Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Blackburn í 8-liða úrslit - Arsenal úr leik Arsenal féll úr leik í annari bikarkeppninni á nokkrum dögum í kvöld þegar liðið lá 1-0 fyrir Blackburn í 16-liða úrslitum enska bikarsins. Það var Suður-Afríkumaðurinn Benni McCarthy sem tryggði Blackburn sigurinn með frábæru marki á 87. mínútu og mætir liðið Manchester City í næstu umferð. Hann segir Blackburn hafa slegið út besta liðið í úrvalsdeildinni. 28.2.2007 21:50
Newcastle fær aðeins milljón vegna meiðsla Owen Alþjóða knattspyrnusambandið FIFA hefur boðið enska úrvalsdeildarliðinu Newcastle eina milljón punda í skaðabætur vegna meiðsla sem Michael Owen varð fyrir í leik Englendinga og Svía á HM síðastliðið sumar. 28.2.2007 22:15
Eiga ekki skilið að klæðast treyju West Ham Nokkrir af stuðningsmönnum West Ham í ensku úrvalsdeildinni hafa nú fengið sig fullsadda á ömurlegu gengi liðsins í deildinni í vetur. Í gær fór af stað undirskriftalisti meðal traustra stuðningsmanna félagsins þar sem lagt er til að kjörinu á leikmanni ársins hjá félaginu verði aflýst á þessu ári því enginn sé þess heiðurs verðugur. 28.2.2007 19:03
Arftakar Cafu og Carlos til United í sumar Manchester United gekk fyrir nokkru frá samningi við unga tvíbura frá liði Fluminese í Brasilíu, en þeir ganga í raðir liðsins í sumar þegar þeir verða 18 ára gamlir. Þeir heita Fabio og Rafael da Silva og eru vinstri og hægri bakverðir. Það er mál manna í Brasilíu að þeir bræður verði arftakar Roberto Carlos og Cafu hjá brasilíska landsliðinu. 28.2.2007 18:54
Chelsea að kaupa Portúgala Sky sjónvarpsstöðin greinir frá því í dag að Chelsea hafi gengið frá kaupum á portúgalska varnarmanninum Manuel da Costa frá PSV Eindhoven í Hollandi. Costa þessi er sagður valda því að spila hvaða stöðu sem er í vörninni og hefði liðið vel geta notað mann með þá hæfileika í vetur. Costa er tvítugur og samkvæmt portúgölskum fjölmiðlum gengur hann í raðir Chelsea í sumar. 28.2.2007 17:30
Roy Keane: Gráu hárunum fjölgar Harðjaxlinn Roy Keane segist nú vera farinn að njóta þess í fyrsta sinn að starfa sem knattspyrnustjóri. Keane tók við liði Sunderland í bullandi vandræðum í ensku 1. deildinni síðasta haust, en hefur náð að rífa liðið upp í fjórða sæti deildarinnar. 28.2.2007 17:00
Robben ósáttur Arjen Robben hefur nú viðurkennt opinberlega að hann sé orðinn þreyttur á því að halda ekki föstu sæti í liði Chelsea. Robben stóð sig vel í bikarúrslitaleiknum gegn Arsenal um síðustu helgi og lagði þar upp sigurmarkið fyrir Didier Drogba. 28.2.2007 16:32
Blackburn - Arsenal í beinni í kvöld Leikur Blackburn og Arsenal í fimmtu umferð deildarbikarsins verður sýndur beint á Sýn klukkan 20 í kvöld. Hér er um að ræða aukaleik liðanna eftir að fyrri leiknum lauk með markalausu jafntefli. Arsenal verður án fjölda lykilmanna í kvöld eins og Thierry Henry, Tomas Rosicky og Kolo Toure. 28.2.2007 16:15
Gerrard heimtar sigur á United Steven Gerrard fyrirliði Liverpool heimtar sigur og ekkert annað þegar lið hans tekur á móti toppliði Manchester United á laugardaginn. Hann segir sigur United fara langt með að tryggja liðinu titilinn og það vill hann ekki sjá gerast á Anfield. 28.2.2007 15:41
