvarar nánast allri þjóðinni. Árni byrjaði að syngja á Þjóðhátíð í Eyjum árið 1977, fyrsta árið sem Þjóðhátíð var haldin í Vestmanneyjum eftir gos.

Ferill Gibsons í hættu

Að undanförnu hefur verið greint frá máli Mels Gibson en hann var handtekinn fyrir nokkru vegna undarlegs aksturlags. Í ljós kom að Gibson var ölvaður en leikarinn hefur átt við áfengisvandamál að stríða.

Fyrsta platan í 14 ár

Breska hljómsveitin Happy Mon­days hefur lokið upptökum á fyrstu plötu sinni í 14 ár. Shaun Ryder söngvari og félagar hans eru ekki með plötusamning en hafa tekið plötuna upp með upptökustjórunum Sunny Levine og Howie B. Meðal gesta sem koma fram á plötunni er Ry Cooder. Enginn útgáfudagur hefur enn verið ákveðinn en væntanleg plata Happy Mondays er sú fyrsta sem sveitin gefur út síðan 1992. Sveitin sendi frá sér smáskífuna Play­ground Superstar í fyrra. "Shaun syngur vel, hann rappar vel og textarnir hans eru geðveikir. Og hann lítur vel út, ég myndi ekki segja að hann væri kynæsandi en hann lítur vel út," sagði upptökustjórinn Howie B um plötuna.

Söguganga um Innbæinn og Fjöruna á Akureyri

Hörður Geirsson, safnvörður á Minjasafninu á Akureyri mun leiða sögugöngu um elsta hluta bæjarins, Innbæinn og Fjöruna næstkomandi laugardag 5. águst kl 14. Gengið verður frá Laxdalshúsi, Hafnarstræti 11, og tekur gangan um eina og hálfa klukkustund.

Góðir gestir á Innipúkanum

Hin skemmtilega hátíð Innipúkinn hefst í kvöld þar sem fram kemur rjóminn af íslensku tónlistarfólki auk áhugaverðra erlendra listamanna en hátíðin fer nú fram í fimmta skiptið. Steinþór Helgi Arnsteinsson kynnti sér betur erlendu gestina.

Litlar vinsældir Rock Star

Þrátt fyrir miklar vinsældlir Rock Star: Supernova hér á landi virðast Bandaríkjamenn ekki vera jafn hrifnir af hinum eitilhörðu rokkurum sem reyna að fá inni hjá rokksveitinni Supernova.

Grant í brúðkaupið

Fyrirsætan Elizabeth Hurley er að fara að giftast unnusta sínum, indverska milljónamæringnum Aroun Nayar, á næstunni. Samkvæmt blaðinu Daily Star hefur Hurley beðið fyrrverandi kærasta sinn, Hugh Grant, um að vera svaramaður hennar í brúðkaupinu.

Zidane í Reykjavík

Kvikmyndin Zidane: Andlit 21. aldarinnar eftir þá Douglas Gordon og Philippe Parreno, sem Sigurjón Sighvatsson framleiðir, verður sýnd á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík en hún verður haldin nú á haust­mánuðum.

Tveir og hálfur lítri af áfengi á mann

Íslendingar innbyrða tæplega 2,4 lítrum af áfengi yfir Verslunarmannahelgina sem nú gengur í garð. Við áætlum að salan verði um 730 þúsund lítrar af áfengi fyrir helgina, segir Sigrún Ósk Sigurðardóttir, aðstoðarforstjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins. Tæp 80% af sölunni er bjór en rauðvínið er um 9%.

Að glugga rafrænt í útgefin rit

Bandaríska útgáfufélagið HarperCollins hefur nú stigið skref í átt til enn frekari rafvæðingar bókmenntanna því í gær var opnað fyrir þjónustu á heimasíðu fyrirtækisins þar sem forvitnir lesendur geta gluggað rafrænt í bækur félagsins. Lesendur geta kíkt á fyrstu þrjár síður flestra kaflanna en nú eru 135 titlar eftir 10 höfunda aðgengilegir á síðunni en þar á meðal eru verk eftir Michael Crichton og Paulo Coelho

Túrnum lýkur í kvöld

Tónleikaferð Sigur Rósar um landið lýkur í dag. Sveitin hefur farið víða um land síðustu tvær vikurnar og alls leikið á átta tónleikum. Í gær lék Sigur Rós á tvennum tónleikum, þeir fyrri voru á Kárahnjúkasvæðinu um hádegið og um kvöldið lék sveitin á Seyðisfirði.

