Fleiri fréttir

Sjötta ráðningin

Páll Magnússon var ráðinn sjónvarpsstjóri Stöðvar 2 í tengslum við breytingar á eignarhaldi og skipulagi Norðurljósa. Fyrir var Páll framkvæmdastjóri dagskrársviðs stöðvarinnar og helsti fréttalesari ásamt Eddu Andrésdóttur.

Heima er best

"Við erum með mjög breitt úrval bæði í húsgögnum og borðbúnaði og leggjum áherslu á notalega stemningu á heimilinu," segir Áslaug Jónsdóttir, en hún á verslanirnar Líf og List í Smáralind og Líf og List - húsgögn í Ármúla 44, ásamt eiginmanni sínum Oddi Gunnarssyni.

Uppáhaldshúsgagn Harðar Áskels

"Ég spurði son minn fjórtán ára að því í gær, eftir að þú hringdir, hver hann teldi að væri uppáhaldsstaður minn í húsinu. Hann var fljótur til svars og sagði að það væri örugglega við píanóið," segir Hörður Áskelsson tónlistarmaður brosandi um leið og hann býður til stofu.

Íslensk munsturhönnun

Í safnbúð Þjóðminjasafnsins er að finna skemmtilegar vörur eins og púðaver og diskamottur með handþrykktu íslensku mynstri. Tvær ungar konur hafa bæði hannað og þrykkt þessa gripi.

Elvis launahæstur látinna

Konungur rokksins, Elvis Presley er launahæstur látinna listamanna. Þó að á þriðja áratug sé liðinn síðan konungurinn geispaði golunni, eru árlegar tekjur af vörum hans hvorki meira né minna en 40 milljónir bandaríkjadala. Það er dóttir Presleys, Lisa Marie, sem nýtur góðs af fjárhagslegu langlífi föður síns, enda á hún eignarhaldsfélagið Elvis Presley enterprises.

Árni Johnsen er skrítinn

Líklegt er að híbýlin að Uppsölum í Selárdal verði gerð upp og að þar verði safn, helgað minningu einbúans Gísla Gíslasonar. Árni Johnsen hefur unnið að hugmyndum um átak í ferðaþjónustu og atvinnumálum í Vesturbyggð og Tálknafirði og lýtur ein tillagan að slíku safni. </font /></b />

Klapparstígur 11 rís úr öskustónni

Húsið númer ellefu við Klapparstíg í Reykjavík hefur átt sín blóma- og hnignunarskeið á þeim tæpu hundrað árum sem liðin eru frá byggingu þess.

Ekki láta rokið ræna þig svefni

Þeir sem búa í gömlum húsum eða á vindsælum stöðum kannast við þegar hvessir og gnauðar og hriktir í hurðum og gluggum.

Uppáhaldshúsgagn

Árni Svavarsson teppahreinsunarmaður á sér uppáhaldshúsgagn sem hann keypti hjá Exo fyrir um það bil tíu árum.

Ísskápur endurnýjaður

Ísskápar bila og gefa sig eins og hvert annað heimilistæki og þá er víst nauðsynlegt að fá sér annan. En einhvern veginn bindist maður sérstökum böndum við ísskápinn sinn.

Ekki gleyma garðhúsgögnunum

Nú er kuldinn farinn að smjúga inn um hverja glufu og frostið ekki langt undan. Áður en kólnar óheyrilega mikið er um að gera að drífa sig út á verönd eða svalir og setja fínu og flottu garðhúsgögnin sem þú eyddir offjár í fyrri part sumars inn í geymslu eða bílskúr - eða hvar sem er sem vindar ekki geysa.

Fasteignavefur á visir.is

Ekki fyrir svo löngu opnaði glænýr Vísis-vefur og fasteignavefur í kjölfarið. Þessi fasteignavefur hefur nú gengið í gegnum talsverðar endurbætur og er óhætt að segja að hann er orðinn mun aðgengilegri fyrir hin almenna borgara fasteignaleit.

Framkvæmdir á Seltjarnarnesi

Íbúar Seltjarnarness hafa verið framkvæmdaglaðir nú í sumar. Framkvæmdir hafa gengið vel þar í bæ enda veðurfar með eindæmum gott.

