Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
„Við vissum það að það væri erfitt verkefni að koma hérna og fara með þrjú stig héðan“ „Ég er mjög sáttur. Við vissum það að það væri erfitt verkefni að koma hérna og fara með þrjú stig héðan. Það er mjög gott og við erum á góðu skriði. Þeir eru auðvitað ósigraðir síðan að þeir komu hingað í Úlfarsárdal, þennan glæsilega heimavöll, þannig að ég er bara ánægður,“ sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, eftir 2-0 sigur á Fram í kvöld. 22.8.2022 21:48
„Ég gleymdi þessu sjálfsmarki um leið“ Bjarki Aðalsteinsson, fyrirliði Leiknis, skoraði sjálfsmark í 4-3 sigri þeirra á KR-ingum. Það skipti hann hins vegar litlu máli eftir leikslok. 22.8.2022 21:30
Umfjöllun og viðtöl: Fram-Breiðablik 0-2| Blikar fyrstir til að vinna Framara í Úlfarsárdal Fram tók á móti Breiðabliki í 18. umferð Bestu deildar karla í fótbolta í kvöld. Fram hafði ekki tapað leik á nýjum heimavelli sínum í Úlfarsárdal. Breiðabliki, topplið Bestu deildar karla í fótbolta, tókst hinsvegar að breyta því og vann 2-0. 22.8.2022 21:15
Fyrsti sigur Erik ten Hag kom gegn Liverpool Manchester United vann 2-1 sigur gegn erkifjendunum í Liverpool í stórleik umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni en þetta var aðeins annar sigurleikur United á Liverpool í síðustu 13 tilraunum. 22.8.2022 21:00
Umfjöllun,viðtöl og myndir: FH-Keflavík 3-0| Endurreisn FH hófst á sigri Fyrir leikinn blésu FH-ingar í herlúðra. Boðið var meðal annars frítt á völlinn og var þetta leikurinn sem FH átti að snúa blaðinu við. Keflavík missti mann af velli á 6. mínútu. Einum fleiri skoruðu FH-ingar tvö mörk í fyrri hálfleik.Úlfur Ágúst Björnsson gerði þriðja mark FH í síðari hálfleik og gulltryggði fyrsta sigur Eiðs Smára í Bestu deildinni. 22.8.2022 20:40
Úlfur: Búinn að vinna Keflavík með bæði FH og Njarðvík FH vann sannfærandi 3-0 sigur á Keflavík. Þetta var fyrsti sigur FH-inga í Bestu deildinni síðan í 6. umferð. Úlfur Ágúst Björnsson, leikmaður FH, skoraði tvö mörk og var í skýjunum eftir leik. 22.8.2022 20:30
Umfjöllun og viðtöl: Leiknir R. 4-3 KR | Markaveisla í Breiðholti Botnlið Bestu-deildarinnar, Leiknir, vann eins marks sigur á KR í sjö marka leik í Breiðholti, 4-3. Leiknir lyftir sér úr botnsæti deildarinnar með sigrinum á meðan tapið heggur skrað í Evrópudrauma KR-inga. 22.8.2022 20:00
Valgeir á toppinn eftir sigur gegn Aroni og Óla í Svíþjóð Valgeir Lunddal Friðriksson, leikmaður Häcken, lék allan leikinn í 0-1 sigri liðsins á útivelli gegn Aroni Bjarnasyni og Óla Val Ómarssyni, leikmönnum Sirius, í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld. 22.8.2022 19:15
Aron Elís hafði betur í Íslendingaslagnum í dönsku úrvalsdeildinni Odense vann dramatískan 1-0 sigur á Horsens í 6. umferð dönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld. 22.8.2022 18:55
Smalling tryggði Rómverjum sigur Roma heldur áfram góðri byrjun sinni á Ítalíu en liðið vann sinn annan sigur í jafn mörgum leikjum þegar Roma vann 1-0 sigur á Cremonese í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. 22.8.2022 18:29
Manchester United aflýsir liðsfundi vegna mótmæla Manchester United hefur aflýst fyrirhuguðum liðsfundi fyrir leik liðsins gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í kvöld vegna mótmælanna stuðningsmanna United. 22.8.2022 18:01
