Fleiri
Haustlína Jason Wu 2011 Meðfylgjandi má sjá haustlínu Jason Wu 2011. 5.5.2011 06:53 Bigelow heldur uppteknum hætti Bandaríska leikstýran Kathryn Bigelow hefur óvænt fengið upp í hendurnar magnaðan söguþráð sem sennilega á eftir að reynast gullnáma. Hún hefur nefnilega, nánast frá fyrstu hendi, fengið innsýn inn í líf þeirra sem höfðu uppi á Osama bin Laden og drápu í Pakistan. 5.5.2011 06:00 Hvaða hamingjupillur tókuð þið inn fyrir þetta viðtal? Síðasti þáttur Hamingjan sanna fór í loftið á Stöð 2 í kvöld og af því tilefni hittust aðstandendur og þátttakendur á Café París í kvöld. 4.5.2011 21:20 Þingmaður með Dylan-tónleika Hollvinafélag Minnesota-háskóla verður með uppákomu 15. maí í tilefni af sjötugsafmæli Bobs Dylan. Þar munu KK og Valgeir Guðjónsson flytja lög Dylans og eigin lög innblásin af verkum söngvaskáldsins. 4.5.2011 21:00 Sjá næstu 50 fréttir
Selja fötin á frábæru verði Undanfarin misseri hefur mikið borið á því að smekklegustu skutlur bæjarins hreinsa út úr fataskápum sínum og slá til fatamarkaðar. Þessi helgi er engin undantekning. Í dag milli 13 og 17 fer fram fatamarkaður í portinu á Prikinu þar sem Erna Bergmann, Svala Lind og Anna Soffía standa vaktina. 7.5.2011 12:06
Dóp og slagsmál í Quarashi-mynd Ný heimildarmynd um rappsveitina Quarashi er í undirbúningi í leikstjórn Gauks Úlfarssonar, sem vann mikið með sveitinni á sínum tíma. 6.5.2011 18:00
Hera er opinber söngkona Mr. Gay World USA „Ég vona að þetta vindi upp á sig. Þetta er besti bransinn til að byrja í því þetta eru „trendsetterarnir“,“ segir söngkonan Hera Björk Þórhallsdóttir. Hera er sjóðandi heit í heimi samkynhneigðra í Bandaríkjunum um þessar mundir. Hún er opinber söngkona keppninnar Mr. Gay World USA og lag hennar, Je Ne Sais Quoi, er lag keppninnar. Undankeppnir hefjast víða um Bandaríkin í júní og Hera kemur fram á einhverjum þeirra. Þá kemur hún fram í lokakeppninni í janúar á næsta ári. 6.5.2011 18:00
Risaverk nema Myndlistaskólans Nemar við Myndlistaskólann í Reykjavík opna í sýningu í dag og hafa af því tilefni málað risavaxið verk á vegg í sýningarsalnum. 6.5.2011 18:00
Fjallabræður undirbúa plötu Vestfirski stuðkórinn Fjallabræður er að undirbúa nýja plötu sem kemur út fyrir næstu jól ef allt gengur að óskum. Fyrsta plata Fjallabræðra kom út fyrir tveimur árum og hefur hún selst mjög vel, eða í um fimm þúsund eintökum. Kórinn syngur á þjóðhátíð í Eyjum í annað sinn í röð í sumar en hefur annars hægt um sig. Kórstjórinn Halldór Gunnar Pálsson á góðar minningar frá síðustu þjóðhátíð. „Það var alveg geðveikt. Við vorum í jakkafötunum í átján klukkutíma," segir hann hress. 6.5.2011 17:00
Haustlína Calvin Klein 2011 Í meðfylgjandi myndasafni má sjá haustlínu Calvin Klein 2011. 6.5.2011 16:10
Rómantískt hús með sérstöðu Ástralski arkítektinn Fitt De Felice hannaði þetta hús fyrir fjölskyldu sem óskaði eftir einföldu notalegu einbýlishúsi. Fjölskyldan lagði áherslu á það að húsið væri hlýlegt, nútímalegt en jafnframt notalegt. Hönnuðurinn notar margvísleg náttúruleg efni og lýsingu til þess að skapa rómantíska stemningu í þessu fallega rými. Loftið er ólíkt á milli herbergja sem gefur hverju rými sérstöðu sem er óvenjulegt því algengast er í hönnun nútímalegra einbýlishúsa að upplifunin sé sú að rýmið sé opið og flæði um allt húsið. Sérstaðan þarna virkar vel þar sem hvert rými hefur sinn sérstaka karakter og upplifun hvers herbergis þannig einstök. 6.5.2011 15:46
