Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gefur út nákvæmar lýsingar á ástarlífi þeirra Söng- og leikkonan Jennifer Lopez stendur í málaferlum við fyrrverandi eiginmann sinn, Ojani Noa, vegna bókar sem hann hyggst gefa út. Samkvæmt málsskjölum inniheldur bókin einkar nákvæmar lýsingar á fyrsta ástarfundi Lopez og Noa. Auk þess heldur Noa því fram í bókinni að Lopez hafi stundað framhjáhald á meðan á hjónabandi þeirra stóð og hafi verið í sambandi við Marc Anthony, núverandi eiginmann sinn, á meðan hann var enn giftur og Lopez í sambandi við P. Diddy. Jennifer Lopez hefur sótt um lögbann á bók fyrsta eiginmanns síns. 28.6.2006 14:15
Rokka á Ölstofunni Rokkhljómsveitin Langi Seli og Skuggarnir treður upp á Ölstofunni í kvöld. Að sögn Kormáks Geirharðssonar, trommuleikara sveitarinnar og verts á Ölstofunni, hefur lítið verið um tónleikahald á Ölstofunni fram til þessa. Þetta er alla vega í fyrsta skiptið sem alvöru rokk fær að heyrast, segir Kormákur. 28.6.2006 14:00
Jackson flytur til Evrópu Michael Jackson hefur ákveðið að yfirgefa Bahrain og flytja til Evrópu. Söngvarinn ætlar með þessu að koma ferli sínum aftur á skrið. Talskona söngvarans segir að vegna verkefna sem hann hefur tekið að sér sé þægilegra fyrir hann að búa í Evrópu. Jackson mun þó áfram dvelja mikið í Bahrain. 28.6.2006 13:45
Hjálmar spila í 12 tónum Hjálmar leika fyrir gesti og gangandi í verslun 12 Tóna að Skólavörustíg 15 næstkomandi föstudag. Tónleikarnir hefjast klukkan 17:00 eins og lög gera ráð fyrir. Léttar veitingar verða á boðstólnum og heitt í húsinu. 28.6.2006 13:34
Uppruni ímyndar Íslands Íslendingar hafa löngum verið viðkvæmir fyrir sjálfum sér og líkar ekki alltaf það sem misglöggir erlendir gestir láta út úr sér og frá sér um menningu og staðhætti hérlendis. 28.6.2006 13:30
Leika fyrir japanska aðdáendur Félagarnir Björn Thooddsen, Gunnar Þórðarson og Jón Rafnsson í Guitar Islancio munu leika á þrennum tónleikum í Japan í þessari viku. 28.6.2006 13:00
Axl Rose í steininn Axl Rose, söngvari rokksveitarinnar Guns N"Roses var handtekinn í Stokkhólmi fyrir að bíta öryggisvörð í fótinn í slagsmálum sem brutust út á hóteli. 28.6.2006 12:00
Hannar Puma-skó Hátískuhönnuðurinn Alexander McQueen frumsýndi nýju skólínu sína fyrir íþróttamerkið PUMA í fyrrakvöld. Þetta var gert með glæsilegri viðhöfn í Carla Sozzani listasafninu í Mílanó. 28.6.2006 12:00
Fyrsta lag Daníels Fyrsta lag Daniels Olivers, sem tók þátt í Idol-Stjörnuleit fyrr á árinu, kemur út á næstunni ásamt tónlistarmyndbandi. Lagið nefnist Over You og er ballaða eftir Daniel sjálfan. Verður það að finna á væntanlegri plötu Daniels, sem hefur ekki fengið útgáfudag. 28.6.2006 11:00
Bjartar nætur á næstunni Ferðaleikhúsið frumsýnir The Best of Light Nights í Iðnó í kvöld en að vanda byggir sýningin á íslensku efni að mestu er flutt á ensku. Ferðaleikhúsið er atvinnuleikhús, stofnað í árslok árið 1965 en frá árinu 1970 hefur markhópur þeirra aðallega verið erlendir sumargestir í Reykjavík. 28.6.2006 09:00
Beck breytir til Tónlistarmaðurinn Beck Hansen segir að hip-hop verði í aðalhlutverki á næstu plötu sinni sem kemur út í haust. Upptökustjóri verður Nigel Godrich sem stýrði upptökum á plötum Beck, Mutations og Sea Change. Einnig var hann m.a. upptökustjóri plötunnar OK Computer með Radiohead, sem margir telja bestu plötu sveitarinnar. 28.6.2006 08:00
