Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stenson algjörlega búinn á því “Ég er of þreyttur til að geta fagnað,” sagði hinn sænski Henrik Stenson, nýkrýndur heimsmeistari í holukeppni, eftir að hafa lagt Ástralann Geoff Ogilvy af velli í úrslitum í gær. Stenson spilaði 120 holur á fimm dögum í Arizona og segir sá sænski að mótið hafi verið hans mesta þolraun til þessa á ferlinum. 26.2.2007 16:30
Stenson hafði betur gegn Ogilvy Svíinn Henrik Stenson sigraði á heimsmeistaramótinu í holukeppni sem lauk í Arizona í Bandaríkjunum í gær. Stenson hafði betur gegn Geoff Ogilvy frá Ástralíu í úrslitum, en hann átti titil að verja frá því í fyrra. Stenson fær 100 milljónir króna fyrir sigurinn. 26.2.2007 08:46
Stenson og Ogilvy mætast í úrslitum Það verða Svíinn Henrik Stenson og Ástralinn Geoff Ogilvy sem mætast úrslitum heimsmeistaramótsins í holukeppni sem fram fer í Arizona í Bandaríkjunum. Stenson vann sannfærandi sigur á Trevor Immelmann frá Suður-Afríku í undanúrslitum en Ogilvy, sem á titil að verja á mótinu, bar sigurorð af Bandaríkjamanninnum Chad Campbell. 25.2.2007 12:00
Birgir Leifur í 60. sæti Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson hafnaði í í 59.-60. sæti á á Opna Indónesíska mótinu á Evrópumótaröðinni í golfi í morgun. Birgir byrjaði vel í morgun og var á tímabili á þremur höggum undir pari. 18.2.2007 15:03
Birgir náði sér ekki á strik Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lék sinn slakasta hring á Opna Indónesíumótinu í Jakarta í morgun. Hann fékk fjóra skolla á hringnum og einn fugl og kom inn á 74 höggum, eða 3 höggum yfir pari. 17.2.2007 13:26
Birgir Leifur komst áfram í Indónesíu Birgir Leifur Hafþórsson er í 42.-58. sæti á opna indónesíska meistaramótinu í golfi þegar aðeins nokkrir kylfingar eiga eftir að ljúka keppni. Má telja nánast öruggt að Birgir Leifur komist í gegnum niðurskurð mótsins, sem er hluti af Evrópumótaröðinni. Birgir Leifur lék á einu höggi yfir pari í dag. 16.2.2007 17:52
Birgir Leifur á pari Birgir Leifur Hafþórsson lék í nótt fyrsta hringinn á Indenesíumótinu á pari vallar eða 72 höggum. Birgir náði sér ekki á strik á fyrstu níu holunum, en lék síðari níu á tveimur undir pari. 15.2.2007 15:00
Birgir Leifur hefur leik í kvöld Birgir Leifur Hafþórsson á teig klukkan 23:30 að íslenskum tíma í kvöld á Opna Indónesíumótinu. Hann er kominn með bloggsíðu og var rétt í þessu að skrifa blogg dagsins og segir meðal annars frá því að verið er að búa til þátt um hann á Europeantour weekly. 14.2.2007 17:19
Birgir Leifur: Besta Sushi sem ég hef smakkað Atvinnukylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson er nú kominn til Indónesíu þar sem hann mun taka þátt í sínu fyrsta móti á árinu á Evrópumótaröðinni. Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beina útsendingu frá lokadegi mótsins á sunnudagsmorguninn. 13.2.2007 19:06
Mickelson og Sutherland efstir fyrir lokadaginn Phil Mickelson og Kevin Sutherland frá Bandaríkjunum hafa forystu fyrir lokadaginn á PGA-mótinu sem fram fer í Pebble Beach um helgina. Þeir félagar hafa leikið á 14 höggum undir pari en Jim Furyk, sem hafði forystu ásamt Mickelson í gær, átti skelfilegan dag í gær og er nú sex höggum á eftir efstu mönnum. 11.2.2007 17:15
Furyk og Mickelson með forystu Bandarísku kylfingarnir Jim Furyk og Phil Mickelson hafa leikið á 12 höggum undir pari og hafa þriggja högga forskot á aðra keppendur þegar tveimur keppnisdögum er lokið á Pebble Beach mótinu sem fram fer í Bandaríkjunum. 10.2.2007 13:15
Stenson inn á topp 10 Sænski kylfingurinn Henrik Stenson náði þeim árangri í fyrsta sinn á ferlinum í dag að komast inn á lista tíu bestu spilara heims. Þessi tíðindi koma á hæla sigurs hans á Dubai Desert Classic mótinu sem fram fór um helgina. 5.2.2007 19:30
Stenson sigraði í Dubai Svíinn Henrik Stenson sigraði á Dubai Desert Classic mótinu í golfi sem lauk í dag. Stenson spilaði lokahringinn á fjórum undir pari, 68 höggum, og varð einu höggi á undan Ernie Els og tveimur á undan Tiger Woods sem átti titil að verja á mótinu. 4.2.2007 14:38
Els í forystu að loknum þriðja degi Nú er þriðja hringnum á Dubai Classic mótinu í golfi lokið og Suður-Afríkumaurinn Ernie Els hefur þar tveggja högga forystu og er á 17 höggum undir pari. Þeir Jyoti Randhawa, Henrik Stenson og Ross Fisher eru í öðru sæti á 15 undir og Tiger Woods er þar skammt á eftir. Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beina útsendingu frá lokahringnum í fyrramálið klukkan 9:00. 3.2.2007 14:15
Ernie Els með forystu Nú stendur yfir í beinni útsendingu á Sýn keppni á Dubai Classic mótinu , en Ross Fisher hafði forystu að loknum öðrum hring í gær á fjórtán höggum undir pari , en þrumveður setti strik í reikinginn hjá mörgum kylfingum. 3.2.2007 12:24
Fisher í forystu á Dubai mótinu Breski kylfingurinn Ross Fisher hefur tveggja högga forystu á Earnie Els þegar tveimur hringjum er nú að verða lokið á Dubai Desert Classic mótinu í golfi. Fisher lék annan hringinn í röð á 65 höggum í dag og er samtals á 14 undir pari. Els á eftir að ljúka tveimur holum á öðrum hringnum, en gat ekki klárað vegna veðurs. Tiger Woods er á 9 höggum undir pari en Sýn verður með beinar útsendingar frá þessu sterka móti um helgina. 2.2.2007 16:52