Tap á rekstri Man City Knattspyrnufélagið Manchester City hefur tilkynnt 7,1 milljón punda tap á rekstri félagsins á síðari helmingi fjárhagsársins 2006. Þetta eru mun lakari tölur en á sama tíma árið áður, en þá var hagnaðurinn nær 17 milljónir punda eftir söluna á Shaun Wright-Phillips til Chelsea. 28.2.2007 14:20
Ferguson: Eftirlaunin geta beðið Sir Alex Ferguson hjá Manchester United segist staðráðinn í að vinna í tvö ár í viðbót. "Ég ákvað að hætta árið 2002, en sá mikið eftir því og mér leið miklu betur eftir að ég skipti um skoðun ákvað að halda áfram. Eftirlaunin geta beðið," sagði Skotinn. 28.2.2007 13:54
Fowler í viðræðum við félag í MLS Steve Nicol, fyrrum leikmaður Liverpool og núverandi þjálfari New England Revolution í MLS deildinni í Bandaríkjunum, segist vera í viðræðum við fyrrum félaga sinn Robbie Fowler um að koma vestur um haf. Fowler er samningslaus hjá Liverpool í sumar. 28.2.2007 13:46
Ferguson: Besta byrjun sem ég hef séð Sir Alex Ferguson var mjög ánægður með sigurinn á Reading í enska bikarnum í kvöld og sagði byrjun sinna manna hafa verið þá bestu sem hann hefði séð í sinni stjórnartíð. Hann viðurkenndi þó að um hann hefði farið þegar heimamenn minnkuðu muninn. 27.2.2007 23:02
Reading úr leik þrátt fyrir hetjulega baráttu Manchester United er komið í 8-liða úrslit enska bikarsins eftir 3-2 sigur á Reading í kvöld. United komst í 3-0 eftir aðeins sex mínútur í leiknum en heimamenn minnkuðu muninn fyrir hlé og hleyptu svo spennu í leikinn í lokin með því að minnka muninn í eitt mark skömmu fyrir leikslok. Brynjar Björn Gunnarsson átti skot í slá í lokin, en United slapp með skrekkinn. 27.2.2007 22:00
Ferguson: Allt í góðu hjá okkur Beckham Sir Alex Ferguson segir að hann og David Beckham séu ágætis vinir þó enn sé talað um að deilur þeirra hafi valdið því að Beckham fór frá Manchester United árið 2003. Þeir félagar munu hittast í sérstökum hátíðarleik á Old Trafford þann 13. mars næstkomandi. 27.2.2007 17:08
Reading - Man Utd í beinni í kvöld Síðari leikur Reading og Manchester United í 16-liða úrslitum enska bikarsins verður sýndur beint á Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 19:50. Brynjar Björn Gunnarsson og Ívar Ingimarsson verða báðir í byrjunarliði Reading í kvöld, en það var einmitt glæsilegt mark Brynjars á Old Trafford sem tryggði Reading aukaleikinn í kvöld. 27.2.2007 16:37
Hélt að Terry væri dauður Markvörðurinn Manuel Almunia hjá Arsenal segist hafa óttast að John Terry væri dauður þegar hann lá hreyfingarlaus á vellinum eftir að hafa fengið spark í höfuðið í bikarúrslitaleik Chelsea og Arsenal um helgina. 27.2.2007 16:30
Áfrýjun Keane vísað frá Enska knattspyrnusambandið tilkynnti í dag að rauða spjaldið sem Robbie Keane fékk að líta í sigri liðsins á Bolton um helgina muni standa. Keane þótti hafa varið skot Bolton á marklínu með höndinni, en þrátt fyrir mótmæli og áfrýjun Keane þarf hann nú að taka út leikbann með liði sínu. Keane stal senunni í leiknum þar sem hann skoraði tvö mörk, lagði upp eitt og lét reka sig af velli í fyrri hálfleik. 27.2.2007 16:08
