Íslenski boltinn

Alltaf jafnt hjá Stjörnunni og KR á teppinu | Stjarnan aldrei lagt KR

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Kjartan Henry hefur verið iðinn við kolann í Garðabænum síðustu tvö ár. Hann er hins vegar frá vegna meiðsla.
Kjartan Henry hefur verið iðinn við kolann í Garðabænum síðustu tvö ár. Hann er hins vegar frá vegna meiðsla. Mynd/Daníel
Stjarnan og KR mætast í toppslag 12. umferðar Pepsi-deildar karla á Samsung-vellinum í Garðabæ í dag. Öllum þremur viðureignum liðanna á teppinu í deildinni hefur lokið með jafntefli. Þá hefur Stjarnan aldrei lagt KR að velli í efstu deild.

2009 Stjarnan 1-1 KR

Stjarnan kom upp úr 1. deildinni sumarið 2008 og lék á meðal þeirra bestu 2009. Þá skildu liðin jöfn 1-1 í Garðabænum. Tryggvi Bjarnason jafnaði í viðbótartíma fyrir Stjörnuna gegn sínum gömlu félögum. Björólfur Takefusa skoraði mark KR úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik.

2010 Stjarnan 2-2 KR

Baldvin Sturluson kom heimamönnum yfir snemma leiks en Kjartan Henry Finnbogason svaraði með tveimur mörkum í hvorum hálfleik. Ólafur Karl Finsen jafnaði metin fyrir Garðbæinga skömmu fyrir leikslok.

2011 Stjarnan 1-1 KR

Tryggvi Sveinn Bjarnason var aftur í sviðsljósinu í fyrra þegar hann var rekinn af velli snemma í síðari hálfleiknum fyrir kjánalega tæklingu. Þá leiddu Stjörnumenn 1-0 með marki Jesper Holdt Jensen og höfðu verið mun betri aðilinn.

KR-ingar nýttu sér liðsmuninn og Kjartan Henry jafnaði um miðjan hálfleikinn með skallamarki.

Fróðlegt verður að sjá hvort og þá hversu mikinn þátt Englendingarnir Mark Doninger og Gary Martin leika með nýjum liðum sínum í dag. Doninger samdi við Stjörnuna út tímabilið en Martin skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við KR.

Þá verður spennandi að sjá hvernig KR-ingar bregðast við 7-0 tapinu gegn HJK Helsinki í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar á þriðjudaginn. Sá leikur fór einmitt fram á gervigrasi.

Leikur Stjörnunnar og KR hefst klukkan 16. Hann er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og einnig í beinni textalýsingu hér á Vísi.

Fréttin er að hluta unnin upp úr umfjöllun Óla Brynjars Halldórssonar á heimasíðu KR, sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×