Aðstoða munaðarlaus börn í Malaví

Hjónin Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson leggja á mánudag upp í langferð. Þau eru á leið til Afríkuríkisins Malaví þar sem þau ætla að dvelja í tíu daga til að kynna sér uppbyggingu á dagvistarheimilum fyrir börn.

Trommarinn hættur

Trommarinn Jon Theodore er hættur í hljómsveitinni The Mars Volta samkvæmt fréttum frá MTV. Í stað hans kemur Blake Fleming, sem var einn af stofnmeðlimum hljómsveitarinnar og trommaði á fyrstu prufuupptökum hennar. The Mars Volta hefur ekki sent frá sér tilkynningu vegna þessa eða gefið kost á viðtölum. Sveitin hefur hins vegar látið þau skilaboð út ganga að ekki komi til frestunar á tónleikaferðalagi hennar með Red Hot Chili Peppers. Útgáfu á breiðskífu hljómsveitarinnar, Amputechture, hefur þó verið frestað fram til 12. september.

Eftirtekt og snarræði Jóns Snorra

Jón Snorri Tómasson var einn af 12 þátttakendum í Sumarbúðum Rauða krossins fyrir fatlaða á Löngumýri í Skagafirði dagana 17. – 24. júlí sl. Þar er dagskráin mjög fjölbreytt og daglega er farið í sund í sundlaugina í Varmahlíð.

Hitað upp fyrir Innipúkann

Föstudaginn 4. ágúst verður hin árlega Innipúkaupphitun í verslun 12 Tóna við Skólavörðustíg. Þar koma fram eftirfarandi hljómsveitir:Gavin Portland, The Foghorns, Eberg og Jomi Massage frá Danmörku, en þær þrjár síðastnefndu koma einnig fram á Innipúkanum.

Ástrali á Rosenberg

Ástralski tónlistarmaðurinn Peter Uhlenbruch er staddur hér á landi og leikur á tónleikum í kvöld. Peter er 24 ára og kallar sólóverkefni sitt Owls of the Swamp. Hann segist vera undir áhrifum frá tónlistarmönnum á borð við Elliott Smith, Nick Drake og Elbow og ætlar að sýna það í verki á tónleikum á Café Rosenberg í kvöld. Þar kemur hann fram ásamt Mike Pollock. Tónleikarnir hefjast klukkan 22 í kvöld. Áhugasamir geta kynnt sér tónlist Uhlenbruch á heimasíðunni Myspace.com/owlsoftheswamp.

40 splunkunýjar myndir á þremur vikum

Iceland Film Festival býður Íslendingum til mikillar kvikmyndaveislu dagana 30. ágúst - 20. september. Hátíðin mun leggja undir sig Háskólabíó og Regnboga í þrjár vikur og sýna um 40 splunkunýjar kvikmyndir.

Býður 80 manns í kjötsúpuveislu á Þjóðhátíð

Þjóðhátíð í Vestmanneyjum hefst með Húkkaraballinu í kvöld. Hátíðin verður svo sett með formlegum hætti á morgun og stendur fram undir morgun á mánudag. Vestmannaeyingar hafa verið á fullu við undirbúning síðustu vikurnar. Fréttablaðið hafði upp á einum heimamanni sem lætur sig aldrei vanta í Herjólfsdalinn.

Afmælislist

Myndlistarmaðurinn Sigurður Örlygsson opnaði sýningu í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg 5 um síðustu helgi en hún er haldin í tilefni af sextugsafmæli hans. Á sýningunni eru 120 vatnslitamyndir sem mynda tvær seríur en myndirnar eru allar unnar á þessu ári.

Bloggaðu þar sem þú ert staddur

Nú geta allir bloggað með farsímanum á BlogCentral.is. Aðilar sem eru með bloggsvæði sitt á BlogCentral.is geta sent inn myndir og texta um leið og andinn kemur yfir bloggarann, hvar sem hann er í heiminum.

