Íslenski boltinn

Ásgeir Þór lánaður til Leiknis

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Markvörðurinn Ásgeir Þór Magnússson hefur verið lánaður frá Pepsi-deildarliði Vals til Leiknis sem leikur í næstefstu deild.

Ásgeir Þór, sem er samningsbundinn Val, er uppalinn hjá Leikni en gekk til liðs við Valsmenn árið 2008.

Hann var í láni hjá Hetti á síðasta tímabili og góð frammistaða hans fyrir austan varð til þess að hann var valinn í U21 árs landsliðið.

Ásgeir spilaði fjóra leiki í deild og tvo í bikar með Valsmönnum í sumar.

Hinn 35 ára Ólafur Þór Gunnarsson var í markinu í sigurleik Vals gegn FH á dögunum. Í viðtali eftir leikinn sagðist Kristján Guðmundsson, þjálfari Vals, að Ólafur Þór myndi að óbreyttu einnig byrja næsta leik.

Leiknir situr í næstneðsta sæti 1. deildar en Eyjólfur Tómasson hefur varið mark liðsins í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×