Fleiri fréttir Var höfðinu hærri en flestir „Það er ekki séns að þú fáir fermingarmynd af mér. Ég held ég sé búinn að eyða öllum eintökunum enda leit ég út eins og fífl á þessum aldri," eru fyrstu viðbrögð Magna Ásgeirssonar tónlistarmanns við beiðni um viðtal. Þegar því hefur verið kyngt er honum ekkert að vanbúnaði að leysa frá skjóðunni. 23.3.2011 16:34 Leikið með litrík blóm Bjartir og glaðlegir litir eru við hæfi þegar lagt er á borð fyrir fermingarbörnin. Þar koma blómin sterk inn. „Mér finnst fólk farið að leika sér meira með blómin en áður og blanda ýmsu saman," segir Rannveig Vernharðsdóttir, eigandi Mimosu á Glerártorgi á Akureyri, spurð um nýjungar í fermingarblómum. Hún segir rósir jafnan vinsælar og nú séu túlípanar til í mörgum nýjum og skemmtilegum litum. Kertin eru fjölbreytileg sem keypt eru fyrir fermingar og þau eru skreytt í Mimosu fyrir þá sem það kjósa. 23.3.2011 16:34 Í veislum hvor hjá öðrum Frændurnir Bjarnar Ingi Pétursson og Örvar Svavarsson hafa verið leikfélagar frá unga aldri. Í vetur hafa þeir fylgst að í fermingarfræðslu í Hjallakirkju og nú styttist í að þeir staðfesti skírnina. 23.3.2011 16:33 Fermingarmyndin: Minning umgóðan dag Fermingin er viðburður sem flestir vilja varðveita sem lengst. Fallegar ljósmyndir eiga sinn þátt í að halda á lofti minningunni um daginn en svo þær heppnist sem best er gott að hafa nokkur atriði á hreinu. 23.3.2011 16:33 Æðisleg tilfinning að gefa peninga til góðs málefnis Á fermingardegi sínum í fyrra ákvað Harpa Hrönn Hjaltalín Agnarsdóttir að gefa hluta af fermingarpeningum sínum til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. 23.3.2011 16:33 Ásinn Týr í uppáhaldi „Ég var að bíða eftir að komast í tónmenntatíma, og tók upp bók og fór að lesa. Bókin var um ásatrú og ég las hana alla,“ segir Ívan Breki Guðmundsson, nemandi í Grunnskólanum á Ísafirði. Ívan heillaðist af ásatrúnni og tók þá ákvörðun að taka siðfestu í stað þess að fermast. 23.3.2011 16:33 Engar tvær kökur eru alveg eins
Sjá næstu 50 fréttir
Var höfðinu hærri en flestir „Það er ekki séns að þú fáir fermingarmynd af mér. Ég held ég sé búinn að eyða öllum eintökunum enda leit ég út eins og fífl á þessum aldri," eru fyrstu viðbrögð Magna Ásgeirssonar tónlistarmanns við beiðni um viðtal. Þegar því hefur verið kyngt er honum ekkert að vanbúnaði að leysa frá skjóðunni. 23.3.2011 16:34
Leikið með litrík blóm Bjartir og glaðlegir litir eru við hæfi þegar lagt er á borð fyrir fermingarbörnin. Þar koma blómin sterk inn. „Mér finnst fólk farið að leika sér meira með blómin en áður og blanda ýmsu saman," segir Rannveig Vernharðsdóttir, eigandi Mimosu á Glerártorgi á Akureyri, spurð um nýjungar í fermingarblómum. Hún segir rósir jafnan vinsælar og nú séu túlípanar til í mörgum nýjum og skemmtilegum litum. Kertin eru fjölbreytileg sem keypt eru fyrir fermingar og þau eru skreytt í Mimosu fyrir þá sem það kjósa. 23.3.2011 16:34
Í veislum hvor hjá öðrum Frændurnir Bjarnar Ingi Pétursson og Örvar Svavarsson hafa verið leikfélagar frá unga aldri. Í vetur hafa þeir fylgst að í fermingarfræðslu í Hjallakirkju og nú styttist í að þeir staðfesti skírnina. 23.3.2011 16:33
