Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Phoenix skellti Dallas í stórkostlegu einvígi Leikur Dallas Mavericks og Phoenix Suns í NBA deildinni í nótt var réttilega auglýstur sem einvígi tveggja bestu liðanna í deildinni. Leikurinn var stórkostleg skemmtun og réðust úrslitin ekki fyrr en um leið og lokaflautið gall í annari framlengingu. Phoenix hafði betur 129-127 og batt þar með enda á 23 leikja sigurgöngu Dallas á heimavelli. 15.3.2007 05:14
Cleveland vann sjöunda leikinn í röð Tíu leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt. Cleveland vann sjöunda leik sinn í röð þegar liðið skellti Memphis á útivelli og þá tapaði Indiana 11. leiknum í röð. 15.3.2007 04:43
Snæfell yfir eftir þriðja leikhluta Snæfellingar hafa yfir 61-47 gegn Keflavík eftir þrjá leikhluta í viðureign liðanna í Stykkishólmi. Gunnar Einarsson fékk sína fimmtu villu í liði Keflavíkur í þriðja leikhluta og kemur því ekki meira við sögu. Í vesturbænum hefur ÍR yfir 40-39 í hálfleik gegn KR. 15.3.2007 20:36
Snæfell leiðir í hálfleik Snæfell hefur yfir í hálfleik 43-36 gegn Keflavík í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppninni í Iceland Express deildinni. Justin Shouse er kominn með 11 stig hjá Snæfelli og Hlynur Bæringsson 10. Hjá Keflavík er Sebastian Hermeiner kominn með 10 stig og Tony Harris 10. Nokkur hiti er í leiknum og eru þrír leikmenn í liði Keflavíkur komnir í villuvandræði. 15.3.2007 20:03
Snæfell yfir eftir fyrsta leikhluta Úrslitakeppnin í Iceland Express deildinni er hafin. Snæfell hefur yfir 19-17 gegn Keflvíkingum efir fyrsta leikhlutann í leik liðanna í Stykkishólmi. Leikur KR og ÍR er að hefjast í beinni á Sýn. 15.3.2007 19:56
KR - ÍR í beinni á Sýn klukkan 20 Nú styttist í að úrslitakeppni Iceland Express deildarinnar í karlaflokki fari af stað. Flautað verður til leiks hjá Snæfelli og Keflavík nú klukkan 19:15 og klukkan 20 taka KR-ingar á móti ÍR í DHL-Höllinni. Sá leikur verður sýndur beint á Sýn fyrir þá sem ekki hafa tök á því að mæta á völlinn. 15.3.2007 18:55
Hamar hélt sæti sínu í deildinni Kvennalið Hamars í körfubolta heldur sæti sínu í Iceland Express deildinni í körfubolta eftir frækinn útisigur á Breiðablik í Smáranum í kvöld 85-57. Þetta var leikur upp á líf og dauða fyrir bæði lið í lokaumferðinni. Liðin urðu jöfn að stigum í neðsta sæti deildarinnar, en Hamarsliðið heldur sæti sínu á betri árangri í innbyrðisviðureignum liðanna. 14.3.2007 21:37
Milwaukee rekur þjálfarann Terry Stotts var í kvöld rekinn úr starfi sínu sem þjálfari NBA liðsins Milwaukee Bucks. Liðinu hefur gengið afleitlega í vetur og er það í neðsta sæti miðdeildarinnar með 23 sigra og 41 tap. Ekki hefur verið tilkynnt hver tekur við starfinu út leiktíðina. 14.3.2007 20:41
Memphis - Cleveland í beinni í kvöld Leikur Memphis Grizzlies og Cleveland Cavaliers verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu í kvöld. Cleveland stefnir að því að vinna sjöunda leikinn í röð í vetur, en svo gæti farið að það þyrfti að vera án LeBron James annan leikinn í röð vegna bakmeiðsla kappans. Leikurinn hefst klukkan 12 á miðnætti. 14.3.2007 18:31
