Fleiri fréttir

Silvía Nótt tekur upp plötu

"Já, ég get staðfest það að Silvía Nótt er að taka upp plötu en ég get ekki sagt mikið meira en það," segir Gaukur Úlfarsson, umboðsmaður Silvíu Nætur. Lítið hefur heyrst frá Silvíu eftir að hún fór fyrir Íslands hönd í Eurovision á dögunum en eftir það skellti hún sér í frí á eyjunni Mýkonos.

Ökukeppni á vinnutækjum

Í síðustu viku fór fram Norðurlandamót í ökuleikni á vinnutækjum sem notuð eru í álverum. Keppnin fór fram á lóð Álversins við Straumsvík og mættu starfsmenn níu álvera frá Íslandi, Svíþjóð og Noregi til leiks.

Ætlar að slá heimsmet

Englendingurinn Roger Field stefnir að því að verða sú persóna sem fær mesta umfjöllun í dagblöðum og tímaritum víðsvegar um heim. Roger fékk hugmyndina eftir að hann hitti Arnold Schwarzenegger árið 1968 í Munchen áður en hann fluttist til Bandaríkjanna og sló í gegn sem kvikmyndastjarna.

Þröngskífa frá Changer

Rokksveitin Changer hefur gefið út þröngskífuna Breed the Lies sem hefur að geyma fjögur lög. Changer hefur áður gefið út tvær breiðskífur og eina þröngskífu síðan hún var stofnuð árið 1999.

Veit hvað hann syngur

Paul Smith var aðeins 15 ára gamall þegar hann hóf störf í tískuheiminum. Smith byrjaði sem sendill í vöruhúsi en hefur jafnt og þétt unnið sig uppá við, svo hægt sé til orða tekið. Hann er í dag meðal fremstu hönnuða Bretlands, þekktur fyrir vandaða og flotta vöru.

Útrás íslenskra listamanna

Íslendingar eru áberandi bæði í Kaupmannahöfn og London um hvítasunnuhelgina. Fjöldi íslenskra hönnuða tekur þátt í hönnunarsýningu í London sem kallast Grand design.

Tvöfalt frá Mannakornum

Hljómsveitin Mannakorn gefur út plötuna Ekki dauðir enn á næstunni. Á plötunni, sem tvöföld, eru upptökur frá þrjátíu ára afmælistónleikum sveitarinnar í Salnum í Kópavogi þar sem fjögurra manna strengjasveit var henni til halds og trausts. Bæði eru gömul og ný lög með Mannakornum á plötunni. Þetta er fyrsta platan sem Sögur útgáfa gefur út.

Syndafall í stiganum

Nýjasti bar bæjarins, Barinn við Laugaveg 22, skartar skemmtilegum veggskreytingum sem vakið hafa ómælda eftirtekt gesta. Listamennirnir sem heiðurinn eiga af verkunum heita Guðmundur Hallgrímsson og Friðrik Svanur Sigurðarson, betur þekktir sem Mundi og Morri, en þeir nema báðir grafískra hönnun við Listaháskóla Íslands.

Sveitamarkaður í sláturhúsi

Í sumar verður starfræktur sveitamarkaður í gamla sláturhúsinu við Laxá í Leirársveit. Markaðurinn verður opinn alla sunnudaga í sumar frá kl. 13-18. Fyrsti opnunardagur er um helgina en hann lendir reyndar á laugardegi.

Sextíu aukalög frá Bubba

Í tilefni af fimmtugsafmæli Bubba Morthens þann 6. júní munu Íslenskir tónar gefa út níu af fyrstu sólóplötum Bubba í veglegum afmælisbúningi þennan sama dag.

Orðinn frískur

Keith Richards, gítarleikari Rolling Stones, hefur náð fullum bata eftir að hafa gengist undir heilaskurðaðgerð á dögunum. Stones hefja tónleikaferð sína um Evrópu í Mílan þann 11. júlí næstkomandi en ferðin átti upphaflega að hefjast í Barcelona fyrir viku síðan

Oasis á toppnum

Fyrsta plata ensku hljómsveitarinnar Oasis, Definitely Maybe frá árinu 1994, hefur verið kjörin besta plata allra tíma. Um 40 þúsund tónlistaráhugamenn tóku þátt í valinu sem tímaritin NME og British Hit Singles and Albums stóðu fyrir.

Ný myndasaga hefur göngu sína

Eins og glöggir lesendur Fréttablaðsins tóku eftir í morgun hefur myndasagan Pú&Pa verið kvödd. Í staðin er komin verðlaunasagan Handan við hornið eða Insanity Streak eftir Tony Lopes.