Ný lög um fasteignasala

"Nýju lögin eiga að skapa meira öryggi og festu á fasteignamarkaðnum. Þau gera stórauknar kröfur til menntunar og reynslu fasteignasala og við bindum miklar vonir við að það skili betri og traustari vinnubrögðum innan stéttarinnar," segir Björn Þorri Viktorsson, formaður Félags fasteignasala, um ný lög um fasteignasala sem tóku gildi 1. október síðastliðinn.

Fyrsta háhýsi Austurlands

"Ég tryggði mér strax íbúð á efstu hæðinni," segir Auður Anna Ingólfsdóttir hótelstjóri sem keypti fyrstu íbúðina í fyrsta eiginlega háhýsinu á Austurlandi er stendur við Kelduskóga á Egilsstöðum.

Eminem segir Bush ekki sinn mann

Rapparinn Eminem ætlar að kjósa í fyrsta sinn á ævinni eftir rúma viku, þegar kjörin verður forseti Bandaríkjanna. Eminem, sem segist ekki hafa haft áhuga á að kjósa hingað til, segist vilja Bush út úr Hvíta Húsinu hið snarasta, enda gangi það ekki að ungt fólk láti lífið að ástæðulausu í Írak og ástandið þar minni á Vietnam forðum.

Di Caprio vill Kerry

Stjörnurnar í Bandaríkjunum keppast við að leggja John Kerry lið í kosningabaráttunni fyrir forsetakoningarnar, sem fram fara 2. nóvember næstkomandi. Nýjasta stirnið í aðdáendahóp Kerry er leikarinn snoppufríði Leonardo Di Caprio, sem hefur undanfarið komið fram á kosningafundum Kerrys í Florida og Oregon og hvatt kjósendur til að snúa baki við George Bush forseta

Fyrstu norrænu tónlistarverðlaunin

Íslendingar og Finnar voru fjarri góðu gamni á fyrstu norrænu tónlistarverðlaununum sem haldin voru í Ósló í gærkvöldi. Norska hljómsveitin A-ha fékk heiðursverðlaun ásamt bresku poppstjörnunni Robbie Williams.

Iceland Airwaves

Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves stendur nú sem hæst í miðborg Reykjavíkur. Hátíðin hófst með tónleikum á NASA - þar sem fram komu Geir Harðarson, Þórir og KK. Vel á annað hundrað listamenn koma fram á sex tónleikastöðum um helgina.

Ekkert á móti nútímaþægindum

Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður á í nokkrum vandræðum með að nefna einhverja eina græju á heimilinu sem algert uppáhald. Hún getur ekki gert upp á milli.

Hægindastólar eftirsóttir

Hægindastóllinn á heimilinu er gjarnan það húsgagn sem mest er karpað yfir, allir vilja flatmaga í fína stólnum og láta líða úr sér eftir daginn.

Reynir að láta verkfallið líða

Auður Elísabet Helgadóttir er ellefu ára og vissulega ein þeirra sem ætti að vera að auka við þekkingu sína með hjálp kennaranna í skólanum sínum, sem er Háteigsskóli.

Myndaveggir

Minningarnar eru dýrmætar og það er nauðsynlegt að vera alltaf með myndavélina við höndina við sérstök tækifæri.

Húsráð

Þrif á ofnum og ofnskúffum

Glerlampar í tísku

Glerlampar eru málið nú á haustdögum. Flottir lampar úr gleri með fínum og klassískum skerm er það nýjasta nýtt.

Fölsuð afsökunarbeiðni

Svissneski knattspyrnudómarinn Urs Meier segir að sér hafi brugðið mjög þegar upp komst að tölvuþrjótar hefðu brotist inn í tölvu hans og sent þaðan falsaða afsökunarbeiðni vegna marks sem Meier dæmdi af Englendingum á Evrópumótinu knattspyrnu í sumar.

Rokk í Reykjavík

Yfir eitt þúsund útlendingar koma til landsins gagngert til að fara á tónleika á Iceland Airwaves-hátíðinni sem hefst í dag. Erlendum gestum hefur fjölgað undanfarin ár. Reykjavík hefur sterka ímynd sem borg áhugaverðrar tónlistar.