Ég hata ekki homma í alvörunni Fyrrum körfuboltamaðurinn Tim Hardaway vill ólmur laga ímynd sína eftir að hann sagðist hata homma í útvarpsviðtali í síðasta mánuði. Ummæli Hardaway rötuðu á síður allra helstu fjölmiðla heimsins og í kjölfarið hefur hann átt erfitt uppdráttar á opinberum vettvangi. 14.3.2007 18:09
Valur Ingimundarson: Við viljum fá pressuna á okkur Úrslitakeppnin í Iceland Express deildinni í körfubolta hefst með látum annað kvöld. Þar mætast meðal annars Skallagrímur og Grindavík í fyrstu umferðinni líkt og á síðustu leiktíð. Valur Ingimundarsson, þjálfari Skallagríms, segir allt annað uppi á teningnum hjá liðinu í ár en í fyrra. 14.3.2007 16:04
Þrettán sigrar í röð hjá San Antonio San Antonio hefur tekið við af grönnum sínum í Dallas sem heitasta liðið í NBA deildinni, en í nótt vann liðið þrettánda leikinn í röð þegar það skellti LA Clippers 93-84 á heimavelli sínum. Þá vann Miami þrettánda heimaleik sinn í röð þegar það skellti Utah eftir að hafa verið 17 stigum undir í síðari hálfleik. 14.3.2007 03:45
Endurkoma Krists gæti ekki bjargað okkur Slæmt gengi LA Lakers í NBA deildinni undanfarið er farið að hafa áhrif á ótrúlegustu menn. Sjálfur Zen-Meistarinn Phil Jackson lét hafa eftir sér í LA Times í dag að liðið spilaði svo illa þessa dagana að sjálfur Kristur gæti ekki bjargað því. 13.3.2007 22:45
Nýr þjálfari hjá Bobcats í sumar Michael Jordan, yfirmaður körfuboltamála hjá Charlotte Bobcats í NBA deildinni, tilkynnti í dag að þjálfarinn Bernie Bickerstaff fengi nýtt hlutverk hjá félaginu í sumar. Bickersteff hefur stýrt liðinu í þrjú ár og á að baki 67 sigra og 161 tap, en hann mun væntanlega taka sér sæti á skrifstofunni í sumar. 13.3.2007 20:15
Isiah Thomas fékk nýjan samning hjá Knicks Isiah Thomas, forseti og þjálfari New York Knicks, skrifaði undir nýjan samning við félagið um helgina. Þessi tíðindi komu nokkuð á óvart í ljósi þess að eigandi félagsins hafði áður sagt að hann ætlaði að taka ákvörðun um framtíð Thomas eftir að keppnistímabilinu lyki. 13.3.2007 19:08
Golden State batt enda á sigurgöngu Dallas Sautján leikja sigurgöngu Dallas Mavericks í NBA deildinni lauk í nótt þegar liðið steinlá á útivelli fyrir Golden State Warriors 117-100. Sigurganga Dallas var sú sjöunda besta í sögu deildarinnar og var tapið aðeins það þriðja hjá liðinu á síðustu þremur mánuðum. 13.3.2007 13:28
Versta tap í sögu LA Lakers á heimavelli Ekkert lát er á sigurgöngu Dallas í NBA-deildinni í körfubolta og í nótt vann liðið yfirburðasigur á LA Lakers, 108-72, útivelli. Þetta var 17. sigur Dallas í röð og hefur liðið nú unnið 52 af 61 leik sínum í vetur. Þetta var jafnframt versta tap Lakers í sögu félagsins síðan það flutti frá Minneapolis til Los Angeles árið 1960. 12.3.2007 11:41
Ósigur eftir flautukörfu annan leikinn í röð Washington Wizards tapaði öðrum leiknum í röð á flautukörfu. Á laugardag skoraði Steve Francis sigurkörfu New York Knicks gegn Wizards og í gærkvöldi endurtók sagan sig þegar Udonis Haslem skoraði fyrir Miami í 106-104 sigri. Haslem skoraði þegar aðeins 0,3 sekúndur voru til leiksloka. Gilbertas Arenas var stigahæstur hjá Wizards með 33 stig en Gary Payton skoraði 17 fyrir Miami. Shaquille O´Neal skoraði 12 stig fyrir Miami. 12.3.2007 09:13