Séð og heyrt stúlkan kvödd með söknuði Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá þjóðþekktar Séð og heyrt stúlkur eins og Birgittu Haukdal söngkonu, Birtu Björnsdóttur fatahönnuð... 6.5.2011 15:16
Kryddpía eignast annan son Breska kryddpían, söngkonan Emma Bunton, 35 ára, eignaðist son í dag. Bæði móður og syni heilsast vel en hún sendi eftirfarandi tilkynningu til fjölmiðla: Fallegi sonur okkar, Tate, er mættur heilbrigður í þennan heim. Við erum öll svo ánægð og spennt. Þakkir og ást til ykkar allra. Faðir drengsins er unnusti hennar, breski söngvarinn Jade Jones. Saman eiga þau soninn Beau fyrir. 6.5.2011 12:49
Ólafur Gaukur fámáll um tengdasoninn "Ég má ekkert segja,“ sagði Ólafur Gaukur þegar Vísir hafði samband við hann en dóttir hans, Anna Mjöll, giftist bandaríska auðkýfingnum Cal Worthington í apríl. Hann hagnaðist gríðarlega á bílasölu en á milli þeirra er allnokkur aldursmunur. Cal er fæddur árið 1920 á meðan Anna Mjöll er fædd 1970. Það eru því fimmtíu ár á milli þeirra. 6.5.2011 10:25
Fagurt er í Hörpu Fyrstu tónleikar Sinfóníunnar í Hörpu lofuðu góðu. Tónlistarflutningurinn var magnaður og hljómburðurinn flottur. Ég held að það sé ljóst að Harpa er vel heppnað tónleikahús, að minnsta kosti stóri salurinn. Ég óska okkur öllum til hamingju með stórkostlegan áfanga í menningarlífinu á Íslandi. 6.5.2011 09:45
Hönnunarmerkið bARBARA í gONGINI Tískuverslunin GK Reykjavík hefur nýverið tekið að selja hönnun bARBÖRU í gONGINI og ætti það að vera mikið fagnaðarefni fyrir áhugafólk um skandinavíska hönnun. Ása Ninna Pétursdóttir, sem rekur GK Reykjavík ásamt sambýlismanni sínum, Guðmundi Hallgrímssyni, sýnir brotabrot af hönnun bARBÖRU í gONGINGI í meðfylgjandi myndskeiði. Hönnunarmerkið bARBARA í gONGINI var á meðal þeirra skandinavísku tískumerkja sem sýndu línur sínar á nýyfirstaðinni tískuviku í Kaupmannahöfn. Merkið er upprunalega frá Færeyjum en hefur aðsetur í Kaupmannahöfn og þykir hönnun þess dökk og framúrstefnuleg. 6.5.2011 08:49
Mikið rétt sætu stelpurnar hittust í gær Meðfylgjandi myndir voru teknar í höfuðstöðvum Aveda á Íslandi í Borgartúni í gærkvöldi þar sem fjöldi hárgreiðslukvenna kom saman á svokölluðu Mini master djamm móti þar sem stofurnar Unique hár og spa og 101 Hárhönnun kynntu það nýjasta frá Aveda í hár og litun. 6.5.2011 07:44
Stella McCartney haustlína 2011 Á meðfylgjandi myndum má sjá haustlínu Stellu McCartney 2011. 6.5.2011 07:27
Einbýlishúsin verða varla djarfari Þetta djarfa einbýlishús var byggt á síðasta ári í Bandaríkjunum. Húseigandinn vildi hús hannað af framúrstefnulegri dirfsku en án þess að það yrði tilgerðarlegt í vísindaskáldsögustíl. Það verður ekki annað sagt en að vel hafi tekist til í hönnuninni á þessu sérkennilega svarta húsi sem sker sig með afgerandi hætti frá villtri náttúrunni sem umlykur þessa framúrstefnulegu hönnun. Einfalt og smekklegt hús sem sýnir svo sannarlega hvernig tiltölulega djörf hönnun nýtur sín vel á sátt við náttúruna á þessum einstaklega fagra stað. 6.5.2011 06:57
Depp vill taka því rólega Þrátt fyrir að enn eigi eftir að frumsýnda sjóræningjamyndina Pirates of the Caribbean: On Stranger Tides er framleiðandinn Disney þegar farinn að skipuleggja fimmtu myndina í seríunni. Johnny Depp, sem leikur sjóræningjann Jack Sparrow, vill samt ekki fara of geyst í málin og vill helst bíða í smá tíma. 6.5.2011 06:00
