Fleiri fréttir

Stelpuslagur í nýja Britney-myndbandinu

"Það er mér sönn ánægja að kynna nýja myndbandið mitt við lagið Hold It Against Me. Ég vona að þið fílið það jafnvel og ég. Ef ekki þá tek ég kung fu-spark á ykkur eins og ég geri við stelpuna í myndbandinu,“ skrifaði poppprinsessan Britney Spears á Twitter-síðu sína í gærkvöldi.

Pinetop Perkins elsti sigurvegarinn

Bandaríski blúsarinn Pinetop Perkins varð elsti Grammy-verðlaunahafi sögunnar þegar hann tók á móti verðlaununum á sunnudag fyrir plötuna Joined at the Hip: Pinetop Perkins & Willie „Big Eyes“ Smith.

Kynntir sem Dikita frá Írlandi

Hljómsveitin Dikta lenti í skondnu atviki á tónlistarhátíðinni Euro­sonic í Hollandi á dögunum. Þá var hún kynnt upp á svið sem hljómsveitin Dikita frá Írlandi.

Svíþjóð kallar á Jóhönnu

Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir og kærastinn hennar, gítar­leikarinn Davíð Sigurgeirsson, hafa sett stefnuna á að flytja til Svíþjóðar í sumar.

Deep Jimi númer 60 þúsund

Rokksveitin Deep Jimi and the Zep Creams varð þess heiðurs aðnjótandi að eiga sextíu þúsundasta lagið sem var skráð hjá STEFi, Sambandi tónskálda og textahöfunda, en það er lagið Nothing Can Go Wrong. Af því tilefni var rokkurunum boðið í heimsókn í húsakynni STEFs í gær þar sem móttökuathöfn var haldin.

Listaverk með lækningarmátt

Þú munt hlæja, þú munt gráta, og á köflum muntu kúgast. 127 Hours er allra besta mynd síðasta árs.

Niðurtalning í Óskarinn hafin

Óskarsverðlaunin verða haldin um næstu mánaðarmót og undirbúningurinn í Hollywood nálgast yfirsnúning. Entertainment Tonight missir ekki af fjörinu.

Tímamót í Kronkron

Það eru mikil tímamót í versluninni Kronkron við Vitastíg þessa dagana. Í síðustu viku kom nýjasta stolt fyrirtækisins, fyrsta fatalína Kron by Kronkron, til landsins og fór í sölu, viðskiptavinum til mikillar ánægju.

Stanslaust stuð í miðbænum

Það var mikið fjör í miðbæ Reykjavíkur um síðustu helgi. Djammljósmyndarinn Sveinbi fór á stúfana og myndaði það helsta sem fyrir bar.

Natalie Portman á von á strák

Natalie Portman sem gengur með sitt fyrsta barn undir belti hefur sagt vinum að hún eigi von á strák. Hún og unnusti hennar, Benjamin Millepied, eru spennt að eignast frumburðinn en þau kynntust við gerð myndarinnar The Black Swan.

Seinfeldstjarna látin

Len Lesser, betur þekktur sem Leó frændi eða Uncle Leo, úr sjónvarpsþáttunum Seinfeld lést í morgun úr lungabólgu 88 ára að aldri.

Sigurvegarar í Facebook-leik Vísis

Vísir og Sambíóin stóðu í vikunni fyrir laufléttum Facebook-spurningaleik þar sem verðlaunin voru miðar fyrir tvo á forsýningu á spennumyndinni I am Number Four.

Kourtney Kardashian trúlofuð?

Orðrómur er um að raunveruleikastjarnan Kourtney Kardashian og kærasti hennar Scott Disick séu búin að trúlofa sig. Hermt er að hann hafi beðið hennar þegar lokaþátturinn í Kourtney & Kim Take New York var tekinn upp á dögunum.

Stærstu tónleikar Agent Fresco

„Þetta verða stærstu tónleikarnir sem við höfum haldið,“ segir Arnór Dan Arnarson, söngvari Agent Fresco.

Mikið fjör á fjölskyldudegi 365

Fjölskyldudagur 365 var haldinn með pompi og prakt síðastliðinn þriðjudag, 15. febrúar. Skemmtileg dagskrá var þá fyrir börn starfsmanna fyrirtækisins.

Djúpur bassi og falleg rödd

Það kom mörgum á óvart þegar Esperanza Spalding hreppti Grammy-verðlaunin sem nýliði ársins. Hún hefur á ferli sínum gefið út þrjár plötur og sungið fyrir forseta Bandaríkjanna.

