Fleiri fréttir

Stærsta grill landsins á flakki

Stórtækir grillarar hugsa sér sjálfsagt gott til glóðarinnar í orðsins fyllstu merkingu þegar þeir sjá stærsta grill landsins, sem er í eigu Landssambands kúabænda en á því er hægt að grilla heilan skrokk af nauti.

Útvarpsþáttur undir beru lofti

Poppland Rásar 2 efndi til útitónleika fyrir framan útvarpshúsið í Efstaleyti enda hefur veðrið leikið við höfuðborgarbúa að undanförnu.

Fánar, trumbur og fjölmenn reið

Myndlistarmaðurinn Halldór Ásgeirsson hefur fengið til liðs við sig rúmlega fjörutíu hestamenn sem á morgun munu fullkomna myndverk hans sem sett verður upp í tengslum við Skálholtshátíð.

Eddie og Mel gifta sig

Kirkjuklukkurnar klingja nú í Hollywood en mörg stjörnupör eru á leiðinni upp að altarinu í sumar. Nú hafa grínistinn Eddie Murphy og fyrrverandi kryddstúlkan og tengdadóttir Íslands Melanie Brown ákveðið að ganga í hjónaband. Skötuhjúin hafa verið saman í mánuð og eru ástfangin upp fyrir haus. Brúðkaupið verður haldið í september og verður það lítið og látlaust að sögn Mel B. Þau ætla samt að halda risastórt partí eftir athöfnina og þangað er miklum stjörnufans boðið.

Craig aftur Bond

Leikarinn Daniel Craig hefur skrifað undir samning þess efnis að leika njósnarann fræga James Bond í annað sinn. Bond-myndin Casino Royale, þar sem Craig þreytir frumraun sína sem njósnari hennar hátignar, hefur ekki enn verið frumsýnd en Barbara Broccoli, framleiðandi myndanna, hreifst svo af tilburðum Craigs við tökurnar að hún samdi við hann á nýjan leik. Hún segir Craig endurspegla dekkri og töffaralegri hlið á Bond sem aðrir leikarar hafi ekki náð. Casino Royale verður frumsýnd í november á þessu ári.

Dansandi háskólanemar

Dansástríðan hverfur aldrei hjá sönnum dansfíklum og nokkrir háskólanemar brugðu á það ráð að stofna dansflokk fyrir nemendur Háskóla Íslands og Háskóla Reykjavíkur. Nú er Stúdentadansflokkurinn skipaður ellefu dönsurum úr skólunum, níu stelpum og tveimur strákum, en þetta er tímafrekt áhugamál því æft er þrisvar í viku í fjóra tíma í senn yfir sumartímann.

Fjölskylduhefð að halda partí í Viðey

Fjölskylduhefðir eru af ýmsum toga en bræðurnir Ægir og Gísli Eysteinssynir fara ótroðnar slóðir. Í kvöld halda þeir stórt og mikið Viðeyjarpartí fyrir vini og vandamenn sjötta árið í röð. „Fjölskylda okkar hefur rekið Viðeyjarferjuna undanfarin þrettán ár. Eitt sumarið datt okkur bræðrum í hug að halda gott partí í Viðey fyrir vinina og það tókst svo vel að ákveðið var að halda því áfram,“ segir Ægir Þór Eysteinsson, sem er elstur þeirra bræðra.

Bjór seldur á Babalú

Litla kaffihúsið á Skólavörðustígnum, Babalú, er komið með vínveitingaleyfi. Fastagestir staðarins höfðu beðið óþreyjufullir eftir þessu en áður en leyfið fékkst var kaffi það sterkasta sem gestir staðarins gátu keypt.

Navarro ekki kominn með nýja

Rokkarinn Dave Navarro hefur neitað öllum sögusögnum þess efnis að hann sé kominn með nýja kærustu og sé á leiðinni í sambúð með henni í New York. Hjónarúmið hjá þeim Navarro og Carmen Electra var varla farið að kólna þegar þessar fréttir bárust en skötuhjúin tilkynntu nýverið að þau ætluðu sér að skilja.

Annað strandhögg sjóræningjans

Sjóræninginn Jack Sparrow snýr aftur á hvíta tjaldið í sumar í myndinni Pirates of the Caribbean: Dead Man‘s Chest. Sem fyrr er það Johnny Depp sem ljær Sparrow líf en myndin hefur slegið í gegn svo um munar. Birgir Örn Steinarsson ræddi við Depp á dögunum.

Hollenskir snillingar

Hönnunartvíeykið Viktor & Rolf hefur verið valið til að hanna fatnað fyrir verslunarrisann H&M. Þar sem Íslendingar eru hálfgerðir fastakúnnar í þessum verslunum úti um allan heim er vel þess virði að skoða mennina á bak við merkið.

