Fleiri fréttir

Fékk hjartaáfall

Grínistinn frægi, Jerry Lewis, er að jafna sig á sjúkrahúsi eftir að hann fékk hjartaáfall er hann var í flugvél á leið til Las Vegas.

Banvænar veiru­sýkingar í smábæ

Grínhryllingurinn Slither, sem verður frumsýnd á föstudag, gerist í smábænum Wheesly þar sem undarleg veira gerir vart við sig sem breytir íbúunum smám saman í hin ýmsu skrímsli. Þetta er fyrsta myndin sem James Gunn leikstýrir en hann samdi handritið að Dawn of the Dead sem sló rækilega í gegn fyrir tveimur árum.

Banderas í dansstuði

Í kvikmyndinni Take the Lead fer hjartaknúsarinn Antonio Banderas með hlutverk dansara sem tekur að sér að kenna vandræða­unglingum réttu sporin.

Er ekkert lélegur í fótbolta

"Ég ætlaði ekki að taka þetta verkefni að mér því ég hef merkilegt nokk verið duglegur við að segja nei við auglýsingum. Svo fannst syni mínum, sem er átta ára, það vera hræðilegt að sleppa þessu þannig að ég gat ekki sagt nei. Hann uppskar líka treyju Heiðars Helgusonar sem allir landsliðsmennirnir árituðu," segir leikarinn Ari Matthíasson, sem fer á kostum í nýrri auglýsingu Icelandair.

Kvöldgöngur úr Kvosinni

Nú eru að hefjast að nýju hinar vinsælu gönguferðir með leiðsögn á vegum menningarstofnana Reykjavíkurborgar, er nefnast Kvöldgöngur úr Kvosinni

Ný plata í ágúst

Fyrsta plata bandaríska tónlistarmannsins Bob Dylan í fimm ár, Modern Times, kemur út þann 28. ágúst. Síðasta plata Dylan hét Love & Theft en þar áður gaf hann út Time Out of Mind árið 1997 sem fékk mjög góðar viðtökur gagnrýnenda. Dylan, sem er 65 ára, er á leið í tónleikaferð um Evrópu og mun meðal annars spila í Cardiff og Bournemouth dagana 27. og 28. júní.

Sýningin Ísland í Þjóðminjasafni Íslands

Ný sýning verður opnuð í Myndasal Þjóðminjasafnsins nk. föstudag kl. 18:00. Sýningin ber heitið Ísland og er helguð ólíkri sýn tveggja Evrópubúa á landið.

Stjörnuleynd

New York Post hefur tekið saman nöfn sem stjörnurnar nota þegar þær tékka sig inn á hótel. Hugmyndaaflið hjá stórstjörnunum er frjótt ef marka má eftirfarinn lista. Meðal annars notar Angelina Jolie: Miss Lollipop og Johnny Depp: Mr. Satan eða Mr. Donkey Penis. Stjarnan úr Friends þáttunum Jennifer Aniston notar nafnið Mrs. Smith en það var einmitt nafnið á myndinni þar sem fyrrverandi eiginmaður hennar Brad Pitt kynntist spússu sinni Angelinu Jolie og hætti með Aniston.

Spenna fyrir alla fjölskylduna

Félagslega íbúðahverfið Knoxland í Edinborg er enginn sælureitur og því fær lögreglumaðurinn Rebus að kynnast í spennusögu hins nýbaka Íslandsvinar Ians Rankins.

Ókeypis netlestur

Forsvarsmenn Gutenberg-verkefnisins og samtaka sem kennd eru við World eBook Library tilkynntu á dögunum að þau myndu veita lesendum ókeypis aðgang að liðlega 300.000 textum á netinu í júlímánuði.

Velheppnað Stjörnugolf

Stjörnugolf var haldið á Grafarholtsvelli en þetta er að verða árviss viðburður. Þar koma stjörnurnar úr íslensku þjóðlífi ásamt fulltrúum íslenskra fyrirtæki og leggja góðu málefni lið með því að spila golf.

