Fleiri fréttir

Norrænn tryllir af bestu gerð

Norska kvikmyndin Hodejegerne verður frumsýnd um helgina en hún er byggð á samnefndri sögu eftir norska glæpasagnahöfundinn Jo Nesbø, Varla þarf að taka það fram að Hollywood hyggst endurgera myndina enda virðist Kaninn sjúkur í allt sem norrænt er um þessar mundir.

Ferlega fríð fyrir frægð

Meðfylgjandi má sjá myndir af heimsfrægum einstaklingum eins og Madonnu, David Beckham, Evu Longoriu, Zac Efron, Cindy Crawford og Katie Holmes svo einhverjir séu nefndir áður en frægðin barði að dyrum. Þekkir þú stjörnurnar?

Tóku soninn á næturrölt

Leikaraparið Javier Bardem og Pénelope Cruz vakti athygli vegfarenda í Sarajevo um daginn þegar þau voru í göngutúr ásamt níu mánaða syni þeirra, Leo Encincas.

Vals og rokkkeyrsla

Gímaldin hefur gefið út plötuna Þú ert ekki sá sem ég valdi. Hljómsveitin, með Gísla „Gímaldin“ Magnússon í forgrunni, var stofnuð í byrjun síðasta árs. „Þetta er allt frá þessum rólegu völsum eins Cowboy Junkies kalla þetta, upp í að vera alvöru rokkkeyrsla,“ segir Gísli um plötuna sem var tekin upp „live“ undir stjórn Garðars Eiðssonar. Með Gísla í bandinu eru Gísli Már Sigurjónsson og Þorvaldur H. Gröndal. Til að bæta þriðja Gíslanum við var ákveðið að fá blokkflautuleikarann Gísla Helgason til að spila í laginu Þjóðsaga. Gísli

Rihanna nær sáttum út af umdeildu myndbandi

Rihanna hefur komist að samkomulagi við tískuljósmyndarann David LaChapelle utan dómstóla. Hann hélt því fram að myndir sem hann tók af söngkonunni hefðu verið notaðar án hans leyfis í myndbandi við lag hennar S&M.

Rándýr háralitur

Söngkonan Katy Perry, 26 ára, var með bleikt hár þegar hún var mynduð með tengdamóður sinni, móður Russel Brand, yfirgefa leikhús í London...

Platan sem hefur vantað

Rokksveitin Reykjavík! hefur gefið út sína þriðju plötu, Locust Sounds. Tjöruhúsið á Ísafirði tók þátt í fjármögninni.

Fréttakona gerir kaupmála

Eins og kom fram í fjölmiðlum í sumar gekk fréttakonan María Sigrún Hilmarsdóttir að eiga útgefandann Pétur Árna Jónsson. Athöfnin fór fram í Dómkirkjunni í júlímánuði og það var biskupinn sjálfur, Karl Sigurbjörnsson, sem gaf þau saman.

Vináttan hófst í Dressmann

„Það var mjög ánægjulegt að kynnast honum. Þetta er helvíti fínn gaur,“ segir leikarinn Guðjón Þorsteinn Pálmarsson.

Myndaði japanska poppstjörnu

„Hún fann mig í gegnum bloggið mitt," segir ljósmyndarinn Saga Sigurðardóttir. Saga myndaði nýlega japönsku poppstjörnuna Miliyah Kato fyrir ljósmyndabók sem fjallar um söngkonuna. Saga var einnig listrænn stjórnandi bókarinnar, sem kemur út á næstu dögum þegar Kato byrjar að fylgja eftir nýrri safnplötu með tónleikaferð í heimalandi sínu. Kato er afar vinsæl í Japan og náði toppi Billboard-listans þar fyrir tveimur árum með laginu Love Forever.

Bíddu hvar er jakkinn?

Fyrirsætan og Transformers leikkonan Rosie Huntington-Whiteley vakti athygli þetta kvöld því allt leit út fyrir að jakkann vantaði...

Kastast í kekki milli stjarna í Hollywood

Á meðan allt leikur í lyndi milli Baltasars Kormáks og Marks Wahlberg og þeir tveir farnir að leggja drög að sinni næstu mynd, 2 Guns, hefur heldur betur kastast í kekki milli leikarans og leikstjórans Davids O. Russell.

Hundrað ára kvikmyndasaga Skyttnanna þriggja

Ný kvikmynd byggð á samnefndri sögu Alexandre Dumas um skytturnar þrjár verður frumsýnd um helgina. Þrívítt stórskotalið frá Hollywood er í helstu hlutverkum, ólíkt því sem var þegar maður að nafni Sydney Booth lék D‘Artagnan fyrir hundrað árum.

Lindsay handjárnuð

Meðfylgjandi má sjá myndir af leikkonunni Lindsay Lohan sem teknar voru í gær þegar hún var færð í fangelsi handjárnuð...