Bentley framlengir við Blackburn Miðjumaðurinn David Bentley hjá Blackburn hefur skrifað undir framlengingu á samningi sínum við félagið til ársins 2011. Bentley er 22 ára gamall og hefur hann spilað mjög vel í vetur. Hann gekk í raðir Blackburn frá Arsenal í janúar í fyrra og hefur skorað sex mörk á leiktíðinni. 27.2.2007 14:29
Ótrúleg byrjun á Madejski Það er sannarlega mikið fjör á Madejski leikvellinum í kvöld þar sem Reading tekur á móti Manchester United í enska bikarnum. United komst í 3-0 þegar innan við sex mínútur voru liðnar af leiknum, en Reading minnkaði muninn eftir 23 mínútur. Saha, Solskjær og Heinze skoruðu fyrir United, en Kitson mark Reading. Leikurinn er í beinni á Sýn og er staðan 3-1 í hálfleik. 27.2.2007 20:29
Fowler vill nýjan samning hjá Liverpool Enski framherjinn Robbie Fowler vonast til þess að fá samning sinn við Liverpool framlengdan þrátt fyrir að hann fái ekki mörg tækifæri hjá liðinu um þessar undir. Hinn 31 árs gamli Fowler skoraði um síðustu helgi sín fyrstu deildarmörk frá því í ágúst, en hann hefur engu að síður mikla trú á sjálfum sér. 26.2.2007 21:14
Arsenal og Chelsea áfrýja gegn rauðum spjöldum Arsenal og Chelsea hafa ákveðið að áfrýja gegn rauðu spjöldunum sem leikmenn þeirra Emmanuel Adebayor og John Obi Mikel.fengu í bikarúrslitaleik liðanna í gær. Tvímenningarnir fengu reisupassann fyrir sinn þátt í uppákomunni sem átti sér stað undir lok leiksins ásamt Kolo Toure. Arsenal sættir sig hins vegar við spjaldið sem hann fékk. 26.2.2007 19:44
Terry man ekkert eftir síðari hálfleik John Terry, fyrirliði Chelsea, man ekkert eftir höfuðhögginu sem hann varð fyrir í úrslitaleik deildabikarsins gegn Arsenal í gær. Það síðasta sem Terry man var þegar hann gekk út úr búningsklefanum í hálfleik en síðan vissi hann ekki af sér fyrr en hann kominn á sjúkrahús. Allur tími þar á milli, eða rúm klukkustund, er horfið úr minni Terry. 26.2.2007 19:43
Adebayor: Ég gerði ekkert rangt Emmanuel Adebayor, framherji Arsenal, kveðst ekki skilja af hverju hann fékk að líta rauða spjaldið fyrir þátt sinn í ryskingunum sem áttu sér stað undir lok bikarúslitaleiksins gegn Chelsea í gær. Adebayor segist ekki hafa gert neitt rangt. 26.2.2007 11:49
Giggs segir Man. Utd. ekki mega slaka á Ryan Giggs, miðvallarleikmaður Manchester United, segist hafa nægilega mikla reynslu til að fullyrða að barátta liðsins við Chelsea um enska meistaratitilinn eigi eftir að þróast í nýja átt áður en tímabilið er á enda. Giggs segir að þrátt fyrir að Man. Utd. sé með níu stiga forskot á toppi deildarinnar séu úrslit deildarinnar fjarri því að vera ráðin. 25.2.2007 21:00
Wenger miður sín yfir hegðun leikmanna sinna Arsene Wenger, stjóri Arsenal, harmar hegðun leikmanna sinna undir lok leiksins gegn Chelsea í deildabikarnum í dag, en tveir lærisveina hans var vikið af leikvelli eftir ryskingar. Wenger kveðst þó afar stoltur af spilamennsku síns liðs í leiknum. 25.2.2007 20:37
Meiðsli Terry ekki alvarleg Chelsea hefur staðfest að meiðslin sem fyrirliði liðsins John Terry varð fyrir í úrslitaleik deildabikarsins í dag eru ekki alvarleg. Terry hlaut einungis heilahristing og ætti að verða orðinn heill heilsu eftir nokkra daga. Hann hefur þegar yfirgefið sjúkrahúsið í London sem hann var fluttur á eftir að hafa fengið höfuðhöggið þunga. 25.2.2007 20:32