Superman er ekki samkynhneigður

Bryan Singer, leikstjóri kvikmyndarinnar Superman Returns, hefur vísað á bug vangaveltum um að ofurhetjan skikkjuklædda sé samkynhneigð.

Píslarganga Krists umdeildasta myndin

Kvikmyndin The Passion of the Christ hefur verið kjörin umdeildasta mynd allra tíma af bandaríska tímaritinu Entertainment Weekly. Myndinni var leikstýrt af Mel Gibson og fjallar hún um síðustu tólf klukkustundirnar í lífi Jesú Krists. Myndin var gagnrýnd harðlega víða um heim vegna mikils ofbeldis auk þess sem margir töldu hana gera lítið úr gyðingum.

Leikur tónlist meistaranna

Úkraínski píanóleikarinn Roman Rudnytsky heldur tónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld. Þetta verður í annað sinn sem Roman heldur tónleika hér á landi

Íslenskt klúbbakvöld

Laugardaginn 17. júní verður haldið klúbbakvöld á Nasa á vegum Flex Music. Eingöngu íslenskir plötusnúðar og tónlistarmenn koma fram og verður hljóðkerfið það sama og var notað á tónleikum Deep Dish þann 12. apríl. Á meðal þeirra sem koma fram eru DJ Leibbi, Funk Harmony Park og Grétar G, sem mun spila til lokunar. Klúbbakvöldið hefst klukkan 23.00.

Hippisminn er ódrepandi

Ef ég vissi ekki að Wolfmother væri splúnkunýtt rokktríó frá Ástralíu þá hefði alveg verið hægt að ljúga því að mér að þetta væri gömul upphitunarsveit Led Zeppelin. Það er a.m.k. nokkuð víst að þessir piltar hafa eytt mörgum stundum í tímaferðalög aftur til sjöunda áratugarins.

Magnað sjónarspil Waters í Egilshöll

Gífurleg stemning var á tónleikum Roger Waters, fyrrverandi forsprakka Pink Floyd, í Egilshöll í fyrrakvöld. Um fimmtán þúsund manns voru samankomnir höllinni til að hlýða á þessa miklu goðsögn í tónlistarheiminum og varð vafalítið enginn fyrir vonbrigðum með útkomuna.

Fegurðardrottningin stödd á HM í Þýskalandi

Unnur Birna Vilhjálmsdóttir kom sér í heimsfréttirnar því Reuters fréttastofan greindi frá því í gær að fegurðardrottningin væri mætt á Heimsmeistarakeppnina í Þýskalandi sem nú tröllríður sjónvörpum landsmanna.

Gerir myndband fyrir Will Oldham

Við vorum bara að djamma saman þegar þetta barst í tal. Ég hef nokkuð gaman af tónlist hans og sagðist vera til í að gera myndband fyrir hann og hann sagði já, segir Einar Baldvin Arason, 26 ára gamall kvikmyndagerðarmaður, sem gerði nýverið myndband fyrir tónlistarmanninn Will Oldham.

Gyorgy Ligeti látinn

Gyorgy Ligeti, tónskáldið austurríska sem samdi meðal annars tónlistina við kvikmyndina 2001: A Space Odyssey, er látinn, 83 ára að aldri. Ligeti var talinn mikill frumkvöðull á sínu sviði og þótti tónlist hans afar framúrstefnuleg á sínum tíma.

Gárur á vegg

Ljósmyndasafn Reykjavíkur opnar sýningu á ljósmyndum Vigfúsar Birgissonar í Skotinu á fimmtudaginn kl.16. Ljósmyndunum, sem sýna yfirborð sjávar, verður varpað úr skjávarpa á 150x190 cm stóran vegg.

Eminem í vestra?

Bandaríski rapparinn Eminem mun hugsanlega taka að sér hlutverk í vestranum Have Gun, Will Travel.