Björn Steinar Sólbergsson spilar í Hallgrímskirkju Fimmtudaginn 29. júní leikur Björn Steinar Sólbergsson, organisti Akureyrarkirkju, á hádegistónleikum Alþjóðlegs orgelsumar í Hallgrímskirkju. Tónleikarnir, sem hefjast kl. 12 og standa í hálftíma, eru skipulagðir í samvinnu við Félag íslenskra orgelleikara. 27.6.2006 15:45
Markaðsdagur í Bolungarvík Hinn árlegi Markaðsdagur í Bolungarvík, verður haldinn með fjölda sölubása og glæsilegri skemmti dagskrá laugardaginn 1. júlí n.k. kl: 13:00 - 18:00. 27.6.2006 15:30
Nýtt handverk á gömlum merg Sendiráð Íslands og Danmerkur munu opna handverkssýninguna Transform - Nýtt handverk á gömlum merg þann 29. júní n.k. í sendiráði Norðurlandanna í Berlín. 27.6.2006 15:00
Heil hljóðbók ókeypis á netinu Steinunn Sigurðardóttir hreif lesendur upp úr skónum með skáldsögunni Sólskinshestur um síðustu jól. Nú kemur þessi metsölubók í senn út í kilju og sem net-hljóðbók í lestri höfundar sjálfs og verður þessi netgerð boðin öllum kostnaðarlaust til niðurhals af vefsíðunni edda.is næstu vikurnar. 27.6.2006 13:45
Giftist Keith Urban Leikkonan Nicole Kidman giftist sveitasöngvaranum Keith Urban í kirkju í Sydney í heimalandi sínu Ástralíu um helgina. . 27.6.2006 12:00
Nýtt lag frá Hjálmum Reggísveitin Hjálmar hefur sent frá sér lagið Ólína og ég, en það er gamalt Stuðmannalag. Hjálmar verða uppteknir við tónleikahald á næstunni. Föstudaginn 30. júní spilar sveitin í verslun 12 Tóna og síðar um kvöldið spilar hún á Nasa ásamt KK, sem mun kynna sína nýjustu plötu ásamt hljómsveit sinni. 27.6.2006 11:00
Kallarnir hverfa úr netheimum Síðan var bara orðin þreytt og við ákváðum að þetta væri komið gott, segir Jóhann Ólafur Schröder í Köllunum.is. Þegar farið var inn á heimasíðuna Kallarnir.is um helgina birtust einungis dagsetningarnar 31.12.2003-24.6.2006, upphafs- og lokadagur líftíma síðunnar sem verið hefur einstaklega vinsæl síðastliðið eitt og hálft ár 27.6.2006 11:00
Upprisukvöld Nykurs Árið 1995 var Nykur stofnaður af nokkrum ungum skáldum sem bókmenntavettvangur og sjálfshjálparbókarforlag. Á vegum Nykurs komu fyrstu verk skálda og rithöfunda á borð við Andra Snæ Magnason, Davíð A.Stefánsson, Steinar Braga, Ófeig Sigurðsson og fleiri. Alls komu út 13 bækur á vegum Nykurs til ársins 2003, en þá fór hann aftur í tjörnina og beið færis. 27.6.2006 10:00
Tipsað fyrir flugfari Starfsmenn veitingahússins Vegamóta standa nú fyrir óvenjulegri söfnum undir slagorðinu Gústa heim. Söfnun þessi hófst fyrir helgi en þá var settur upp söfnunarbaukur á barborðinu á neðri hæð staðarins með slagorði söfnunarinnar og mynd af Gústa. 27.6.2006 08:00
Ham á Nasa Þann 29. júní verða hörkutónleikar á Nasa í Reykjavík. Þar stígur á svið ein af merkilegri hljómsveitum íslenskrar tónlistarsöguHam, ásamt mjög svo sérstökum gestum, drengjunum úr 9/11’s. 26.6.2006 18:00
Í spegli Íslands Miðvikudaginn 28. júní kl. 12 á hádegi heldur Sumarliði R. Ísleifsson sagnfræðingur erindi í bókasal Þjóðmenningarhússins í tilefni af opnun sýningar þar um skrif erlendra manna um Ísland og Íslendinga fyrr á öldum. 26.6.2006 17:45
