Fleiri fréttir

Auglýsingar tískurisa þykja ekki börnum sæmandi

Bresku samtökin Advertising Standards Authority hafa bannað auglýsingar frá tískumerkjunum Marc Jacobs og Miu Miu. Ástæðan er að þær þykja ekki börnum sæmandi, en leikkonurnar Dakota Fanning og Hailee Steinfeld eru í aðalhlutverkum á myndunum.

Gylfi Ægis með aukatónleika í kvöld

Nú eru hátt í 200 miðar seldir en salurinn tekur 300 manns. Þannig að það eru nokkrir miðar eftir, segir Gylfi Ægisson söngvari og lagasmiður.

Frumsýna glænýtt myndband við lagið Ást og áfengi

Hljómsveitin Klaufar frumsýnir hér nýtt glænýtt myndband við smellinn Ást og áfengi og fer ekki milli mála að hér er alvöru kántrísveit á ferðinni. Klaufarnir hafa starfað í fimm ár og leikið kántrí vítt og breytt um landið fyrir landann. Sveitin samanstendur af þeim Guðmundi Annas Árnasyni söngvara, Sigurgeir Sigmundssyni fetilgítarleikara, Birgi Nielsen trommara, Friðriki Sturlusyni bassaleikara og Kristjáni Grétarssyni gítarleikara.

Sonic Youth að hætta?

Mikil óvissa ríkir nú um framtíð rokksveitarinnar Sonic Youth eftir að eitt langlífasta par rokksins, Thurston Moore söngvari og Kim Gordon bassaleikari, tilkynntu um skilnað sinn eftir nærri 30 ára hjónaband. Tilkynningin kom í október þegar hljómsveitin var á tónleikaferðalagi í Suður-Ameríku. Moore og Gordon giftu sig árið 1984 þegar hljómsveitin hafði starfað í þrjú ár. Aðdáendur sveitarinnar voru því flestir jafnframt aðdáendur hjónabandsins, og haft var eftir eyðilögðum ungum manni að skilnaðurinn hefði orðið til þess að hann tryði ekki lengur á sanna ást.

Skúrkur afhjúpaður í Týndu kynslóðinni

Í Týndu kynslóðinni í kvöld verður frumsýndur nýr dagskrárliður sem kallast Sönn íslensk swagamál. Þar verður hulunni svipt af skúrkinum Steinari Bárðarsyni sem Týnda kynslóðin vill meina að hafi farið illa með marga íslenska tónlistarmenn og sé núverandi umboðsmaður stúlknasveitarinnar Charlies.

Stjörnurnar horfa til Íslands

Bandarískar kvikmyndastjörnur og leikstjórar hafa verið tíðir gestir á Íslandi á þessu ári. Fréttablaðið tók saman lista yfir fræga fólkið sem hefur heiðrað Íslendinga með nærveru sinni árið 2011.

Gibb á batavegi

Söngvarinn Robin Gibb hefur fullvissað aðdáendur sína um að hann sé ekki á grafarbakkanum eins og breskir fjölmiðlar hafa gefið í skyn. Hann sé þvert á móti á góðum batavegi þrátt fyrir að hafa verið lagður inn á sjúkrahús í annað sinn á skömmum tíma í síðustu viku. Gibb ætlaði að koma fram á jólatónleikum Björgvins Halldórssonar en varð að aflýsa komu sinni sökum veikinda.

Star Trek 3D kemur 2013

Framhaldsmyndin Star Trek 3D er væntanleg í kvikmyndahús 17. maí 2013. Hinir fjölmörgu Trekkarar, dyggir aðdáendur Star Trek, geta því byrjað að telja niður dagana í rólegheitum. Tökur hefjast í janúar á næsta ári og sem aftur eru þau Zoe Saldana, Chris Pine og Zachary Quinto í aðalhlutverkum. Orðrómur er einnig uppi um að Benecio Del Toro leiki illmennið í myndinni. Star Trek 3D átti upphaflega að koma út næsta sumar en var frestað af kvikmyndaverinu Paramount. Í staðinn var farið í framleiðslu á G.I. Joe 2. Retaliation.

Ný barnabók Hendrikku Waage

Meðfylgjandi myndir voru teknar í gær þegar Hendrikka Waage skartgripahönnuður fagnaði útkomu barnabókar, Rikka og töfrahringurinn í Japan, hjá bókaútgáfunni Sölku með vinum og fjölskyldu....

Í makaleit á netinu

Leikkonan, Playboy-fyrirsætan og dagskrágerðarkonan Jenny McCarthy hefur gefist upp á að finna maka i Los Angeles og leitað á náðir internetsins. McCarthy hætti með leikaranum Jim Carrey fyrir nokkru og hefur nú sett auglýsingu á einkamálasíðuna Match.com undir dulnefni. McCarthy skrifaði í auglýsingunni að hún væri komin með leið á karlmönnunum í Los Angeles. „Mennirnir hérna líta allir út eins og konur. Ég er að leita að einhverjum sem er ekki héðan.“ Það er vefsíðan Perezhilton.com sem uppljóstrar um makaleit leikkonunnar.