Gisele á báðum áttum

Leikarinn Leonardo DiCaprio og brasilíska ofurfyrirsætan Gisele Bundchen hafa gefið sögusögnum um að þau séu að taka saman aftur byr undir báða vængi. Parið var saman í 3 ár en slitu samvistum á síðasta ári. Gisele hefur átt sambandi við Kelly Slater og Leonardo hefur verið að hitta hittafyrirsætuna Bar Rafael. Hins vegar sást til Gisele í göngutúr með móður Leonardo og stjúpbróður hans og því gætu sáttarviðræður verið í bígerð.

Djasssveifla í miðbænum

Egill Ólafsson vermdi heita sætið á Q-bar síðastliðið fimmtudagskvöld við góðar undirtektir áheyrenda. Í kvöld verður ekkert gefið eftir og mun söngdívan Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir stíga þar á stokk fyrir djassþyrsta borgarbúa sem á hverju fimmtudagskvöldi geta notið lifandi tónlistar í miðbænum.

Ritjöfrar biðja Potter vægðar

Metsöluhöfundurinn og skapari galdraveldisins sem kennt er við Harry Potter, J.K. Rowling, segist skemmta sér sem aldrei fyrr við að skrifa síðustu söguna um galdrapiltinn heimsfræga enda sé mesti þrýsingurinn af öxlum hennar nú þegar sér fyrir endann á ævintýrinu.

Hvað er Gibson að gera með Apocalypto?

Stórleikarinn Mel Gibson hefur verið mikið í fréttum að undanförnu eftir að hann var handtekinn, ölvaður undir stýri. Gibson hefur lengi háð baráttu við Bakkus og því um nokkuð áfall fyrir bæði Gibson og fjölskyldu hans. Þá hafa niðrandi ummæli hans um gyðinga einnig valdið þó nokkrum titringi innan kvikmyndaheimsins enda hafa gyðingar lengi verið áhrifamikill hópur innan Hollywood.

Moss best klædda konan

Á dögunum var Kate Moss kosinn best klædda kona heims af lesendum tímaritsins Vanity Fair og þykir það undirstrika að ofurfyrirsætan sé komin aftur eftir lægðina og mun láta að sér kveða í framtíðinni.

Stefnan tekin norður

Dúettinn Sessý og Sjonni leikur á Kaffi Akureyri í kvöld og ætlar að trylla heimamenn og gesti með sveiflukenndri tónlist. Sessý og Sjonni hafa verið iðin við kolann að undanförnu og ætla að flengjast um Norðurlandið um verslunarmannahelgina, leika á skemmtihúsinu Kaffi Krók á Sauðárkróki á laugardagskvöldið og dúkka upp á stórhátíðinni Einni með öllu.

Hvað býr í þokunni?

Kvikmyndin Half Light segir frá rithöfundinum Rachel Carson sem flytur til smábæjar á SKotlandi eftir að fimm ára sonur hennar drukknar . Carson er buguð af sorg en þegar hún kynnist heillandi vitaverði er eins og hún sjái ljós í myrkrinu. Carson verður þess þó fljótt áskynja að ekki virðist allt sem sýnist en þráin eftir að fá son sinn aftur er skynseminni yfirsterkari.

Svikari innan CIA

Pete Garrison er vel metinn leyniþjónustumaður hjá CIA sem bjargaði lífi forseta Bandaríkjanna fyrir tuttugu árum. Líf Garrisons er í föstum skorðum og hann hefur fengið það hlutverk að vernda forsetafrúna. Kvöld eitt fær hann símhringingu frá vini sínum, Merriweather, sem segist þurfa deila með honum leyndarmáli en áður en Garrison tekst að hafa upp á vini sínum er Merriweather drepinn. Allt lítur út fyrir að morðinginn sé innanbúðarmaður en það hefur ekki gerst í 141 árs sögu CIA.

Útvarpsþáttur á hvíta tjaldinu

A Prairie Home Companion fjallar um samnefndan útvarpsþátt sem hefur verið í gangi í samfellt þrjátíu ár. Um er að ræða þátt af gamla skólanum þar sem Garrison Keller fer fyrir flokki hæfileikaríkra tónlistarmanna og skemmtir hlustendum með bæði söng og gamanmáli. Kvikmyndin er lögð útaf þættinum og fjallar um síðasta kvöldið sem þátturinn fer í loftið.