Fermingarmyndin: Minning umgóðan dag Fermingin er viðburður sem flestir vilja varðveita sem lengst. Fallegar ljósmyndir eiga sinn þátt í að halda á lofti minningunni um daginn en svo þær heppnist sem best er gott að hafa nokkur atriði á hreinu. 23.3.2011 16:33
Æðisleg tilfinning að gefa peninga til góðs málefnis Á fermingardegi sínum í fyrra ákvað Harpa Hrönn Hjaltalín Agnarsdóttir að gefa hluta af fermingarpeningum sínum til Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna. 23.3.2011 16:33
Ásinn Týr í uppáhaldi „Ég var að bíða eftir að komast í tónmenntatíma, og tók upp bók og fór að lesa. Bókin var um ásatrú og ég las hana alla,“ segir Ívan Breki Guðmundsson, nemandi í Grunnskólanum á Ísafirði. Ívan heillaðist af ásatrúnni og tók þá ákvörðun að taka siðfestu í stað þess að fermast. 23.3.2011 16:33
Bara einn fermingardagur Deilur fráskilinna foreldra skyldu ætíð látnar lönd og leið á fermingardegi barna og gleði fá í staðinn stærstan sess. „Aðeins einn dagur í ævi barns heitir fermingardagur. Því þurfa foreldrar að hafa hagsmuni barns síns að leiðarljósi og setja eigin ágreining til hliðar, sé hann til staðar. Við getum haldið mörg jól og farið í mörg sumarfrí, en hvaða sögu viljum við að barn okkar segi af fermingardegi sínum? Minningarnar munu lifa og því skal hafa í huga að deilur foreldra bitna mest á börnunum,“ segir Valgerður Halldórsdóttir, félagsráðgjafi og formaður Félags stjúpfjölskyldna, spurð um heillaráð til handa foreldrum barna sem eiga tvö heimili. 23.3.2011 16:33
Gullmolarnir í lífinu Börn með þroskahömlun gera Jesú að ævilöngum vini á fermingardaginn. "Áður fyrr var undir hælinn lagt hvort börn með þroskahömlun fermdust, og í starfi mínu hef ég talað við margt aldrað fólk sem svíður sárt að hafa ekki fengið að fermast af því það gat ekki lært kverið sitt og var kannski ekki læst. Við þurfum ekki að vera læs til að eiga Jesú að vini. Við þurfum bara að vera læs á hjarta okkar og umhverfi,“ segir Guðný Halldórsdóttir, sem starfað hefur sem prestur fatlaðra frá árinu 1990 og þjónar sérstaklega einstaklingum með þroskahömlun. 23.3.2011 16:33
Borgaraleg ferming vinsæll valkostur Borgaraleg ferming nýtur vaxandi hylli hérlendis. Þannig ætla 195 börn að fermast borgaralega í ár en þau voru 166 á síðasta ári. Hope Knútsson, formaður Siðmenntar, telur gott orðspor ráða því að sífellt fleiri velja þennan kost. 23.3.2011 16:33
Þakka Guði fyrir hvern dag sem Ozzy dregur andann "Þetta er mjög spennandi festival,“ segir Sigurður Sverrisson sem verður fararstjóri í fyrstu íslensku hópferðinni á rokkhátíðina Sweden Rock Festival svo vitað sé. 23.3.2011 20:00
Manchester bíður eftir Björk - Tónleikar á Íslandi ekki ákveðnir enn Björk Guðmundsdóttir frumflytur tónlist af plötu sinni Biophilia í sumar með aðstoð hugbúnaðar og nýrra hljóðfæra, þar á meðal stafræns pípuorgels og tíu metra pendúls. 23.3.2011 17:00