Aparnir í Eden Hin margrómaða Köntrísveit Baggalúts hefur lokið upptökum á sinni annarri hljómskífu sem ber titilinn Aparnir í Eden. Lokaupptökur fóru fram í félagsheimilinu að Flúðum í síðustu viku. 26.6.2006 16:15
Gull á Ítalíu Útskriftarárgangur Listdansskóla Íslands vann í gærkveldi 1. verðlaun á Alþjóðlegri Samtímadanskeppni (Contemporary dans). " Dans Grand Prix Europe 2006" sem haldin var í borginni Cesena á Ítalíu síðustu daga. 26.6.2006 15:30
Bætist við á Iceland Airwaves 2006 Iceland Airwaves 2006 fer fram í miðborg Reykjavíkur daganna 18.-22. október. Alls munu um 130 listamenn og hljómsveitir munu koma fram á hátíðinni - þar af yfir 100 innlendir. 26.6.2006 11:36
Erfitt að kveðja fjölskylduna Það reyndist ekki alls kostar auðveld ákvörðun fyrir Magna Ásgeirsson að taka þátt í Rockstar: Supernova. Magni er sem kunnugt er kominn í hóp fimmtán söngvara sem keppa um hylli aldinna rokkara í raunveruleikaþættinum. 24.6.2006 00:01
Ingó leysir Magna af Ingólfur Þórarinsson, Ingó úr Idol, mun syngja í fyrsta sinn með hljómsveitinni Á móti sól á hestamannaballi í Vík í Mýrdal í kvöld. Ingó hleypur í skarðið fyrir Magna Ásgeirsson, sem var nýverið valinn í 15 manna lokaúrtak fyrir bandaríska sjónvarpsþáttinn Rockstar: Supernova. 24.6.2006 00:01
Nýtt lag með Ragnheiði Gröndal Ragnheiður Gröndal hefur sent frá sér nýtt lag en næstu daga er hægt að sækja lagið endurgjaldslaust á tónlist.is í boði Landsbankans. 23.6.2006 16:30
Diskó og Pönk í Árbæjarsafni Sunnudaginn 25. júní býðst gestum Árbæjarsafns að upplifa diskó- og pönkstemningu. Á sýningunni "Diskó & Pönk - ólíkir straumar?" geta gestir safnsins virt fyrir sér ýmsa muni frá árunum 1975 - 1985 og fengið tilfinningu fyrir tíðarandanum. 23.6.2006 16:00
Þúsundasti viðskiptavinur SKO Rúmlega eitt þúsund manns hafa skráð sig í farsímaþjónustu lággjaldasímafélagsins SKO. Þúsundasti viðskiptavinur fyrirtækisins, Bára Hólmgeirsdóttir, var heiðruð sérstaklega af því tilefni og fékk hún 10 þúsund króna inneign og blómvönd frá fyrirtækinu. 23.6.2006 13:25
Miðnætur- og Ólympíufjölskylduhlaup á Jónsmessu Miðnætur- og Ólympíufjölskylduhlaup á Jónsmessu er haldið í dag föstudaginn 23.júní kl 22:00 en hlaupið verður frá Laugardalslaug. Mun Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri ræsa hlaupið sem hefst og lýkur við Sundlaugarnar í Laugardal. 23.6.2006 11:30
Mezzoforte á Akureyri í kvöld Loksins fá Akureyringar og nærsveitungar tækifæri til að hlýða á hina eitursnjöllu hljómsveit Mezzoforte en sveitin mun leika á einum tónleikum á Græna Hattinum þann í kvöld kl. 21 23.6.2006 11:00
Verður þjóðareign eins og handboltalandsliðið Mér líst bara ljómandi vel á en þetta er enn að síast inn í mann. Þetta verður alla vega mikið ævintýri, segir Magni Ásgeirsson söngvari sem hefur verið valinn til að taka þátt í bandaríska raunveruleikaþættinum Rockstar: Supernova. 23.6.2006 00:01
Dansinn dunar á Kringlukránni Danshljómsveitin Klassík sér um að halda uppi dansstuði á Kringlukránni um helgina. Hljómsveitin hefur nú starfað í tæp tvö ár og sérhæfir sig í að spila danslög fyrir fólk sem vill dansa og skemmta sér. Á efnisskránni eru einkum lög sem verið hafa vinsæl hér á landi, lög sem kalla fram minningar, allir kunna og geta sungið með. 22.6.2006 16:30
