Lífið

Eiginmaðurinn 50 árum eldri en Anna Mjöll

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Anna Mjöll Ólafsdóttir er gengin út. Sá heppni heitir Cal Worthington, en þau hafa bæði hitt George Clooney.
Anna Mjöll Ólafsdóttir er gengin út. Sá heppni heitir Cal Worthington, en þau hafa bæði hitt George Clooney.
Söngdívan Anna Mjöll Ólafsdóttir gekk í hnapphelduna í síðasta mánuði. Sá lukkulegi heitir Cal Worthington og er kunnur bílasali.

Það er óhætt að fullyrða að ástin hafi hvorki spurt um stétt né stöðu hjá parinu hamingjusama því að fimmtíu ára aldursmunur er á hjónunum. Eftir því sem fram kemur á alfræðivefnum Wikipedia er Cal fæddur í nóvember 1920 og verður því 91 árs í vetur. Anna Mjöll er hins vegar fædd í janúar 1970 og varð því 41 árs í byrjun árs.

Það er að minnsta kosti ár síðan að Anna Mjöll og Cal hittust því að Fréttablaðið sagði frá því í apríl í fyrra að Anna hefði setið til borðs með honum á veitingahúsi þegar þau hittu George Clooney fyrir tilviljun.

„Cal þekkti þá Frank Sinatra, Dean Martin og Gary Grant persónulega en þetta eru þeir einstaklingar sem Clooney lítur hvað mest upp til. Hann spratt því á fætur þegar hann kom auga á Cal og greip í hendina á honum, ætlaði hreinlega ekki að sleppa af honum takinu," sagði Anna þá.



Kynnumst aðeins gamla manninum
.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×