Leikmenn Chelsea tileinka Terry sigurinn Hugur leikmanna Chelsea er hjá John Terry og tileinka þeir fyrirliða sínum sigurinn, en hann var borinn af velli hálf meðvitundarlaus í úrslitaleik deildabikarsins gegn Arsenal í dag. Jose Mourinho hrósaði liði Arsenal í hástert en sagði betra liðið hafa unnið leikinn. 25.2.2007 17:52
Terry fluttur á sjúkrahús John Terry, fyrirliði Chelsea, var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa rotast í viðureign liðsins gegn Arsenal í dag. Að sögn Sky-fréttastofunnar í Englandi þjáðist Terry af ógleði og minnisglöppum þegar hann var borinn af velli um miðjan síðari hálfleik og því var ákveðið að taka enga áhættu. Frank Lampard tók á móti bikarnum í hans stað. 25.2.2007 17:25
Chelsea sigraði Arsenal í deildabikarnum Chelsea tryggði sér nú rétt í þessu enska deildabikarinn með því að leggja Arsenal af velli í úrslitaleik, 2-1. Didier Drogba var hetja Chelsea og skoraði bæði mörk liðsins eftir að Theo Walcott hafði komið Arsenal yfir. Þrír leikmenn fengu að líta rauða spjaldið undir lok leiksins eftir slagsmál leikmanna. 25.2.2007 17:05
Vandræðalaust hjá Tottenham gegn Bolton Tottenham átti ekki í neinum vandræðum með að leggja Bolton af velli í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag en eftir aðeins 20. mínútna leik var liðið komið með þriggja marka forystu. Lokatölur urðu 4-1 og er Tottenham komið upp í níunda sæti deildarinnar. Tveir aðrir leikir fóru fram í Englandi í dag. 25.2.2007 16:58
Drogba búinn að koma Chelsea yfir Didier Drogba er búinn að skora sitt annað mark og koma Chelsea yfir gegn Arsenal í úrslitum enska deildabikarsins. Markið skoraði Drogba á 82. mínútu, með frábærum skalla eftir fyrirgjöf Arjen Robben. Arsenal hefur þó líklega um stundarfjórðung til að jafna leikinn en miklar tafir urðu þegar John Terry var borinn af velli. 25.2.2007 16:44
Inter heldur sigurgöngunni áfram Inter Milan burstaði Catina á útivelli í ítölsku A-deildinni í dag, 5-2, og vann sinn 17. sigur í röð í deildinni. Fjögur markanna komu í síðari hálfleik. Inter heldur 14 stiga forystu í deildinni en Roma er áfram í öðru sæti eftir 3-0 sigur á Reggina. 25.2.2007 16:38
Jafnt hjá Chelsea og Arsenal í hálfleik Staðan er ennþá jöfn, 1-1, þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign Chelsea og Arsenal í úrslitum deildabikarsins. Theo Walcott og Didier Drogba skoruðu mörkin í upphafi leiks en fyrri hálfleikurinn hefur verið frábær skemmtun. 25.2.2007 15:43
Drogba búinn að jafna fyrir Chelsea Didier Drogba er búinn að jafna metið fyrir Chelsea gegn Arsenal í deildabikarnum úr fyrstu alvöru sókn Chelsea í leiknum. Markið er skráð á 20. mínútu en það sem af er leik hefur Arsenal ráðið lögum og lofum á vellinum. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. 25.2.2007 15:20
Arsenal komið yfir í úrslitaleiknum Theo Walcott er búinn að koma Arsenal yfir í leiknum gegn Chelsea í úrslitaleik enska deildabikarsins. Markið skoraði Walcott á 12. mínútu leiksins með góðu skoti úr vítateignum. Forysta Arsenal er fyllilega verðskulduð og hafa hinir ungu leikmenn liðsins spilað Chelsea sundur og saman á upphafsmínútunum. 25.2.2007 15:13