Alþjóðleg sýn Myndlistarsýningin Alþjóðleg sýn/ International View 2006 verður opnuð laugardaginn 1.júlí kl. 15. í Listasal Mosfellinga og alþjóðleg vinnusmiðja/ International Workwhop 2006 verður opnuð föstudaginn 7.júlí kl. 20. Þrúðvangi, Álafossvegi 20, Mosfellsbæ. 22.6.2006 16:00
Jónsmessuganga á Þorbjörn Laugardagskvöldið 24. júní munu Bláa Lónið og Grindavíkurbær í samstarfi við Leiðsögumenn Reykjaness bjóða upp á hina árlegu Jónsmessugöngu á fjallið Þorbjörn. Gangan hefur notið mikilla vinsælda undanfarin ár en hér er um að ræða skemmtilega afþreyingu fyrir alla fjölskylduna. 22.6.2006 15:00
TAKA 2006 Mikil spenna ríkti á stuttmyndahátíð grunnskólanema Taka 2006 í Réttarholtsskóla í gær, en þar kepptu 40 myndir til verðlauna. Fyrstu verðlaun er hið eftirsótta klapptré með árituðu heiti myndar og vinningshafa. 22.6.2006 14:30
Skógardagur á Héraði Laugardaginn 24. júní næstkomandi, verður blásið til einstakrar skógarhátíðar í stærsta og þekktasta skógi landsins, Hallormsstaðaskógi en í ár eru liðin 36 ár síðan blómleg bændaskógrækt hófst á Héraði. 22.6.2006 13:30
Fyrsta plata Snorra væntanleg í verslanir í byrjun júlí Snorri Snorrason sem kom sá og sigraði Idol stjörnuleit Stöðvar 2 í vetur er nú í þann mund að ljúka upptökum á sinni fyrstu breiðskífu. Platan er væntanleg í verslanir í byrjun júlí og hefur hún hlotið nafnið "Allt sem ég á". 22.6.2006 11:00
Magni áfram í Rock Star Supernova Magni Ásgeirsson, söngvari hljómsveitarinnar Á móti sól, er kominn í 15 manna úrslit í raunveruleikaþættinum Rockstar Supernova. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Skjáeinum sem sýnir þættina 22.6.2006 09:15
Katrín Óskarsdóttir sýnir á Hvolsvelli Karín Óskarsdóttir lauk námi í Grafískri hönnun frá Myndlista-og handíðaskólanum árið 1974 og hefur haldið nokkrar einkasýningar á undanförnum árum. Katrín vann um skeið á auglýsingastofu og var síðar sjálfstætt starfandi við skiltagerð, uppsetningu sýningarbása og við gluggaskreytingar. 21.6.2006 22:29
Innipúkinn á Nasa Innipúkinn verður haldinn 4. 5. og 6. ágúst á Nasa, en þetta er fimmta árið sem hátíðin fer fram um verslunarmannahelgina í Reykjavík. Tilgangur hátíðarinnar verður í ár sem áður að bjóða upp á góða tónlist í Reykjavík á sama tíma og vertíð útihátíða á Íslandi gengur í garð. 21.6.2006 13:30
2500 miðar í boði á tónleika Nick Cave Miðasala fyrir tónleika Nick Cave, sem fram fara í Laugardalshöll 16. september, hefst Fimmtudaginn 29. júní í verslunum Skífunnar, BT Akureyri, Egilstöðum og Selfossi og á www.midi.is. Um er að ræða sitjandi tónleika og verða aðeins seldir miðar í númeruð sæti. 21.6.2006 12:30
Ljósalagið 2006 Hafin er leitin að lagi og texta til að taka þátt í sönglagakeppninni Ljósalagið, sem haldin er í Reykjanesbæ ár hvert. Sigurlag keppninnar verður notað sem einkennislag fyrir Ljósanótt, menningar- og fjölskylduhátíð Reykjanesbæjar,sem haldin er fyrstu helgina í september. 20.6.2006 16:45
Hádegistónleikar í Hallgrímskirkju Næstkomandi fimmtudag, þann 22. júní klukkan 12.00, kemur Hörður Áskelsson organisti Hallgrímskirkju og söngmálastjóri þjóðkirkjunnar, fram á fyrstu fimmtudagstónleikum tónleikaraðarinnar „Alþjóðlegt orgelsumar“ á þessu sumri. 20.6.2006 16:15