Baldwin í bílslysi

Leikarinn Daniel Baldwin, sem sjálfsagt er þekktastur fyrir að vera hvað ófríðastur Baldwin-bræðranna, liggur á spítala eftir að hafa ekið á tvo kyrrstæða bíla á 130 kílómetra hraða. Lögreglan hefur á honum gætur á sjúkrahúsinu því Baldwin á yfir höfði sér ákæru fyrir að aka undir áhrifum.

Magni slær öllum við í Rock Star

Magni Ásgeirsson hefur heldur betur slegið í gegn í sjónvarpsþættinum Rock Star: Super­nova sem sýndir eru á Skjá einum í beinni útsendingu.

Glæsilegi stripparinn

Hún er þekkt fyrir að vera kærasta rokkarans Marilyn Manson og einnig dansaði hún súludans á helstu og fínustu dansstöðum Hollywood borgar. Þetta er engin önnur en Dita Von Teese. Hún er sannkölluð díva og vekur athygli hvert sem hún fer.

Maggi Eiríks með Þjóðhátíðarlagið

Þjóðhátíðarlagið verður frumflutt kl. 11 í dag á útvarpsstöðinni Bylgjunni. Lagið heitir „Ástfangin af þér“ og er lag og texti eftir Magnús Eiríksson. Flytjandi lagsins er ung söngkona sem heitir Hrund Ósk Árnadóttir en hún hefur einna helst unnið sér það til frægðar að hafa unnið söngvakeppni framhaldsskólanna árið 2005 fyrir Menntaskólann í Reykjavík. Útsetningin er eftir Mattías Stefánsson, sem spilar á öll hljóðfæri í laginu ef frá eru taldar trommurnar en á þær spilar sonur Magnúsar Eiríkssonar lagahöfundar. Sagt er að lagið sé ekki týpískt þjóðhátíðarlag heldur er það með tyrknesku yfirbragði.

Áreittur í Jay Leno

Leikarinn og partídrengurinn Colin Farrell lenti í leiðinlegu atviki í spjallþætti Jay Leno á dögunum. Farrell var að koma í þáttinn til að kynna nýjustu mynd sína Miami Vice og á meðan hann spjallaði við Jay Leno ruddist kona upp á svið og byrjaði að blóta honum í sand og ösku.

Smásálarhátturinn drepur

Í kvöld frumsýnir leikhópurinn Benóný Bender Abroad leikritið Páll Heimir, ekki Jesúbarnið í Sjómannasafni Íslands við Grandagarða. Leikritið er eftir tvo unga höfunda sem hér þreyta frumraun sína á því sviði, Sigurður Unnar Birgisson og Tyrfingur Tyrfingsson eru á tvítugsaldri og hafa samið verk sem hinn síðarnefndi lýsir sem „póstmilleniumrúnki“ en Tyrfingur er jafnframt leikstjóri sýningarinnar.

Allir regnbogans litir

Þá er loksins komið sumar. Manni líður pínulítið eins og kálfunum sem er hleypt út á vorin nú þegar sólin er farin að skína. Sumarkjólarnir eru komnir í notkun og litagleðin tekur völdin. Eftir örlítið gráan og svartan vetur er loksins kominn tími til að missa sig í litagleðinni. Litaval manns endurspeglar skapið og því er um að gera að klæðast heiðgulu og bleiku bara til að fá bros á vör.

Tónleikahaldari sest í bæjarstjórastól

Grímur Atlason, þroskaþjálfi og tónleikahaldari með meiru, er ný­ráðinn bæjarstjóri í Bolungarvík. Grímur hefur um árabil verið búsettur í Vesturbænum í Reykjavík ásamt konu sinni Helgu Völu Helgadóttur, leik- og fjölmiðlakonu.

Flís á Gljúfrasteini

Á stofutónleikum Gljúfrasteins, næstkomandi sunnudag, verður skipt úr klassíska gírnum yfir í jazz gírinn þegar Flís tríóið kemur sér fyrir í stofunni. Sem fyrr hefjast tónleikarnir klukkan 16.00 og aðgangseyrir er aðeins 500 krónur.

Afmælismót Róberts í Vin á mánudaginn

Afmælismót Róberts Harðarsonar, skákmeistara og varaforseta Hróksins, verður haldið í Vin, mánudaginn 24. júlí, kl. 13. Hróksmaðurinn knái hefur verið ötull við heimsóknir í Vin þar sem hann hefur teflt fjöltefli, verið með skákskýringar og sett upp mót undanfarin ár.

Keppt um ný brjóst

Keppni danskrar heimasíðu hefur vakið blendin viðbrögð meðal heimamanna en verðlaunin eru ný brjóst.