Fermingarbörn taka skírn í kvöldkirkju Í hverjum fermingarhópi eru börn sem ekki hafa tekið skírn. Þau þurfa hins vegar að skírast áður en hægt er að ferma þau og er afar persónubundið hvernig sú athöfn fer fram. Í Dómkirkjunni er algengt að þessi börn taki skírn í svokallaðri kvöldkirkju sem er opin alla fimmtudaga, árið um kring. 23.3.2011 16:34
Upplifði ævintýri í Ameríku Alexander Sigmarsson, fjórtán ára, ákvað að verja fermingarpeningunum sínum í ævintýraferð um Mið-Ameríku á síðasta ári. Með í för var faðir hans Sigmar Alexandersson. „Þetta var rosalega skemmtilegt, alveg eins og ég bjóst við," segir Alexander en hákarlar og píramídar eru á meðal þess sem rak á fjörur hans. 23.3.2011 16:33
Pabbi fór á kostum Þótt tæplega hálf öld sé liðin síðan leikkonan góðkunna Guðrún Ásmundsdóttir fermdist man hún ferminguna eins og hún hafi gerst í gær. „Þá fylgdi því mikill kostnaður að fermast. Fermingarkyrtlar stóðu ekki til boða svo saumaðir voru á okkur stelpurnar glæsilegir hvítir fermingarkjólar, næstum eins og brúðarkjólar, og ekki nóg með það heldur var keyptur kjóll til að klæðast eftir ferminguna í veisluna og kápa.“ 23.3.2011 16:33
Myndaþáttur: Laglegir unglingar Undir hvítum kuflinum á fermingardaginn leynast oft fagrir kjólar og litrík klæði sem valin hafa verið af kostgæfni. Fermingarbörnin hafa oft á tíðum sterkar skoðanir á því hverju þau vilja klæðast á þessum merkilega degi í lífi þeirra. 23.3.2011 16:33
Mamma erfði skyrtuna „Þetta var yndislegur dagur," segir Elín Ósk Óskarsdóttir söngkona, sem fermdist 6. apríl 1975 í Stórólfshvolskirkju á Hvolsvelli. „Ég ólst upp á frekar trúuðu heimili. Mamma og pabbi sóttu messur og pabbi söng með kirkjukórnum. Ég fór snemma að syngja með kórnum og hugsaði mikið um trúna. Mér fannst því sjálfsagt að fermast," segir Elín, en séra Stefán Lárusson sá um ferminguna. 23.3.2011 16:33
Verða góðar manneskjur Séra Birgir Ásgeirsson segir fermingarundirbúninginn samtal og samfélag um trúna milli unglingsins, fjölskyldunnar og kirkjunnar. „Mér finnst fermingarundirbúningurinn vera samtal um trúna og tækifæri unglingsins til að kynnast sjálfum sér og bera sig saman við trúarlegan og siðfræðilegan þátt í eigin lífi. Hvað er ég, hver vil ég vera og hvert stefni ég, og þá um leið hver er Guð?“ segir séra Birgir Ásgeirsson, prestur í Hallgrímskirkju. 23.3.2011 16:33
Þessi eru með himinháa greindarvísitölu Meðfylgjandi myndskeið var tekið í dag í Vonarstræti þegar Hönnunarsjóður Auroru útlhlutaði rúmlega 11,5 milljón króna til verkefna á sviði hönnunar. Við tókum hönnuðina Hafstein Júlíusson, Emblu Vigfúsdóttur, Katarinu Lötzcsch, Anton Kaldal og Steinar Farestveit tali þar sem þeir kynntu hugmyndir sínar. 23.3.2011 15:25
Framúrskarandi íslenskir hönnuðir verðlaunaðir Meðfylgjandi myndir voru teknar í dag þegar Hönnunarsjóður Auroru úthlutaði rúmlega 11,5 milljón króna til verkefna á sviði grafískrar hönnunar, fatahönnunar, matarhönnunar, vöruhönnunar og arkitektúrs. Þrír aðilar fengu framhaldsstyrki til frekari eflingar verkefna sinna, sem er í takt við þá stefnu Hönnunarsjóðsins að fylgja eftir völdum verkefnum þannig að sá árangur megi fremur nást sem viðkomandi hönnuður stefnir að. Það voru þeir Bóas Kristjánsson með fatamerki sitt 8045, Hafsteinn Júlíusson með vörumerki sitt HAF og Charlie Strand með bókina Icelandic Fashion Design sem kemur út í sumar. Öll eiga þessi verkefni sameiginlegt að ötullega hefur verið unnið í þeim frá fyrri styrkveitingum. Sjá nánar hér. 23.3.2011 14:25
