Fleiri fréttir

Bowie í hjartaaðgerð

David Bowie gekkst undir hjartaaðgerð að loknum tónleikum í Þýskalandi í síðustu viku og er nú að ná sér í New York, að sögn talsmanns Bowies. Upphaflega klemmdi söngvarinn taug í öxl, en þegar hann var rannsakaður á sjúkrahúsi kom í ljós að slagæð í hjarta var stífluð, og því gekkst hann þegar í stað undir aðgerð. Hann hefur afboðað tónleikaferðalag sitt þar sem hann þarf að ná kröftum á ný.

Bush er hárprúðastur

Ótrúlegustu atriði geta skipt máli þegar forsetakosningar í Bandaríkjunum er annars vegar. Ný könnun hárvarningsframleiðanda leiðir til að mynda í ljós, að meirihluti Bandaríkjamanna er á því, að Bush forseti sé með bestu hárgreiðsluna af þeim sem eru í framboði.

Söngleikur með sterkan boðskap

"Þetta er búin að vera rosamikil keyrsla," segir Unnur Ösp Stefánsdóttir, leikkona í söngleiknum Hárið sem frumsýndur verður í Austurbæ í kvöld.

Með annað fólk á bakinu

Jón Gnarr er að leggja lokahönd á sína fyrstu stuttmynd en styrkur frá Kvikmyndasjóði gerði Jóni kleift að takast á við verkefnið.

Grafarþögn í ellefta sæti

Arnaldur Indriðason er að gera það gott í Svíþjóð en þarlendir gagnrýnendur halda vart vatni af hrifningu yfir Grafarþögn sem komin er í 11. sæti sænska metsölulistans.

Flutti suður í sjónvarpið

"Þetta er algjör unglingaþáttur," segir Anna Katrín Guðbrandsdóttir, en í dag fer fyrsti sjónvarpsþátturinn hennar í loftið á Popptíví. "Ég sé um þáttinn ásamt Heiðari Austmann sem er algjör snilldargaur. Við ætlum að stíla inn á framhaldsskólaaldurinn, félagslífið og hvað krakkarnir eru að gera og hugsa."

Úr propsi í pólitík

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir var 17 ára þegar söngleikurinn Hárið var frumsýndur hér á landi. Það var árið 1971 þegar Hárið var sett upp í Glaumbæ í leikstjórn Brynju Benediktsdóttur. En það sem fáir vita um af ferli stjórnmálakonunnar Ingibjargar Sólrúnar er að í Hárinu 1971 sá hún um propsið í sýningunni.

Tómas Lemarquis í franskri bíómynd

Tómas Lemarquis sem fór eftirminnilega með hlutverk Nóa albinóa í samnefndri kvikmynd er nú staddur í Frakklandi við tökur á nýrri franskri bíómynd.

Gægist oft út um gluggan

"Við eldhúsgluggann er tvímælalaust uppáhaldsstaðurinn minn á heimilinu," segir Ingibjörg Þórisdóttir, framkvæmdastjóri Hafnarfjarðarleikhússins og horfir dreymin út um gluggann.

Ferlega nýmóðins staður!

Kokkurinn knái og bumbulausi sem er stúdentum góðkunnur úr veitingasal Þjóðarbókhlöðunnar, hefur þanið vængi sína og blásið lífi í gamla Top Shop húsið með opnun á nýjum sushi og smáréttabar.

Stílhreinir Aurum skartgripir

Í Bankastrætinu er verslunin Aurum, stílhrein íslensk skartgripaverslun sem er í eigu tveggja kjarnakvenna.

Lestur hættulegur sjóninni

Helsta ástæðan fyrir aukinni nærsýni meðal Asíubúa er sú að lífsstíll þeirra hefur tekið miklum breytingum. Nú er svo komið að þar sem ástandið er verst, í Singapúr, eru fjórir af hverjum fimm átján ára piltum sem gegna herþjónustu nærsýnir. Fyrir þrjátíu árum var einungis fjórði hver nýliði nærsýnn.

Jennifer Lopez kann ekki að leika

Kvikmyndarisinn Miramax hefur ákveðið að Jennifer Lopez fái ekki fleiri hlutverk í þeirra myndum. Sýningu nýjustu myndar hennar Shall We Dance hefur verið frestað um ókominn tíma eftir að hafa fengið ömurlega dóma prufu áhorfenda. Þetta er enn ein kvikmyndin sem kolfellur hjá J-Lo.

Fiskur sem ég get treyst

Hallveig Thorlacius borðar mikinn fisk og þegar hún fer til útlanda er það fiskurinn og sundlaugarnar sem hún saknar mest.

Álagningaseðlar aðgengilegir

Álagningarseðlar þeirra sem töldu fram á netinu verða aðgengilegir á þjónustusíðunni rsk.is með kennitölu og veflykli og verður vefurinn opnaður þann 28. júlí.

Latóhagkerfið opnað

Latóhagkerfið var formlega opnað í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum rétt fyrir síðustu helgi.

Vísitalan helst óbreytt

Greiningardeild KB banka hefur spáð því að vísitala neysluverðs muni haldast óbreytt í júlí.

