Fleiri fréttir

Blikakonur minnkuðu forskot Þor/KA - Elín Metta með þrennu

Breiðablik og Valur unnu bæði góða útisigri í 11. umferð Pepsi-deild kvenna í kvöld. Blikakonur minnkuðu forskot Þór/KA á toppnum í fimm stig og Valskonur komust upp í fjórða sæti deildarinnar en þær nýttu sér þar óvænt tap ÍBV á móti FH í kvöld.

FH burstaði ÍBV aftur - Guðrún Jóna byrjar vel

FH vann óvæntan 3-0 sigur á ÍBV í Vestmannaeyjum í kvöld þegar liðin mættust í 11. umferð Pepsi-deildar kvenna. ÍBV var tveimur sætum og átta stigum á undan FH fyrir leikinn en það hentar greinilega FH-stelpum vel að mæta Eyjaliðinu því FH vann fyrri leikinn 4-1.

Harpa tryggði Stjörnunni mikilvægan sigur

Harpa Þorsteinsdóttir tryggði Íslandsmeisturum Stjörnunnar þrjú mikilvæg stig í toppbaráttu Pepsi-deildar kvenna í kvöld þegar hún skoraði sigurmarkið á móti Fylki átta mínútum fyrir leikslok. Stjarnan vann leikinn 3-2 og er því eins og Breiðablik fimm stigum á eftir toppliði Þór/KA.

Umfjöllun og viðtöl: KR - HJK Helsinki 1-2 | KR-ingar úr leik

KR-ingar eru úr leik í Evrópukeppninni eftir 1-2 tap á KR-vellinum fyrir finnsku meisturunum í HJK Helsinki í seinni leik liðanna í forkeppni Meistaradeildarinnar. Finnarnir unnu fyrri leikinn 7-0 og þar með 9-1 samanlagt. Emil Atlason skoraði eina mark KR þegar hann minnkaði muninn 17 mínútum fyrir leikslok.

Hörður: Pottur brotinn hjá KSÍ

Hörður Magnússon var í viðtali hjá Hirti Hjartarsyni í Boltanum í X-inu í morgun. Þar var meðal annars komið inn á harkaleg ummæli sem Garðar Gunnlaugsson, leikmaður ÍA, lét falla á Facebook í gær.

Jesper Jensen á leið til ÍA

Jesper Jensen er að öllu óbreyttu á leið til ÍA en hann kemur til landsins á morgun og mun gangast undir læknisskoðun á fimmtudaginn.

Garðar: Ummælin skrifuð í blindri reiði

Garðar Gunnlaugsson, leikmaður ÍA, sér eftir þeim orðum sem setti inn á Facebook-síðu sína í gærkvöldi en þá gagnrýndi hann Hörð Magnússon, stjórnanda Pepsi-markanna, harkalega.

Elfar Freyr samdi við Stabæk

Elfar Freyr Helgason hefur gengið til liðs við norska úrvalsdeildarliðið Stabæk og mun spila með liðinu til loka leiktíðarinnar.

Pepsi-mörkin | Markaregnið úr tólftu umferð

Tólfta umferðin í Pepsi-deild karla var gerð upp í Pepsi-mörkunum á Stöð 2 sport í gærkvöld. Þar voru öll mörkin úr umferðinn sýnd og það er hljómsveitin Cure sem sá um tónlista - Just like heaven.

Paul McShane til Aftureldingar

Paul McShane samdi í kvöld við Aftrueldingu og mun leika með liðinu það sem eftir lifir tímabilsins í 2. deild karla. Þetta kom fram í fréttatilkynningu frá Aftureldingu í kvöld.

Dramatískt á Akranesi | Myndir

ÍA og Breiðablik gerðu 1-1 jafntefli í Pepsi-deild karla þar sem bæði mörkin komu á lokamínútum leiksins.

Framarar unnu Reykjavíkurslaginn | Myndir

Bretarnir Sam Tillen og Steve Lennon voru báðir á skotskónum þegar að Fram hafði betur gegn Val í Reykjavíkurslag í Pepsi-deild karla í kvöld.

Logi: Súrt og niðurlægjandi

Logi Ólafsson var vitanlega ekki sáttur við frammistöðu sinna manna í kvöld en Selfoss tapaði fyrir ÍBV, 1-0, þrátt fyrir að Eyjamenn misstu mann af velli með rautt spjald strax á fyrstu mínútu.

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Keflavík - Fylkir 0-2

Fylkir vann góðan sigur á Keflavík í miklum rok leik í Keflavík í kvöld 2-0 þar sem mörkin komu síðasta stundarfjórðunginn. Staðan í hálfleik var 0-0 en bæði lið fengu fín færi áður en fyrsta markið leit dagsins ljós.

Ákvörðunin um að hætta í haust stendur óhögguð

"Ég ákvað að taka þetta bara alla leið síðasta vetur. Ég hef æft mjög vel, byrjaði í fótbolta strax í nóvember, eitthvað sem ég hef ekki gert undanfarin ár. Og allavega hingað til hefur þetta gengið ágætlega", sagði Bjarki Bergmann Gunnlaugsson, leikmaður FH í viðtali í Boltanum á X-inu í morgun.

"Neitaði engum um viðtal"

Guðjón Þórðarson, þjálfari Grindvíkinga í knattspyrnu segir það ekki rétt að hann hafi neitað að veita fjölmiðlum viðtal eftir tapleik liðsins í Pepsideild karla gegn FH í gærkvöld. Þetta sagði hann í viðtali við Hjört Hjartarson í útvarpsþættinum Boltanum á X-inu í morgun.

Bein útsending: Pepsi-mörkin á Vísi

Nýliðin umferð í Pepsi-deild karla verður gerð upp í nýjasta þætti Pepsi-markanna sem sýndur verður í beinni útsendingu hér á Vísi.

Rætt verður Guðjón Þórðarson á Boltanum á X-inu

Það verður komið víða við í íþróttaþættinum Boltanum á X-inu 977 á milli 11-12 í dag. Þar mun Hjörtur Hjartarson ræða m.a. við Guðjón Þórðarson þjálfara Grindavíkur. Bjarki Bergmann Gunnlaugsson leikmaður FH verður einnig í viðtali. Þátturinn hefst kl. 11. og er hægt að hlusta á hann með því að smella hér.

Leik ÍBV og Selfoss frestað til morguns

Viðureign ÍBV og Selfoss í 12. umferð Pepsi-deildar karla sem fara átti fram á Hásteinsvelli í Eyjum klukkan 16 í dag hefur verið frestað til morguns vegna veðurs. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Knattspyrnusambandi Íslands.

Ásgeir Þór lánaður til Leiknis

Markvörðurinn Ásgeir Þór Magnússson hefur verið lánaður frá Pepsi-deildarliði Vals til Leiknis sem leikur í næstefstu deild.

Framkvæmdastjóri KSÍ svarar gagnrýni Tindastóls

Halldór Sigurðsson, þjálfari karlaliðs Tindastóls í knattspyrnu sem leikur í 1. deild, var harðorður í garð Knattspyrnusambands Íslands í viðtali í Boltanum á X-inu 977 í gær.

Sigurvin Ólafsson spilar með Fylki út tímabilið

Miðjumaðurinn reyndi, Sigurvin Ólafsson, hefur gengið til liðs við Fylki. Sigurvin hefur verið á láni hjá SR í 3. deildinni það sem af er tímabilinu. Þetta kemur fram á Fótbolti.net.

Sjá næstu 50 fréttir