Yao Ming óstöðvandi Kínverski risinn Yao Ming skoraði 37 stig í gærkvöldi þegar Houston Rockets sigraði Orlando Magic 103-92. Ming er nýstaðinn upp úr erfiðum meiðslum og var aðeins að spila fjórða leik sinn eftir að hafa misst af 32 leikjum eftir að hafa fótbrotnað fyrr á leiktíðinni. Tracy McGrady var einnig atkvæðamikill í liði Houston, skoraði 19 stig og var með 10 stoðsendingar. Í síðustu 10 leikjum hefur Houston haft betur í rimmunni við Orlando í 9 þeirra. 12.3.2007 09:11
Ron Artest: Ég hef brugðist Fimm dögum eftir að hafa verið handtekinn vegna gruns um að hafa beitt eiginkonu sína ofbeldi hefur leikmaður Sacramento í NBA-deildinni, beðist afsökunar á framferði sínu. Artest segist hafa brugðist hlutverki sínu, sem eiginmaður, faðir og leikmaður Sacramento, og biður um fyrirgefningu. 11.3.2007 17:30
12. sigur San Antonio í röð San Antonio Spurs er á fljúgandi siglingu í NBA-deildinni um þessar mundir og í nótt vann liðið sinn 12. sigur í röð þegar það lagði New Jersey af velli á heimavelli, 93-77. Eins og svo oft áður var það liðsheildin sem skóp sigur San Antonio, en allir þeir 12 leikmenn sem voru á skýrslu liðsins náðu að skora stig í leiknum. 11.3.2007 10:17
Rasheed Wallace: Það þýðir ekkert að sekta mig Vandræðagemlingurinn Rasheed Wallace hjá Detroit Pistons hefur sent þau skilaboð til forráðamanna NBA-deildarinnar að það þýði ekkert að sekta sig eða setja sig í leikbann – hann muni ekki breyta leikstíl sínum. Wallace, sem er þekktur fyrir sorakjaft í leikjum Detroit, segist eiga nóg af peningum til að borga sínar sektir. 10.3.2007 19:00
Shaq stendur sig vel í fjarveru Wade Tröllið Shaquille O´Neal hjá Miami lék einn sinn besta leik á tímilinu í nótt þegar meistarar Miami lögðu Minnesota í NBA-deildinni í nótt, 105-91. O´Neal skoraði 32 stig, þar af 15 í fyrsta fjórðung, og hitti úr 13 af 16 skotum sínum í leiknum. 10.3.2007 12:47
Ellefu sigrar í röð hjá Spurs í NBA-deildinni Manu Ginobili skoraði 31 stig, þar af fimm þriggja stiga kröfur, þegar San Antonio Spurs vann Sacramento Kings 100-93 í NBA-deildinni í nótt. Þetta var ellefti sigur Spurs í röð í deildinni. 9.3.2007 10:21
Philadelphia - LA Lakers í beinni á Sýn í kvöld Leikur Philadelphia 76ers og LA Lakers verður sýndur beint á Sýn á miðnætti í kvöld. Heimamenn í Philadelphia eiga vart von á góðu í leiknum í kvöld, þar sem Kobe Bryant mun snúa aftur eftir eins leiks bann og setur eflaust á svið góða sýningu í heimafylki sínu. Liðin hafa verið á ólíku róli í undanförnum leikjum og hér fyrir neðan er létt upphitun fyrir leik kvöldsins. 9.3.2007 08:30
Varanlega skaddaður eftir árás lukkudýrs Maður nokkur í Indianapolis í Bandaríkjunum hefur höfðað skaðabótamál á hendur NBA liði Indiana Pacers. Hann segist búa við varanlegt líkamstjón eftir að hann varð fyrir árás lukkudýrs liðsins á leik fyrir ári, en það er sex feta há og blálit fígúra af kattarætt sem nefnist Boomer. 9.3.2007 04:03
Fjölnismenn sluppu við fallið Lokaumferðin í Iceland Express deild karla í körfubolta fór fram í kvöld. Þór frá Þorlákshöfn féll í 1. deild ásamt Haukum eftir að liðið tapaði 91-86 á heimavelli fyrir Íslandsmeisturum Njarðvíkur í kvöld. Á sama tíma unnu Fjölnismenn góðan sigur á Tindastól á heimavelli 94-87. Liðin urðu jöfn að stigum en Fjölnir vann innbyrðisviðureignir liðanna í vetur. 8.3.2007 21:12