Tölvuleikur eftir íslenskri teiknimynd fær risastyrk Tölvuleikur byggður á tölvuteiknimyndinni Hetjur Valhallar – Þór sem teiknimyndafyrirtækið CAOZ er nú að klára fer vænatanlega á netið á næsta ári. Hann verður hlutverkaleikur, ætlaður börnum og verður aðalmarkaðssvæðið Norðurlöndin og Þýskaland. Tölvuleikurinn fékk nýverið styrk úr evrópska MEDIA-sjóðnum upp á 24 milljónir íslenskra króna, en það þykir mikill gæðastimpill að fá slíkan styrk úr áðurnefndum sjóði. Þegar hefur verið gerður símaleikur fyrir i-Phone síma um Þór þrumuguð en eins og gefur að skilja er þessi netleikur mun stærri í sniðum. 6.5.2011 00:00
Kynnumst aðeins gamla manninum Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá fróðlegt viðtal við eiginmann söngkonunnar Önnu Mjallar Ólafsdóttur, Cal Worthington, sem er kunnur bílasali. Cal lítur til fortíðar í viðtalinu og rifjar upp forvitnilega hluti sem hann hefur upplifað á sinni löngu ævi en Cal er fimmtíu árum eldri en Anna Mjöll. Gamli maðurinn er hress miðað við aldur og syngur meðal annars í myndskeiðinu. 5.5.2011 22:09
Eiginmaðurinn 50 árum eldri en Anna Mjöll Söngdívan Anna Mjöll Ólafsdóttir gekk í hnapphelduna í síðasta mánuði. Sá lukkulegi heitir Cal Worthington og er kunnur bílasali. 5.5.2011 20:32
Lygilega sniðug augnmálning Margrét Friðriksdóttir förðunarfræðingur gerir vægast sagt magnaða hluti með því að nota XOXO förðunarpakkann á andlit Írisar Bjarkar Jóhannesdóttur ungfrú Reykjavík 2010 eins og sjá má í meðfylgjandi myndskeiði. Margrét farðar annað augað á Írisi á mettíma. Sjón er sögu ríkari. 5.5.2011 17:15
Fastur í fljótabát og aðeins fimm dagar eftir Nú er aldeilis farið að síga á seinni hluta ferðalags Sighvats Bjarnasonar umhverfis jörðina á 80 dögum. Hann er búinn að vera 75 daga á leiðinni og þarf að hafa sig allan við til að ná niður til Ríó og fljúga heim til Íslands. 5.5.2011 17:00
Fara vel við íslenskt sumar Nælonsokkar Borghildar Gunnarsdóttur hafa vakið athygli. Hún svarar eftirspurn og býr til nýjar litasamsetningar fyrir sumarið. Ný lína undir merkinu Milla Snorrason er svo í mótun. 5.5.2011 17:00
Fínpússaðir skrælingjar Kristín Svava Tómasdóttir stimplaði sig inn sem eitt efnilegasta ljóðskáld landsins með frumraun sinni, Blótgælum, árið 2007. Önnur ljóðabók hennar, Skrælingjasýningin, kom út á dögunum. 5.5.2011 16:00
Æskuvinirnir frá Kaliforníu Gríngengið Lonely Island getur ekki birt myndband á Youtube án þess að milljónir manna horfi á það. Ný plata er á leiðinni frá genginu og á meðal gesta eru Justin Timberlake og sjálfur Michael Bolton. 5.5.2011 16:00
Hómópati Hollywoodstjarna á Íslandi Dana Ullman, hómópati Hollywood stjarnanna er staddur á Íslandi. Hann hefur starfað náið með lækni Elísabetar Englandsdrottningar en hún hefur mikla trú á hómopatiu og hefur notað hana í gegnum árin. Dana hefur unnið með mörgum þekktum einstaklingum og gaf út bókina The Homeopathic Revolution en þar segir hann frá sönnum sögum af frægu fólki sem hefur notað hómópatiu eins og Bill Clinton, Tony Blair, David Beckham, Tina Turner, Paul McCartney, Jennifer Aniston og Orlando Bloom. Fyrirlesturinn verður haldinn á Háskólatorgi Háskóla Íslands, sal 102, klukkan 20.00 í kvöld, fimmtudaginn 5. maí og er öllum opinn og ókeypis. Sjá nánar á hér (fagfélag hómopata á Íslandi). 5.5.2011 15:33
Twilight með flest atkvæði Vampírumyndin The Twilight Saga: Eclipse hefur fengið átta tilnefningar til MTV-kvikmyndaverðlaunanna sem verða afhent í Los Angeles 5. júní. Hún er tilnefnd sem besta myndin auk þess sem aðalleikararnir Robert Pattinson og Kristen Stewart fá einnig tilnefningar. Hasarmyndin Inception með Leonardo DiCaprio í aðalhlutverki fær sjö 5.5.2011 15:30