Gullkálfinum ekki slátrað

Steven Spielberg og Michael Bay eiga í viðræðum við Paramount-kvikmyndaverið og Hasbro-leikfangaframleiðandann um gerð fjórðu og fimmtu Transformers-kvikmyndanna. Leikfangaframleiðandinn er sagður eiga frumkvæðið að þessum viðræðum enda hafa fyrstu kvikmyndirnar þrjár reynst sannkallaðar gullnámur hvað sölu á leikföngum varðar.

Gat valið úr útgáfufyrirtækjum

„Útgáfan hefur gríðarlegan áhuga á hljómsveitinni og telur að hún eigi eftir að ná langt,“ segir Heather Kolker, umboðsmaður hljómsveitarinnar Of Monsters and Men.

Depp byrjaður að drekka

Leikarinn Johnny Depp er byrjaður að drekka á ný eftir að hafa látið flöskuna vera í 13 ár. Á dögunum sást til Depp detta út um dyrnar á bar í Hollywood og var leikarinn, að sögn sjónarvotta, mjög ölvaður en myndband af þessu gengur nú um netið. Depp hefur ekki drukkið áfengi né neytt eiturlyfja síðan hann byrjaði með kærustu sinni Vanessu Paradis fyrir 13 árum. Atvikið þykir renna stoðum undir þær sögusagnir að samband Depps og Paradis standi á völtum fótum.

Coldplay segir ástarsögu

Fimmta hljóðversplata Coldplay, Mylo Xyloto, kemur út um næstu helgi. Textarnir snúast um tvær manneskjur í leit að ástinni. Enska hljómsveitin Coldplay gefur eftir helgi út sína fimmtu hljóðversplötu, Mylo Xyloto. Textarnir fjalla um raunirnar sem tvær manneskjur ganga í gegnum í leit að ástinni.

Mikil aðsókn í karókí

Það var nóg um að vera í miðborg Reykjavíkur um helgina í tengslum við tónlistarhátíðina Iceland Airwaves. Þannig bauðst gestum og gangandi á Kex hostel að fara í karókí en hægt er að fylgjast með því sem fram fór á vefsíðunni Live Project.

Stone Roses snýr aftur á næsta ári

Breska rokksveitin The Stone Roses ætlar að koma saman á tvennum tónleikum í heimaborg sinni Manchester á næsta ári. Í framhaldinu ætlar hún í tónleikaferð um heiminn. Tónleikarnir í Manchester verða haldnir í Heaton Park fyrir framan 80 þúsund manns.

Tíminn er núna

Einmitt núna er ný mynd eftir Woody Allen í bíó. Drífðu þig! Midnight in Paris er besta mynd Allen í nokkur ár, síðan Match Point kom út.

Gítarinn sér um röddina

Björn Thoroddsen gítarleikari býður til sinnar árlegu „Gítarveislu Bjössa Thor“ í Salnum í Kópavogi annað kvöld, 20. október og föstudagskvöld, 21. október. Strax og miðar fóru í sölu seldist upp á Gítarveisluna annað kvöld og því var öðru kvöldi bætt við sem enn eru til nokkrir miðar á.

Segir íslensku böndin líkjast öðrum

Fjallað er um tónlistarhátíðina Iceland Airwaves, sem lauk um síðustu helgi, í bandaríska tímaritinu New York Magazine og hinu breska Clash Music.

Svona færðu sléttan kvið

Á meðan slæm kolvetni fita okkur um miðjuna eru aðrar fæðutegundir sem hjálpa okkur í baráttunni við aukakílóin. Hér nefni ég nokkur dæmi um góða fæðu...

Anna Þorvalds á forsíðu iTunes

Fjallað var um fyrstu sólóplötu tónskáldsins Önnu Þorvaldsdóttur, Rhizoma, á forsíðu tónlistarveitunnar vinsælu iTunes þar sem sígild tónlist er til sölu. Platan kom út stafrænt 4. október en verður gefin út í föstu formi 25. október.

Samningur í San Francisco

Pönksveitin fornfræga Q4U er í þann mund að skrifa undir plötusamning við útgáfufyrirtæki í San Francisco. „Það á að gefa okkur út á vínYl, sautján lög, bara gömul,“ segir gítarleikarinn Ingólfur Júlíusson. Einnig er líklegt að lögin verði gefin út í stafrænu formi.

Ýkt flott og hræódýrt

Frystihúsaflísar, sundlaugaflísar eða hvað sem þið viljið kalla þær, þá eru þær komnar aftur inn. Eins og sjá má í meðfylgjandi myndaalbúmi...

Heimsfrægur leikari lúbarinn

Leikarinn Shia LaBeouf, 25 ára, var lúbarinn eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði sem tekið var í síðustu viku...