Eldar og bakar á hverjum degi

"Ég veit fátt betra en að borða, það er mikið áhugamál hjá mér,“ segir Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir, 22 ára gömul Akranesmær, sem vakið hefur mikla athygli fyrir matreiðslublogg sem hún heldur úti.

Draumur að rætast að fá að hitta poppkónginn

„Ég held alveg sérstaklega upp á Pál Óskar. Ég hef haft áhuga á tónlistinni hans síðan 1987 og Eurovision síðan hann flutti Minn hinsti dans. Í raun og veru er það hann sem vakti hjá mér áhuga á íslenskri tónlist og þá sérstaklega Eurovision.“ Þetta segir Craig Murray, einlægur ástralskur Íslandsvinur og tónleikagestur Frostrósa, sem langar alveg sérstaklega til að hitta Pál Óskar Hjálmtýsson þegar hann og sambýlingur hans, Daryl Brown, koma hingað til Íslands skömmu fyrir jól.

Klára prófin og kynna svo

Nology, fyrsta breiðskífa dúósins Nolo, er komin út. Gripnum verður fylgt eftir um leið og þeir hafa lokið jólaprófunum. Fyrsta plata dúósins Nolo í fullri lengd nefnist Nology og kom nýverið út á vegum Kimi Records. Platan hefur verið fáanleg á tónlistarveitunni Gogoyoko síðustu viku og hefur fengið mjög góðar viðtökur hjá tónlistarunnendum.

Það er ekkert að þessum kjól

Breska leikkonan Sienna Miller stillti sér upp á rauða dreglinum í svörtum Emilio Pucci kjól sem fór henni þetta líka svona vel...

Bít-skáld liðkaði fyrir Ameríkuútgáfu

„Hún verður gefin út hjá forlagi sem nefnist New American Press og er ekki langt frá Chicago. Þetta er tíu til fimmtán ára gamalt forlag sem gefur út bókmenntir og tímarit. Þeir ætla að gera vel úr þessu og það kemur jafnvel til greina að ég fari út, lesi upp og áriti,“ segir rithöfundurinn Ólafur Gunnarsson. Smásagnasafn hans, Meistaraverkið, verður gefið út í Bandaríkjunum á næsta ári.

Áhrifin beint frá Nietzsche

Rapparinn Kanye West segist ekki hafa stolið texta lagsins Stronger frá lagahöfundinum Vincent Rogers. Sá síðarnefndi hefur kært West og heldur því fram að rapparinn hafi hermt eftir lagi sem hann samdi árið 2006 og heitir sama nafni. Í báðum lögunum eru tilvísanir í þýska heimspekinginn Friedrich Nietzsche og fyrirsætuna Kate Moss. Lögfræðingar West segja að textinn við lag hans sé undir beinum áhrifum frá Nietzsche og orðum hans: „Það sem drepur þig ekki gerir þig sterkari.“ Vísa þeir því ásökunum Rogers algjörlega á bug.

Frægar fæða fátæka

Sjónvarpsstjarnan Kim Kardashian og leikkonurnar Zoe Saldana og Jennifer Love Hewitt, stilltu sér upp á milli þess sem þær gerðu góðverk í gær...

Brjálaðar í Bieber

Í meðfylgjandi myndskeiði og myndum má sjá Justin Bieber, 17 ára, og óteljandi aðdáendur sem biðu hvorki meira né minna en í heilan sólahring til að fylgjast með honum syngja í sjónvarpsþættinum The Today Show í New York...

Gaga jól

Söngkonan Lady Gaga, 25 ára, er greinilega komin í jólaskap eins og heyra má í meðfylgjandi myndskeiði...

Hendrix þótti bestur

Jimi Hendrix hefur verið kjörinn besti gítarleikari sögunnar af tímaritinu Rolling Stone. Þessi niðurstaða kemur líklega fáum á óvart enda hefur Hendrix lengi verið talinn einn sá allra fremsti. Í öðru sæti lenti Eric Clapton og þar á eftir kom Jimmy Page úr Led Zeppelin.

Engin pressa

Hljómsveitin Dikta hefur verið til í meira en áratug, en varð gríðarlega vinsæl fyrir tveimur árum. Þá sendi hún frá sér plötuna Get It Together og í kjölfarið byrjuðu lög á borð við Thank You og Just Getting Started að óma á flestum útvarpsstöðvum, pöbbum, félagsheimilum, leikskólum og elliheimilum landsins. Nú hefur hljómsveitin snúið aftur með nýja plötu í farteskinu.