Evrópuboltinn nýfarinn að rúlla en keppni svo gott sem lokið í Frakklandi og Þýskalandi Það er ef til vill full hart í árina tekið að lýsa því yfir að keppni í efstu deild karla í fótbolta í bæði Frakklandi og Þýskalandi sé lokið en þannig virðist staðan hins vegar einfaldlega vera þegar þremur umferðum er lokið. 22.8.2022 17:30
Koulibaly heldur áfram að safna rauðum spjöldum Kalidou Koulibaly, miðvörður Chelsea, nældi sér í tvö gul spjöld og þar með rautt er Chelsea steinlá gegn Leeds United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta um helgina. Leikmaðurinn er duglegur að safna spjöldum og má ætla að hann næli í fleiri rauð í treyju Chelsea á komandi misserum. 22.8.2022 16:45
Sjáðu Messi og Mbappé búa til mark eftir aðeins átta sekúndur Kylian Mbappé setti nýtt met í gær þegar hann kom Paris Saint-Germain í 1-0 á móti Lille eftir aðeins átta sekúndna leik. Parísarliðið vann leikinn á endanum 7-1 þar sem Mbappé skoraði þrennu og næði Lionel Messi og Neymar voru með mark og stoðsendingu. 22.8.2022 15:45
„Veit ekkert hvenær ég brotnaði“ „Þetta er mikill skellur en um leið er þetta bara partur af þessu,“ segir Adolf Daði Birgisson, einn af ungu leikmönnum sem slegið hafa gegn í liði Stjörnunnar í Bestu deildinni í sumar. Tímabilinu er lokið hjá honum. 22.8.2022 14:31
Emil hættur eftir tvö hjartastopp Emil Pálsson lýsti því yfir í dag að knattspyrnuferli sínum væri lokið en ástæðan er sú að hann hefur tvisvar farið í hjartastopp á síðustu misserum. 22.8.2022 13:30
Kvöld sem gæti galopnað toppbaráttuna og gjörbreytt stöðu mála á botni deildarinnar Alls eru fjórir leikir á dagskrá í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Tveir þeirra gætu haft gríðarleg áhrif á toppbaráttuna á meðan hinir tveir geta breytt stöðu mála á botni deildarinnar. 22.8.2022 13:01
Rooney myndi ekki láta Ronaldo byrja í kvöld Wayne Rooney telur að sinn gamli liðsfélagi Cristiano Ronaldo eigi best heima á varamannabekknum í kvöld þegar Manchester United tekur á móti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta. 22.8.2022 12:30
Sara, Guðrún og Cloé gætu beðið Vals Það er ljóst að Íslandsmeistara Vals bíður krefjandi verkefni í umspilinu um að komast í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta kvenna. Mögulega mætir liðið Ítalíumeisturum Juventus, með landsliðsfyrirliðanna Söru Björk Gunnarsdóttur innanborðs. 22.8.2022 12:01
Skoraði áður en hann fékk bílprófið en náði ekki að vera undan pabba sínum Þeir eru ekki margir sem skora sitt fyrsta mark í efstu deild áður en þeir fá bílprófið en Skagamaðurinn Haukur Andri Haraldsson komst í þann hóp í gær. Hann náði þó ekki að slá fjölskyldumetið. 22.8.2022 11:31
Nökkvi Þeyr tók markamet Akureyrar af Hemma Gunn í gærkvöldi KA-maðurinn Nökkvi Þeyr Þórisson varð í gær sá leikmaður sem hefur skorað flest mörk á einu tímabili í efstu deild fyrir Akureyrarfélag. 22.8.2022 10:31
Ófarirnar halda áfram eftir að hann yfirgaf Liverpool Georginio Wijnaldum spilar ekki með Roma á næstunni og heimsmeistaramótið í Katar gæti verið í hættu hjá kappanum. 22.8.2022 10:00
Sjáðu heitasta leikmann deildarinnar skora þrjú og unga hetju tryggja ÍA sigur KA er aðeins þremur stigum á eftir toppliði Breiðabliks eftir sigur í Garðabæ og ÍA dró ÍBV niður í fallbaráttuna í Bestu deild karla í fótbolta. Mörkin úr leikjunum má nú sjá hér á Vísi. 22.8.2022 09:01
Klopp sýnir Ten Hag enga samúð Hollendingurinn Erik ten Hag stendur nú í svipuðum sporum og Þjóðverjinn Jürgen Klopp var í fyrir sjö árum. Ten Hag er ætlað að koma stórveldi Manchester United aftur í hæstu hæðir en strax heyrast efasemdaraddir um að hann sé maðurinn til þess, eftir slæm úrslit í fyrstu tveimur umferðum ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta. 22.8.2022 08:01
Búast við betrumbættu tilboði United í Antony Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United er sagt ekki vera tilbúið að gefast upp á vonum sínum að fá brasilíska vængmanninn Antony frá Ajax í sínar raðir áður en félagsskiptaglugginn lokar í lok ágústmánaðar. 22.8.2022 07:00
Stóð í tæpar tíu sekúndur eins og stytta áður en hann tók vítið Esmiraldo Sá Silva, leikmaður Feirense í portúgöslku B-deildinni, tók afar áhugaverða vítaspyrnu þegar hann jafnaði metin fyrir liðið í 1-1 jafntefli gegn Leixoes í kvöld. Hann stóð þá heillengi eins og stytta yfir boltanum áður en hann lét vaða. 21.8.2022 23:31
Mbappé skoraði fljótasta mark í sögu frönsku úrvalsdeildarinnar Kylian Mbappé átti sannkallaðan stórleik er Paris Saint-Germain vann risasigur gegn Lille í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld, 1-7. Mbappé skoraði þrennu fyrir frönsku meistarana, en fyrsta markið skoraði hann eftir aðeins átta sekúndur. 21.8.2022 23:00
„Síðustu tveir leikir eru ekki boðlegir hvað varðar mörk á okkur“ Ágúst Gylfason, þjálfari Stjörnunnar, sagði að sigur KA á hans mönnum í Bestu deildinni í kvöld, 2-4, hafi verið sanngjarn. 21.8.2022 22:08
„Viljum fara alla leið“ Nökkvi Þeyr Þórisson var eðlilega léttur í skapi eftir leik Stjörnunnar og KA enda skoraði hann þrennu í 2-4 sigri Akureyringa. 21.8.2022 21:56
Afmælisbarnið Lewandowski allt í öllu í öruggum sigri Börsunga Robert Lewandowski hélt upp á 34 ára afmælið sitt með því að skora sín fyrstu mörk í spænsku úrvalsdeildinni fyrir Barcelona í kvöld. Pólverjinn skoraði tvö er liðið vann öruggan 1-4 sigur gegn Real Sociedad. 21.8.2022 21:56
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Stjarnan - KA 2-4 | Takið okkur alvarlega Nökkvi Þeyr Þórisson skoraði þrjú mörk og lagði upp eitt þegar KA vann 2-4 sigur á Stjörnunni í Garðabænum í 18. umferð Bestu deildar karla í kvöld. Með sigrinum minnkuðu KA-menn forskot Blika á toppi deildarinnar niður í þrjú stig. 21.8.2022 21:45
Mbappé skoraði þrennu í risasigri PSG Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain lentu ekki í neinum vandræðum er liðið heimsótti Lille í frönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Liðið vann afar öruggan 1-7 sigur þar sem Kylian Mbappé skoraði þrennu fyrir gestina. 21.8.2022 20:48
Atalanta tók stig af Ítalíumeisturunum Ítalíumeistarar AC Milan björguðu stigi er liðið heimsótti sterkt lið Atalanta í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Lokatölur 1-1 eftir að heimamenn í Atalanta höfðu tekið forystuna í fyrri hálfleik. 21.8.2022 20:38
Sara lagði upp tvö í Meistaradeildarsigri Juventus Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, lagði upp tvö mörk Juventus er liðið tryggði sér sæti í umspili um laust sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu með 2-1 sigri gegn ísraelska liðinu Kiryat Gat í kvöld. 21.8.2022 20:26
Kristall Máni kom inn af bekknum í dramatískum sigri Rosenborg Kristall Máni Ingason og félagar hans í Rosenborg unnu dramatískan 2-1 sigur er liðið tók á móti Ålesund í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. 21.8.2022 19:55
„Þetta er langþráður sigur“ Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, var gríðarlega sáttur með frammistöðuna hjá sínum mönnum eftir 2-1 sigur á ÍBV í dag. Skagamenn komust yfir í fyrri hálfleik en ÍBV tókst að jafna í þeim seinni. Það var svo Skagamaðurinn ungi, Haukur Andri Haraldsson sem tryggði ÍA sigur með marki á 88. mínútu. 21.8.2022 19:37
Villarreal með fullt hús stiga eftir útisigur gegn Atlético Madrid Villarreal hefur nú unnið báða leiki sína í upphafi tímabils í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir að liðið vann 0-2 útisigur gegn Atlético Madrid í kvöld. 21.8.2022 19:32
Svava kom inn af bekknum er Brann tryggði sér sæti í umspili Svava Rós Guðmundsdóttir lék seinustu 25 mínútur leiksins fyrir norska liðið Brann er liðið tryggði sér sæti í umspili um laust sæti í riðlakeppi Meistaradeildar Evrópu með 3-1 sigri gegn serbneska liðinu Subotica. 21.8.2022 18:54
Jón Dagur kom Leuven á bragðið er liðið vann öruggan sigur Jón Dagur Þorsteinsson skoraði fyrsta mark OH Leuven er liðið vann öruggan 1-3 sigur gegn St. Liege í belgísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. 21.8.2022 18:26
Þrír íslenskir sigrar í norsku deildinni Fjórir leikir fóru fram í norsku úrvalsdeildinni í kanttspyrnu í dag og voru Íslendingalið í eldlínunni í þremur þeirra ög öll unnu þau sigra. 21.8.2022 18:13
Sjö mörk er Bayern burstaði botnlið Bochum Þýskalandsmeistarar Bayern München lentu ekki í neinum vandræðum er liðið heimsótti Bochum í þýsku úrvalsdeildinni í kanttspyrnu í dag. Gestirnir unnu vægast sagt afar sannfærandi sigur, 0-7. 21.8.2022 17:49
Sjáðu mörkin: Arnór skoraði skrautlegu tapi Norrköping Íslendingalið Norrköping tapaði 4-2 á heimavelli fyrir AIK í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Norrköping var manni fleiri lungann úr leiknum en þrjú mörk voru skoruð í uppbótartíma. 21.8.2022 17:32
Englandsmeistararnir björguðu stigi gegn Newcastle Englandsmeistarar Manchester City sóttu hið nýríka félag Newcastle heim í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Lokatölur 3-3 í bráðfjörugum leik þar sem meistararnir lentu tveimur mörkum undir um miðjan síðari hálfleik. 21.8.2022 17:30
Valskonur í umspil eftir öruggan sigur Valskonur eru komnar í umspil um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu eftir öruggan 3-0 sigur gegn írska liðinu Shelbourne í Slóveníu í dag. 21.8.2022 17:21
Davíð Þór sendir ákall til FH-inga: Vill snúa hlutum við eftir óvægna gagnrýni og þunga umræðu Davíð Þór Viðarsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá FH, sendi í dag opið bréf til stuðningsmanna FH og kallaði eftir stuðningi við liðið sem er í bráðri fallhættu í Bestu deild karla. 21.8.2022 16:30