Fleiri fréttir

Spila í Japan

Hljómsveitin er bókuð á tónleika frá 15. nóvember þangað til í apríl á næsta ári.

Stjörnur sækja í Sigur Rós

Fyrst var það Hollywood-leikarinn Shia LaBeouf, nú írski leikarinn Aidan Gillen, sem fer með aðalhlutverkið í tónlistarmyndbandi frá Sigur Rós.

Studdi stelpurnar

Margir fylgdust með landsliðsstúlkunum tryggja sér sæti í Evrópukeppninni að ári.

Tilnefndar fyrir lag ársins

Magdalena Dubik og Védís Vantida úr hljómsveitinni Galaxies hafa verið tilnefndar til Eurodanceweb-verðlaunanna árið 2012 fyrir lagið I Don"t Want This Love.

Peysupíur! Hvor er flottari?

Stórar peysur eru málið um þessar mundir og það vita leikkonurnar Zoe Saldana og Sarah Jessica Parker.

Lily Allen blómstrar á meðgöngunni

Söngkonan Lily Allen sýndi myndarlega óléttubumbuna í fríi með eiginmanni sínum Sam Cooper og ellefu mánaða dóttur þeirra, Ethel Mary.

Þetta kallar maður hrekkjavökubúning!

Black Eyed Peas-söngkonan Fergie gerði allt vitlaust á Twitter þegar hún setti mynd af sér í hrekkjavökubúning á síðuna. Hún ákvað að klæða sig sem hlébarði í ár og kynþokkinn lak af henni.

600 fermetra ástarhreiður

Tónlistarmaðurinn Adam Levine hefur fest kaup á 600 fermetra glæsihýsi í Los Angeles. Húsið hefur verið nefnt Benedict-húsið og er afar glæsilegt í alla staði.

Ekki kalla mig feita!

Söngkonan Cheryl Cole prýðir forsíðu desemberheftis tímaritsins Glamour og talar opinskátt um einelti á netinu sem hefur beinst að þyngd hennar.

Baksviðs í Dans dans dans

Sjónvarpsþátturinn Dans Dans Dans fer í beina útsendingu í kvöld á RÚV klukkan 20.30. Lífið kíkti á Korputorg fyrr í dag þar sem dansarar kvöldsins æfðu rútínur sínar af miklum móð.

Ballið búið - hætt saman

Söngkonan Taylor Swift, 22 ára, og Conor Kennedy 18 ára, eru hætt saman. Samkvæmt tímaritinu Us Weekly sem skrifar um stjörnurnar í Hollywood ákváðu Taylor og Conor að fara sitthvora leið sökum fjarlægðar. Allir eru góðir vinir og í góðu jafnvægi þrátt fyrir sambandsslitin eins og stendur í tímaritinu.

Við förum ekki í megrun!

Þær eru margar stjörnurnar sem segjast aldrei fara í megrun og borða það sem þær vilja.

Taumlaus gleði

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar Pétur Blöndal blaðamaður og rithöfundur fagnaði útgáfu Limrubókarinnar. Í bókinni eru úrvalslimrur sem Pétur safnaði saman sem eru af hinum fjölbreytilegasta toga, svo sem gamanmálum, tvíræðni, pólitík og ljóðrænum stemningum.

Hvar er hún búin að vera?

Leikkonan Renee Zellweger lét sjá sig á rauða dreglinum í New York-borg í vikunni í fyrsta sinn í fimm mánuði.

Stuð er rétta orðið

Fjölmenni var í boði sem efnt var til í tilefni útgáfu bókarinnar „Sagan af huldufólkinu á eldfjallaeyjunni" semhaldið var í Máli og Menningu á Laugarvegi. Bókin er samstarfsverkefni mæðginanna Sigrúnar Elsu Smáradóttur sem skrifaði söguna og Smára Rúnars Róbertssonar sem myndskreytti.

Ég er með bólur

Söngkonan Britney Spears prýðir forsíðu desemberheftis tímaritsins Lucky. Þar opnar hún sig um ýmislegt varðandi sitt daglega líf.

Fáránlegur metnaður

Poppfræðingurinn Dr. Gunni hefur ritað sögu íslenskrar dægurtónlistar í bókinni Stuð vors lands. „Ég veit ekki hvað ætti að vera meira töff en þetta,“ veltir Dr. Gunni fyrir sér um Stuð vors lands, spánnýja bók hans um sögu dægurtónlistar á Íslandi.