Viltu vinna nýju plötuna með Diktu?

Viltu freista þess að fá nýju plötuna með Diktu án þess að greiða fyrir hana krónu? Jú, öllum finnst gaman að fá gjafir og ef þú ferð inn á Facebook-síðu Popps, facebook.com/popptimarit, og smellir á "like“ er möguleiki á því að draumur þinn rætist.

Lollapalooza í Brasilíu

Bandarísku rokkararnir í Foo Fighters ætla að spila á fyrstu brasilísku útgáfunni af tónlistarhátíðinni Lollapalooza. Hátíðin var haldin í Síle í fyrra og verður haldin aftur þar í ár. Brasilíska hátíðin verður haldin í Sao Paulo 7. og 8. apríl á næsta ári, skömmu eftir að stuðinu í Síle lýkur. Á meðal annarra sem stíga á svið í Sao Paulo verða Jane"s Addiction, MGMT og TV on the Radio.

Grípandi danspopp Rihönnu

Söngkonan hæfileikaríka Rihanna er mætt með sína sjöttu hljóðversplötu. R&B og danspoppið er sem fyrr afar fyrirferðarmikið.

Synirnir aðstoða við hönnunina

Söngkona Gwen Stefani úr hljómsveitinni No Doubt viðurkennir að hún lætur syni sína hjálpa sér við hönnun barnafatalínu sinnar. Þeir Kingston, sem er fimm ára, og Zuma, tveggja ára, aðstoðuðu móður sína við að hanna fatalínuna Harajuku Mini fyrir Target-búðina í Bandaríkjunum.

Skelltu sér á tónleika

Leikararnir Kristen Stewart og Robert Pattinson sáust saman á tónleikum með Lauru Marling í London um helgina. Þau höfðu hægt um sig og stóðu aftast með hettu á höfði. Eftir tónleikana voru þau ekki lengi að láta sig hverfa en starfsfólk staðarins þekktu þau. Stewart og Pattinson hafa ávallt farið leynt með samband sitt en þau leika par í Twilight myndunum og eiga nú stund milli stríða á meðan næst síðasta vampírumyndin, The Twilight Saga Breaking Dawn part 1, er sýnd á hvíta tjaldinu.

Kelly Osbourne grét

Kelly Osbourne uppljóstraði á samskiptavefnum Twitter að hún hefði tárast við að sjá sónarmynd af ófæddu barni bróður síns, Jacks Osbourne. „Ég var að sjá sónarmynd af barni bróður míns og ég get ekki hætt að þurrka tárin. Barnið er fullkomið.“

Erfitt að vakna og fara í ræktina

Britney Spears á ekki sjö dagana sæla þessa dagana, en hún hefur verið á erfiðu tónleikaferðalagi frá því í júní. Hún er að kynna sjöundu plötuna sína, Femme Fatale, og segist vera orðin gríðarlega þreytt á flandrinu.

Komin með upp í kok af Kardashian klani

Hávær hópur sem kominn er með upp í kok af Kardashian fjölskyldunni byrjaði eftir tveggja mánaða langt brúðkaup Kim að safna undirskriftum gegn...

George Michael með lungnabólgu

George Michael hefur neyðst til að aflýsa fleiri tónleikum vegna veikinda. Michael er á tónleikaferðalagi sem nefnist Symphonica en hann er að berjast við lungnabólgu. Tónleikaferðalag Michaels hófst í ágúst á þessu ári og síðustu tónleikar hans voru í október í Royal Albert Hall þann 11. október. Hann neyddist hins vegar til að hætta við tónleika sem hann ætlaði að halda þann 26. október og varð loks að aflýsa öllu tónleikahaldi í Vín, Strassburg og Cardiff.

Prinspóló til Danmerkur

Prinspóló leikur á tvennum tónleikum í Danmörku í næstu viku. Fimmtudaginn 24. nóvember verður hljómsveitin á Loppen í Kaupmannahöfn og daginn eftir spilar hún á Musiccafeen í Árósum. Á þessu stutta ferðalagi um Danmörku hitar Prinspóló upp fyrir dönsku hljómsveitina Let Me Play Your Guitar. Prinspóló gaf síðastliðið haust út plötuna Jukk og hafa lög eins og Niðrá strönd, Hakk & spaghettí og Skærlitað gúmmulaði fengið góðar viðtökur. Hljómsveitin hefur spilað á Íslandi, Póllandi, Lettlandi og í Þýskalandi.

Öskubuskuævintýri í bandarísku sjónvarpi

Bandaríska þjóðin átti ekki í miklum erfiðleikum með að velja sigurvegarann í bandaríska raunveruleikaþættinum Dancing with the Stars á þriðjudagskvöld. Nafn J.R. Martinez var skrifað á bikarinn um leið og stríðshetjan fyrrverandi steig sinn fyrsta dans.