Fyrsta platan í fimmtán ár

Grunge-rokkararnir í Soundgarden eru að hefja upptökur á sinni fyrstu plötu í fimmtán ár. Í tilkynningu á heimasíðu sveitarinnar kemur fram að þeir félagar hafi samið flott lög fyrir plötuna, sem fylgir í kjölfar Down on the Upside sem kom út 1996.

Íslensk tónlist og hasarmynd

Íslenskri tónlist bregður fyrir í tveimur kvikmyndum sem frumsýndar verða um helgina. Annars vegar semur Atli Örvarsson alla tónlistina við The Eagle og hins vegar eiga piltarnir í Sigur Rós lokalagið í 127 Hours eftir Danny Boyle. The Eagle fjallar um baráttu rómverska hershöfðingjans Marcus Aquila við vígalega villimenn á Englandi en hann er þar staddur til að rannsaka dularfullt hvarf 9. herdeildar Rómarkeisara. Leikstjóri myndarinnar er Kevin Macdonald en með helstu hlutverk fara þeir Channing Tatum, Jamie Bell og Donald Sutherland.

Prinspóló spilar Jukk

Hljómsveitin Prinspóló heldur útgáfutónleika á Faktorý í kvöld. Á tónleikunum verður plata sveitarinnar, Jukk, flutt í heild sinni auk þess sem nokkur lög af EP-plötunni Einn heima eru á efnisskránni.

Baltasar og Ingvar í sérflokki

Ingvar E. Sigurðsson er sigur­sælasti leikarinn á Edduverðlaunahátíðinni en hann hefur fengið fimm Eddur fyrir leik sinn í íslenskum kvikmyndum eða stuttmyndum. Kristbjörg Kjeld hefur oftast hlotið Edduna af íslenskum leikkonum.

Bylgjubann Jóhanns G. er ólöglegt

Tónlistarmaðurinn Jóhann G. Jóhannsson hefur engar lagalegar heimildir fyrir því að banna lögin sín á Bylgunni að mati STEFs, Sambands tónskálda og textahöfunda.

Bræðurnir kunna þetta

Aðdáendur Coen-bræðra fá heilmikið fyrir sinn snúð. Andi Fargo og Blood Simple svífur yfir vötnum. Lebowski-sprellið bíður betri tíma.

Jessica Alba ófrísk

Jessica Alba á von á sínu öðru barni á árinu en leikkonan tilkynnti í dag að hún og eiginmaður hennar ættu von á sínu öðru barn en fyrir eiga þau dótturina Honor.

Paris Hilton að verða þrítug og fríkar út í tilefni þess

Paris Hilton fagnar stórmerkum áfanga á morgun þegar partýljónið verður þrítugt. Eins og lög gera ráð fyrir hélt hún partý, enda oft gert slíkt af minna tilefni. Teitið var haldið í gær og bauð hún um 300 af sínum nánustu vinum til veislu einhversstaðar í Hollywood. Hún mun hafa eytt mörgum tímum í að gera sig klára fyrir herlegheitin en sá sér þó fært að tilkynna aðdáendum sínum í gegnum Twitter að hana hlakkaði rosalega til.

Celine Dion syngur á Óskarnum

Söngfuglinn Celine Dion ætlar að troða upp á næstu Óskarsverðlaunahátíð undir lok mánaðarins. Dion, sem er 42 ára gömul, eignaðist tvíbura í October og hefur lítið komið fram síðan þá. Hún hlakkar því til að koma fram á Óskarnum og ætlar að syngja Smile eftir Charlie Chaplin. Þetta verður reyndar í sjötta sinn sem Celine kemur fram á Óskarnum, síðast fyrir fimm árum þegar hún söng "I knew I loved you" til heiðurs snillingnum Ennio Morricone.

Stimpluð vegna aldurs

Jennifer Aniston er undrandi á því hversu mikið fólk veltir sér upp úr aldri hennar. Leikkonan hélt upp á 42 ára afmælið sitt á veitingastað í New York í síðustu viku ásamt leikurunum Adam Sandler og Hugh Jackman.

Penn og Jean verða vinir

Bandaríski leikarinn Sean Penn og tónlistarmaðurinn Wyclef Jean hafa ákveðið að grafa stríðsöxina og snúa bökum saman til að hjálpa íbúum Haítí. Penn og Jean sinnaðist illilega í fjölmiðlum þegar leikarinn gagnrýndi rapparann harðlega fyrir forsetaframboð sitt á Haítí en íbúar eyjunnar búa við mikinn skort á mat og öðrum nauðsynjavörum eftir að jarðskjálfti lagði landið nánast í rúst í fyrra. Jean svaraði þessum ásökunum og sagði Penn ekkert annað en gamlan dóphaus en bandaríski leikarinn hefur eytt öllum sínum frítíma á Haítí við hjálparstörf.

