Lífið

Mamma erfði skyrtuna

Elín Ósk Óskarsdóttir.
Elín Ósk Óskarsdóttir.
„Þetta var yndislegur dagur," segir Elín Ósk Óskarsdóttir söngkona, sem fermdist 6. apríl 1975 í Stórólfshvolskirkju á Hvolsvelli.

„Ég ólst upp á frekar trúuðu heimili. Mamma og pabbi sóttu messur og pabbi söng með kirkjukórnum. Ég fór snemma að syngja með kórnum og hugsaði mikið um trúna. Mér fannst því sjálfsagt að fermast," segir Elín, en séra Stefán Lárusson sá um ferminguna.

Elín man vel eftir fermingardressinu. „Við fórum á Selfoss til að velja fötin. Á þessum tíma var mikið í tísku að vera í riffluðu pilsi og vesti. Ég fékk svart rifflað vesti, hnésítt pils og eldrauða blússu með blúndum, ægilega fallega," segir Elín og minnist þess hlæjandi að móðir hennar hafi síðar erft silkiblússuna fínu.

„Hún var svo pen og nett og fékk blússuna þegar ég stækkaði upp úr henni."

Elín Ósk ásamt foreldrum sínum á fermingardaginn.
Móðir Elínar var flinkur kokkur og meistari í að skreyta mat og kökur að sögn Elínar en fermingarveislan var haldin heima.

„Allur undirbúningurinn var mjög spennandi. Móðursystur mínar komu frá Reykjavík til að hjálpa mömmu við að útbúa matinn en boðið var upp á bæði steikt læri, hangikjöt og fleira góðgæti. Eftir matinn var boðið upp á kaffi," lýsir Elín. Hún minnist með hlýju alls þess fólks sem kom bæði úr Reykjavík og að austan í ferminguna hennar.

Gjafirnar voru heldur ekki af verri endanum. „Ég fékk miklu meira en ég bjóst við," segir Elín sem fékk úr frá foreldrum sínum sem hún á enn í dag og auk þess skatthol. „Það var hvítt eins og var í tísku þá og hægt var að draga út borðið og jafnvel læra við það," segir hún glaðlega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×