Fimmtán hljómsveitir í beinni hjá KEXP

Útvarpsstöðin KEXP frá Seattle sendir út beint frá tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves og er þetta fjórða árið í röð sem hún mætir á hátíðina.

Fólk hendir sér í dansinn

Dansviðburðurinn Lunch Beat hefur slegið rækilega í gegn frá því hann hóf göngu sína í ágúst. Dans Dansviðburðurinn Lunch Beat hefur slegið rækilega í gegn frá því hann var haldinn hér fyrst í tengslum við Reykjavík Dance Festival í lok ágúst. Hópur fólks sem starfar við danslist sér um að skipuleggja viðburðinn sem á upptök sín í Svíþjóð.

Myndi skíttapa fyrir Nelson

„Mér finnst mjög gaman að mæta í tímana hans því hann er svo góður leiðbeinandi,“ segir Auður Ómarsdóttir, kærasta bardagakappans Gunnars Nelson. Þau kynntust í gegnum æfingarnar í Mjölni og hafa nú verið saman í um tíu mánuði.

Samsæri innan tískubransans

Fataval Ann Romney fær enga athygli og enginn hönnuður vill þýðast hana. Öðru máli gildir um Michelle Obama, sem er í miklu uppáhaldi.

Sport Elítan: Hvað getur styrktarþjálfun gert fyrir þig?

Margir einstaklingar notast ekki við styrktarþjálfun og eru margar ástæður þar að baki. Sumum finnst það leiðinlegt á meðan aðrir einstaklingar vilja ekki verða massaðir. Ég tel að það sé hægt að finna leiðir sem hæfa öllum og að allir ættu að notast við styrktarþjálfun af einhverju tagi.

Sjónarhornssprengja í Japan

„Þetta var alveg ótrúlegt,“ segir Haukur S. Magnússon úr rokksveitinni Reykjavík!. „Þú hefur ekki lifað fyrr en þú hefur verið á sviði með fimmtán síðhærðum japönskum stelpum að „headbanga“ við músíkina þína.“

Sjö sem heita páll Óskar í þjóðskránni

Alls eru það sjö sem heita Páll Óskar í þjóðskránni. Tveir þeirra eru búsettir erlendis og því eru þeir fimm hér á landi. Popparinn Páll Óskar er elstur nafnanna, eða 42 ára, en sá yngsti er 19 ára og býr í Noregi.

Ástfangin í Róm

Óskarsverðlaunaleikarinn Adrien Brody og kærasta hans Lara Lieto eru yfir sig ástfangin eins og þau sýndu á götum Rómar í gærkvöldi.

Katie Holmes á líka ódýr föt

Leikkonan Katie Holmes var stórglæsileg á rauða dreglinum í New York á dögunum í svörtum kjól með síðum ermum.

27 kíló farin

Söngkonan Jessica Simpson hefur verið mikið í sviðsljósinu eftir að hún eignaðist dótturina Maxwell fyrir sex mánuðum síðan.

Mikið rétt - myndarlega fólkið mætti

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum var vel mætt í útgáfuhóf í gærkvöldi í tilefni af útkomu bókarinnar Iceland fashion design eftir ljósmyndarann Charlie Strand sem haldið var í Bókabúð máls og menningar á Laugavegi. Fyrirsætur sýndu föt frá Elabel og Evalín, Royal Extreme og fatnað eftir Gunnar Hilmars.

Vel heppnað konukvöld Krabbameinsfélagsins

"Látum gleðina taka völd og skemmtum okkur saman eina kvöldstund," var yfirskrift konukvöldsins sem Krabbameinsfélagið hélt í Háskólabíó í gærkvöldi. Eins og sjá má á myndunum var andrúmsloftið vægast sagt frábært. Dagskráin hófst með fölbleikum fordrykk áður en konurnar nutu þess að horfa á skemmtiatriðin sem voru ekki af verri endanum. Biggi Hilmars og hljómsveit, Védís Hervör, Margrét Eir, Sigga Beinteins, Diddú, Ari Eldjárn og Pörupiltarnir gerðu góða hluti. Þá var tískusýning íslenskra hönnuða frá Fatahönnunarfélagi Íslands og fleira skemmtilegt á boðstólnum og að ekki sé minnst á veglegar veitingarnar.

Er þetta ekki full mikið?

Sjónvarpsdrottningin Oprah Winfrey mætti í morgunþáttinn Good Morning America á dögunum. Undir venjulegum kringumstæðum vekur Oprah gríðarlega mikla athygli hvar sem hún stígur niður fæti en það er óhætt að segja að grænu loðnu inniskórnir sem hún ákvað að klæðast hafi ýtt enn frekar undir tryllt viðbrögð aðdáenda hennar.