Drengur í heiminn

Gamanleikarinn Jack Black og eiginkona hans Tanya Haden eignuðust sitt fyrsta barn á dögunum. Var það heilbrigður drengur sem kom í heiminn. „Ég ætla að vera besti pabbi í heimi og ég ætla að taka þátt í keppninni um besta pabbann í heiminum. Síðan ætla ég að vinna hana,“ sagði Black. „Konan er heima í rólegheitunum og ég get ekki beðið eftir því að koma heim,“ sagði hann á frumsýningu kvikmyndarinnar Nacho Libre.

Damon orðinn pabbi

Leikarinn góðkunni Matt Damon og eiginkona hans Luciana Bozan eignuðust sitt fyrsta barn á dögunum, stúlku sem hefur fengið nafnið Isabella. Nýbökuðu foreldrarnir giftu sig í desember árið 2005.

Fréttir af fólki

Um fimmtán þúsund manns skemmtu sér vel á tónleikum Roger Waters, fyrrum forsprakka Pink Floyd, í Egilshöll í fyrrakvöld. Í áhorfendaskaranum sást til söngkonunnar knáu Birgittu Haukdal, auk þess sem útvarpskonan Andrea Jónsdóttir, kokkurinn Siggi Hall, Jói í Idol og tónlistarspekúlantinn Skúli Helgason voru öll mætt til að hlýða á kappann. Má telja ólíklegt að þau hafi orðið fyrir vonbrigðum með það mikla sjónarspil sem boðið var upp á.

Tælandi taílensk hátíð

Taílendingar sem og Íslendingar lögðu leið sína í Ráðhús Reykjavíkur á laugardag í tilefni af 60 ára valdaafmæli Taílandskonungs, hans hátignar Bhumibol Adulayadej.

Todmobile á Nasa

Hljómsveitin Todmobile heldur tónleika á Nasa á föstudagskvöld. Todmobile er nú að undirbúa nýja plötu sem væntanleg er í haust. Verður það fyrsta plata sveitarinnar með nýju efni í tíu ár. Síðast gaf hún út plötu þar sem hún spilaði með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Aðdáendur sveitarinnar fá forsmekk af nýju plötunni þegar lag af henni byrjar að hljóma á útvarpsstöðvum í júlí.

Skuggaleg fortíð eða lygi?

News of the World birti í sunnudagsblaði sínu frétt um að fyrrverandi eiginkona Paul McCartney, fyrirsætan Heather Mills, hefði verið vændiskona og þjónað arabískum prins og alræmdum vopnasala. Mills neitar staðhæfingum blaðsins í yfirlýsingu sem barst breskum fjölmiðlum í gær.

Sigur Rós heiðruð

Myndband við lag Sigur Rósar, Glósóli, var valið besta rokkmyndbandið á Sköpunar- og hönnunarverðlaununum sem voru afhent í Hammersmith Palais í London á dögunum.

Í Sviss með Zutons

Hljómsveitin Ampop er nýkomin heim úr tónleikaferðalagi þar sem hún hitaði meðal annars upp fyrir ensku sveitina The Zutons á tvennum tónleikum í Sviss.

Okkar rómantíska fortíð

Á sumarsýningu Minjasafnsins á Akureyri geta gestir fræðst um brúðkaup að fornu og nýju. Sýningin Ef þú giftist geymir forvitnilega muni og myndir, þar á meðal elstu áletruðu ástarjátninguna sem fundist hefur hérlendis.

Ham á Nasa

Rokksveitin Ham heldur tónleika á Nasa fimmtudaginn 29. júní ásamt hljómsveitinni 9/11"s. Ham lagðist í dvala eftir tónleika í Tunglinu árið 1994. Eftir það kom sveitin aftur saman þegar hún hitaði upp fyrir Rammstein í Laugardalshöllinni fyrir fimm árum auk þess sem hún spilaði á Hætta-tónleikunum í Höllinni þann 7. janúar síðastliðinn.