CCP segir upp 20 prósent starfsmanna

Íslenska fyrirtækið CCP, sem framleiðir meðal annars tölvuleikinn Eve Online sem hefur notið gríðarlegra vinsælda um allan heim, hefur ákveðið að segja upp tuttugu prósent starfsmanna en um 600 starfa hjá fyrirtækinu núna. Þrjátíu og fjórum verður sagt upp í Reykjavík, flestir þeirra Íslendingar.

Nóttin á bak við lífið

Glæsilegt lokabindi þríleiksins um Strákinn og Plássið. Meistaralega stíluð, sár og hrífandi saga. Þessi þríleikur Jóns Kalmans er eitt mesta stórvirki í íslenskum bókmenntum síðari ára. Þessi saga forfeðranna, sagan af lífskjörum þeirra, þrautseigju og baráttu við hafið og önnur náttúruöfl hefur sjaldan verið betur sögð.

Rolling Stone hrífst af Biophilia

Fyrstu Biophilia-tónleikar Bjarkar í Hörpu af níu talsins fá mjög góða dóma á heimasíðu bandaríska tímaritsins Rolling Stone.

Partíþokan fer af stað

FM Belfast, Prinspóló, Sin Fang og Borko eru á leiðinni í tónleikaferðalagið Partíþokuna sem hefst á laugardaginn á Græna hattinum á Akureyri. Af því tilefni eru FM Belfast og Prinspóló búin að endurgera lagið Partíþokan, sem kom út fyrir tveimur árum á safnplötunni Hitaveitunni í flutningi Prinspóló og Skakkamanage. "Við ætlum að fara norður, vestur og austur og halda tónleika og vera með stuð og sprell,“ segir Svavar Pétur Eysteinsson úr Prinspóló. Lagið Partíþokan er fáanlegt á Gogoyoko.com. - fb

Lífið býður í bíó

Leikkonan Emma Stone, sem skoða má í meðfylgjandi myndasafni, vinnur sannkallaðan leiksigur í kvikmyndinni The Help, sem rauk beint á toppinn á aðsóknarlistanum vestan hafs og hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda...

Nikita færir út kvíarnar

Nikita hefur hannað og látið framleiða eigin snjóbrettalínu sem kemur á markað í Evrópu, Asíu og Ameríku með haustinu 2012. Mikilvægum áfanga náð segir Aðalheiður Birgisdóttir einn eigenda og stofnenda fyrirtækisins.

Brúðarkjólar Badgley Mischka

Meðfylgjandi myndir voru teknar baksviðs af vor- og sumarlínu brúðarkjóla Badgley Mischka fyrir næsta ár...

Allir í góðum fíling þarna

Það ríkti góð stemning þegar útgáfu bókarinnar Hollráð Hugos - hlustum á börnin okkar var fagnað í húsakynnum Sölku bókaútgáfu í gær eins og sjá má á myndunum...

Ber Britney

Söngkonan Britney Spears leitaði ekki langt yfir skammt þegar hún réði í hlutverk í myndbandinu við lag sitt Criminal....

Mariah Carey frumsýnir tvíburana

Söngkonan Mariah Carey, 41 árs, og eiginmaður hennar, Nick Cannon, 31 árs, buðu fjölmiðladívunni Barböru Walters í heimsókn og ræddu við hana um lífið og tilveruna eftir að þau eignuðust tvíburana...

Fyrsta sjövíddarbíó heims

„Sætin hreyfist ekki bara upp og niður, heldur líka til hliðar — allt upp í 200 hreyfingar á sekúndu,“ segir Eyþór Guðjónsson, framkvæmdastjóri Skemmtigarðsins sem rís nú í vetrargarði Smáralindar.

Bresk hljómsveit rænd á Bakkusi

„Ránið var svo leiðinlegt þar sem það varpaði skugga á annars frábæra ferð til Íslands,“ segir Rob Yunioshi, forsprakki hljómsveitarinnar Yunioshi.

Alli Abstrakt lenti í þriðja sæti

Alli Abstrakt, sem heitir réttu nafni Alexander Jarl Abu-Samrah, lenti í þriðja sæti í norrænu rappkeppninni Rap It Up sem var haldin í Stokkhólmi á föstudaginn.

Blautur bolur Margeirs í verðlaun

Það var mikið fjör í hinu árlega Airwaves-partýi plötusnúðsins Margeirs í Bláa lóninu síðastliðinn laugardag. Fjöldi fólks mætti á svæðið og náði veislan ákveðnum hápunkti þegar Margeir lét sig falla yfir hópinn úti í lóninu sem bar hann út yfir vatnið.

Mugison hélt tónleika á hótelherbergi

Tónlistarmaðurinn Mugison er eflaust fyrsti Íslendingurinn sem efnir loforð sitt í nýja ferðamannaátakinu Ísland - allt árið. Hann hélt tónleika fyrir hótelgesti á KEX hostel við Skúlagötu við góðar undirtektir.

Sjá næstu 50 fréttir