Þorir ekki að hringja

Skvísurnar Paris Hilton og Nicole Richie hafa verið óvinkonur síðan árið 2005. Hvorki Richie né Hilton hafa viljað segja hver ástæða rifrildisins er en það hefur vakið mikla athygli vegna þessa þær stöllur voru nánast óaðskiljanlegar í fyrra. Nú hefur Paris Hilton tjáð sig um það að hana langi gríðarlega til að hringja í Richie en hún þori ekki að taka upp tólið. "Ég og Nicole göngum í gegnum eitthvað núna en ég elska hana eins og systur," segir Paris og bætir því við að hún haldi að það verði skrýtið og erfitt að tala saman í fyrsta skipti eftir svona langan tíma.

Rooster Booster í spilun

Rokkbrjálæðingarnir í Brain Police hafa sent frá sér nýja smáskífu, Rooster Booster, sem er nú farin að klífa upp vinsældarlistana á öldum íslenskra ljósvaka. Ættu sönn rokkhjörtu nú að fara að slá hraðar því lagið er að finna á væntanlegri geislaplötu sveitarinnar sem kemur út í september næstkomandi hjá Dennis Records.

Sögusigling með Húna II

Hollvinafélagið Húni II, í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri, mun á næstunni bjóða upp á þrjár sögusiglingar um Eyjafjörð með eikarbátnum Húna II. Lagt verður af stað í fyrstu ferðina miðvikudaginn 9. ágúst nk. kl. 19:30 og svo næstu tvo miðvikudaga þar á eftir.

Af sápu, sandi og svínaríi

Nútímamanninum finnst sjálfsagt að þrífa sig og sitt nánasta umhverfi enda erum við mörg býsna upptekin af útlitinu. Forfeðurnir voru ekki jafn hégómlegir þegar kom að líkamslykt og böðum.

Tjaldvagnaborgir í Galtalæk

Í gær og gærkvöldi var strax farið að bera á því í Galtalækjarskógi að tjaldvagnaeigendur væru farnir að flytja vagnana sína og finna sér pláss fyrir þá á svæðinu. Margt var um manninn í gærkvöldi en búast má við enn fleirum í slíkum erindagjörðum í kvöld.

Fékk sér húðflúr á Íslandi

Bandaríski rithöfundurinn Liz Tuccillo var stödd hér á landi fyrir viku síðan í rannsóknarvinnu fyrir nýjustu bók sína "How to be single" eða hvernig á að vera á lausu. Hún kom til landsins í samvinnu við Eddu útgáfu og dvaldi hér í sex daga.

Hreinlæti fyrr og nú

Minjasafnið á Akureyri stendur fyrir 6. kvöldvöku sinni í sumar í Laufási fimmtudagskvöldið 3. ágúst kl 20:30 til heiðurs Jónasi Jónassyni frá Hrafnagili. Að þessu sinnu fjallar hún um hreinlæti fyrr og nú.

Snooze hringitónar

Fyrir stuttu gerðu hljómsveitin Snooze og Síminn (Dælan) með sér samstarfssamning um hringitóna. Með því að fara inn á www.siminn.is/daelan geta farsímanotendur fengið hringitóna með lögum Snooze, myndir og meira til með nánast engri fyrirhöfn.

Tónleikar á Gljúfrasteini um helgina

Þeir sem sitja af sér útihátíðir eða önnur ferðalög um verslunarmannahelgina þurfa ekki að láta sér leiðast. Það er tilvalið að bregða sér spölkorn út fyrir bæjarmörkin og heimsækja safnið á Gljúfrasteini sem er opið alla helgina frá 9-17. Sé veður gott er einnig tilvalið að skoða nánasta umhverfi Gljúfrasteins eða halda áfram á Þingvelli.

Eyrún Huld, Marinó og Magni sameinuð á ný

Í nótt var einhver magnaðist Rock Star - þátturinn sýndur í beinni útsendingu á Skjá einum. Eins og greint var frá í fjölmiðlum fékk Magni óvænta gjöf frá Skjá einum en það var myndband með unnustu hans, Eyrúnu Huld Harðardóttur og syni þeirra Marinó.

Sjá næstu 50 fréttir