Getur ekki toppað Hótel Tindastól

Enski gamanleikarinn John Cleese er hættur að semja og leika í gamanþáttum vegna þess að hann telur sig ekki geta toppað hina vinsælu þáttaröð Fawlty Towers, eða Hótel Tindastóll.

Fjörugur bryggjudagur

Á laugardag buðu íbúar og fyrirtæki við Kópavogshöfn íbúum Kópavogs og öðrum nágrönnum sínum til mikillar bryggjuhátíðar. Hátíðin hófst á tónlistardagskrá með skólahljómsveit Kópavogs og ræðu sem bæjarstjórinn, Gunnari Birgisson, hélt.

Atriði klippt út í Kína

Kvikmyndaeftirlitið í Kína hefur klippt út nokkur atriði í hasarmyndinni Mission Impossible III vegna ofbeldis og menningarlegra tilvísana. Í myndinni er Shanghæ lýst sem niðurníddri og fátækri borg og það kunnu yfirvöld í Kína ekki að meta.

Allir geta lært að syngja

Söngkonan Ingveldur Ýr hefur kennt ungum sem öldnum að syngja og beita rödd sinni rétt. Í sumar heldur hún námskeið fyrir unglinga og fullorðna þar sem jafnvel þeir sem hljóma eins og laglausir gaularar geta lært að syngja.

Bætist við dagskrá Iceland Airwaves 2006

Fjöldi listamanna bætast við dagskrá Iceland Airwaves 2006. Má þar nefna Daníel Ágúst, Jagúar, Eberg, Seabear, Fræ, Jeff Who? og 15 aðra listamenn

Guðni, Einar Oddur og Helgi Hjörvar

Margt góðra gesta verður í þættinum Pressan á NFS á morgun, sunnudag. Róbert Marshall umsjónarmaður fær til sín Guðna Ágústsson, Einar Odd Kristjánsson og Helga Hjörvar. Ennfremur ræða blaðamennirnir Pétur Gunnarsson, Haukur Holm, Björg Eva Erlendsdóttir og Arna Schram tíðindi liðinnar viku.

Bryggjudagur í Kópavogi á morgun

Íbúar og fyrirtæki við Kópavogshöfn hafa ákveðið að bjóða Kópavogsbúum og öðrum nágrönnum sínum til bryggjuhátíðar á morgun laugardaginn 10. júní nk.

Góð garðsláttuþjónusta á Seltjarnarnesi

Þorgrímur Sólon Þorgrímsson, 15 ára Nesbúi hefur nú annað starfsár sitt við Garðsláttuþjónustu á Seltjarnarnesi. Hann hjólar um nesið með sláttuvél og orf í eftirdragi og býður garðslátt gegn vægri greiðslu.

Bryggjudagur við Kópavogshöfn á morgun

Svokallaður Bryggjudagur verður haldinn í fyrsta sinn í Kópavogi á morgun. Það eru íbúar og fyrirtæki sem eru í nágrenni hafnarinnar sem standa fyrir viðburðinum en markmiðið er að vekja athygli Kópavogsbúa og nágranna þeirra á höfninni og nágrenni hennar.

Ægisborg 25 ára í dag

Leikskólinn Ægisborg heldur uppá 25 ára afmælið sitt í dag 9. júní. Í tilefni dagsins verður efnt til hátíðar í skólanum sem hefst kl.15:00 og stendur til kl.17:00.

Föstudagsflipp í dag í miðborginni

Fyrsta Föstudagsflipp sumarsins hefst í dag í miðborg Reykjavíkur þar sem að Skapandi sumarhópar Hins Hússins munu bera á borð , listir menningu og önnur fíflalæti frá kl: 13:00.-15:00. Það er búið að panta sól og blíðu og því von á miklu stuði í miðbænum í dag.

Sirrý snýr aftur á skjáinn

Næstkomandi sunnudag, 11. júní, hefur göngu sína nýr viðtalsþáttur í umsjá Sigríðar Arnardóttur - eða Sirrýjar. Þátturinn hefur fengið nafnið Örlagadagurinn.

Sjá næstu 50 fréttir