Þrettánda árið hafið Fyrsti heimaleikur KR-inga í Pepsi-deild karla verður í Frostaskjólinu á sunnudaginn og að sjálfsögðu verður KR-útvarpið á sínum stað eins og undanfarin tólf ár. Hver reynsluboltinn á fætur öðrum úr fjölmiðlageiranum verður á bak við hljóðnemann í sumar og nægir þar að nefna Bjarna Fel, Hallgrím Indriðason, Felix Bergsson, Frey Eyjólfsson, Hauk Holm og Boga Ágústsson. Sá síðastnefndi var einmitt heiðraður sem sjálfboðaliði ársins fyrir störf sín í útvarpinu á uppskeruhátíð tippklúbbs KR um síðustu helgi. 5.5.2011 15:00
Ég og Svavar án rafmagns Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur og hljómsveitin Ég koma fram á þriðju tónleikunum í tónleikaröðinni Rafmagnslaust á Norðurpólnum í kvöld. Einnig kemur hljómsveitin Flugdrekafélag fram í fyrsta skipti opinberlega. 5.5.2011 14:30
Íslenskar kvikmyndir í Bíó Paradís Bíó Paradís, kvikmyndahúsið við Hverfisgötu, hyggst blása til íslensks kvikmyndasumars og hefst það 6. maí. Í hverri viku verður sýnd íslensk kvikmynd með enskum texta og er þetta því kjörið tækifæri fyrir Íslendinga sem vilja sýna útlendingum íslenska kvikmyndamenningu og jafnframt rifja upp gömul kynni við gamlar íslenskar kvikmyndir. 5.5.2011 14:00
Miðnætursprengja í Kringlunni í kvöld "Litirnir eru bjartir og skemmtilegir. Rauðu litirnir eru áberandi en við þurfum á þeim að halda eftir þungan vetur. Einnig er mikið um sæta blómakjóla,“ segir Svava Johansen, eigandi NTC, um tískustraumana þessa dagana. 5.5.2011 13:36
Er næsta stórstjarna í íslenskri myndasögugerð Lilja Hlín Pétursdóttir sigraði í myndasögukeppni Ókeibæ-kur og fékk að launum útgáfusamning við fyrirtækið. Myndasagan hennar er bæði blóðug og ofbeldisfull. Keppnin var haldin fyrir Ókeipiss, myndasögutímaritið sem kemur út á laugardaginn. Sama dag verður haldið upp á hinn alþjóðlega ókeypis-myndasögudag. 5.5.2011 12:00
Slúðrað um endurkomu Talið er að endurkoma frægustu útgáfunnar af Guns N‘ Roses sé á næsta leiti. Hljómsveitin hefur gengið í gegnum ótal breytingar frá því að hún var stofnuð árið 1985. 5.5.2011 12:00
Er vonda drottningin Það eru ansi magnaðir hlutir að gerast hjá Disney. Ekki að það sé eitthvað fréttnæmt heldur virðist nýjasta kvikmynd Spiderman-leikstjórans Sam Raimi innan veggja fyrirtækisins lofa góðu. Myndin er svokallaður forleikur að Galdrakarlinum í Oz og segir frá sölumanni einum sem lendir í því að loftbelgur hans hafnar í hvirfilbyl og sendir hann í töfralandið fræga. Þar kemst hann í kynni við töfrakonuna Theódóru með skelfilegum afleiðingum. 5.5.2011 12:00
Hlakkar til að standa á sviðinu "Þessi salur lítur ótrúlega skemmtilega út. Ég hlakka mjög mikið til að standa á þessu sviði,“ segir tónlistarmaðurinn Helgi Björnsson. Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skömmu blæs Helgi til stórtónleika í Eldborgarsal Hörpunnar á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Þar munu hann og þekktir tónlistarmenn á borð við Bogomil Font, Ragnheiði Gröndal og Högna Egilsson flytja íslenskar dægurlagaperlur. „Víkingur Heiðar var að æfa sig þegar við vorum þarna og það er svaka flottur hljómur, þetta er mikið djásn sem við höfum eignast þarna." 5.5.2011 11:00
Allt eins og það á að vera hjá Þór Thor er skemmtileg mynd að mestu. Ég átti erfitt með fyrstu 25 mínúturnar, en þær gerast allar í hinum tölvugerða Ásgarði (sem lítur út eins og framtíðarlegt hommadiskótek) og ég var orðinn smeykur um að ég fengi aldrei að sjá hinum megin við green-screen tjaldið. En þegar Thor missir mátt sinn og er sendur til jarðar byrjar myndin fyrir alvöru. 5.5.2011 11:00