Framúrskarandi hönnuðir verðlaunaðir Meðfylgjandi myndir voru teknar í dag þegar hönnunarsjóður Auroru úthlutaði rúmlega 11,5 milljón króna til verkefna á sviði grafískrar hönnunar, fatahönnunar, matarhönnunar, vöruhönnunar og arkitektúrs. Þrír aðilar fengu framhaldsstyrki til frekari eflingar verkefna sinna, sem er í takt við þá stefnu Hönnunarsjóðsins að fylgja eftir völdum verkefnum þannig að sá árangur megi fremur nást sem viðkomandi hönnuður stefnir að. Það voru þeir Bóas Kristjánsson með fatamerki sitt 8045, Hafsteinn Júlíusson með vörumerki sitt HAF og Charlie Strand með bókina Icelandic Fashion Design sem kemur út í sumar. 23.3.2011 14:15
Pabbi Mugisons bjargaði bassa Diktu "Það er einhver draugur í þessum bassa. Bassabölvunin,“ segir Jón Þór Sigurðsson, best þekktur sem Nonni kjuði, trommuleikari hljómsveitarinnar Dikta. 23.3.2011 11:00
Eagles-menn koma með einkaþotu „Þetta er eitt mesta brjálæði sem ég hef upplifað og hef ég þó upplifað margt,“ segir tónleikahaldarinn Ísleifur B. Þórhallsson. 23.3.2011 09:00
Spúkí stemning með miðil og spákonu í beinni Meðfylgjandi myndskeið var tekið í gærkvöldi á settinu hjá Dyngju-dömum Skjás eins, Nadiu Banine og Björk Eiðsdóttur, rétt áður en útsending þáttarins Dyngjan hófst klukkan 21:05. Gestir kvöldsins, Guðrún Hjörleifsdóttir miðill og Sigríður Klingenberg spákona, voru nýbúnir að koma sér fyrir ásamt þáttastjórnendum. Eins og sjá má var stemningin rafmögnuð. 23.3.2011 07:43
Vill komast í jarðarför Perkins Blúsarinn Halldór Bragason ætlar að reyna að vera viðstaddur jarðarför vinar síns, bandarísku blúsgoðsagnarinnar Pinetop Perkins, sem er látinn, 97 ára gamall. 23.3.2011 07:00
Aldrei aftur allsber Breski leikarinn Ewan McGregor lét hafa það eftir sér á dögunum að hann væri hættur að koma nakinn fram á hvíta tjaldinu. McGregor, sem verður fjörutíu ára á þessu ári, segist ekki vilja enda eins og margar karlkyns Hollywood-stjörnur sem sífellt eru naktar í ástarleikjum með ungum konum. Tekur hann leikarann Clint Eastwood sem dæmi. 23.3.2011 06:00
Missir hárið Söngkonan skrautlega Lady Gaga er byrjuð að missa hárið og þarf að ganga með hatt til að fela skallablettina. Skrautlegar hárgreiðslur og sífelldar breytingar á háralit virðast vera byrjaðar að taka sinn toll á hári söngkonunnar, sem er byrjuð að sanka að sér hárkollum. „Ég nota hárkollur og hárlengingar til að bæta upp lokkana sem detta af.“ 23.3.2011 05:00
