Íslenski boltinn

Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Valur - Fram 0-2

Benedikt Grétarsson á Vodafone-vellinum skrifar
Mynd/Stefán
Fram vann í kvöld góðan og sannfærandi sigur á Val, 2-0, á Vodafone-vellinum í kvöld. Sam Tillen og Steven Lennon skoruðu mörk Framarar í leiknum.

Valsmenn misstu Hauk Pál Sigurðsson af velli með rautt spjald skömmu áður en Fram komst í 2-0 í leiknum en Valsmenn voru ekki ánægðir með þá ákvörðun Gunnars Jarls Jónssonar, dómara leikins.

Fyrri hálfleikur var með eindæmum tíðindalítill en þó voru þeir bláklæddu skömminni skárri. Síðari hálfleikur var mun fjörugri og gerðu gestirnir út um leikinn á tveggja mínútna kafla.

Tillen skoraði fyrst úr vítaspyrnu en Lennon síðara markið úr aukaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur.

Tillen: Vonandi fer Lenny ekkert

Sam Tillen átti virkilega góðan leik í liði Fram og var að vonum sáttur eftir leikinn. „Við vorum ágætir í fyrri hálfleik en vorum betri í þeim síðari. Þetta var sanngjarn sigur,“ sagði hann. „Það var auðvitað tvöfalt rothögg fyrir Val að missa mann af velli og fá svo mark í andlitið.“

Steven Lennon hefur verið orðaður við KR að undanförnu og gaf sjálfur ekki kost á viðtölum eftir leik. Tillen vildi lítið tjá sig um málefni hans.

„Hann svaraði nokkrum áleitnum spurningum á vellinum í kvöld og ég vona innilega að hann fari ekki neitt.“

Kristján: Vondur vítaspyrnudómur

„Við vorum arfaslakir í sóknarleik okkar og við getum ekki kvartað undan þessum úrslitum,“ sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari Vals. Hann var þó ósáttur við annað mark Framara og rauða spjaldið á Hauk Pál.

„Þetta var vondur dómur,“ sagði Kristján einfaldlega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×