Miami og Cleveland minna á sig Nokkrir athyglisverðir leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt og þar á meðal tveir stórleikir í Austurdeildinni. Miami burstaði Chicago á heimavelli og hefndi fyrir ófarirnar úr opnunarleik sínum í haust og Cleveland vann þýðingarmikinn útisigur á Detroit á útivelli í framlengingu. 8.3.2007 04:39
Kobe Bryant tók út bann í nótt Kobe Bryant hjá LA Lakers tók út eins leiks bann í nótt þegar lið hans steinlá á útivelli fyrir Milwaukee Bucks 110-90 á útivelli. Bryant fékk bannið fyrir að slá til Marco Jaric hjá Minnesota Timberwolves í fyrrinótt. 8.3.2007 04:27
Kobe Bryant aftur í bann? Svo gæti farið að Kobe Bryant hjá LA Lakers yrði í leikbanni í kvöld þegar liðið mætir Milwaukee Bucks á útivelli. Bryant fékk dæmda á sig sóknarvillu í leiknum sem var mjög lík þeirri sem hann fékk í leik gegn San Antonio í janúar og kostaði hann leikbann. 7.3.2007 17:16
Dallas öruggt í úrslitakeppnina Dallas Mavericks varð í nótt fyrsta liðið í NBA deildinni til að tryggja sér sæti í úrslitakeppninni þó enn sé langt eftir af deildarkeppninni. Dallas bætti enn félagsmet sitt og vann 16. leikinn í röð og 22. heimaleikinn í röð þegar liðið skellti New Jersey 102-89. Jason Terry skoraði 24 stig fyrir Dallas en Vince Carter 32 fyrir New Jersey. 7.3.2007 13:40
Troðslan kostaði 70 þúsund krónur C.J. Miles, tvítugur leikmaður Utah Jazz, átti heldur bitra innkomu með liði sínu í sigri á Charlotte Hornets í gærkvöld. Miles lék aðeins tvær mínútur í blálokin á stórsigri Utah, en uppskar lítið annað en 70 þúsund króna sekt. 6.3.2007 23:15
Shaquille O´Neal kennir börnum að léttast Miðherjinn Shaquille O´Neal hjá Miami Heat er nýjasti NBA leikmaðurinn sem tekur þátt í raunveruleikasjónvarpi. O´Neal verður gestur í þætti á ABC sjónvarpsstöðinni sem fjallar um offituvandamál barna í Bandaríkjunum. Þar mun hann ráðleggja börnum hvernig á að ná af sér aukakílóum, en svo má deila hvort hinn íturvaxni miðherji er rétti maðurinn í það verkefni, enda hefur hann oft verið full þéttur á velli í NBA deildinni. 6.3.2007 18:56
Artest settur út úr liði Sacramento Ron Artest hefur verið settur út úr liði Sacramento Kings um óákveðinn tíma eftir að hann var handtekinn fyrir heimilisofbeldi í gær. Kona hringdi í neyðarlínuna af heimili hans og hélt því fram að hann hefði ítrekað hrint sér í gólfið og hindrað hana í að hafa samband við lögreglu. 6.3.2007 14:55
Jón Arnór aftur traustur í lokin Körfubolti Jón Arnór Stefánsson hitti úr tveimur úrslitavítaskotum á lokasekúndunum í 78-77 útisigri Lottomatica Roma á VidiVici Bologna í ítalska körfuboltanum. 6.3.2007 11:45
Endurkoma Mings dugði ekki gegn Cleveland Endurkoma Kínverjans Yaos Ming í lið Houston Rockets eftir meiðsli dugði liðinu ekki því það tapaði fyrir Cleveland Cavaliers 91-85 í NBA-deildinni í gær. Ming skoraði 16 stig í leiknum og tók 11 fráköst en LeBron James skyggið á hann með 32 stig og 12 fráköst í liði Cleveland. 6.3.2007 09:15