Smáatriðin skipta öllu

Hjá börnunum er ímyndunaraflið endalaust. Það er hluti af því að vera barn. Það að hanna barnaherbergi getur því verið mjög krefjandi í ljósi þess hversu fljótt börnin vaxa úr grasi. Það sem skiptir mestu máli er að leyfa sköpunargleðinni að ráða ríkjum og hafa herbergið áhugavert og skemmtilegt. Smáatriði skipta höfuðmáli.

Jóhanna fagnar með landsliðinu

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra mætti á landsleik íslenska kvennaliðsins í fótbolta við Úkraínu í gærkvöldi. Jóhanna leyndi ekki tilfinningum sínum þegar hún fagnaði sigri Íslands með frænku sinni, landsliðskonunni Dóru Maríu.

Uppstríluð stjarna á skyndbitastað

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian var heldur fín fyrir Subway ferðina sem hún fór í ein á dögunum en hún var uppstríluð frá toppi til táar. Klæddist Kim geggjuðum leðurtopp við nýþröngar gallabuxur og silfurlitaða hæla. Hárið var einnig til fyrirmyndar og má því ætla að Subway ferðin hafi ekki verið eina erindið þennan daginn.

Hár-partý eins og þau gerast best

Hárgreiðslukonan Theodóra Mjöll hélt útgáfupartý þegar bókin hennar Hárið kom á íslenskan markað. Í bókinni er að finna yfir 70 greiðslur fyrir sítt og millisítt hár – fyrir konur á öllum aldri en ljósmyndir í bókinni tekur Saga Sig.

Helgarmaturinn - dásamleg kjúklingauppskrift

Þórdís Þorleifsdóttir eigandi og hönnuður Mystuff.is, sem framleiðir og hannar dásamleg kerti sem slegið hafa í gegn, gefur uppskrift að kjúklingarétti fyrir fjóra.

Engum leiddist þarna - það er á hreinu

Hvorki meira né minna en 150 ára afmæli Bacardi var fagnað á skemmtistaðnum B5 á laugardaginn var þar sem Páll Óskar hélt uppi stuðinu. Þá héldu plötusnúðarnir Jónas og Gunnar uppi stemningunni á báðum hæðum staðarins alla nóttina.

Lét fjarlægja brjóstin af ótta við krabbamein

Í október á hverju ári snýr þjóðin bökum saman og sýnir konum þessa lands sem háð hafa baráttu við brjóstakrabbamein stuðning og minnist þeirra sem sjúkdómurinn hefur fellt ásamt því að auka vitund kvenna almennt um sjúkdóminn. Innlegg Lífsins er saga hinnar hugrökku Valdísar Konráðsdóttur, 34 ára, en hún tók örlögin í eigin hendur ef svo má segja og fór í mikla forvarnaaðgerð þar sem löng og mikil saga um krabbamein er í fjölskyldunni.

Fjörugt flutningspartý

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar hönnunarhúsið Syrusson flutti í nýtt húsnæði í Síðumúla 33 í Reykjavík. Eins og sjá má voru gestirnir glaðir og mikið fjör í þessu flutningspartýi.

Barnshafandi sjónvarpsstjarna

Sigríður Elva Vilhjálmsdóttir, einn stjórnenda þáttarins Ísland í dag, og unnusti hennar, Teitur Þorkelsson, eru í sjöunda himni þessa dagana en þau eiga von á sínu fyrsta barni í lok apríl á næsta ári. Parið, sem hefur verið saman í 12 ár í vor, er í síðbúnu sumarfríi við lestur og lúdóspil í eyðibýli á Ströndum. Þar skipuleggja þau langferðir, en þau ætla að verja hluta fæðingarorlofsins á framandi slóðum. Parið er hrifið af jaðarsporti ýmiss konar og ætlar að venja barnið við ævintýramennsku strax í móðurkviði.

Þetta er DUST 514

Íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP hefur birt nýtt kynningarmyndband fyrir skotleikinn DUST 514.

Flengingar og BDSM misskilið

„Við vildum setja saman skemmtilega og fræðandi dagskrá um kynlíf og á sama tíma vekja athygli á félaginu okkar, Kynís,“ segir Sigga Dögg, kynfræðingur og formaður Kynís.

Sjá næstu 50 fréttir