Tevez: Ég náði engu sambandi við Pardew Carlos Tevez, leikmaður West Ham, segir að samband sitt við Alan Pardew, fyrrum stjóra liðsins, hafi verið miður gott og að hann arftaki hans, Alan Curbishley, sé allt annar og betri þjálfari. Tevez fékk ekki mörg tækifæri hjá Pardew en mátti þola 4-0 tap fyrir honum í gær þegar West Ham mætti Charlton. 25.2.2007 14:45
Almunia vill verða markvörður númer eitt Markvörðurinn Manuel Almunia hjá Arsenal telur að úrslitaleikurinn gegn Chelsea í deildabikarnum í dag sé tilvalin vettvangur fyrir sig að sanna tilverurétt sinn í byrjunarliði Arsenal. Almunia hefur verið varamaður fyrir Jens Lehman undanfarin ár en margt bendir til þess að þýski markvörðurinn sé á förum frá Arsenal í sumar. 25.2.2007 14:45
Mourinho: Við megum ekki missa Lampard Jose Mourinho hefur ítrekað fyrir foráðamönnum Chelsea hversu mikilvægt það er fyrir félagið að samningur miðjumannsins Frank Lampard verði endurnýjaður. Mourinho segir Lampard vera einstakan og lýsir afleiðingunum af hugsanlegri brottför hans frá félaginu sem hrikalegum. 25.2.2007 14:45
Anelka gæti klárað ferilinn hjá Bolton Franski framherjinn Nicolas Anelka hjá Arsenal hefur lýst því yfir að hann sé jafnvel reiðubúinn að klára feril sinn hjá Bolton, svo ánægður sé hann í herbúðum liðsins. Stjórinn Sam Allardyce þótti taka nokkra áhættu þegar hann samdi við Anelka fyrir þetta tímabil, en sá franski hefur reynst liðinu afar vel og skorað nokkur mikilvæg mörk. 25.2.2007 14:30
Everton upp í 7. sæti Everton komst upp í 7. sæti ensku úrvalsdeildarinnar í kvöld með sannfærandi 3-0 útisigri á Watford. Manuel Fernandez, Andy Johnson og Leon Osman skoruðu Everton í leiknum. Watford er komið með annan fótinn niður í 1. deild en liðið er sem fyrr í neðsta sæti með 19 stig, einu minna en West Ham. 24.2.2007 20:20
Eggert: Curbishley er öruggur í starfi sínu Stjórn West Ham, með Eggert Magnússon í fararbroddi, hefur frá sér yfirlýsingu eftir tap liðsins gegn Charlton í ensku úrvalsdeildinni í dag þar sem fram kemur að knattspyrnustjórinn Alan Curbishley þurfi ekki að óttast að vera rekinn frá félaginu. Hvorki gengur né rekur hjá West og er liðið nú komið í afar vonda stöðu við botn deildarinnar. 24.2.2007 18:22
Ronaldo: Mjög ánægður með markið Cristiano Ronaldo var kampakátur eftir sigur Man. Utd. á Fulham í dag en hinn sjóðheiti portúgalski vængmaður skoraði sigurmark sinna manna eftir stórkostlegt einstaklingsframtak á lokamínútum leiksins. Ronaldo viðurkenndi þó að heppnin hafi verið með Man. Utd. í leiknum. 24.2.2007 18:15
Bjarni skoraði fyrir Bornemouth Bjarni Þór Viðarsson skoraði annað mark Bornemouth þegar liðið sigraði Oldham á útivelli, 2-1, í ensku 2.deildinni í dag. Bjarni, sem er í láni hjá liðinu frá Everton, skoraði markið á 30. mínútu en var síðan skipt af velli í hálfleik. Hinn fulltrúi Íslands í neðri deildunum í Englandi, Jóhannes Karl Guðjónsson, lék allan leikinn fyrir Burnley í 0-0 jafntelfi gegn Colchester. 24.2.2007 17:54
Mourinho: England er best í heimi Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, er ekki í vafa um að England sé helsta knattspyrnuland heims og þar langi honum þess vegna helst að vera sem allra lengst. Mourinho segir andrúmsloftið í kringum fótboltann á Englandi vera einstakt. 24.2.2007 17:30