Líf, leikur og list

Minjasafnið á Akureyri stendur fyrir Miðaldamarkaði á Gásum í Eyjafirði laugardaginn 22. og sunnudaginn 23. júlí næstkomandi milli kl. 10 og 16 báða dagana.

Horfðu á sætu stelpurnar

Fyrir utan útibú Landsbankans í Austurstræti var hópur af rússneskum sjóliðum frá skólaskipinu Sedov. Þeir voru hressir og kátir í veðurblíðunni að skipta peningum í bankanum en þeir halda af landi brott í dag. Aðspurðir sögðust þeir ætla að spóka sig um í miðbænum í veðurblíðunni og sögðust ætla að fara að spila fótbolta seinnipartinn. Einnig tóku sjóliðarnir það sérstaklega fram að aðallega væru þeir að horfa á allar sætu stelpurnar sem þeir sögðu fylla götur borgarinnar.

Trommaði með Franz Ferdinand

Tónlistarhátíðin T in the Park var haldin í Skotlandi fyrir tveim vikum síðan. Fulltrúar Íslendinga var hljómsveitin Sigur Rós og stóðu þeir sig með prýði eins og við var að búast. Eitt af aðalnúmerum hátíðarinnar var rokksveitin Franz Ferdinand og þeir luku tónleikum sínum á glæsilegan hátt. Þá lék sveitin lagið Outsiders og eftir því sem leið á lagið gengu fjölmargir trommarar inn á sviðið og léku undir.

Endurtekur leikinn

Engin lognmolla er í kringum Brad Pitt og Angelinu Jolie. Samkvæmt blaðinu National Enquirer mun Angelina hafa brostið í grát þegar hún kom að Brad í símanum við Jennifer Aniston, sem er eins og kunnugt er fyrrverandi eiginkona hans. Brad segir að símtalið hafi einungis snúist um viðskipti en hann og Jennifer áttu saman framleiðslufyrirtækið Plan B.

Þarf ekki undirbúning

Stórleikarinn Bill Nighy segist ekki nenna að búa sig undir hlutverk sín í kvikmyndum en hann leikur aðalhlutverkið í bresku kvikmyndinni Stormbreaker ásamt Ewan McGregor. Mikið er búist við af þeirri mynd og má reikna með að hún verði aðal­smellurinn í Bretlandi. „Ég sé ekki tilganginn í því,“ sagði Nighy, sem skaust upp á stjörnuhimin hvíta tjaldsins í Love Actually en hafði fram að því einbeitt sér að leik í „vönduðum“ kvikmyndum.

Rokkið sigrar poppið

Talsverðar sviptingar hafa orðið á tónlistarmarkaðinum að undanförnu. Popptónlist á undir högg að sækja og gítarrokksveitir tröllríða öllu. Poppararnir bregðast við með því að færa sig í átt að rokkinu. Þessi þróun er farin að gera vart við sig á Íslandi.

Britney fær afsökunarbeiðni

Breska blaðið The National Enquirer hefur beðið Britney Spears afsökunar á því að hafa birt frétt þess efnis að stjarnan væri að skilja við eiginmann sinn Kevin Federline. Andstætt því sem greinar okkar hafa gefið til kynna, gerum við okkur nú grein fyrir því að hjónaband þeirra er ekki búið og þau eru ekki að skilja, sagði í yfirlýsingu frá blaðinu. Þessar fullyrðingar eru ósannar og við höfum nú viðurkennt þá skoðun Britney að engar stoðir séu fyrir þeim.

Skvísuboð í Iðu

Í tilefni af komu rithöfundarins Liz Tuccillo ætlar Edda útgáfa að halda heljarinnar konuboð á laugardaginn. Boðið verður haldið í Iðusalnum á Lækjargötu og hefst klukkan 17.00.

Ást við fyrstu sýn

Söngvarinn knái Justin Timber­lake hefur aldrei verið mikið fyrir að gaspra um einkalíf sitt en í nýjasta hefti tímaritsins GQ kemur hann fram í opinskáu viðtali þar sem hann lætur allt flakka. Þar talar hann um samband sitt við poppprinssessuna Britney Spears, sem hann segir að hafi verið ást við fyrstu sýn.

Sumarlag frá Muse

Breska rokksveitin Muse er á fljúgandi ferð þessa dagana. Muse sendi frá sér plötuna Black Holes and Revelations fyrir nokkrum vikum og hefur platan fengið frábæra dóma víðast hvar. Nú hafa liðsmenn Muse tilkynnt hver verður næsta smáskífa plötunnar. Það er lagið Starlight og er áætlað að smáskífan komi út 4. september næstkomandi.

Alltaf ein

Leikkonan unga Katie Holmes eignaðist sitt fyrsta barn á dögunum með leikaranum Tom Cruise. Lítið hefur verið af fréttum af litlu stúlkunni þeirra sem ber nafnið Suri og engar myndir hafa birst af henni í fjölmiðlum. Samkvæmt tímaritinu People er Katie alltaf ein með barninu og lífvörðum sínum og Tom aldrei heima hjá mæðgunum. Katie mun vera orðin þunglynd út af þessu og brosir mjög sjaldan.

Ósátt við granna handleggi

Ekki er á allt kosið í heimi fræga fólksins enda skipta línurnar miklu máli í Hollywood. Lindsay Lohan lýsti því nýlega yfir að henni fyndist hún vera með of granna handleggi en leikkonan komst á forsíður slúðurblaðanna fyrir nokkru þegar hún grenntist heldur ótæpilega.

10 ára afmæli NEO-Bleks

Myndasögublaðið NEO-Blek fagnaði á dögunum tíu ára útgáfuafmæli en Frakkinn Jan Pozok ritstýrir blaðinu. „Ég er í fyrsta sinn í ár að ritstýra blaðinu einn en því fylgir auðvitað mikil vinna. Helstu verkefnin mín felast í söfnun auglýsinga í blaðið en það hefur gengið vonum framar enn sem komið er“, segir Jan. Auk þess að halda utan um útgáfu blaðsins tekur Jan öll viðtölin í nýjasta heftinu.

Menningarveisla á Seyðisfirði

Á laugardagskvöld verður haldin mikil tónlistarveisla á Seyðisfirði. Tónlistarveislan er liður í Lunga, listahátíð ungs fólks sem staðið hefur yfir alla vikuna á Seyðisfirði. Hljómsveitirnar sem spila eru meðal annars Fræ, Ampop, Ghostigital, Biggi Orchestra, Jeff Who, Sometime, Benny Crespo"s gang, Miri, The Foreign Monkeys sem unnu músíktilraunir Hins Hússins og Tony the pony. Mikið líf hefur verið alla vikuna á listahátíðinni en þáttakendur hafa getað skráð sig í hinar ýmsu listasmiðjur eins og fatahönnunarsmiðju, leiklistarsmiðju, gospelsmiðju og sirkussmiðju. Nánari upplýsingar um tónleikana má fá á www.lunga.is

Fréttir af fólki

Margir bíða eflaust spenntir eftir heimildarmyndinni um Ísmanninn ógurlega, Sigurð Pétursson, sem Lýður Árnason og Reynir Traustason eru með í burðarliðnum.

Uppselt í stúku á tónleika Morrisey

Morrissey á greinilega aðdáendur á Íslandi – þó gera megi ráð fyrir að fjölmargir þeirra séu erlendis og hafi enn ekki frétt af tónleikum kappans á klakanum. Enn eru til miðar í stæði og kostar miðinn 4.500 kr.

Sigurerni sleppt í stóra búrið

Nú dvelur í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum haförn sem lenti í hremmingum en ung stúlka Sigurbjörg S. Pétursdóttir á Grundarfirði kom honum til hjálpar. Hremmingar arnarins, sem nefndur var af Sigurbjörgu Sigurörn voru í raun tvíþættar,

Fjör í Galtalæk

Blásið verður til risa fjölskuylduhátíðar í Galtalæk um Verslunarmannahelgina í ár. Hátíðin hefur í gegnum árin verið sú fjölmennasta og vinsælasta á landinu og nú í ár verður hátíðin glæsilegri en nokkru sinni fyrr.

The Sun telur Nylon líkalegan arftaka Girls Aloud

Sú saga hefur gengið í breska tónlistarbransanum nú í nokkrar vikur að stúlknasveitin Girls Aloud sé að leggja upp laupana. Breska slúðurblaðið The Sun er ekkert að tvínóna við hlutina og lýsir því yfir á heimasíðu sinni að Girls Aloud séu líklega að hætta og nú þurfi Bretar að kjósa nýja arftaka þeirra.

Glöggt er gests augað

Vegfarendur í miðborg Reykjavíkur hafa margir hverjir rekið augun í svarthvít plaköt á dönsku með fyrirsögnum á borð við: „Hvorfor er Laugavegur en unik gade?“ og „Hvad skal vi bruge Hljómskálagarðurinn og Vatnsmýri til?“ sem hanga nú víðsvegar um borgina.

Sumartónleikar í Akureyrarkirkju

Fjórðu tónleikarnir í tónleikaröðinni Sumartónleikar í Akureyrarkirkju verða haldnir sunnudaginn 23. júlí kl 17:00. Flytjandi að þessu sinni er orgelleikarinn Guðný Einarsdóttir. Tónleikarnir standa í eina klukkustund án hlés og er aðgangur ókeypis.

Sjá næstu 50 fréttir