Braut rúðu í brjálæðiskasti Hér má sjá þegar tónlistarmaðurinn Chris Brown, sem lúbarði söngkonuna Rihönnu fyrir tveimur árum, var í viðtali í sjónvarpsþættinum Good Morning America í morgun. Chris tók brjálæðiskast eftir að spyrillinn spurði hann út í það sem hann gerði Rihönnu en ef myndskeiðið er skoðað má greinilega sjá að hann er ósáttur við að rifja upp fortíðina. Söngvarinn rauk eftir viðtalið beint í búningsherbergið ósáttur við spurningarnar sem áttu að hans mati að ganga út á nýju plötuna hans Fame. Þá braut Chris rúðu í æðiskastinu. Meðfylgjandi má sjá myndir af Chris fyrir utan sjónvarpsstöðina og skilaboðin sem hann setti á Twitter síðuna sína í kjölfarið en nú þegar er búið að eyða skilaboðunum. 22.3.2011 15:48
Yfirlýsing frá Hurts: Áhorfendur björguðu tónleikunum - Viva Ísland Rafmagnið fór tvívegis af hljóðkerfinu í Vodafone-höllinni þegar breska hljómsveitin Hurts hélt þar tónleika á sunnudagskvöld. Einhverjir í hljómsveitinni voru frekar fúlir eftir atvikið en tóku þó gleði sína á ný eftir tónleikana þegar eftirpartí var haldið þeim til heiðurs á skemmtistaðnum Austur. 22.3.2011 12:30
Ekki er þetta sleikur Charlie Sheen? Leikarinn Charlie Sheen mætti öllum að óvörum í spjallþátt Jimmy Kimmel í gærkvöldi á sjónvarpsstöðinni Abc. Leikarinn kyssti þáttastjórnandann eftirminnilega eins og sjá má í myndskeiðinu. Nýjustu fregnir úr Hollywood herma að Charlie verði mögulega endurráðinn í sjónvarpsþáttinn vinsæla Two and a Half Men. Gustað hefur um stjörnuna síðustu vikur eftir að hann hellti sér yfir framleiðendur þáttanna. 22.3.2011 11:51
Spákonur í beinni "Okkur langar að vita hvað er til í þessu og hvernig þær fara að þessu, hvernig miðlar sjá framtíðina og fleira í þeim dúr. Hafa ekki flestar stelpur og konur farið til miðils eða spákonu? Þá ekki síst þegar þær hætta með kærastanum, segir Björk Eiðsdóttir annar þáttastjórnenda Dyngjunnar á Skjá einum. "Við ætlum að spyrja hvað má ekki segja og hvort það sé ekki hættulegt að við förum að lifa eftir þessu." Verður spáð í beinni útsendingu í kvöld? "Ég ætla að spyrja Guðrúnu hvort hún finni fyrir einhverju í salnum eða í kringum okkur," segir Björk spennt. Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá brot úr þáttunum. 22.3.2011 10:30
Ný ástkona Tiger Tiger Woods, kylfingurinn kvensami, er kominn með nýja stúlku uppá arminn. Sú „heppna“ heitir Alyse Lahti Johnson og er 22 ára stjúpdóttir framkvæmdarstjóra umboðskrifstofu Tiger. Sambandið kom í ljós þegar Elin Nordegren, fyrrum eiginkona Tiger, keypti sér villu við hlið Tiger í Flórída fyrir skemmstu. 22.3.2011 07:00
Kronkron frumsýnir sumarlínuna og heldur skóhappdrætti Á fimmtudagskvöld klukkan 20 verður slegið til veislu í versluninni Kronkron í tilefni af Hönnunarmars. Þá verður vor- og sumarlína Kron by Kronkron kynnt og skópar úr línunni í vinning í happdrætti. 22.3.2011 23:41
Will Smith gaf tölvur Will Smith hefur gefið 29 tölvur til menntaskóla í heimaborg sinni Fíladelfíu í Pennsylvaníu-fylki. Þetta góðverk gerði leikarinn eftir að hann komst að því að þjófar höfðu stolið sextíu tölvum úr skólanum. Þeir hafa verið handsamaðir af lögreglu og ákærðir fyrir verknaðinn. Upphæðin sem Smith innti af hendi kemur úr góðgerðarsjóði sem hann stofnaði með eiginkonu sinni. Smith ólst upp í bænum Wynnefield skammt frá menntaskólanum sem er í vesturhluta Fíladelfíu. 22.3.2011 18:00