Getur hugsað sér sjónvarpsferil eftir fótboltann „Þetta hefur þróast útí það að Sky hefur sett sig í samband við mig og athugað hvort ég væri laus með tilliti til æfinga-og leikjaplans,“ segir Eiður Smári Guðjohnsen, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Fullham, í samtali við Fréttablaðið. Eiður fékk lofsamlega dóma á samskiptasíðunni Twitter eftir frammistöðu sína sem gestur í myndveri Sky Sports fyrir og eftir leik Barcelona og Real Madrid í meistaradeild Evrópu á þriðjudagskvöld. 5.5.2011 11:00
Krafturinn selur grimmt Þegar fyrsta kvikmyndin um bílatuddann Toretto og lögregluþjóninn Brian O‘Conner var frumsýnd fyrir áratug hefði engan kvikmyndaspekúlant grunað að fjórar kappaksturskvikmyndir ættu eftir að fylgja í kjölfarið. En glæsikerrurnar trekkja að. Fast Five fór rakleiðis á toppinn í Bandaríkjunum enda skartar myndin þeim Paul Walker og Vin Diesel í aðalhlutverkum. Myndin tekur upp þráðinn þar sem Fast & Furious 5.5.2011 10:45
Bond bað um Sjálfstætt fólk Kvikmyndaleikarinn Daniel Craig, betur þekktur sem James Bond, spurði um bókina Sjálfstætt fólk eftir Halldór Laxness í bókabúð í bænum Oswestry í Shropshire-sýslu á Englandi fyrir skömmu. 5.5.2011 10:00
Samþykkti Clooney þessa myndatöku? Ítalska unnusta bandaríska leikarans George Clooney, Elizabetta Canalis, situr fyrir nakin í auglýsingaherferð fyrir PETA dýraverndunarsamtökin. Elizabetta á ekki í vandræðum við að gæla við myndavélina þó hún sé kviknakin með grábláan bakgrunn eins og greinilega má sjá má meðfylgjandi myndum. Þá má einnig sjá Elizabettu, sem er sjónvarpsstjarna í heimalandi sínu, leika í Ferrero auglýsingu, á hlaupum um götur Mílanó og með Clooney. 5.5.2011 07:30
Sumarbústaðir þurfa ekki að vera flóknir Gæti hæglega verið nútímalegt sumarhús við Þingvallavatn því umhverfið er mjög íslenskt. En svo er þó ekki því þessi sumarbústaður stendur við fagurt vatn í norður Ameríku. Hönnun hússin er einföld og smekkleg á þessum kyrrláta fallega stað. Útsýnið og umhverfið nýtur sín vel innan úr einföldu hlýlegu rými í gegnum stóra glugga sem endurspegla blárri fallegri birtu inn í húsið. Stóru gluggarnir ramma inn fallegt ytra umhverfið enda engin þörf á myndum á veggina þarna þar sem nóg er að sjá úr stofunni yfir stórbrotið umhverfið. 5.5.2011 07:05
Tónleikar fyrir BBC Enska hljómsveitin Radiohead ætlar að flytja nýjustu plötu sína, The King of Limbs, í heild sinni fyrir breska ríkissjónvarpið, BBC. Tónleikarnir verða hluti af Live From The Basement tónleikaröð BBC og verða þeir sýndir 1. júlí. Upptökustjóri tónleikanna verður Nigel Godrich sem stjórnaði einnig upptökum á The King of Limbs. 5.5.2011 07:00
Bigelow heldur uppteknum hætti Bandaríska leikstýran Kathryn Bigelow hefur óvænt fengið upp í hendurnar magnaðan söguþráð sem sennilega á eftir að reynast gullnáma. Hún hefur nefnilega, nánast frá fyrstu hendi, fengið innsýn inn í líf þeirra sem höfðu uppi á Osama bin Laden og drápu í Pakistan. 5.5.2011 06:00
Hvaða hamingjupillur tókuð þið inn fyrir þetta viðtal? Síðasti þáttur Hamingjan sanna fór í loftið á Stöð 2 í kvöld og af því tilefni hittust aðstandendur og þátttakendur á Café París í kvöld. 4.5.2011 21:20
Þingmaður með Dylan-tónleika Hollvinafélag Minnesota-háskóla verður með uppákomu 15. maí í tilefni af sjötugsafmæli Bobs Dylan. Þar munu KK og Valgeir Guðjónsson flytja lög Dylans og eigin lög innblásin af verkum söngvaskáldsins. 4.5.2011 21:00