Með annað fólk á bakinu 9. júlí 2004 00:01 "
Ég er að gera stuttmynd eftir sjálfan mig sem heitir Með mann á bakinu," segir útvarpsmaðurinn og grínistinn Jón Gnarr, en í þessari mynd skrifar Jón handritið, leikstýrir myndinni og leikur jafnframt aðalhlutverkið. "Myndin er tileinkuð öllum sem hafa þuft að bera fólk á bakinu á sér á einn eða annan hátt," segir Jón og útskýrir: "Þetta er mjög skrýtið fyrirbæri í náttúrunni. Ef maður er góð manneskja sem langar til að hjálpa fólki og vera almennilegur þá er einhvern veginn eins og fólk skríði upp á bakið á manni og festist bara þar," segir Jón, sem hefur rannsakað viðfangsefnið. "Ég las til dæmis grein í blaðinu Lifandi vísindi í fyrra um sníkjudýr og í hegðun þeirra sá ég margt sem svipar til hegðunarmunsturs manna. Ég hef komist að því að í samskiptum fólks er það æði oft þannig að einn aðili heldur alltaf á hinum og fær engar þakkir fyrir það, frekar skammir ef eitthvað er." Tökum er nú lokið á myndinni Með mann á bakinu og eftirvinnsla stendur yfir. "Mér líst mjög vel á efnið sem við erum með í höndunum enda eru allir sem koma að myndinni búnir að standa sig mjög vel," segir Jón. "Við tókum myndina upp á Seyðisfirði en Jóhann G. Jóhannsson og Valdimar Örn Flygering leika báðir í myndinni og gera það frábærlega en Bergsteinn Björgúlfsson annast kvikmyndatöku," segir Jón, sem langar til að færa sig meira út í það að skrifa og leikstýra. "Ég hef verið að dunda mér við þetta og leikstýrði meðal annars frumsömdu útvarpsleikriti í Ríkisútvarpinu í vetur sem fjallaði um þrjá gamla menn á elliheimili. Svo skrifaði ég líka söngleik fyrir Verslunarskóla Íslands og það var einkar skemmtilegt." Með mann á bakinu er 20 mínútna löng en Jón hefur ekki ákveðið hvar myndin verður tekin til sýningar. "Ég fékk styrk úr Kvikmyndasjóði til að gera myndina og það gerði mér þetta mögulegt. Ætli ég reyni síðan ekki að selja hana í bíó eða sjónvarp en annars veit ég satt best að segja ekkert hvernig svona lagað gengur fyrir sig."
Menning Mest lesið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Fleiri fréttir Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Sjá meira