Stríðið um Mjallhvíti

Sagan um Mjallhvíti, prinsessuna fögru sem hrakin var á brott af vondu stjúpunni og fann skjól hjá dvergunum sjö, er flestum kunn. Á næsta ári verða tvær fokdýrar kvikmyndir frumsýndar þar sem snúið er út úr ævintýri Grimm-bræðra að hætti Hollywood.

Heyrðu, Pippa kann að skauta

Yngri systir hertogaynjunnar af Cambridge, Pippa Middleton, var pollróleg eins og sjá má á meðfylgjandi myndum þegar...

Hugljúf og grípandi

Fyrsta plata Togga kom út fyrir fimm árum og þar var hann í trúbadoragírnum. Hún fékk ágætar viðtökur en Toggi varð þekktara nafn eftir að bæði Páll Óskar og síðar meir Hjaltalín fluttu lag hans við texta Páls Óskars, Þú komst við hjartað í mér. Vinsældir lagsins voru gríðarlegar og á endanum var það kjörið lag ársins á Íslensku tónlistarverðlaununum.

Páll Óskar: Fimm bestu HAM-lögin

Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður velur fimm bestu HAM-lögin. Hann segir HAM bestu rokkhljómsveit Íslandssögunnar.

Íslenskar listakonur heiðraðar

Annað árið í röð verða þrjár íslenskar listakonur, Rakel McMahon myndlistarkona, Hildur Yeoman fatahönnuður og Saga Sig tískuljósmyndari heiðraðar á listakvöldi Baileys...

Upptökur í búgarði gítarleikara Strokes

The Vaccines er ein af heitustu hljómsveitum Bretlands um þessar mundir. Hljómsveitin sendir frá sér lagið Tiger Blood á næstunni en gítarleikari The Strokes stýrði upptökum á laginu. Árni Hjörvar, bassaleikari hljómsveitarinnar, er ánægður með samstarfið.

Vill tromma þrátt fyrir axlarbrot

„Þetta er tvísýnt. Ég ætla að hitta lækni og gera þetta í samráði við hann,“ segir trommuleikarinn Egill Rafnsson.

Scorsese frumýnir Hugo

Þakkargjörðarhátíðin var um liðna helgi í Bandaríkjunum en þá notaði leikstjórinn Martin Scorsese tækifærið og frumsýndi fyrstu bíómynd sína í þrívídd, Hugo. Myndin fjallar um munaðarleysingja sem býr inni í veggjum lestarstöðvar í París og hefur hún fengið góðar viðtökur gagnrýnenda vestanhafs. Ungstirnin Asa Butterfield og Chloë Grace Moretz leika aðalhlutverkin og voru að sjálfsögðu mætt til að fagna frumsýningunni klædd í sitt fínasta púss. Aðrir leikarar í myndinni eru Sacha Baron Cohen, Jude Law og Emily Mortimer.

Ísland skoðað fyrir stórmynd um örkina hans Nóa

„Í huga Hollywood og kvikmyndaveranna snýst allt um endurgreiðsluna, hún er sett ofar skapandi gildum. Og ef íslensk stjórnvöld hækka endurgreiðslu úr þrettán prósentum í tuttugu á það eftir breyta samkeppnisstöðu Íslands til að fá erlendar kvikmyndir til landsins mjög mikið. Önnur svæði og önnur lönd hafa vissulega hærri endurgreiðslu en Ísland er bara einstakt. Hækkun endurgreiðslunnar mun allavega hafa mikið um mína mynd að segja og nánast ráða úrslitum hvort við komum eða ekki,“ segir bandaríski leikstjórinn Darren Aronofsky í samtali við Fréttablaðið.

Heimsfræg í flegnu

Leikkonan Blake Lively, 24 ára, vakti athygli fyrir glæsileika í blárri Elie Saab buxnadragt sem var ef vel er að gáð í flegnari kantinum...

Endurvekur sjóvin á Broadway

„Þetta er bara gamla góða sjóvið, eins og landinn þekkir það,“ segir Jóhannes Bachmann, nýráðinn markaðsstjóri Broadway.

Datt í gólfið og kærir Evu Longoriu

Viðskiptavinur veitingastaðar Evu Longoriu, Beso, hefur kært staðinn vegna þess að gólfin eru ekki slétt. Konan datt er hún var að standa upp frá borði sínu á staðnum og segist hafa fengið varanlegar taugaskemmdir vegna fallsins. Hún fer fram á tæpar þrjár milljónir íslenskra króna í skaðabætur og heimtar að veitingastaðurinn lagi gólfin.

Sjá næstu 50 fréttir