Beðið eftir Hárinu

Mikil eftirvænting virðist vera að skapast fyrir rokksöngleikinn Hárið sem frumsýndur verður í Austurbæ á föstudaginn. Sannkölluð rokktónleikastemning ku svífa yfir þessari uppsetningu Rúnars Freys Gíslasonar.

Auðvelt að spara

Ingólfur Hrafnkell Ingólfsson félagsfræðingur og leiðbeinandi á námskeiðum fjármála, skrifar hugleiðingar um sparnað.

Með næst hæstu ávöxtun í Evrópu

Einn af verðbréfasjóðum KB banka, Icelandic Equity-sjóðurinn, hefur gengið næstbest af hlutabréfasjóðum Evrópu, með 18,6 prósenta ávöxtun á öðrum fjórðungi þessa árs.

Arftaki Kournikovu er moldrík

Tennisdrottningin Maria Sharapova mun þéna hátt á þriðja milljarð króna áður en árið er liðið, eftir að hún tryggði sér sigur á Wimbledon-mótinu um liðna helgi. Og sú upphæð gæti vel fimmfaldast á næstu árum að sögn kunnugra í tennisheiminum. 

Jason var ekki rétti maðurinn

Ég settist niður með gítarleikaranum Kirk Hammett fyrir tónleikana og átti við hann gott spjall. Kirk var hinn hressasti, heilsaði mér með handabandi, sagðist hafa farið í ræktina um morguninn og var vel upplagður.

Má reyna að prútta

Útsala stendur yfir hjá versluninni Svefn og heilsa í Listhúsinu í Laugardal og Dalsbraut á Akureyri allt fram til 15. þessa mánaðar.

Þungarokk í belgískri sveit

Fannar Örn Karlsson er nítján ára og liðsmaður í Götuhernaðinum. Hann fór á tónleika og rankaði svo við sér matar- og húsnæðislaus í belgískri sveit.

Útsölur á sumarfatnaði

Sumarfatnaður sem kom til landsins í vor er nú víða kominn á útsölur þótt enn lifi vonandi mikið eftir af íslenska sumrinu.

Flísar á afslætti

Allar flísar í versluninni Milano-line á Dvergshöfða í Reykjavík eru nú seldar með 25-40% afslætti.

Handlaugar á tilboði

Handlaugar, sturtuhausar og kranar eru meðal þeirra vara sem nú bjóðast á tilboði hjá versluninni Harðviðarvali á Krókhálsi 4 í Reykjavík.

Fáir nota stæði í bílahúsum

Rúm 70 prósent ökumanna nota sjaldan eða aldrei bílahús í miðbæ Reykjavíkur og hækkar þetta hlutfall í 90 prósent þegar um fullorðið fólk er að ræða. Þetta eru niðurstöður könnunar sem gerð var um notkun bílahúsanna af hálfu nokkurra nemenda í endurmenntunardeild Háskóla Íslands. Könnunin var gerð í desember síðastliðnum.

Yngsti Douglasinn deyr

Eric Douglas, yngsti sonur leikarans Kirk Douglas og hálfbróðir stórstjörnunnar Michael Douglas, er látinn 46 ára að aldri.

Brando brenndur

Jarðneskar leifar Marlons Brando voru brenndar í kyrrþey á mánudaginn að sögn lögfræðings leikarans látna.

Goðið skrifaði á gítarinn

Adam Bauer, ungur Metallica-unnandi, fékk einstakt tækifæri til að hitta goðin sín fyri rtónleikana í Egilshöll. Hann greip með sér gítar sem hann fékk áritaðan.

Blindur markvörður

Götuhernaðurinn vinnur hörðum höndum þessa dagana að því að vekja athygli á málefnum hreyfihamlaðra og fatlaðra og ætlar að mæta stjörnuliði KSÍ í fótbolta á miðvikudaginn.

Kókaín en ekki anorexía

Táningsstirnið og tvíburasystirnin Mary-Kate Olsen er brjáluð út í tvö tímarit. Ástæðan er frétt þess efnis að meðferðin sem Mary-Kate gekkst undir á dögunum hafi ekki verið vegna anorexísu heldur mikillar kókaínneyslu.

Spænsk blíða í Hveragerði

 "Við hófum tökur í síðustu viku hér á landi," segir Kristín Atladóttir, framkvæmdastjóri kvikmyndar sem Stuðmenn vinna að um þessar mundir.

Harlem Sophisticate í haust

Seth Sharp setur upp söngleikinn Harlem Sophisticate hér á landi í haust ásamt hæfileikaríkum listamönnum frá Bandaríkjunum og Íslandi. Hann leitar enn að íslenskri leikkonu í hópinn.

Justin var aðeins æfing

Britney  Spears er sama um hvað öðrum finnst um ákvörðun hennar að giftast Kevin Federline eftir aðeins þriggja mánaða samband.

Næsland á Karlovy Vary

Kvikmyndahátíðin Karlovy Vary í Tékklandi stendur nú yfir. Meðal þeirra 15 mynda sem keppa til verðlauna er kvikmyndin Næsland í leikstjórn Friðriks Þórs Friðrikssonar. Í gærmorgun var blaðamannafundur með aðstandendum myndarinnar þar sem Friðrik Þór  ásamt Gary Lewis, aðalleikara myndarinnar, sátu fyrir svörum.

Sjá næstu 50 fréttir