Mikil vinna framundan - gerðu samning við Liberty

Verslunin Liberties í London hefur gert samning við hönnunarmerkið KALDA um sölu á nýrri línu þeirra. Liberty verslunin var stofnuð árið 1875 og var valin besta verslunin í London árið 2010 af Time Out Magazine.

Johnny Depp: Dóttur minni finnst ég furðulegur

Johnny Depp segir að börnum sínum finnist hegðun hans á hvíta tjaldinu oft vera skrítin. Leikarinn á tvö börn Lilly-Rose ellefu ára og Jack átta ára með frönsku söngkonunni Vanessu Paradis. Depp segist aldrei horfa á myndirnar sem hann leikur í en að hann hvetji börnin sín til að gera það og þannig geti hann metið frammistöðu sína.

Harry verður svaramaður Vilhjálms

Vilhjálmur Bretaprins hefur beðið litla bróður sinn Harry um að verða svaramaður í hinu konunglega brúðkaupi sem stendur fyrir dyrum þegar hann kvænist Kate Middleton.

Alec Baldwin fær stjörnu á stéttina

Alec Baldwin, stjarnan úr 30 Rock, hefur fengið stjörnu með nafni sínu á gangstéttina í Hollywood en það er ein eftirsóttasta vegtylla sem stjörnurnar í Hollywood geta fengið. Baldwin er númer 2,433 í röðinni en hann hefur í gegnum tíðina unnið til fjölmargra verðlauna, ekki síst upp á síðkastið þegar ferillinn tók stökk uppávið með 30 Rock.

Pabbi Miley Cyrus óttast um stelpuna sína

Pabbi Miley Cyrus, köntríkempan Billy Ray Cyrus, segir að sjónvarpsþátturinn Hannah Montana, sem feðginin léku bæði í, hafi rústað fjölskyldunni. Hann segist óska að dóttirin hefði aldrei komið fram í þáttunum.

Lady Antebellum sigursæl

Kántríhljómsveitin Lady Antebellum kom, sá og sigraði á 53. Grammy-verðlauna­hátíðinni í Los Angeles.

Óvænt plata frá Radiohead

Ólíkindatólin í hljómsveitinni Radiohead tilkynntu í gær að ný plata, The King of Limbs, væri væntanleg á laugardaginn. Hljómsveitin gefur plötuna út sjálf og verður hún aðgengileg á vefsíðunni Thekingoflimbs.com. Hægt verður að hala plötunni niður gegn gjaldi á laugardaginn, en hún kemur svo út á geisladiski og vínyl 9. maí.

Þættir Stöðvar 2 fáanlegir á Filma.is

Afþreyingarvefurinn Filma.is og 365 miðlar hafa gert með sér samstarfssamning um að Filma.is selji eða leigi aðgang á netinu á efni í eigu 365 miðla sem hefur verið sýnt á Stöð 2. Meðal vinsælla þáttaraða Stöðvar 2 sem þegar eru fáanlegar á Filma.is eru Vaktaseríurnar þrjár, gamanþáttaröðin Ástríður, Wipeout, Réttur og Steindinn okkar.

Mynd um Milli Vanilli í bígerð

Þýski kvikmyndagerðarmaðurinn Florian Gallenburg hefur í hyggju að gera kvikmynd um popp­dúettinn Milli Vanilli. Þeir sem voru uppá sitt besta á hinum illræmda níunda áratug muna eflaust eftir hinum félögunum í Milli Vanilli sem sópuðu til sín verðlaunum og viðurkenningum á þeim tíma, hlutu meðal annars Grammy-verðlaun.

Anita og uppvakningarnir

Tvær nýjar stiklur úr kvikmyndum sem skarta Anitu Briem í stórum hlutverkum eru komnar á netið. Þetta eru kvikmyndirnar Dylan Dog: Dead of Night og You Me & Circus.

Anita í söngleikjamynd

Tvær nýjar stiklur úr kvikmyndum sem skarta Anitu Briem í stórum hlutverkum eru komnar á netið. Þetta eru kvikmyndirnar Dylan Dog: Dead of Night og You Me & Circus.

Kjallarinn orðinn kósí

„Ég tók kjallarann hjá mér í gegn," segir Guðlaug Ágústa Halldórsdóttir, þegar Fréttablaðið forvitnast um nýjustu framkvæmdirnar á heimilinu.

Sjá næstu 50 fréttir