Lánað tónlist í fjörtíu ár

Í árslok verða fjörutíu ár ár liðin frá því að tónlistardeild Bókasafns Hafnarfjarðar hóf að lána út plötur. Deildin, sem sú stærsta sinnar tegundar, var lengi vel sú eina sem gerði slíkt á íslensku almenningsbókasafni.

Lady & Bird spila í kvöld

Hljómsveitin Lady & Bird,spilar á Barnum í kvöld en tónleikarnir eru lokahnykkurinn á frönsk/íslenskum skemmtikvöldum. Þess má geta að fyrsta breiðskífa Lady & Bird verður gefin út í Bandaríkjunum í júní en hún kom út hér á landi fyrir þremur árum.

Flottar skólapeysur

Menntaskólinn Hraðbraut hefur eignast óvenju flottar skólapeysur. Um er að ræða hettupeysur í þremur litum með skemmtilegu grafísku merki að framan og aftan og nafni skólans á hettunni. Flestir framhalds- og menntaskólar eru með eigin peysur en ég held mér sé óhætt að fullyrða að okkar peysur séu mest hipp og kúl. segr Sigríður Stella Guðbransdóttir, nemi í skólanum og hvatamaður að tilvist peysanna.

Djöfullinn holdi klæddur

Anna Wintour er mikill áhrifavaldur innan tískuheimsins enda ritstýrir hún einu þekktasta tískuriti í dag, ameríska Vouge. Hún á því greiða leið að þekktustu hönnuðunum og á ekki erfitt með að klæða sig samkvæmt nýjustu straumum og stefnum. Það má segja að hún fái tískuna beint í æð á hverjum degi.

Aukaefni frá Depeche

Þrjár gamlar plötur með hljómsveitinni Depeche Mode verða endurútgefnar þann 6. júní bæði á geisladiskum og DVD-mynddiskum. Um er að ræða fyrstu plötu sveitarinnar, Speak & Spell frá árinu 1981, Music for the Masses frá 1987, og Violator frá 1990. Heilmikið af aukaefni verður á hverjum disk fyrir sig auk þess sem hljómurinn hefur verið endurbættur.

Kompás á sunnudag - kveður í bili

Tvö ólík mál verða tekin fyrir í Kompási á sunnudaginn: Fegrunaraðgerðir á Íslandi og Lögreglukórinn í Rússlandi. Hvernig er eftirliti með slíkum aðgerðum háttað. Er eitthvað eftirlit? Er vitað hvað fegrunaraðgerðir kosta hér á landi? Hvað kostar að fylla í varir? Stækka brjóst eða sjúga fitu úr rassi?

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir sigrar í Madríd

Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópransöngkona vann á fimmtudagskvöld til aðalverðlaunanna í alþjóðlegu tónlistarkeppninni "Concurso Internacional Joaquín Rodrigo" sem staðið hefur yfir í Madríd undanfarna viku.

Greifarnir farnir að spila á ný

Greifarnir fengu frábærar viðtökur á Players í síðustu viku og spiluðu fyrir fullu húsi. Greinilegt var að gestir höfðu engu gleymt og tóku svo hraustlega undir að húsið lék á reiðiskjálfi.

Iceland Airwaves á Distortion festival

Tónlistarhátíðin Distortion er nú um helgina haldin í áttunda sinn á samtals 27 skemmtistöðum og klúbbum víðsvegar um Kaupmannahöfn. Búist er við að um 6.000 manns sæki hátíðina, sem hófst á miðvikudaginn og lýkur sunnudagskvöld.

Dalvíkurbyggð opnar nýja heimasíðu

Ný og uppfærð heimasíða Dalvíkurbyggðar var opnuð í dag. Nýja síðan ákveðin andlitslyfting á eldri síðu sveitarfélagsins en hlutverk hennar er einnig að auka rafræna þjónustu sveitarfélagsins við íbúa þess.

Stíll Silvíu þriðji neðsti

Búningur Silvíu Nætur í Eurovision lenti í þriðja sæti yfir þá verstu. Portúgölsku stúlkurnar í Nonstop sigruðu Barbara Dex verðlaunin, sem eru verðlaun aðdáenda keppninnar yfir versta klæðnaðinn á sviði keppninnar. Verðlaunin kallast Barbara Dex eftir belgíska kynnirnum árið 1993, en hún Barbara saumaði kjólinn sinn sjálf og þótti hann ekki til fyrirmyndar.

Sjá næstu 50 fréttir