50 ára íbúð í Vesturbænum

Ólafur Gunnar Guðlaugsson vílar ekki fyrir sér að taka til hendinni og hefur nýlokið við að taka í gegn frá grunni gamla íbúð á Kvisthaganum.

Enn tími fyrir haustlauka

Nú fer hver að verða síðastur að setja niður haustlauka áður en frýs í jörðu.

Sorptunnuþjónusta

Sorptunnuþjónustan Sótthreinsun og þrif ehf. býður upp á þvott og sótthreinsun á sorptunnum, sorprennum og sorpklefum.

Styrkir steypurannsóknir

Rannsóknarstofa Línuhönnunar hefur fengið styrk frá Íbúðalánasjóði til steypurannsókna.

Remax Stjarnan

Fasteignasalan Remax Stjarnan í Garðabæ býður nú upp á nýja þjónustu sem án efa á eftir að nýtast viðskiptavinum hennar vel.

Marc Almond í lífshættu

Íslandsvinurinn Marc Almond, söngvari hljómsveitarinnar Soft Cell, er í lífshættu eftir að hann lenti í mótorhjólaslysi í miðborg Lundúna á sunnudag. Almond var fluttur í snatri á sjúkrahús mikið slasaður en að sögn lækna er líðan hans stöðug.

Söngleikur um Shrek

Söngleikur byggður á teiknimyndinni Shrek mun brátt líta dagsins ljós á Broadway. Það verður sjálfur Sam Mendes sem framleiðir söngleikinn en hann framleiddi einnig Óskarsverðlaunamyndina<font face="Helv"></font>

Stöðvaði leik vegna hrópa

Móðgaður dómari í Hollandi stöðvaði leik í úrvalsdeildinni eftir 80 mínútur, vegna ókvæðisorða sem áhorfendur ópuðu að honum. Dómarinn segir að áhorfendur hafi farið yfir mörkin með kynþáttahaturssöngvum og fleiru í þeim dúr og sér hafi einfaldlega verið nóg boðið.

Stjörnuleit Idol heldur áfram

Stjörnuleit Idol heldur áfram af fullum krafti á Stöð 2 á föstudögum. í kvöld er röðin komin að Akureyringum og nærsveitarmönnum en þeir létu ekki sitt eftir liggja þegar útsendarar Stöðvar 2 heimsóttu höfuðstað Norðurlands í haust.

Parkettgólf pússað upp

"Parkett verður ljótt og sjabbí á svona 15 til 20 árum, alveg sama þó aðeins hafi verið gengið á sokkaleistunum á því," segir Erlendur Þ. Ólafsson hjá Gólfþjónustu Íslands, sem sérhæfir sig meðal annars í að pússa upp parkettgólf.

Eldhúsið mitt er með sál

"Eldhúsið mitt er eldgamalt og með mikla sál. Það er á dagskránni að taka það í gegn en ég hef ekki lagt í það því það er svo fínt eins og það er," segir Lára Sveinsdóttir leikkona.

Ný alhliða þjónusta

Gluggalausnir eru nýtt fyrirtæki sem sérhæfir sig í gluggatjöldum og öllu sem þeim viðkemur. Fyrirtækið var stofnað fyrir aðeins mánuði síðan og hefur fengið góðar viðtökur hér á landi.

Svínshárabursti í bala

Mörgum er sjálfsagt til ama hve vaskurinn er stundum óhreinn þegar uppvaskinu er lokið.

Bókaskápar með gleri

Fátt skapar heimilislegri blæ en hillur fullar af bókum fyrir utan nú hvað það er hollt að geta teygt sig í góða bók og nært sálina með innihaldi hennar.

Konunglegur uppruni dreginn í efa

Ný bók, <em>Folket</em> eða Fólkið, sem komin er út í Noregi, skekur nú norsku konungsfjölskylduna en í henni er konunglegur uppruni Ólafs Noregskonungs, föður Haraldar núverandi konungs, dreginn í efa. 

Sjá næstu 50 fréttir