Arftaki Kournikovu er moldrík 7. júlí 2004 00:01
Tennisdrottningin Maria Sharapova mun þéna hátt á þriðja milljarð króna áður en árið er liðið, eftir að hún tryggði sér sigur á Wimbledon-mótinu um liðna helgi. Og sú upphæð gæti vel fimmfaldast á næstu árum að sögn kunnugra í tennisheiminum. Maria Sharapova er ekki nema 17 ára og var fyrir helgina best þekkt fyrir fegurð sína og öskrin á tennisvellinum. Hún hristi aftur á móti heldur betur upp í tennisheiminum þegar hún sigraði fyrrum meistarann Serenu Williams á Wimbledon. Sigurinn mun gera Sharapovu að einu af stærstu nöfnunum í íþróttaheiminum og jafnframt eina af hæst launuðu konunum þar. Farsímar, tískuföt, snyrtivörur og drykkjarvörur eru á meðal þess sem stórfyrirtæki bíða eftir að hún taki að sér að auglýsa. "Hún er búin að meika það. Hún þarf ekki að hafa áhyggjur af neinu í framtíðinni," segir umboðsmaður hennar. "Við munum sjá mikið mun meira af Mariu héðan í frá." "Hún er falleg, hressileg og skemmtileg stelpa og öllum mun líka vel við hana. Hún er orðinn milljónamæringur á einni nóttu og tekjur hennar munu margfaldast á næstunni. Það eru góðar líkur á því að hún verði hæst launaða konan í sögu tennisins," sagði Max Clifford, einn af þekktustu umboðsmönnunum í bransanum. "Hún kemur sem ferskur andvari inn í tennisinn." Margir hafa líkt henni við Önnu Kournikovu sem þótti efnilegasta tenniskona heims á sínum tíma. Kournikova vakti, rétt eins og Sharapova, einnig athygli fyrir fegurð sína og svo fór á endanum að hún sneri sér alfarið að fyrirsætustörfum. Munurinn á þeim tveimur er sá að Kournikovu tókst aldrei að sigra á stórmóti en það hefur Sharapova þegar gert. Það má því ljóst vera að Sharapova á eftir að gleðja augu karlpeningsins á tennisvellinum um mörg ókomin ár. Forvitnilegast verður hins vegar að fylgjast með karlamálunum sem verða augljóslega í sviðsljósinu eftir því sem frægð hennar og frami eykst.
Menning Mest lesið Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Lífið Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Lífið Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Lífið Eiginmennirnir fá „ahhsonna aðeins“ útreið Menning Alaska og Flóni hætt saman Lífið Anne Carson hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels Menning Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Lífið Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Fleiri fréttir Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Sjá meira