Páll Axel Vilbergsson átti stórleik gegn Keflavík Grindavík vann í gær sanngjarnan sigur á grönnum sínum í Keflavík. Mikið var skorað í leiknum sem var hraður og skemmtilegur. Sautján stiga sigur Grindavíkur, 117-99, tryggði liðinu betri árangur í innbyrðis viðureignum liðanna. Grindavík á því enn möguleika á að stela 5. sætinu í lokaumferð Iceland Express deildarinnar á fimmtudag. 6.3.2007 00:01
Ron Artest handtekinn Framherjinn Ron Artest hjá Sacramento Kings var handtekinn á heimili sínu í dag eftir að kona hringdi í neyðarlínuna þaðan og tilkynnti að hún hefði verið beitt ofbeldi. Artest var færður á lögreglustöð og er þetta í þriðja sinn á nokkrum árum sem hann kemst í kast við lögin á þennan hátt. 5.3.2007 22:52
Grindavík vann Keflavík 116 - 99 Grindvíkingar sigruðu Keflvíkinga í suðurnesjaslag í Iceland Express deildinni í körfuknattleik í kvöld, 116 - 99. Leikurinn fór fram í Grindavík. Keflvíkingar byrjuðu leikinn betur en eftir fyrsta leikhluta tóku Grindvíkingar við sér og voru brátt skrefi á undan Keflavík og voru það það sem eftir lifði leiks. 5.3.2007 21:48
KR bar siguorð af Tindastól KR bar sigur úr býtum í viðureign sinni við Tindastól í Iceland Express deildinni í körfubolta í kvöld. Leikurinn fór fram á Sauðarkróki og endaði 81 - 99. Leikurinn byrjaði með látum og í upphafi var Tindastóll með forustuna. Kr-ingar tóku þó fljótlega við sér og voru skrefinu á undan það allt þangað til í þriðja leikhluta en þá varð jafnt á milli liðanna. Í upphafi fjórða leikhluta lokuðu KR-ingar vörninni og því fór sem fór. 5.3.2007 21:18
Wade ætlar í endurhæfingu Dwyane Wade, leikmaður Miami Heat og verðmætasti leikmaður lokaúrslitanna í NBA síðasta vor, tilkynnti nú síðdegis að hann ætli að reyna að vera með liði sínu í úrslitakeppninni sem hefst þann 21. apríl. Wade fór úr axlarlið á dögunum og þarf í uppskurð, en hann hefur nú ákveðið að reyna að fresta því þangað til í sumar. 5.3.2007 17:13
Endurkoma Yao Ming í beinni á NBA TV í kvöld Kínverski risinn Yao Ming snýr væntanlega aftur með liði Houston Rockets í NBA deildinni í kvöld þegar liðið sækir Cleveland Cavaliers heim klukkan tólf á miðnætti. Leikurinn verður sýndur beint á NBA TV-rásinni á Fjölvarpinu. Ming hefur misst úr 32 leiki vegna fótbrots, en hann var með 27 stig og 9 fráköst að meðaltali í leik áður en hann meiddist. 5.3.2007 14:36
100 stiga skoteinvígi í Milwaukee Ben Gordon og Michael Redd buðu upp á skotsýningu í nótt þegar Chicago Bulls lagði Milwaukee Bucks 126-121 í framlengdum leik í NBA deildinni. Gordon og Redd skoruðu samanlagt 100 stig í leiknum. 5.3.2007 04:19
Haukar fallnir Haukar féllu í kvöld í 1. deildina í körfubolta eftir 88-78 tap fyrir Íslandsmeisturum Njarðvíkur. ÍR lagði Þór 83-73, Hamar lagði Fjölni 87-75 og Snæfell lagði granna sína í Skallagrími 79-72 í Stykkishólmi. Það ræðst svo í lokaumferðinni hvort það verður Fjölnir eða Þór sem fylgir Haukum niður um deild. 4.3.2007 21:33
New Orleans - Utah í beinni í nótt Leikur New Orleans Hornets og Utah Jazz verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu klukkan eitt í nótt. Þarna er á ferðinni áhugavert einvígi leikstjórnendanna Chris Paul og Deron Williams, sem eru án efa leikstjórnendur framtíðarinnar í NBA. 4.3.2007 19:52