Pearl Jam býr til plötu Rokkararnir í Pearl Jam byrja í næsta mánuði að taka upp sína tíundu hljóðversplötu. Síðasta plata sveitarinnar, Backspacer, kom út árið 2009. "Við gerðum fullt af prufuupptökum og við erum með 25 möguleg lög,“ sagði bassaleikarinn Jeff Ament. 22.3.2011 14:00
Einhleyp og hamingjusöm Leikkonan Renee Zellweger er laus og liðug á ný eftir að hafa sagt skilið við leikarann Bradley Cooper. Zellweger virðist þó ekki gráta sambandið því hún lék við hvern sinn fingur í veislu sem haldin var síðustu helgi. 22.3.2011 14:00
Batman-hópurinn klár Þriðja myndin í Leðurblökumanns-flokki Christopher Nolan er beðið með mikilli eftirvæntingu enda sló Dark Knight eftirminnilega í gegn fyrir tveimur árum. Fyrrum barnastjarna verður í hlutverk aðalskúrksins. 22.3.2011 08:00
Charlie Sheen er lítið barn Charlie Sheen er vafalítið aðalstjarnan það sem af er þessa árs en sífellt fleiri efast um geðheilbrigði leikarans. Bæði bróðir og faðir leikarans tjáðu sig um ástandið á honum um helgina. 22.3.2011 08:00
Á toppnum á tveimur stöðum „Maður vonaði alltaf að það kæmi fólk að sjá myndina en ég bjóst ekki við að þetta gengi svona vel strax,“ segir Reynir Lyngdal, leikstjóri Okkar eigin Osló. 22.3.2011 05:00
Rafmagnslaus sársauki Á heildina litið stóð hljómsveitin sig vel en tónleikarnir náður engu flugi vegna tæknilegra örðugleika. 22.3.2011 00:01
Villtar klukkustundir á Íslandi þrátt fyrir skakkaföll "Það er leiðinlegt að þetta þurfti að enda svona. Þetta hefði getað verið stöngin inn," segir Róbert Aron Magnússon, sem skipulagði tónleika bresku hljómsveitarinnar Hurts á sunnudagskvöld. 22.3.2011 19:00
HURTS: Kærleiksrík kveðja þrátt fyrir misheppnaða tónleika Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá hvernig hljómsveitin HURTS kvaddi áhorfendur í Vodafone höllinni á sunnudagskvöldið áður en þeir spiluðu lokalagið. Rafmagnið fór tvívegis af hljóðkerfinu og breytti þar með annars frábærri stemningu sem hafði skapast í höllinni á meðan bandið spilaði. 22.3.2011 12:50
Orlando vill ögrandi hlutverk Orlando Bloom finnst skemmtilegast að leika persónur sem ögra honum sem leikara. "Ef handritið er mjög gott, persónan vel skrifuð og fólkið sem kemur nálægt myndinni áhugavert þá tek ég að mér hlutverkið,“ sagði Bloom. 21.3.2011 22:00
Foo Fighters vilja ekki vera í Glee Tónlistarmaðurinn Dave Grohl er lítið hrifinn af sjónvarpsþáttunum Glee og mun sjálfur ekki gefa leyfir fyrir því að lög með hljómsveit hans, Foo Fighters, verði flutt í þáttunum. 21.3.2011 21:30
Opnar vefsíðu fyrir hármódel Anna Sigríður Pálsdóttir hárhönnuður hefur komið á laggirnar fyrstu íslensku vefsíðunni þar sem hárgreiðslufólk getur á auðveldan og fljótlegan hátt fundið fyrirsætur fyrir ýmis verkefni. „Hugmyndin að síðunni kom til þegar ég var að vinna að eigin hárlínu í fyrra og ein fyrirsætan forfallaðist á síðustu stundu. Það er ekkert hlaupið að því að finna nýja fyrirsætu með svipað hár með engum fyrirvara og ég fór að spá í því af hverju það væri ekki til síða sem þessi til að auðvelda manni lífið og spara tíma og fyrirhöfn," útskýrir Anna Sigríður, eða Anna Sigga eins og hún er oftast kölluð. 21.3.2011 20:00