Þórir: Ummæli Garðars dónaleg | Óvíst hvort ummælin fari fyrir aganefnd Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. júlí 2012 11:12 Þórir Hákonarson, framkvæmdarstjóri KSÍ. Mynd/Pjetur „
Ósmekklegt og dónaskapur." Þannig lýsti Þórir Hákonarson, framkvæmdarstjóri KSÍ, skrifum Garðars Gunnlaugssonar, leikmanns ÍA, á Facebook í gær. Garðar fór ófögrum orðum um Hörð Magnússon, íþróttafréttamann og stjórnanda Pepsi-markanna, á Facebook-síðu sinni í gær. Var hann ósáttur við gagnrýni Harðar á sig í þættinum. KSÍ birti fyrr í sumar yfirlýsingu á heimasíðu sinni þar sem „aðildarfélög KSÍ eru hvött til að brýna það fyrir sínum félagsmönnum að fara varlega í færslur sínar á samskiptavefjunum." „Aðgát skal höfð í nærveru sálar er orðatiltæki sem gæti átt við hér. Það er ekki sama hvað sett er á Facebook eða Twitter," sagði meðal annars. Í fréttinni er einnig tilgreint að framkvæmdarstjóra KSÍ er heimilt að skjóta ummælum leikmanna til aganefndar en Þórir gat ekki fullyrt hvort hann myndi gera það í þessu tilfelli, enda beindust orðin ekki gegn aðila innan knattspyrnuhreyfingarinnar. „Það er spurning hvort að það er hægt. Íþróttafréttamenn eru vitaskuld beinir aðilar að íþróttinni en samt ekki," sagði hann. Í 18. grein reglugerðar KSÍ um aga- og úrskurðarmál segir eftirfarandi: „Framkvæmdastjóra KSÍ er heimilt að vísa til aga- og úrskurðarnefndar atvikum sem skaðað geta ímynd knattspyrnunnar eða þeirra sem þátt taka í leiknum. Slík atvik hafa þá ekki komið fram í atvikaskýrslum dómara og/eða eftirlitsmanns á leiknum en geta verið hvers kyns ósæmileg framkoma á leikstað eða á annan hátt opinberlega." Gísli Gíslason, stjórnarmaður í KSÍ, setti nafn sitt við færslu Garðars á Facebook með því að „líka við" færsluna. „Gísli verður að svara fyrir það sjálfur."
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Enski boltinn Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira