Íslenski boltinn

Sjáðu heitasta leikmann deildarinnar skora þrjú og unga hetju tryggja ÍA sigur

Sindri Sverrisson skrifar
Nökkvi Þeyr Þórisson glaðbeittur eftir eitt af mörkum sínum í Garðabæ í gærkvöld.
Nökkvi Þeyr Þórisson glaðbeittur eftir eitt af mörkum sínum í Garðabæ í gærkvöld. VÍSIR/HULDA MARGRÉT

KA er aðeins þremur stigum á eftir toppliði Breiðabliks eftir sigur í Garðabæ og ÍA dró ÍBV niður í fallbaráttuna í Bestu deild karla í fótbolta. Mörkin úr leikjunum má nú sjá hér á Vísi.

Dalvíkingurinn Nökkvi Þeyr Þórisson hélt áfram að fara á kostum og skoraði þrennu fyrir KA í 4-2 sigrinum gegn Stjörnunni í gærkvöld. Hann er þar með langmarkahæstur í deildinni með 16 mörk nú þegar KA hefur spilað 18 leiki. Liðið er þremur stigum á eftir Blikum sem spila gegn Fram í kvöld.

Alls voru fjögur mörk skoruð úr vítaspyrnum í Garðabæ í gær. Jóhann Árni Gunnarsson nýtti báðar spyrnur Stjörnunnar og tvö af mörkum Nökkva komu af vítapunktinum. Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði annað mark KA í leiknum og hefur því skorað í þremur deildarleikjum í röð.

Klippa: Mörkin úr leik Stjörnunnar og KA

Haukur Andri Haraldsson, sem er nýorðinn 17 ára, tryggði ÍA afar dýrmætan sigur gegn ÍBV með marki undir lok leiks. 

Haukur Andri, sem er bróðir Tryggva Hrafns í Val og landsliðsmannsins Hákons Arnars, skoraði þarna sitt fyrsta mark í efstu deild og stórbætti stöðu ÍA sem komst úr botnsæti deildarinnar og upp fyrir Leikni, sem þó á tvo leiki til góða.

Kristian Lindberg hafði komið ÍA yfir í fyrri hálfleik en Andri Rúnar Bjarnason jafnað metin fyrir ÍBV nokkrum sekúndum eftir að seinni hálfleikur hófst.

Klippa: Mörkin úr leik ÍA og ÍBV

Átjándu umferð Bestu deildarinnar lýkur í kvöld með fjórum leikjum og eru tveir þeirra í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport en hinum tveimur streymt á Bestu deildar rásunum. 

FH reynir að hefja endurreisn sína með sigri gegn Keflavík klukkan 18 og klukkan 20:15 er stórleikur á milli Víkings og Vals. Þessir leikir eru á Stöð 2 Sport en á Bestu deildar rásunum má sjá leikni Leiknis og KR, og Fram og Breiðabliks.


Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.


Tengdar fréttir

Umfjöllun og viðtöl: ÍA-ÍBV 2-1| Skagamenn með langþráðan sigur

ÍA vann langþráðan sigur á ÍBV í dag er liðin mættust í 18. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. ÍA sem hefur tapað sjö leikjum í röð mætti tvíeflt til leiks í dag og var það Skagamaðurinn ungi, Haukur Andri Haraldsson sem tryggði ÍA sigur á 88. mínútu. Lokatölur 2-1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×